Morgunblaðið - 15.06.1979, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 15.06.1979, Qupperneq 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ1979 Atvinnurekendur eru alvarlega minntir á aö tilkynna viökomandi bæjar- eöa sveitarstjórnarskrifstofu um starfsmenn sína. Vanræksla á tilkynningarskyldu þessari svo og vanræksla á aö halda eftir af kaupi starfsmanna upp í útsvar veldur því aö launagreiðandi veröur ábyrgur fyrir útsvarsgreiöslum starfs- manna sinna sem eigin útsvarsskuld. Samtök eftirtalinna sveitarfélaga i Reykjanesumdæmi: Bessastaöahrepps, Garöabæjar, Kópavogs, Seltjarnarness, Mosfellshrepps og Kjalaraeshrepps Batar Lengd 4,30 m. Breidd 1.90 m. Vigt 210 kg. Tvofaldur, ósökkvanlegur. Gengur 16 hnúta með 15 ha. vél. Verð 680.000.- m ■ ■■■“ Lengd 5,42 m. Breidd 2.10 m. Vigt 390 kg. Tvofaldur ósökkvanlegur. Gengur 16 hnúta meö 20 ha. vél. Verð 1.480.000.- Lengd 5,82 m. Breidd 2.10 m. Vigt 600 kg. Tvöfaidur eldhús, klósettklefi. Svefnpláss fyrir 3—4. Verð 2.155.000.- Allir batarnir fyrirliggjandi. Greiösluskilmalar. Gisli Jonsson & Co. h.f. Sundaborg 41. Sími 86644. Spilaði Gísli sig inn í landsliðið? IBK: Fram 1—1 KEFLVIKINGAR kræktu í frekar óverðskuldað stig í íslandsmótinu í knatt- spyrnu er þeir fengu Fram í heimsókn á mölina í Keflavík í gærkvöld. Bæði liðin skoruðu eitt mark, bæði í fyrri hálfleik, en leikurinn var afar slakur. Gekk knötturinn oft mark- anna á milli í hálfgerðum flugpósti, kom lengi vel varla niður á jörðina. Bæði liðin hafa nú hlotið 5 stig í íslandsmótinu til þessa og er sýnt að mótið verður jafnara en í háa herrans tíð. Menn veittu athygli tveimur köppum inni á vellinum. Fyrst og fremst var það staða Gísla Torfa- sonar milli stanganna. Gísli hefur ekki leikið með í vor fyrr en nú og í fjarveru Þorsteins Ólafs- sonar varði Gísli markið af miklu öryggi. Þá var gamla kempan Baldvin Elíasson í Frampeysunni. Framarar sóttu strax af mun meiri þunga, en færi létu á sér standa. Reyndu Framarar það mikið snemma leiks, að slengja háum sendingum fyrir markið og inn í markteiginn, til að sjá hvað í Gísla bjó. Ef hann hefði þá sýnt veikleikamerki, hefðu Keflvíking- ar steinlegið, því að oft var um nauðvörn að ræða hjá ÍBK. Það var mjög gegn gangi leiksins, þegar Keflvíkingar skoruðu á 15. mínútu leiksins. Ólafur Júlíusson braust þá úr herkvínni, óð upp allan völlinn og taldi sig vera að senda í eyðu á samherja. Sending- in var þó gersamlega mislukkuð og Framari komst í milli, sá ætlaði að renna honum í róleg- heitum til Guðmundar markvarð- ar Baldurssonar, en full rólega þó, því að Gísli Eyjólfsson kom eins og eimreið og skaut á markið. Guðmundur varði snilldarlega, en knötturinn hrökk í Gísla aftur og þaðan í netið, 1—0. Áfram sóttu Framarar, en vörn ÍBK með Gísla Torfason bestan mann stóð af sér öll áhlaupin. Stærsta og glæsilegasta skraut- fjöðrin í hatt Gísla kom á 44. mínútu, þegar Pétur Ormslev komst einn í gegnum vörn ÍBK, en Gísli hirti knöttinn af tám hans. Mínútu síðar skoruðu Framarar verðskuldað jöfnunarmark sitt. Pétur ormslev tók þá hornspyrnu, Marteinn skallaði fallega í mark- ið, Gísli varði meistaralega, en hélt ekki knettinum sem hrökk til Guðmundar Steinssonar er skor- aði af öryggi af stuttu færi. Framan af síðari hálfleik var leikurinn heldur jafnari en verið hafði, en þegar tók að líða á hann, fór að sækja í sama horf. ÍBK átti þó eitt mjög gott færi, Þórir Sigfússon skaut þá hátt yfir, eftir að Gísli Eyjólfsson hafði skallað laglega fyrir fætur hans. Þrátt fyrir mikla sókn lokakaflann voru færi Framara ekki mörg. Á 65. mínútu blasti þó sigurmarkið við, þegar Pétur Ormslev lagði auka- spyrnu hnitmiðað á kollinn á Marteini, en þrumuskalli hans hafnaði í samskeytunum og hrökk þaðan niður á línuna. 