Morgunblaðið - 09.08.1979, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 1979
37
fclk í
fréttum
Á bátskel
yfir Atlantshaf
siglt hefur yfir Atlantsháfið
milli Bandaríkjanna og Evr-
ópu, — aðeins 10 feta langur
bátur. Áhöfnin: Þessi eini mað-
ur, Bandaríkjamaður, Gerry
Speiss, 39 ára gamall. Svo sem
sjá má er báturinn búinn hjálp-
armótor. Hann lagði upp frá
Miamiströnd, en Speiss tók land
við Cornwallskaga. — Þar, í
bsenum Falmouth, tók kona
Speiss á móti honum. — Sjást
þau á götu í bænum, er sæúlfur-
inn var kominn f land. Ferðin
yfir haíið tók 54 sólahringa.
Hann sagði að einveran hefði
verið það sem hann hefði átt
erfiðast mcð að þola. Bátskelin
hefði staðið sig betur en hann
hefði þorað að vona. Hann hafði
tekið út einu sinni en verið svo
fljótur að klifra um borð aftur
að hann tæplega blotnaði, hafði
hann sagt konu sinni.
+ Bátskelin litla, sem maðurinn
stendur á, „Yankee Girl“, er
sagður vera minnsti bátur, sem
Brjóstmynd
af páfa
+ ítalskur listamaður,
myndhöggvari og málari,
Benedetto Robazza að
nafni, hefur nýlega lokið
við að gera brjóstmynd af
Jóhannesi Páli páfa II.
Er myndin steypt í bronz.
Búið er að koma henni
fyrir í Páfagarði þar sem
mikill og stöðugur
straumur gesta liggur
framhjá. Listamaðurinn
er 45 ára gamall, giftur
norskri konu. Robazza
hefur einnig gert brjóst-
mynd af hinum fræga
ítalska stjórnmálamanni,
sem myrtur var, Aldo
Moro. — Sjálfur segist
listamaðurinn, sem er
borinn og barnfæddur í
Róm, hafa mesta ánægju
af að gera myndir af
hestum. í ráði er að gerð-
ar verði um 100.000 litlar
afsteypur af hinni nýju
brjóstmynd af páfanum.
Það er Robazza sjálfur,
sem hér fer höndum um
verk sitt, skömmu- áður
en hann afhenti það sjálf-
ur í Páfagarði, en þar
þakkaði Jóhannes Páll
páfi iistamanninum fyrir
myndina.
Bob Hope
í Kína
+ Kínaför gamanleikarans og
háðfuglsins Bob Hope á vegum
NBC-sjónvarpsstöðvarinnar
bandarísku er lokið. Þar eysta
var hann f mánaðartíma. Hann
sagði við komuna til Los
Azngeles, að það hefði verið
merkileg sjón að sjá þúsundir
Kínverja á reiðhjólum að vinnu-
degi loknum fara um göturnar,
og einungis 20 bíla, sem aðeins
ríkisstarfsmenn eiga. — Allir
hafa atvinnu við eitthvað. —
Vera má, sagði Bob Hope, að
það hafi nú ekki verið til þess
ætlast að ég færi um hliðar-
göturnar og þótti mér húsnæði
fólksins heldur ömurlegt. Eftir
því sem aldurinn færist yfir
fólkið þar eystra því meiri
virðingu nýtur það. — Og ég
hefði eiginlega átt að vera þar
svo sem nokkrar vikur til við-
bótar sagði Bob. Myndin er
tekin er leikarinn var að kveðja fyrir börnin með jó-jóinu sínu.
Kína, í flugstöðinni f Shanghai. Kína-þáttinn á að frumsýna hjá
— Hér leikur hann ýmsar listir NBC í september n.k.
ÞESSI flugvél, sem er af gerðinni Cessna/ Citation II, er af ýmsum
fróðum mönnum um flugvélar talin ein hin tæknilega þróaðasta
millistærðar-þota. sem um háloftin flýgur um þessar mundir. Hún er
reyndar búin að vera í umferð í um það bil tvö ár. í Bandaríkjunum eru
það einkum forstjórar stórfyrirtækja, scm hafa slfkar þotur til umráða.
