Morgunblaðið - 24.06.1979, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. JÚNÍ1979
29
jj
X
Ævintýrið um Dire Straits
Dire Straits, írá vinstri: John Illsley. Pick Withers, Mark Knopfler og David Knopfler.
Fátt hefur vakið meiri at-
hygli í popheiminum að und-
anförnu cn ævintýrið um Dire
Straits. Fyrir 18 mánuðum
var hljómsveitin núll og nix,
en nú er henni skipað á bekk
með skærustu stjörnum
poppsins. Fyrsta plata þeirra
seldist með eindæmum vel og
allt útlit er fyrir að sú næsta,
Communiqué, seljizt ekki síð-
ur. En það er bezt að byrja á
byrjuninni.
Samkvæmt þjóðsögunni
hefst ævintýrið þannig að 1977
bjuggu saman i íbúð þeir David
Knopfler og John Illsley. Bróð-
ir Davids, Mark, tók að venja
komur sínar þangað og þar
sem allir spiluðu þeir á gítar
var ekki nema eðlilegt aö þeir
tækju að leika saman. Með
tímanum tók Illsley að halda
sig eingöngu við bassan, meðan
bræðurnir léku á gítara. Að
endingu varð það úr að þeir
héldu í stúdíó í London, ásamt
trymbli að nafni Pick Withers
og tóku þar upp fimm lög,
svona mest fyrir sjálfan sig, en
einnig höfðu þeir hug á að
koma lögum sínum á framfæri
við hljómplötuútgefendur.
Með spólu með lögunum
fimm undir hendinni héldu
þeir til heimilis Charlie
Gilletts, þekkts framámanns
innan brezka popheimsins, en
Gillet sér meðal annars um
vikulegan tónlistarþátt í
brezka útvarpinu, sem nýtur
mikils álits í Bretlandi.
Gillette varð strax frá sér
hrifinn af lögunum og ákvað að
leika þau í þætti sínum næsta
laugardag. Meðan þátturinn
stóð yfir og á eftir linnti ekki
símahringingum „tónlistar-
njósnara", sem ólmir vildu fá
að vita meira um þessa ein-
kennilegu hljómsveit, Dire
Straits. Stóru hljómplötuút-
gefendurnir í Bretlandi ruku
tónlistin
ergóð
kemstu
á toppinn
upp til handa og fóta, allir
vildu bjóða fjórmenningunum
samning. Eftir miklar vanga-
veltur ákváðu þeir svo að
skrifa undir samning hjá
Phonogram útgáfufyrirtækinu
og þar með er fyrsta hluta
ævintýrisins lokið.
I janúar í fyrra hélt hljóm-
sveitin í hljómleikaferðalag og
mánuði síðar hófust upptökur
á fyrstu breiðskífu þeirra.
Platan var tekin upp á tólf
dögum og hljóðblönduð á öðr-
um þremur og var hræódýr í
allri gerð. Næst lá fyrir að gefa
hana út og það var ekki að
sökum á spyrja, alls staðar
náðu hún feiknalegum vin-
sældum, hvort heldur varí
Ástralíu, Bandaríkjunum eða
Vestur-Þýzkalandi. I Banda-
ríkjunum kom hún fast á hæla
plötu Bee Gees, „Spirits
Having Flown“ að sölu. Það
merkilega við sölu plötunnar í
Bandaríkjunum er það að út-
gáfufyrirtækið þar Warner
Bros. þurfti ekkert að hafa
fyrir sölunni, hún seldist án
nokkurrar auglýsingaherferð-
ar, aðeins vegna eigin gæða og
vegna hinnar miklu spilunar,
sem platan hlaut í öllurn út-
varpsstöðvum.
Af þeirri plötu var síðan
lagið „Sultans Of Swing“ gefið
út á litla plötu og allt fór á
sama veg, lagið varð mjög
vinsælt.
Tónlist Dire Straits hefur
oft verið líkt við tónlist J.J.
Cale, Ry Cooder, Van Morrison
og fleira á þeirri línu, en hún
er fyrst og fremst „soft-rokk“,
sem svo mjög einkennist af
smekklegum og rólegum gítar-
leik Mark Knopflers, aðalgítar-
leikara hljómsveitarinnar,
söngvara og lagasmið.
Vera má að Dire Straits
megi að einhverju leyti þakka
vinsældum sínum þeirri lá-
deyðu, sem ríkt hefur í
pop-tónlistinni undanfarin ár.
Hitt er annað mál að það hefði
litlu máli skipt hvenær hljóm-
sveitin hefði komið fram á
sjónarsviðið, hún hefði alltaf
orðið vinsæl, sakir gæða tón-
listarinnar og það hversu aö-
gengileg hún er.
Nýja plata Dire Straits,
Communiqué, er beint fram-
hald af hinni fyrri, engin ný
stefna er þar tekin upp, enda
þess ekki þörf. Þess má að
lokum geta að Mark Knopfler á
að leika með þeim Donald
Fagen og Walter' Brecker á
næstu plötu Steely Dan og þeir
Mark Knopfler og Pick
Withers leika báðir á stúdío-
plötu Bob Dylans, sem hann er
að taka upp þessa dagana. Það
segir ekki svo lítið um álit
manna' Dire Straits.
Af Skrýplum ogHaraldi
FYRIR ári síðan leit dagsins ljós í
Englandi breiðskífa með „Father
Abraham and the Smurfs". sem
naut miiillrar hylli þar í landi sem
annras staðar. Sérstaklega varð
lagið „The Smurf Song" vinsælt.
