Morgunblaðið - 21.06.1979, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 1979
Allar ferðir Flugfélags Austurlands tengjast á einn eða annan hátt áætlunarflugi Flugleiða til
Egilsstaða. Ilér er verið að flytja vörur milli véla á Egilsstaðaflugvelli.
Flugfélag Austurlands:
Ný flugleið: Egilsstaðir
— Norðfjörður - Akureyri
FLUGFÉIAG Austurlands
h.f. hélt nýverið aðalfund
sinn og kom þar meðal
annars fram, að félagið
hefur ákveðið að opna
nýja flugleið en það er
leiðin milli Egilsstaða
Norðfjarðar og Akureyr-
ar. Til að byrja með verður
um eina ferð í viku að
ræða og verður hún farin á
sunnudögum.
Einar Helgason, stjórnar-
formaður félagsins ræddi á
fundinum nokkuð framtíð-
arhorfur félagsins og gat
hann þess, að bersýnilegt
væri að austfirðingar kynnu
að meta þjónustu félagsins og
héldi áfram sem horfði með
þátttöku og stuðning heima-
manna við Flugfélag Austur-
lands ætti það eftir að valda
straumhvörfum í samgöngum
á Austurlandi sem og sannast
hefur af starfsemi félagsins
og flug þess á nokkra staði
austanlands.
Guðmundur Sigurðsson
stjórnarmaður í F.A., sagði
frá starfsemi félagsins s.l. ár
og ræddi framtíðarhorfur í
flugmálum fjórðungsins.
Fram kom í tölu Guðmundar
um reikninga félagsins, að
ekki var afkoman eins góð og
vonir stóðu til. Helst var þar
um að kenna að verðlagning
þjónustu félagsins hefði jafn-
an verið eilítið á eftir verð-
lagsþróuninni. Hins vegar
kvaðst Guðmundur hafa
ástæðu til að ætla að yfir-
standandi ár yrði hagkvæm-
ara fyrir félagið þó svo að til
beggja átta gæti brugöið
vegna hins alvarlega ástands
sem ríkti í þjóðfélaginu í dag.
Fram kom að það háir frekari
starfsemi félagsins að það á
ekki stærri flugvél en til að
auka enn við flugreksturinn
þarf félagið að eignast 18
sæta flugvél.
Stjórn Flugfélags Austur-
lands var endurkjörin, en
hana skipa Einar Helgason,
Guðmundur Sigurðsson,
Bergur Sigurbjörnsson og til
vara Kristinn V. Jóhannsson
og Jóhann d. Jónsson. Fund-
arstjóri var Þorsteinn
Sveinsson.
Flugfélag Austurlands
heldur uppi reglubundnu
áætlunarflugi til 8 staða á
Austurlandi frá Bakkafirði til
Hafnar í Hornafirði auk þess
sem flogin er ein ferð í viku
til Akureyrar á sunnudögum.
Allar ferðir félagsins tengjast
á einn eða annan hátt áætlun-
arflugi flugleiða til Egils-
staða frá Reykjavík þannig að
oft hafa farþegar aðeins ör-
stutta viðdvöl á Egilsstöðum
áður en haldið er til áfanga-
staðar.
15
Þorlákshöfn:
Veðurguðim-
irviljahátíð-
arhöld ekki í
skrúðgarðinn
þorlákshöfn. 19. júní.
17. JÚNÍ hátíðahöldin fóru
fram eins og hér segir: Klukk-
an 13 var skrúðganga. Ganga
átti á hátíðarsvæðið, sem er
skrúðgarður Kvenfélags Þor-
lákshafnar, en vegna ausandi
rigningar var gengið í félags-
heimilið, þar sem formaður
þjóðhátíðarnefndar, Guðmund-
ur Sigurðsson, setti hátíðina.
Hún hófst með guðsþjónustu,
Kristinn Ágúst Friðfinnsson
guðfræðinemi predikaði, Söng-
félag Þorlákshafnar söng undir
stjórn Ingimundar Guðjónsson-
ar, Ingólfur Jónsson fyrrver-
andi ráðherra flutti snjalla
hátíðarræðu af alkunnum
skörungsskap. Ávarp fjallkonu
flutti Katrín STEFÁNSDÓTT-
IR, Söngfélagið söng á milli
atriða. Áð lokum komu fram
þeir þekktu skemmtikraftar
Halli og Laddi, sem yngsta
kynslóðin kunni vel að meta.
Þetta er í annað skipti í röð sem
veðurguðirnir koma í veg fyrir
að hátíðarhöldin fari fram í
skrúðgarði kvenfélagsins.
Knattspyrna, íþróttir og leik-
ir féllu niður vegna veðurs.
Dansleikur var um kvöldið í
félagsheimilinu, hljómsveitin
SOS lék fyrir dansi.
— Ragnheiður
Eiaum nokkrn VW PASSAT. AUDI80 oa VW LT3I
TIL AFGREIÐSLU STRAX!
V W PASSAT
VerðfmKr.5.347000.-
AUDI80
Verð frð Kr.5.776.000.-
VWLT31
Verð f rá Kr.6.583.000-
Verö miðaö við gengisskr. 19. júní, '79
Auöi
HEKIAHF
Laugavegi 170-172 Sími 21240