Morgunblaðið - 21.06.1979, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ1979
Menntaskólinn á ísafirði brautskráði að þessu sinni 27 nýstúdenta. Hér sjást skólameistari og stúdentar
við athófnina. Ljósm. Vestfirska fréttablaðið.
Menntaskólinn á Isafirði:
2 7 stúdentar br autskr áðir
Menntaskólanum á ísa-
firði var slitið lauKardag-
inn 2. júní, og lauk þar
með níunda starfsári skól-
ans. Athöfnin hófst með
því að tónsmiðja Tónlist-
arskóla ísafjarðar flutti
nokkur lijjí, en síðan hélt
Jón Baldvin Ilannibalsson,
skólameistari, ræðu. I
ræðu hans kom. m.a. fram
að 152 nemendur stunduðu
nám við skólann á þessu
ári, en af þeim þreyttu 137
nemendur próf. Próí stóð-
AÐALFUNDUR Áfengisvarnar-
nefndar kvenna í Reykjavík og
Hafnarfirði var haldinn nýlega.
Á fundinum var samþykkt
ályktun þess efnis að skorað var á
borgaryfirvöld að leggja ekki nið-
ust 112 en aðrir fullnægðu
ekki láKmarkskrijfum,
hættu eða luku ekki próf-
um. Bestum árangri á
millibekkjarprófum náði
Eygló Aradóttir frá
Patreksfirði, í fyrsta bekk
raungreinakjörsviðs.
Að þessu sinni útskrifuðust 27
nýstúdentar. Tólf þeirra voru
brautskráðir af félagsfræða-
kjörsviði, tólf af náttúrusviði og
þrír af eðlissviði. Hæstu einkunn á
stúdentsprófi hlaut Hanna
Jóhannesdóttir frá ísafirði, 8.4, en
hún útskrifaðist af náttúrusviði.
ur Utideild Reykjavíkurborgar.
Þar sem nú er barnaár telur
nefndin ekki viðeigandi að hætta
þessari starfsemi sem hefur verið
unnin í þágu barna og unglinga og
brýn þörf er fyrir.
Skólameistari gat þess að á sl. 9
árum hafa alls 500 nemendur
stundað nám við skólann, um
langan eða skamman tíma. Alls
hafa 63 einstaklingar stundað
kennslu við skólann, þar af 25
fastráðnir en 38 stundakennarar.
Skólinn hefur frá upphafi
brautskráð 6 stúdentaárganga,
183 stúdenta alls. I þeim hópi eru
Isfirðingar fjölmennastir, eða 82,
aðrir Vestfirðingar eru 57 aö tölu,
en 44 eru annars staðar af land-
inu.
Fyrir hönd fimm ára stúdenta,
fyrsta stúdentaárgangs skólans,
flutti Ingibjörg Daníelsdóttir
ávarp.
í tilefni þess að skólameistari,
Jón Baldvin Hannibalsson, lætur
nú af störfum, fluttu ávörp forseti
bæjarstjórnar Guðmundur H.
Ingólfsson, Hanna Jóhannesdóttir
dux scholae, fh. nemenda og
Þráinn Hallgrímsson af hálfu
kennara. Síðan flutti skólameist-
ari lokaorð og sagði skóla slitið.
Að lokum lék Vilberg Viggósson,
nemandi í þriöja bekk, sónötu
eftir Beethoven og ungverska
rapsódíu eftir Frans Liszt.
Skora á borgaryfirvöld að
leggja Útideildina ekki niður
Einkennileg tilviljun
Eflaust munu margir lesenda
kannast við eftirfarandi stutta
skák sem tefld var á síðasta
Olympíumóti, því hún vakti
mikla athygli fyrir margra
hluta sakir. Hún olii t.d. tfma-
mótum fyrir kínverska skák-
menn, því þetta var í fyrsta
skipti sem Kínverji vann sigur
á evrópskum stórmeistara. En
nú hefur verið varpað nýju ljósi
á þessa skák og verður vikið að
því síðar.
i Buenos Aires 1978. Alþýðulýð-
veldið Kfna á móti Ilollandi.
Úrslit: 2:2.
Skák
eftir GUNNAR
GUNNARSSON
Pirc vörn.
Hvítt:Liu Wen Che (Kína)
Svart.J.H. Donner, stórmeistari
(Hollandi) 1. e4 — d6, 2. d4 —
Rf6, 3. Rc3 - g6,4. Be2 - Bg7,
5. g4!?
(.Djarfur leikur og tvíeggjaður
svo snemma tafls, sem greini-
lega kemur stórmeistaranum úr
jafnvægi. Kfnverjar hafa hinsv-
egar lagt mikla rækt við alvar-
legar rannsóknir á skákfræðum
á undanförnum árum, en þeir
tóku nú þátt i Olympíumóti í
fyrsta sinni og komu heldur
betur á óvart!)
