Morgunblaðið - 09.08.1979, Page 26

Morgunblaðið - 09.08.1979, Page 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 1979 í Velvakanda Morgunblaðsins sunnudaginn 22. júlí, er greinar- stúfur eftir einhvern Á.H. og telja glöggir menn sig kenna þar orð- færi og blíðlyndi Árna Helgasonar í Stykkishólmi. Grein þessi samanstendur reyndar einungis af sérkennilegri æðislöngun til þess að koma Hilmari Helgasyni, for- manni S.Á.Á. á kaldan klaka, og er það út af fyrir sig og sér á parti dálítið spaugilegt þegar um er að ræða hjálp til handa drykkjusjúk- um, þar sem vitað er, að enginn íslendingur fyrr eða síðar hefur gengið eins fast fram í að koma þeim málum á einhvern viðunandi stall og Hilmar Helgason. Enn- fremur herma nýjustu fréttir að hann sé hvergi nærri fullþreyttur enn. (Sparisjóðurinn). En það sem skiptir máli í greininni er ef til vill ekki merki- legt og tröllvaxið hugsjóna3tarf Hilmars Helgasonar, þótt það sé út af fyrir sig efni í allþykka biblíu, heldur virðist mér Árni karlinn Helgason sjálfur þurfa allnokkurrar rannsóknar við, svo ekki sé nú meira sagt, því að maður sem skrifar grein á borð við þá sem Árni lét frá sér fara í Velvakanda þarna um daginn, er að sínu leyti tilvalið rannsóknar- efni sálar- og félagsvísindunum. Þegar ég las greinina í hið fyrsta sinnið, spurði ég sjálfan mig eitthvað á þá leið: Hvernig skyldi nú manni líða sem skrifar svona grein? Og eftir að hafa lesið greinina í hið annað sinnið, álykt- aði ég sem svo: Mikið hlýtur þessi Á. H. að vera beygður og óhamingjusamur maður. En svo las ég greinina í hið þriðja sinnið, til þess að ekkert færi nú á milli mála, og sá þá í hendi mér hvílíkur fengur það mundi verði Árna Helgasyni, léki lánið þannig við hann að hann kæmist í með- ferð í einhverri af þeim stofnun- um sem Hilmar Helgason af fram- sýni sinni og dugnaði hefur komið á laggirnar með aðstoð góðra manna og kvenna. Og til þess að menn haldi ekki að ég sé að henda gaman að Árna Helgasyni, vil ég styðja þessa skoðun mína nokkr- um orðum. Árni uþphefur grein sína með þessum orðum: „Oft verður maður fyrir vonjbrigðum...“ Ég gef upplýst það að þennan tón þekki ég. Þau ár sem ég lifði hamingjusnauðu lífi var ég sífellt að verða fyrir vonbrigðum. Þar af leiddi að ég var sínkt og heilagt að koma fyrir mola í götu náungans. Urðu fyrir þessarri áreitni minni oftast þeir sem mér þótti vænst um, eins og alltaf er þegar óhamingjufólk á í hlut, og fyrir bragðið varð ég fyrir enn meiri vonbrigðum. Ég get því sagt með sanni að ég skil Árna þegar hann talar um að hann verði oft fyrir vonbrigðum, því það er að vera óhamingjusamur maður. Árni á því vorkunn mína. Og hann heldur áfram: „... og er þess skemmst að minnast að formaður félags míns S.Á.Á. lýsti því yfir í ríkisútvarp- inu að engir hefðu verið meiri óþurftarmenn áfengisvarna í landinu en læknar. Engin rök.“ Ég held ekki uppi vörnum fyrir Hilmar Helgason vegna ummæla hans um lækna, hann er fullfær um það sjalfur. Aftur á móti get Örn Bjamason: ég sagt hér mína eigin skoðun á málinu, — hún er varla vitlausari en hinar, og hún er í stuttu máli á þessa leið: Ég hef þá skoðun að allir þeir sem sinna hjálparstarfi til handa drykkjusjúkum geri sitt besta. Það er ekki þar sem hnífur- inn stendur í kúnni, að mínu viti, heldur sú spurning; hvað vita þessir hjálparmenn virkilega um alkohólisma? Og það verður að segjast eins og er, að það var til skamms tíma varla nokkur