Morgunblaðið - 09.08.1979, Page 18

Morgunblaðið - 09.08.1979, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 1979 Metaregn á ÞAÐ VAR mikið um dýrðir á Vindheimamelum þegar hestamannafélögin Stíg- andi og Léttfeti héldu hið árlega hestamót sitt um verslunarmannahelgina. Hvorki meira né minna en sex ný íslandsmet voru sett og má segja að mótið í heild sé sjöunda metið. En það var ekki nóg með að met væru slegin, því í sum- um greinum hlupu þrjú fyrstu hrossin öll undir gildandi íslandsmeti. Islandsmet voru sem sagt sett í öllum hlaupa- greinum sem keppt var í nema brokki. Mótið hófst á laugardag og stóð í tvo daga. Agætis- veður var báða dagana, völlurinn með besta móti og greinilegt að Skagfirð- ingar hafa ekki kastað til höndum við undirbúning mótsins. Mjölnir bestur alhliða gæðinga Skagfirðingar láta ekki binda sig á klafa neins ákveðins kerfis þegar gæðingakeppni er annars vegar. Þrír dómarar eru skipaðir í dómnefnd og hafa þeir frjálsar hendur um að velja bestu hesta í hverjum flokki. Engar einkunnir eru gefnar, en þrír efstu hestar í hverjum flokki fá umsögn frá dómurum. Er þetta fyrirkomulag ekki ósvipað og í firmakeppnum. Sýnist sitt hverjum um þetta keppnisform. Efstur í flokki alhliða gæðinga að þessu sinni varð Mjölnir, brún- skjóttur, 9 vetra, úr Skagafirði, eigandi og knapi Jóhann Þor- steinsson, Sauðárkróki. Umsögn hans er eitthvað á þessa leið: Óvenjufjölhæfur og jafnvígur gæðingur. Samband hests og knapa með ágætum. í öðru sæti varð Lyfting, brún, 6 vetra, frá Flugumýri, Skagafirði, eigandi og knapi Ingimar Ingimarsson, Sauð- árkróki. Þessi hryssa var sýnd á kynbótasýningu á fjórðungsmót- inu sem haldið var fyrr í sumar og stóð hún efst í flokki hryssna 6 vetra og eldri. Lyfting hlaut Drottningarbikarinn, farandbikar sem nú er veittur í fyrsta skipti. En bikarinn hlýtur efsta hryssa í A-flokki hverju sinni. Drottning- arbikarinn er gefinn af Ottó G. Þorvaldssyni, Viðvík. í þriðja sæti varð svo Snarfari, jarpur, 5 vetra, úr Skagafirði, eigandi er Vil- hjálmur Felixson, Hrísey, en knapi var Björn Þorsteinsson. Af klárhestum með tölti var valinn bestur Glotti, jarpskjóttur, 9 vetra, úr Skagafirði. Eigandi og knapi Jónas Sigurjónsson, Sauðár- króki. Umsögn hljóðar þannig: Léttvígur og ferðmikill reiðhestur með óvenjugóðar fótahreyfingar. Og er þar ekkert ofsagt, því hesturinn er stórglæsilegur á velli, en knapinn virtist spilla svolítið með óþarfa taumaskaki. í öðru sæti varð Háfeti, móskjóttur, 7 vetra, úr Skagafirði. Eigandi og knapi Ingimar Jónsson. Er þar á ferðinni efnilegur knapi sem á sjálfsagt eftir að láta að sér kveða í framtíðinni. Þriðja sætið skipaði Jarl, jarp- ur, 8 vetra, úr Skagafirði, eigandi Ásdís Sigurjónsdóttir, S-Skörðu- gili, en knapi var Jón Friðriksson. I dómsorði um Jarl segir meðal annars, að hann sé aðsópsmikill og með kraftmiklar hreyfingar og má segja það sama um taumhald knapans. í unglingaflokki sigraði Anna Þóra Jónsdóttir, Vatnsleysu, á Glóbrún, 5 vetra. í öÁru sæti varð Hermann Sæmundsson, Sauðár- króki, þá Glóð, 6 vetra, og í þriðja sæti varð Sigurjón Rafnsson, S-Skörðugili, á Blesa, 8 vetra. Þrír undir mettíma í folahlaupi Strax á laugardag byrjuðu met- in að fjúka og var þar fyrstur að verki Don, hljóp hann á 17.7 í undanrásum, næst bestum tíma náði Hrímir, hljóp hann á 