Morgunblaðið - 09.08.1979, Síða 25

Morgunblaðið - 09.08.1979, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 1979 25 UTFLUTNINGUR landsmanna á vörum til Sovétríkjanna dróst mjög saman í júnímánuði miðað við sama mánuð í fyrra. Hlutfall útflutningsins í júní var nú aðeins 3,1% af innflutningi þaðan, en í júní í fyrra varð útflutningurinn 80,4% af innflutningnum frá Sovétríkjunum. Þessar upplýsing- ar má lesa út úr töflu, sem birt er í nýútkomnum Hagtíðindum. Fyrstu 6 mánuði þessa árs jókst útflutningur íslenzkra vara til Sovétríkjanna miðað við sömu mánuði í fyrra um 11%, en innflutningur frá Sovétríkjunum jókst um 57,3%. Útflutningur landsmanna til Sovétríkjanna var í júnímánuði síðastliðnum að verðmæti 107,6 milljónir króna en í sama mánuði í fyrra var þessi útflutningur 1.163.3 milljónir króna. Innflutn- ingurinn í júnímánuði síðastliðn- um var að verðmæti 3.452,0 millj- ónir, en sama mánuð í fyrra nam hann 1.447,6 milljónum króna. Fyrstu 6 mánuði þessa árs nam útflutningur til Sovétríkjanna 3.574.3 milljónum króna, en á sama tíma í fyrra nam hann 3.219,7 milljónum. Innflutningur frá Sovétríkjunum þessa sömu mánuði, janúar til júní að báðum mánuðum meðtöldum, nam nú 11.400,6 milljónum, en var á sama tíma í fyrra 7.248,0 milljónir króna. ÚTKALL um lancl attt Fimmtudagur 9. ágúst Akureyri: Unglingadansleikur. Föstudagur 10. ágúst Félagsheimiliö Húsavík. Laugardagur 11. ágúst Tjarnarborg, Ólafsfirði: (.ath. unglingadansleikur síödegis). Sunnudagur 12. ágúst Hótel Höfn, Siglufiröi. 19,7% aukning í sölu kindakjöts innan- lands á 9 mánuðum Stórum versnandi viðskipta- jöfnuður yið Sovét Um daginn kom við hér á Reykja- víkurflugvelli þetta gamla „Fljúg- andi virki" — bandaríska sprengju- flugvélin af B-17 gerðinni. — Þær komu mjög mikið við sögu í heim- sstyrjöldinni, því það voru sprengjuflugvélar af þessari gerð, sem vegna vopnabúnaðar m.m. gerðu bandamönnum kleift að fara í dagárásir, eins og þær hétu, inn yfir sjálft Þýzkaland, en það var NÝJUSTU áætlanir Framloiðsluráðs gera ráð fyrir, að mjólkurframleiðslan í landinu verði í ár 5% minni en á árinu 1978. Þá hefur orðið 19,7% söluaukning á kindakjöti hér innanlands á fyrstu 9 mánuðum yfirstandandi verðlagsárs 1978. Kemur þetta fram harðindanefndar. I greinargerð harðindanefnd- ar segir, að vegna þess sam- dráttar í mjólkurframleiðslunni á þessu ári sé unnt að draga nokkuð úr framleiðslu smjörs og hafi því verið hætt við fyrri áform um að flytja út 500 tonn af smjöri. Er gert ráð fyrir að um næstu áramót verði smjör- birgðir í landinu um 1.180 tonn eða 150 tonnum minni en um s.l. áramót. Þrátt fyrir söluaukningu kjðts innanlands eru horfur á að kjötbirgðir í haust verði töluverðar. Útflutningur kinda- kjöts hefur verið um það bil 800 tonnum minni á verðlagsárinu en ráðgert var og birgðir þeim mun meiri 1. september. I greinargerðinni segir einn- en það hófst 1. september í grcinargerð meirihluta ig, að ekki hafi náðst að flytja út osta eins og ætlað var svo að birgðir 1. september munu verða að minnsta kosti helmingi meiri en eðlilegt er, eða 1400 tonn af 45% osti í stað 700 tonna,. sem talið eru hóflegar birgðir. Leiðrétting SÚ villa slæddist inn í frásögn Morgunblaðsins af Norðurlanda- meistaramóti kvenna í skák, að sagt var að þetta hefði verið í fimmta skipti sem slík hefur farið fram. Hið rétta er að þetta mun í þriðja skipti að Norðurlanda- meistaramót kvenna. í skák er haldið og hefur Guðlaug Þor- steinsdóttir unnið þau öll. B-17áReykjavíkurflugvelli GÖMLU flugvélarnar frá því úr heimsstyrjöldinni síðari má sjá öðru hvoru brcgða fyrir er þær lenda hér á Reykjavíkurflugvelli. — Sennilega er búið að ,.afvopna“ flestar þeirra, sumar hverjar eru þó stundum í sinni hinztu flugferð, eftir að hafa verið bjargað af ruslahaugum úti í heimi og gerðar flughæfar til að komast á söfn. sumarið 1942. — Þessar sprengju- flugvélar voru notaðar allt til loka stríðsins til loftárása á vígvöllunum hér í Evrópu. Þetta „Fljúgandi virki“ er í eigu frönsku landfræði- stofnunarinnar, I.G.N. — Institute Geographique National. — Hún kom hér við á leið til Meistaravíkur á austurströnd Grænlands. Þar átti 7 manna áhöfn flugvélarinnar að vinna við vísindastörf, m.a. málma- leit úr lofti. Þar sem byssuhlaupin stóðu forðum í „skotturnum“ hefur verið lokað af með því að setja glugga í staðinn. (Ljósm. Mbl. Ol.K.M.).

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.