skapaður hlutur. Énda er það mála sannast að búið var að reyna bókstaflega allar hundakúnstir sem mönnum mögulega datt í hug, í þeirri von að eitthvað af því dygði, en án árangurs, þar til loksins að menn uppgötvuðu að sjúkdómur þessi verður ekki með- höndlaður eftir „venjulegum læknisfræðilegum leiðum". Ég hef þetta í gæsalöppum. Það sem ég á við er t.d. skurðaðgerðir, fortölur, hótanir eða lyfjagjafir. Og þarna stendur einmitt hnífur vor fastur: Menn hafa verið að rembast við það allt fram á þennan dag að lækna alkóhólisma með lyfjagjöf- um. Og ég veit það auðvitað ekki, en ætli það sé ekki það sem Hilmar á við þegar hann talar um að læknar séu að „fabrikkera" fyllibyttur. (Hafi hann gert það sem ég veit ekkert um, en ég hef tilhneigingu til þess að rengja ekki Árna Helgason ef ég kemst hjá því). Ég býst við því. Læknar hafa sjálfsagt gefið drykkjusjúkum tauga-, svefn- og örvandi lyf í góðri trú, sannfærðir um það að þeir væru að hjálpa viðkomandi, og út í bláinn að skamma mennina fyrir að gera það sem þeir telja best fyrir sjúklinga sína. En til allrar ham- ingju vitum við betur í dag. Það er nú sannað að alkóhólisti má alls ekki setja í líkama sinn neitt sem heitir hegðanabreytilyf (Mood chancing drug) þar sem allt slíkt er fíknmyndandi fyrir alkóhólist- ann. Þessi vitneskja liggur fyrir og er því sárara að vita til þess að margir læknar moka þessu í fólk rétt eins og enginn viti neitt í sinn haus frekar en forðum daga. Það er auðveldara að fá taugatöflur hjá læknum heldur en brjóstsykur í búð og er þá oft þröng á þingi á læknastofum. Þó er læknum nokk- ur vorkunn þar sem sjúklingurinn þegir oftast nær yfir því fram í rauðan dauðann að hann eigi í vandræðum með drykkju sína. Og það veit sá sem allt veit, að um þennan punkt má skrifa langt mál og dapurlegt þótt ég láti þetta nægja í bili. Árni heldur áfram: „Svo er mér sagt að í Alþýðublaðinu, sem ég les nú helst aldrei eins og fleiri landar mínir, víki hann ávíslegum fúkyrðum að Áfengisvarnarráði í viðtali sem að rökvísi sverji sig í ætt við fyrri upphrópanir ...“ Það er holl regla, Árni Helga- son, að láta ekki aðra segja sér hlutina, heldur reyna þá á sjálfum sér, ég tala nú ekki um ef menn hafa í hyggju að vandlætast yfir umsögninni. En ég er sammála því að það er grátlega sjaldan, nú orðið, sem maður sér Alþýðu- blaðið. Ja, það er af sem áður var! Hvað líður „fávísum fúkyrðum á Áfengisvarnarráði" er nú ekki gaman um að tala. Þetta virðist þú allt saman hafa í gegnum milliliði, Árni minn, svo þú skalt reyna að gleyma þessu og ég skal ekki minnast á það heldur. En ég get sagt þér að ég þekki lítillega til Áfengisvarnarráðs og veit að það samanstendur af miklum ágætis- mönnum og ætti ég að geta manna sælast borið um það. Hitt er svo önnur saga hvort kraftar þessa góða fólks nýtast til fullnustu og væri fengur að upplýsandi grein birtist í Velvakanda um það efni. Þar næst siglir Árni hvassan beitivind: „Hins vegar minnist ég þess ekki að þessi sjálfumglaði krossriddari í baráttunni við „boð og bönn“ í siðaðra manna sam- félagi hafi nokkrum sinnum hreytt ónotum í vínsölulýð og málaliða hans.