Morgunblaðið - 09.08.1979, Page 5

Morgunblaðið - 09.08.1979, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 1979 5 Hraunið hefur ekki áhrif á af- köst holunnar HOLA 9 við Kröflu hefur nú náð svipuðum krafti og þegar hún var bezt áður, en holan var hreinsuð í sumar. Frá þessari holu kemur stór hluti þeirrar gufu. sem notuð er við fram- leiðslu þeirra 5 megawatta. sem Kröfluvirkjun gefur nú. Við hreinsun holunnar í sumar kom í ljós, að ferskt hraun hafði komist f holuna og hefur það valdið jarðvísindamönnum töluverðum heilabrotum. Ljóst virðist að hraunið hafi ekki eingöngu valdið því að hreinsa þurfti holuna í sumar, heldur einnig kalkútfellingar. Helzt er talið að ný gosmöl hafi borizt inn í holuna með vatnsæðinni, sem gefur holunni afl. Jarðfræðingar telja nær útilokað að hraunkvika hafi komist í holuna og benda á, að ef svo hefði verið hefðu orðið mikl- ar breytingar á þrýstingi á toppi holunnar, en slíks varð ekki vart. Margeir vann í 12. umferð Frá GuAmundi Sigurjónssyni stórmeist- ara, Skien Noregi. NÆSTSÍÐASTA umferð var tefld í dag, 12. umferð á skákmótinu í Skien. Mai geir Pétursson tefldi með hvítu gegn Ravikumar frá Indlandi og vann örugg- lega. Önnur helztu úrslit eru þau að Seiravan frá Bandaríkjunum sigraði Widenkeller og Cernin gerði jafntefli við Grospeter. Staðan fyrir síðustu umferð er þessi: 1. Seiravan með 9 Vfe vinning, 2. Cernin með 9 vinninga, 3. Nikolic með 8‘/2, í 4.-5. er Douven og Clarkett með 8 vinninga. í 6.-8. sæti eru Margeir, Neulescu og Grospeter með 7‘/2 vinning. Síðasta umferð verður tefld í dag. Margeir tapaði annarri biðskák sinni við Rússann, en gerði jafn- tefli við Bandaríkjamanninn og er því með 7% vinning eins og áður segir. Gallerí Suðurgata 7: Spunatónleikar með þýzkum saxófón- og klarinettleikara GALLERÍ Suðurgata 7 gengst enn á ný fyrir spunatónleikum, að þessu sinni með þýzka saxó- fón- og klarinettleikaranum Pet- er Brötzmann. Brötzmann, sem fæddur er 1941, hefur leikið frjálsa spunatónlist um 15 ára skeið. Undanfarin ár hefur hann starfað í tríói með hollenzka trommuleikaranum Simabilanir i Reykjavik Nokkuð var um truflanir á síma- sambandi í Reykjavík í gær. Var þannig ekki hægt að hringja úr númerum, sem byrjuðu á 3 í númer er byrjuðu á 2 og öfugt. Að sögn viðgerðarmanna hjá Lands- símanum varð bilun þessi í streng frá Grensásstöð og var unnið að viðgerð í gær og talið líklegt að henni lyki þá eða í dag. Han Bennink og belgíska píanist- anum Fred Van Hove, en auk þess er hann meðlimur í Globe Unity Orchestra og hefur unnið með ýmsum nútímatónskáldum, svo sem Penderecki, Mauricio Kagel og Nam June Paik, sem hinjgað kom fyrir nokkrum árum. Arið 1978 voru honum veitt tónlistar- verðlaun Berlínarborgar. Brötzmann er án efa einn sér- stæðasti saxófónleikari í Evrópu. Tónlist hans er gjarnan hávær og ofsafengin og snemma var hann kallaður ólátabelgurinn í þýzka jazzinum. Brötzmann hefur komið fram á tónlistarhátíðum víða um lönd, svo sem í Englandi, Belgíu, Ítalíu, Svíþjóð, Póllandi og Sviss og gefið út margar hljómplötur. Þess má og geta, að Brötzmann hefur einnig fengist við myndlist og haldið sýningar í heimaborg sinni, Wuppertal. Tónleikarnir verða í Norræna húsinu laugardaginn 11. ágúst kl. 16.00 og í Félagsstofnun stúdenta sunnudaginn 12. ágúst kl. 21.00. Kvöldskemmtun og dansleikur í Hellubíói í TILEFNI 50 ára afmælis Sjálfstæðisflokksins hafa sjálf- stæðisfélögin staðið fyrir skemmtunum um allt land. Vegna óviðráðanlegra orsaka féll kvöldskemmtunin niður, sem vera átti á Hellu s.l. helgi. Næsta laugardag mun hins veg- ar gieðin rfkja í Hellubíói. Fjölbreytt skemmtun hefst þar kl. 21.00. Meðal skemmtiefnis má nefna: eftirhermuna Jörund, Jón Sigur- björnsson og Þóru Friðriksdótt- ur með smellna leikþætti, Svan- hildi og hljómsveit Olafs Gauks í ýmsum gerfum, tízkusýningu, bingó og dansatriði. Ávarp flytja þeir Eggert Haukdal alþm. og Markús Örn Antonsson borgarfulltrúi. Markús örn Dansleikur hefst síðan kl. 23.00 þar sem Hljómsveit Ólafs Gauks rifjar upp gömlu góðu lögin og Diskótekið Dísa flytur nýjustu tónlistarbylgjurnar. Það Eggert verður því eitthvað fyrir alla í Hellubíói á laugardagskvöld. (FréttatilkynninK frá Sjálfstæðis- félöKunum). Þau sjá um skemmtiatriðin :vem GÍRMÓTORAR RAFMÓTORAR EIGUM JAFNAN TIL GÍRMÓTORA: Ýmsir snúningshraðar lns fasa: 3/4 - 1 1/2 hö 3ja fasa: 1/3 - 20 hö Electropower RAFMOTORA: 1400 - 1500 sn/mín. lns fasa: 1/3 - 3 hö 3ja fasa: 1/3 - 20 hö Utvegum allar fáanlegar stærðir og gerðir. FALKIN N SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670 ^ -

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.