5. — h6? (Óþarfa veiking, ; betra
strax 0-0) 6. h3! (Lítur sakleys-
islega út, en undirbýr einfaldl-
ega Be3 og síðan Dd2) 6. — c5, 7.
d5 — 0-0? (Nú bregzt svarti
bogalistin, því leikurinn býður
upp á beina árás á sv. kónginn)
8. h4? (Hvítur gjörbreytir strax
um áætlun! hann ræðst strax til
atlögu að svarta kónginum) 8. —
e6, 9. g5 — hxg5, 10. hxg5 —
Re8? (Rangur leikur! Eini mög-
uleikinn var fólginn itlO. — Rh7
og síðan He8 og Rf8).
11. Dd3 (Hvítur stefnir beint að
máti með flutningi D yfir á
h-línuna). 11. — exd5, 12. Rxd5
- Rc6,13. Dg3 - Bc6,14. Dh4
- Í5,15. Dh7 - Kf7.
16. Dxg6!! (.Hinn kínverski
skáksnillingur lék þennan leik
eins og hina fyrri án mikilla
þenkinga, eins og hann þekkti
þetta allt saman og hefði séð
áður!) 16. — Kxg6, 17. Bh5+ —
Kh7,18. BÍ7+ - Bh6,19. g6+ -
Kg7, 20. Bxh6+ - Gefið.
(.Svartur bíður ekki eftir 20. —
Kh8, 21. Bxf8+ — mát.)
Að sjaífsögðu var Donner ekki
ánægður í fyrstu með þessi
hraksmánarlegu málalok, en
hann náði fljótlega sínu fyrra
öryggi og sendi þessa skák til
fjölmiðla vítt um lönd í fullvissu
um að nafn hans yrði þó allavega
fyrir sjónum átta hundruð millj-
óna manna. (Það sakar ekki að
geta þess að daginn áður hafði
Donner hæðst mikið að Guðm-
undi Sigurjónssyni fyrir að geta
ekki unnið sinn kínverska and-
stæðing.)
En nú víkur sögunni aftur til
ársins 1956 f Leningrad en þar
tefldu tveir Rússar eftirfarandi
skák og nú skulu menn vera
saman þessar tvær skákir; og sjá
hversu einkennilega líkar bær
eru.
Hvítt: Smollny Svart: Asafov.
I. d4 - Rf6, 2. c4 - g6, 3. Rc3 -
Bg7, 4. e4 - d6, 5. Be2 - 0-0, 6.
Bg5 - c5, 7. d5 - a6, 8. a4 -
Da5, 9. Bd2 — Dc7, 10. g4 — e6,
II. g5 - Re8, 12. h4 - exd5, 13.
Rxd5 - Dd8, 14. h5 - Rc6, 15.
hxg6 - hxg6, 16. Db3 - Rd4,17.
Dg3 - Rc2+, 18. Kdl - Rxal, 19.
Dh4 - f6, 20. Dh7+ - Kf7, 21.
Dxg6+! - Kxg6, 22. Bh5+ - Kh7
23. Bf7+ - Bh6, 24. g6+ - og
svartur gafst upp.
Einkennileg tilviljun!.
Marar-
á að verða
laerdómsrík
MORGUNBLAÐIÐ mun í sumar segja frá því helsta
sem Ferðafélag íslands er með á prjónunum. Hér er
fréttatilkynning félagsins um ferðir þess næstu
daga:
dals-
ferðin
Helgina 22.-24. þessa mánaðar viljum við sérstaklega vekja
athygli á nýjung, sem ekki hefur verið boðið upp á fyrr, en það er
útilega í Marardal. Ætlast er til að fólk liggi í tjöldum og kynni sér
hvernig á að útbúa sig í lengri gönguferðir, kanni þann útbúnað,
sem það þegar á og geri sér þannig grein fyrir hvernig á að útbúa
sig í lengri gönguferðir með allan viðleguútbúnað. í þessari útilegu
verður gengið um Henglasvæðið (sjá kort). Þetta tækifæri viljum
við hvetja fólk til að nota sem hyggur á gönguferðir um óbyggðir í
sumar.
Grímmans-
fell
Sunnudaginn 24. júní kl. 13 er
gönguferð á Grímmannsfell —
Seljadal. Farið verður frá Umferð-
armiðstöðinni og ekið í Helgadal
og lagt upp þaðan á fjallið (482 m).
Gengið niður í Seljadal og síðan
tekur bíllinn fólkið við Kambhól.
Þetta er létt ganga og hentar vel
fólki á öllum aldri (sjá kort).
Meðjökul-
hlíðum
í sambandi við Þórsmerkurferð
um þessa helgi er boðið upp á ferð
suður með hlíðum Eyjafjallajök-
uls, að skógá, Kvernufossi og víðar.
Fararstjóri: Jón Á. Gissurarson,
fv. skólastjóri. — Þá er fyrirhuguð
gönguferð á Eiríksjökul, lagt upp á
föstudagskvöldi og gist í tjöldum.
Fararstjóri: Tryggvi Halldórsson.
Esjan
I dag verður efnt til sólstöðu-
ferðar á Esjuna. Farið verður
frá Umferðarmiðstöðinni (aust-
anverðu) kl. 20. Gengið er frá
Esjubergi upp fjallið og á Ker-
hólakamb (850 m). Á laugardag
verður síðan síðasta Esjuganga
Ferðafélagsins í bráð. Lagt upp
kl. 13, og í ferðalok fá allir
þátttakendur viðurkenningu.