Nú á morgun. 25. júní kemur út
hérlendis með hinum íslenzku
„Smurfs". Skrýplunum.
Forsaga þessarar útgáfu er sú
að forsvarsmenn hljómplötu útgaf-
unnar Steinars h.f. veittu athygli
velgegni þessarar bandaplötu og í
framhaldi af því var ákveðið að
gera út íslending til að feta í
fótspor hins hollenzka „father Ab-
Vinsældalistar
ÞAR sem aumarid er komið og verkföllum lokið (að sinni) ætlar
Slagbrandur að auka i þjónuatu við lesendur sína með nýju tormi
Vinsældalista.
Til að byrja með verða listar frá Bandaríkjunum og Bretlandi notaðir
eingöngu með hliðsjón að því að vinsældir platna þar eru nokkuð líkar
og hérna.
Það eina sem vantar inn á er ísienskur listi, þ.e.a.s. yfir íslenak lög,
en vegna þess hve lítið er enn gefið út hérna og erfitt að skipuieggja
slíkan lista svo vel fari höfum við ekki í hyggju að vinna slíkan lista.
Sölulísti segir nefnilega ekki allt, það sem við vildum koma é væri þá
helst að lesendur skrituðu Slagbrandi og veldu þrjú uppáhalds
íslensku lögin.
Þessir erlendu listar sem hér birtast og munu birtast á næstunni
eru úr blöðunum Blllboard (USA) og Music Week (UK).
Bretland — litlar plötur
1. (3) RING MY BELL
2. (1) SUNDAY GIRL
3. (2) DANCE AWAY
4. (4) BOOGIE WONDERLAND
5. (8) AIN’T NO STOPPIN’ US NOW
6. (6) SHINE A LITTLE LOVE
7. (—) ARE FRIENDS ELECTRIC?
8. (—) WE ARE FAMILY
9. (10) THEME FROM „DEER HUNTER"
10. (—) H.A.P.P.Y. RADIO
Bretland — stórar plötur
1. (—) DISCOVERY
2. (1) VOULEZ VOUS
3. (2) DO IT YOURSELF
4. (5) LODGER
5. (3) PARALLEL LINES
6. (9) THIS IS IT
7. (8) MANIFESTO
8. (4) LAST THE WHOLE NIGHT LONG
9. (6) BOB DYLAN AT BUDOKAN
10. (—)SKY
USA — stórar plötur
1. (3) BAD GIRLS
2. (1) BREAKFAST IN AMERICA
3. (4) WE ARE FAMILY
4. (5) RICKIE LEE JONES
5. (8) CHEAP TRICK AT BUDOKAN
6. (2) 2 HOT
7. (7) VAN HALEN II
8. (9) DESOLATION ANGELS
9. (10) SPIRITS HAVING FLOWN
10. (—) FLAG
Anita Ward
Blondie
Roxy Music
Earth Wind & Fire/Emotions
McFadden & Whitehead
Electric Light Orchestra
Tubeway Army
Sister Sledge
Shadows
Edwin Starr
Electric Light Orchestra
Abba
lan Dury
David Bowie
Blondie
Ýmsir — CBS
Roxy Music
James Last
Bob Dylan
Sky
Donna Summer
Supertramp
Sister Sledge
Rickie Lee Jones
Cheap Trick
Peaches & Herb
Van Halen
Bad Company
Bee Gees
James Taylor
raham". Þannig er nefnileg mál
með vexti að Abraham þessi sem og
Skrýplarnir eru tilbúningur bel-
gíska teiknarans Pe.vo, en þjóðerni
Abrahams er hins vegar hollenskt
en ekki belgískt. íslendingurinn,
sem brá sér til Skrýplalands nefnist
Haraldur, velkunnur maður á okkar
e.vju.
Varð Haraldur sannfærður
um að íslendingar gætu ýmislegt
lært af hinu jákvæða lífsviðhorfi
Skrýplanna. Þannig standa sem sé
málin í dag, að Haraldur er kominn
heim úr reisu sinni og segir frá
henni á plötunni „Haraldur í
Skrýplalandi”, er, sem fyrr getur,
kemur út á morgun.
USA — Disco
1. (1) BAD GIRLS Donna Summer
2. (2) RING MY BELL Anita Ward
3. (3)WE ARE FAMILY — HE’S THE GREATEST
DANCER — LOST IN MUSIC Sister Sledge
4. (4) HAVE A CIGAR Rosebud
5. (6)l (WHO HAVE NOTHING)/ STARS/ BODY STRONG Sylvester
6. (7) BAD BAD BOY Theo Vaness
7. (8) BOOGIE WOOGIE DANCING SHOES Claudja Barry
8. (—) BORN TO BE ALIVE Patrick Hernandez
9. (10) CUBA Gibson Brothers
10 (—) HIGH ON MAD MOUNTAIN/DISCO PEOPLE Mike Theodore
USA — Litlar plötur
1. (2) HOT STUFF
2. (3) WE ARE FAMILY
3. (6) RING MY BELL
4. (5) JUST WHEN I NEEDED YOU MOST
5. (1) LOVE YOU INSIDE OUT
6. (7) LOGICAL SONG
7. (8) CHUCK E.’S IN LOVE
8. (10) SHE BELIEVES IN ME
9. (4) REUNITED
10. (—) BOOGIE WONDERLAND
Donna Summer
Sister Sledge
Anita Ward
Randy Vanwarmer
Bee Gees
Supertramp
Rickie Lee Jones
Kenny Rogers
Peaches & Herb
Earth Wind & Fire