18.1 sek. í milliriðlum náðust einnig góðir tímar þótt ekki væru slegin nein met. Var röðin þannig eftir milli- riðlana: Don 18.0, Léttfeti 18.1, Hrímir og Leó 18.2, tvö hross, þau Cesar og Irpa, voru á 18.3 sek., sem nægði ekki til þátttöku í úrslitahlaupi. í úrslitasprettinum, sem var æsispennandi, bætti Don sig um eitt sekúndubrot, hljóp á 17.6 sek., næstir komu Léttfeti og Leó á 17.7 sek. Léttfeti sjónarmun á undan. Eigandi Dons er Hörður G. Albertsson en knapi Hörður Harð- arson. Eigandi Léttfeta er Guð- mundur Sigurðsson og knapi Bald- ur Baldursson. Leó er eign Baldurs Baldursson ar en knapi Björn Baldursson. Þarna hlupu þrír hestar undir gildandi mettíma sem er 17.9, sett af Kóng á sama stað fyrir um ári. Hryssuveldið stendur enn í 350 m stökki var höggvið nærri metinu á laugardegi, en þá var Glóa sekúndubroti frá met- jöfnun, aðrir tímar voru góðir, þannig að menn voru vongóðir með sunnudaginn. I milliriðli féll svo metið og það svo um munaði, en þá hljóp hún á 23.9 sek. og er það hálfri sekúndu undir gildandi meti sem Glóa á sjálf. Næst á eftir komu svo Mæja og Kóngur á 24.4 sek. sem er metjöfnun. í úrslitunum varð röð- in sem hér segir: Glóa Harðar G. Albertssonar, knapi Hörður Harð- arson, á 24.9 sek., annar Kóngur Jóhannesar Jóhannessonar, knapi Stefán Sturla, á 24.1 sek., og Mæja Maríu Traustadóttur, knapi Anna Markúsdóttir, á 24.8 sek. Þannig að hryssuveldið í þessari vegalengd virðist standa enn þrátt fyrir alla spádóma og getgátur um fall þess. Nýja metið 2.1 sek. undir gildandi meti í 800 m stökki hafa sjálfsagt flestir reiknað með nýju meti, en eins og kunnugt er bætti Þróttur íslandsmetið á fjórðungsmótinu fyrr í sumar. Og það kom á daginn, að met Þróttar féll strax í undanrásum, en nú var það Reyk- ur sem þar var að verki. Tími hans var 58.1 sek. Annar varð Gustur á 58.5 sek, einnig undir meti, þriðji í undanrásum varð svo öllum á óvart Þróttur á 59.1 sek., en flestir höfðu reiknað með Þrótti í fyrSta sæti. í úrslitahlaupinu bætti svo Reykur metið enn betur, hljóp á 57.6 sek., sem er 2.1 sek., betri tími en gildandi met. Eigandi Reyks er Hörður G. Albertsson en knapi var Hörður Harðarson. Annar varð svo Þróttur, eigandi og knapi Tómas Ragnarsson. Hjóp hann á 57.9 sek. og bætti hann sig um 1.1 sek. frá deginum áður. Er það stór spurning hvað hefði gerst ef það hefðu verið milliriðlar í þessari vegalengd. Þriðji varð Gustur Björns Baldurssonar, knapi Bald- ur Baldursson, hann hljóp á sama tíma og daginn áður, 58.5 sek. Stórkostlegur sprettur hjá Skjóna Því hefur verið haldið fram, að völlurinn á Vindheimamelum sé ekki nógu góður sem skeiðvöllur. Það var því giaður dagur hjá Skagfirðingum þegar nýtt met í 250 m skeiði leit dagsins ljós á Vindheimamelum. Á laugardeginum sáu menn Vindheimamelum Glóa Harðar G. Albertssonar, knapi Hörður Harðarson, kemur að marki í 350 metra stökki á nýju íslandsmeti, 23,9 sek. Við hlið hennar er Mæja og yst Kóngur. Ljósm. Valdimar Kristinsson. Skeiðhestarnir Skjóni, Trausti og Fannar reyna hér með sér hver þeirra nái að slá íslandsmetið í 250 metra skeiði. Það var Skjóni Helga Valmundssonar, knapi Albert Jónsson, sem setti nýja metið 21,6 sek. Mjölnir Jóhanns Þorsteinssonar, sem einnig var knapi, sigraði í A-flokki gæðinga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.