Morgunblaðið - 09.08.1979, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 1979
17
niðurstaða hans að kristin trú og
siðfræði væru eina von mannkyns-
ins til betra lífs.
Eyjólfur var einstaklega tilf-
inninganæmur og bjó yfir svo
ríkri rettlætiskennd að honum var
ekkert böl vorra tíma óviðkom-
andi. Styrjaldir, hungursneyð og
önnur eymd sem herjar á heiminn
lögðust þungt á hann. Honum
sveið sárt skilnings- og aðgerða-
leysi þeirra manna sem áhrif gátu
haft til úrbóta. Hann hafði óbeit á
ágirnd og græðgi og áleit að mikið
af heimsins böli stafaði einmitt af
þessum lágu hvötum mannlegs
eðlis.
Sá víði og yfirgripsmikli heimur
sem Eyjólfur lifði og hræðist í
gerði hann stundum nokkuð tor-
skilinn í augum annarra. Hann
var kröfuharður í eigin garð og
leitaði stöðugt aukins þroska bæði
í lífi sínu og listsköpun. Af öðru
fólki krafðist hann fyrst og fremst
heiðarleika og sanngirni.
Á listabraut Eyjólfs blés oft á
móti, en Ingibjörg Eyfells eigin-
kona hans studdi hann dyggilega
yfir margan erfiðan hjallann.
Þó að Eyjólfur hafi verið al-
vörugefinn maður, þá var hann
samt gæddur ríkri kímnigáfu.
Kímni hans var sérstæð, en hún
hreif þó fólk á öllum aldri. Eyjólf-
ur átti marga nána vini úr ýmsum
stéttum þjóðfélagsins, jafnt unga
sem aldna. Þetta fólk kunni vel að
meta lífsspeki Eyjólfs og hans
síungu kímni, og allir urðu
auðugri af þeim kynnum.
Eyjólfur hefur á sinni löngu ævi
skapað ómetanleg verðmæti, bæði
með lífsspeki sinni sem hann
miðlaði fúslega af, og með mál-
verkum sinum sem endurspeluðu
ást hans á fegurðinni og virðingu
hans fyrir sköpunarverkinu. Lífs-
takmark Eyjólfs var að sigra hið
illa og ljóta með sannleik og
fegurð.
Ingólfur H. Eyfells.
skáld hafa gert er hér dr binda
verks sem Niklas Rádström hefur
í smíðum.
Frásögn, saga, er ríkur þáttur
þessa ljóðs. Engu að síður eru það
vinnubrögð ljóðskálds sem ráða
ferðinni. Það ætti engum að koma
á óvart sem fylgst hefur með
þróun ljóðsins þótt ýmsar aðferðir
sagnaskálds setji svip sinn á það.
I 3. tbl. BLM (Bonniers Litter-
ára Magasin) á þessu ári er langt
viðtal við skáldið Bengt Emil
Johnson (f. 1936), en bók hans
Efter vanligheten (1978) hefur
þótt með merkari ljóðabókum í
Svíþjóð. Johnson sem fyrst vakti á
sér athygli með ljóðum í anda
konkretismans í byrjun sjöunda
áratugar hefur lengi þótt gott
skáld, en nú er svo komið að um fá
skáld er meira rætt í Svíþjóð. Að
mínu viti er Johnson meðal arf-
taka Gunnars Ekelöfs, einkum
með tilliti til orða Ekelöfs að
ljóðið eigi að vera mystík og
músik. Bengt Emil Johnson er
sjálfur tónlistarmaður og hefur
gætt ljóð sín sérkennilegri hrynj-
andi og leikur að orðum er ein-
kennandi fyrir hann. Skáldskapur
hans virðist byggja á móderniskri
hefð, en er um leið frumlegur og á
brýnt erindi til okkar.
Uppruni Bengt Emils Johnsons
kemur glöggt fram í ljóðunum:
skógurinn umlykur allt og líf hans
er kveikja ljóðanna. Um skóginn í
skáldskap Bengt Emils Johnsons
segir ritstjóri BLM, Hans Isaks-
son, í ritstjórnargrein: „Hann er
þar að auki af heilum hug í
áköfum samræðum við náttúruna.
í ljóðum hans er skógurinn ekki
takmarkað svæði sem býður upp á
fegurðardýrkun. Þvert á móti
vakna í huga hans 'andspænis
náttúrunni spurningar sem eru
öllum sameiginlegar og skipta
máli fyrir lif okkar allra. Að sjá
náttúruna veldur því að einnig er
horfst í augu við manninn."
Enginn skyldi furða sig á að ný
kynslóð sænskra skálda sér í
Bengt Emil Johnson fulltrúa ljóðs
sem er mikilvægt vegna þess að
það speglar líf okkar á sígildu
máli skáldskapar: dauðageigur
breytist í ljóð.
STERKIR-SPARNEYTNIR-
ENDIN GARGÓÐIR
Eigum til afgreiðslu:
DODGE B300 sendibifr. m. 6 cyl.vél,sjálfskipting,vökvastýri,rennihurð, á hliðum,
styrktum undirvagni,stólar m. háum bökum og fl.
DODGE W150 fjórhjóladrifs de luxe pick-up, m. 8 cyl. vél,sjálfskipting,vökvastýri,
læstu mismunadrifi, deluxe frágangi að innan, sportfelgum, styrktum undirvagni
og m.fl.
CHRYSLER
í
ör
jTTrlKM 1 k]
SIMCfl | OocJgo
Dodge er bíllinn sem dugir.
\\fökull hf.
Suðuriandsbraut 10 (gamla sjalfsþjonustan) Simi 83330 - 83454
okkar
lan<
amoraun
'lllwl Uwll
ÓTRÚLEGT ÚRVAL
Hér er aðeins
sýnishorn af þvl sem
boðið or wpp á.
Nw or taskifasri til þess
að klasða sig wpp fyrir
litinn poning
Flauelsbuxur
Herraskyrtur
Drengjaskyrtur
Dömublússur
Peysur
Dömujakkar
Bolir
Kuldajakkar
frá 7900
— 3900
— 2900
— 2900
— 3900
— 6900
— 990
— 9900
y<
Laugavegi 37-89
Rokk
ABBA
America
Bonnie Tyler
Bob Dylan
Bee Gees
The Beatles
Bryan Ferry
10 cc
Dr. Mook
Billy Joel
Frank Zappa
Queen
lan Dury
Tom Robinson
JJ Cale
Rod Stewart
Linda Ronstadt
Ry Cooder
Yes
Stevie Wonder
Jazz
Miles Davis
Stanley Clark
Thelonious Monk
Jean-luc Ponty
Keith Jarrett
Eberhard Weber
Montreux Summit
og fl.
" // Hljómdeild
h
. ss?*
Laugavegi89