Morgunblaðið - 09.08.1979, Side 3

Morgunblaðið - 09.08.1979, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. ÁGUST 1979 3 leiðir á meðan einhver andstæðing- ur geystist hálfa leið að marki andstæðingsins með þennan sama bolta. Það fer ekki framhjá neinum að hér í stúkunni er líka mættur roskinn maður, með trefil og húfu, dimmraddaður og rauststerkur. Stundum þegar kvennakórinn hafði haft uppi hróp af ólýsanlegri geðs- hræringu um hríð og rétt þagnaði til að ná andanum, heyrðist rödd hans eins og haugbúa berast yfir allan völlinn: — Áfram Valur! Ekkert meira. En svo mikil var þessi rödd að það lá við að þögn slægi á nærstadda um hríð. Krist- Þið eigið leik- inn — ogþó... Nokkrar úr hinu hressa kvennaliði Skagans Ljésm. mw. Kristinn STEMMNINGIN var kitlandi. Sí- breiða fólks, eftirvæntingafullra aðdáenda liðanna tveggja, hlykkj- aðist að úr öllum áttum. Valur og Skagamenn að kljást í bikarleik, engu er líkara en hér sé um úrslitaleik að ræða, svo mikil er spennan. Ég hafði ekki horft á knattspyrnuleik í neinni alvöru árum saman. Eiginlega ekki síðan Skagamenn tóku Reykjavík með trompi — komu galvaskir í gulum peysum og glampa í augunum og allt lék í fótum þeirra — Donni, Rikki, Þórðarnir, Svenni Teits, og þeir röskuðu valdajafnvæginu í knattspyrnu höfuðborgarinnar, svo að það hefur aldrei orðið samt eftir. Það voru kappar í lagi. Og maður bjó í Vesturbænum og æpti þó hástöfum á móti liði síns hverf- is, heimtaði stroffí eða út af með dómarann, ef eitthvað bjátaði á. Svona voru Skagamenn magnað- ir þá og eru það bersýnilega enn. Nú eru það Skaga- og Valsleikir það sem KR og Skaginn var í denn tíð. Og leikurinn í gærkvöldi var enn eitt merki um hversu fjöl- ríienna og kröftuga fylgismenn þessi lið eiga bæði. Ég kom mér fyrir í stúkunni til að byrja með. Þar skiptust fylking- ar nokkurn veginn jafnt að því er virtist. Konur frá Akranesi sátu fjölmennar saman í hóp rétt hjá mér. Þær létu óspart að sér kveða: — Áfram Skagamenn — berjast Skagamenn — þið eigið leikinn Skagamenn. Þetta kvað við margraddað og þó varla nema búið að flauta. Svo hófst leikurinn og Valsarar virðast mér hressari til að byrja með. Æði oft fundust mér spörk beggja liða verulega sérstæð, þeim virtist svo sem ekki beint að einu né neinu, hvorki liðsmanni né marki, enda skoppaði boltinn út og suður, en allir leikmenn hlupu til og frá og stundum voru þeir langtum fljótari en boltinn og kútveltust langar inn Hallsson sem sat hið næsta manninum hafði uppi hvatningu. Hann hafði ekki roð við manninum. Öðru hverju sýnist mér ótvírætt sem hætta sé að skapast við mörk- in: — tala saman Skagamenn — negla hann — þið eruð beztir, Skagamenn. Þetta eru svipaðar hvatningar og ég man þegar ég stundaði völlinn og Skagamenn nýbúnir að sigra heiminn. Svo verður mark. Ég geri mér samstundis grein fyrir því að það eru Valsmenn sem hafa skorað. Kristinn hlær. — Áfram Valur! segir dimm- raddaði maðurinn. Stúlkurnar færast í aukana. Valsara verður á mistök, þá hlægja Skagamenn tröllslega og úa ægi- lega. Stöku sinni hrasa í A-menn og veltast hallærislega um völlinn. Þá hlæja Valsarar í taumlausri Þórð- argleði. — Við viljum boltann í mark — Skagamenn, syngja konurnar og mjóróma barnsrödd aftar í stúk- unni: — Skaginn er með skítalykt og getur ekkert. Um miðbik fyrri hálfleiks er kominn einhver doði í leikinn. Það er gott fyrir sérfræðingana, sem eru hér á hverju strái og vita langtum betur en leikmennirnir hvernig á að leika knattspyrnu. Svona sérfræðingum stekkur yfir- leitt aldrei bros og þó að þeir segi að það sé stórhlægilegt hvernig viðkomandi leikmaður klúðraði gullnum tækifærum, eru þessir menn alltaf jafn alvörugefnir og þungir á bárunni. I hálfleik kaupa allir sér þjóðar- réttina. Svo röltum við aftur í áttina að stúkunni eftir hringferð um völlinn. Albert