“ Svo mörg voru þau orð. Og það er ekki von að Árni minnist þess; Hilmar Helgason hreytir aldrei ónotum í nokkurn mann, aftur á móti ber hann endurreisn alkóhól- ista fyrir brjósti og er það honum býsna heilagt málefni. Grein þín er hins vegar ekki allskostar laus við „ónot“ sem þú kennir öðrum og gætir þú af þínu snotra hjartalagi dregið af því bætandi ályktanir. Um siðaðra manna samfélag skulum við ræða seinna. Það mál er alveg sér á parti og sýnu viðkvæmara en þetta. Og enn veður Árni: „Ég er samt alls ekki að óska eftir slíku því að klaufaspörk hans í heiðarlegt fólk, stéttir og stofnanir eru að verða gæðastimpill sem æ fleiri munu þakka fyrir að fá.“ Þarna er skrýtin þula. Mig minnir að Halldór Laxness geti þess í grein, sem síðar kom í greinasafni hans Yfirskygðir staðir, að fólk á þessu greindar- stigi skrifaði ekki í blöð í öðrum löndum. Hvað segir Árni Helga- son við svoleiðs löguðu? Er hann sammála því? Af klaufaspörkum Hilmars Helgasonar, þeim sem einhverju máli kunna að skipta okkar sögu, hef ég ekki heyrt. Færu þau þó tæpast leynt ef þau væru einhver. Én trúlega hefur honum nú orðið á lítilræði eins og fleirum. Að lokum dregur Árni nokkuð í land með fróma ósk í hjarta þó, svolátandi: „En hvort slíkt (klaufaspörkin) er gróði fyrir félag mitt sem ég vænti svo mikils af er annað mál og sú spurning hógværari með degi hverjum hvort þar þurfi ekki verulega að hreinsa til.“ Ég er svo sannarlega sammála Árna Helgasyni um það, að það þarf að hreinsa til víða. Svo eitthvað sé nefnt þarf að samstilla anda, kraft og hjartalag allra félagsmanna í þá veru að fá félaginu til handa stærri og fullkomnari sjúkrastöð, (sjötíu manns eru á biðlista þar núna). Öflugri og afkastameiri eftir- meðferðarstofnun (þar er biðlist- inn grátlega langur líka) og opin og almenn námskeið fyrir alla þá sem vilja kynna sér þessi mál. Þá þarf að margfalda fræðslu í skól- um og á vinnustöðum. Einnig að athuga hvað hægt er að gera fyrir börn alkóhólista, sem verða dapurlega hart úti í viðskiptunum við Bakkus. Eiginkonur alkóhól- ista eru líka til þótt fáir muni eftir þeim nema ef vera kynni Hilmar Helgason. Þær mættu mæta örlitlum skilningi líka. En umfram allt þarf þó að svipta brennivínið þeim falska ævintýra- ljóma sem það hefur haft með þjóðinni allt til þessa dags, og er á góðri leið með að draga fleiri heimili ofan í hyldýpi örvæntingar og vonleysis en krabbamein, hjartasjúkdómar, sjálfsmorð og umferðaslys til samans. Við skulum því samstilla kraftinn og varðveita æsku vora, því að oft var þörf en nú er nauðsyn, eins og Jón sagði. Þetta er allsæmilegt verk- efni, Árni minn Helgason, og er þó fátt eitt talið, það er ekki einu sinni víst að við ráðum við það þótt við leggjum saman báðir. En þá veit ég um að minnsta kosti einn sem mun rétta okkur hjálparhönd býsna fagnandi, og það er Hilmar kaupmaður Helga- son. Vertu svo sæll og blessaður, Árni og skilaðu kveðju minni til allra þeirra sem þjást vegna drykkjuskapar í Stykkishólmi, þeirra von er að félag vort eflist og dafni í náinni framtíð. Með virðingu, Örn Bjarnason, félagi í S.Á.Á. amCONCORD Amerískur lúxusbill meðöllu 6 cyl 258 cid vél. Sjálfskipting, vökvastýri, aflhemlar, hiti í aftur- rúðu, hallanleg sætabök, pluss- áklæði, viðarklætt mælaborö, vinyl- toppur, teppalögö geymsla, hliöar- listar, krómlistar á brettaköntum, síls og kringum glugga, klukka D/L hjólkoppar, D78x14 hjólbarðar með hvítum kanti, gúmmíræmur á höggvörum og vönduö hljóðein- angrun. Nokkrir bílar til afgreiðslu nú Þegar. Næsta sending í haust á verulega hækkuðu verði. Allt á sama stað Laugavegi 118 - Simar 22240 og 15700 EGILL VILHJALMSSON HE Þáttur af aðdá- endum Hilmars

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.