5 mínútum fyrir leikslok fengu Framarar síðasta hættulega færi sitt, en þá varði Gísli Torfason mjög vel skot Guðmundar Steinssonar. Það verður að segja heima- 'mönnum til hróss, að þeir börðust fyrir því sem þeir uppskáru. Gísli Torfason átti stórleik í markinu, menn ræddu um það sín á milli hvort hann ætlaði að spila sig inn í landsliðið! Auk hans voru mjög sterkir þeir Óskar Færset, Sigurð- ur Björgvinsson og Ólafur Júlíus- son. Gísli Eyjólfsson átti og góða spretti. Sigurður ætti þó að láta vera að sparka í menn eftir að boltinn er rokinn af vettvangi og • Undir sömu kringumstæðum í leiknum í gærkvöldi hefði Gísli Torfason mátt taka knöttinn með höndum án þess að dómari hefð- ist að. Hann stóð nefnilega í marki og varði af snilld. hann heldur engan sjá til sín. Hjá Fram var Marteinn yfirburða- maður í vörninni framan af og sterkur í sókninni þegar hann var færður fram í síðari hálfleik. Ásgeir Elíasson átti einnig sinn besta leik á sumrinu, sýndi gamal- kunna takta á ný og var mjög góður. Pétur og Guðmundur áttu góða spretti og Friðrik Egilsson nýliði vakti athygli í framlínunni. Guðmundur dómari Haraldsson átti mjög góðan dag. I stuttu máli: íslandsmótið 1. deild Keflavík ÍBK — Fram 1—1 (1—1). Mark ÍBK: Gísli Eyjólfsson (15. mín.). Mark Fram: Guðmundur Steins- son (45. mín.). Gul spjöld: engin. Dómari: Guðmundur Haraldsso. - gg- Eiitkunnagioiln ÍBK: Gfeli Torfason 3, Kári Gunnlaugsson 2, óskar Færseth 3, Guðjón Þórhallsson 2, Sigurbjörn Gústafsson 2, Sigurður Björgvinsson 3, Guðjón Guðjónsson 2, Gfeli Eyjólfsson 2, Þórður Karlsson 2, Þórir Sigfússon 1, ólafur Júlfusson 3, Ragnar Margeirsson (vm) 2. Fram: Guðmundur Baldursson 3, Sfmon Kristjánsson 1, Trausti Haraldsson 2, Kristinn Atlason 2, Marteinn Geirsson 4, Gunnar Bjarnason 2, Baldvin Elfasson 1, Ásgeir Elfasson 3, Gunnar Guðmundsson 2, Pétur Ormsiev 3, Guðmundur Steinsson 2, Fiðrik Egilsson (vm) 2. Dómari: Guðmundur Haraldsson 4. • Þessa skemmtilegu mynd tók Emilía Björnsdóttir af varamannabekk svissneska landsliðsins í knattspyrnu, er ísland og Sviss mættust á dögunum. Af klæðnaðinum mætti ætla, að þeir hafi talið leikvanginn vera á miðjum Vatnajökli. Athyglísverður bikardráttur Fylkir AÐALFUNDUR handknattleiks- deildar Fylkis fer fram föstudag- inn 26. júní í félagsheimilinu klukkan 20.00. Venjuleg aðal- fundarstörf. FH FUNDUR kvennadeildar FH, sem auglýstur var í blaðinu í gær, er ekki fyrr en 21. júní og þá klukkan 20.30 í Gaflinum í Hafn- arfirði. Er misskilningurinn hér með leiðréttur. DREGIÐ hefur verið i 3. umferð bikarkeppni KSÍ, en það er loka- umferðin áður en stóru liðin í 1. deild koma inn í myndina. Drátt- urinn lýtur þannig út. Ármann — Fylkir ÍBÍ — Grótta UBK - Leiknir Svarfdælir — Þór Ak. KS — Tindastóll Þróttur NK — Einherji eða Austri Leikirnir fara allir fram á miðvikudaginn 20 júní klukkan 20.00 allir þ.e.a.s. nema leikur Þróttar gegn Austra eða Einherja. Sama dag leika Einherji og Austri á Vopnafirði, en leikur sigurveg- ara úr þeim leik gegn Þrótti fer fram á miðvikudaginn 27. júní. Hér eru ýmsir athyglisverður leik- ir á ferðinni og einkum verður fróðlegt að fylgjast með árangri liðanna úr 3. deild — gg-

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.