Guðmundsson stendur með kunningja sínum á mölinni skammt frá hliðinu. Leik- urinn er hafinn. Albert er að reykja Áfram Valur...! V anga- veltur um fót- bolta frá gær- kvöldi stóran vindil. „Daufur 1eikur,“ segi ég spekingslega við Albert. „0, ég læt það vera“, segir Albert. Ég veiti athygli að á eru skollin gríðarleg fagnaðarlæti. Valsmenn virðast hafa verið að skora annað mark en Albert sýnir engin geðbrigði. Þegar ég kem aftur upp í stúku rennur upp fyrir mér ljósið. í hálfleik skipta liðin um vallarhelminga. Það voru sem sé Skagamenn sem skoruðu markið. Matti sjálfur! segir Skagakona í ermastuttri blússu í nepjunni. Eitt — eitt. Það er ekki von að Albert sé dús við þá skoðun mína að leikurinn sé dauf- ur, þegar Skagamönnum hefur nú tekizt að jafna. — Þið eigið leikinn — ekki gefast upp, Skagamenn, er hrópað — Áfram Valur! segir maðurinn með Valstrefilinn. Allt í þvögu. Skagamenn hafa allir færzt í aukana við markið um hríð er ekki fjarri því maður hafi á tilfinningunni að kvennaliðið hafi rétt fyrir sér þegar það segir í kór að Skagamenn eigi leikinn. Skaga- menn sækja. — Nú er öllu lokið, segir Valsari nærri mér. Hann grípur um höfuð- ið á sér. — Of seint að iðrast eftir dauðann, segir annar og það er eins og kökkur í hálsinum á honum. Svo líður feginsstuna frá þúsundum af Valsbrjóstum og Skagamennirnir stynja eins og sé verið að rista þá á kviðinn. Það varð sem sé ekki mark. Svo sækja Valsarar og aðdáend- ur hrópa. Hins vegar hafa fáir á takteinum eins fjölbreytt fagnaðarorð og menn Skagamanna. Fylgismenn Valsmanna eru yfir- vegaðir og sýna tilfinningar sínar á tamdari hátt. Þófkenndur leikur um hríð. Einhver fær gula spjaldið, menn liggja öðru hvoru og engjast. Svo fer eitthvað að gerast á ný. — Ég trúi þessu ekki — ég dey — ég dey, hljóðar konan í ermalausu blússunni. — Stöðviði mannhelvít- ið. Jóhannes á ’ann... — Áfram Valur! segir dimm- raddaði maðurinn. Svo skoraði Guðmundur. . . Oddur eftir sigurinn yfir Vilmundi: „Það er engínn vafi — ég er sprettharðastur” HLAUPAEINVÍGIÐ mikla milli garpanna Vilmundar Vil- hjálmssonar og Odds Sigurðs- sonar á Laugardalsvellinum ( gærkvöldi varð ekki jafn merk- ur atburður og efni stóðu til. Vilmundur náði sér aldrei á strik og Oddur vann yfirburða- sigur en Vilmundur varð að sætta sig við fjórða sætið í hlaupinu enda greinilega æf- ingalítill nú sem stendur. Það er því hæpið að telja að einvígi þeirra um titilinn „Hlaupa- kóngur íslands* sé útkljáð, þótt Oddur hafi verið á öðru máli eftir hlaupið. „Það er enginn vafi, ég er sá sprettharðasti hér á landi," sagði Oddur, hress í bragði eftir hlaupið. Vilmundur var heldur daufur í dálkinn. „Einvígið er ekki útkljáð ennþá, þegar ég hef æft í 3—4 vikur til viðbótar skal ég sýna Oddi hvernig á að hlaupa spretthlaup," sagði hann. Það hefur verið segin saga undanfarin ár að þegar halda hefur átt meiriháttar frjáls- íþróttamót í höfuðborginni hafa veðurguðirnir ekki sýnt á sér sparisvipinn. í gærkvöldi var hávaðarok í Laugardalnum og tímarnir sem náðust því ekki löglegir. Oddur náði góðu við- bragði og hafði forystu lengst af. Hann rann 100 metra skeiðið á 10.48 sekúndum, Sigurður Sigurðsson varð annar á 10.77 sekúndum, Daninn Foli varð þriðji á 10.79 sekúndum og Vilmundur fjórði á 10.83 sekúndum. Nú voru í fyrsta skipti notuð rafmagnstæki til tímatöku á Laugardalsvellinum. Gömlu skeiðklukkurnar voru einnig notaðar til vara og sam- kvæmt þeim fékk Oddur tímann 10.2 sekúndur. „Ég er mjög ánægður með árangurinn og var hissa á því hve léttur sigurinn var,“ sagði Oddur eftir hlaupið. Vilmundur kvaðst aftur á móti vera óánægður með sinn hlut. „Ég hef bara getað æft í 3 vikur en stefni að því að verða í topp- formi á Heimsleikum stúdenta i Mexico í september." — SS

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.