Þær hafa nokkrum sinnum komið hingað á Rcykjavíkurflúgvöll. Það eru
ekki margir dagar síðan Ólafur K. Magnússon ljósm. Mbl. tók þessa
mynd af einni slíkri „Cessnu Citation II." á flugvellinum.
Þessi einstaklega rennilega þota, sem er smíðuð til ferða um háloftin.
flýgur venjulega í um og yfir 39.000 feta hæð, eða a.m.k. 13 kílómétra
uppi í háloftunum. Þess má geta að hinar venjulegu farþcgaþotur halda
sig í um og yfir 30.000 fetum í Atlantshafsfluginu milli Ámcríku og
Evrópu. Fer þotan með um það bil 676 km hraða. Þar uppi getur hún
flogið allt að 1700 mílur án þess að taka eldsneyti. — Vængir þessarar
þotu þykja hin merkilegasta smfði, fyrir það einkum hve tekist hefur að
hafa þá þunna. þeir eru svona rúmlega þverhandarþykkir. — Og í
orkukreppunni er þotan talin mjög sparneytin. — Cessnaverksmiðjurn-
ar eru nú byrjaðar á framleiðslu enn endurbættrar útgáfu af þessari
gerð þotna. Hún ber sama nafnið, en er auðkcnnd mcð rómvcrsku tölunni
III.
Fjármagnsvöntun ilARIK til
áramóta er 3,5 milljarður
FJÁRMAGNSVÖNTUN Raf
magnsveita rfkisins fram til ára-
móta er um þrír og hálfur
milljarður. að sögn Kristjáns
Jónssonar forstjóra RARIK.
Kristján sagði að þessi upphæð
skiptist þannig að einn milljarð-
ur væri fyrirsjáanlegur rekstrar-
halli sem til kæmi vegna inn-
lendra kostnaðarhækkana,
gengissigs og olfuhækkana.
Kostnaðarhækkanir þeirra fram-
kvæmda sem áætlað var að ljúka
í ár nema 860 milljónum, en inn í
þá upphæð koma einnig
kostnaðarhækkanir innanlands
og gengissig. Kristján sagði að
þarna væri aðallega um tvennt að
ræða, byggðalfnuframkvæmdir
og almennar framkvæmdir. Af
byggðalínum væri stærsti þáttur-
inn tilsettur áfangi Vesturlínu
svo unnt væri að tengja hana
fyrir haustið 1980. Af almennum
framkvæmdum væri helst. að
nefna línulagnir eins og lfnu frá
Vegamótum til Ólafsvíkur til að
bæta ástandið á Snæfellsnesi,
einnig lína milli Dalvíkur og
Ólafsfjarðar.
Þá sagði Kristján að 440
milljónir væru vegna vanskila
fyrri ára til ýmissa aðila.
Hann sagði að tillögur Raf-
magnsveitnanna til úrbóta væru í
því fólgnar að ríkissjóður létti
hluta af þeirri miklu lánabyrði
sem hvíla á Rafmagnsveitunum.
Þær lánabyrðir væru komnar til á
undanförnum árum vegna þess að
þurft hefði að leggja í óarðbærar
framkvæmdir sem ekki hafa stað-
ið undir fjármagns- og rekstrar-
kostnaði. Áuk þess hefði þurft til
þeirra framkvæmda óhagstæö lán
og allmikið af vísitölutryggðum
innlendum lánum. Þá væri einnig
lagt til að ríkissjóður fjármagni
félagslegan þátt framkvæmda
sem Rafmagnsveiturnar standa í.
En Kristjái sagði að sá þáttur
nefði verið knaður út og lagður
fram með dllögum Rafmagns-
veitnanna til iðnaðarráðuneytis-
ins.
Bók Bernard-Henri Lévys
er komin út á ensku
BÓK franska nýheimspekingsins
Bernard-Henri Lévys. La barbar-
ie á visage humain, kom nýlega
út á ensku undir nafninu Barbar-
ism with a Human Face. Bókin
hefur selzt í 100 þús. eintökum í
Frakklandi og vakið mikla at-
hygli á Vesturlöndum, því að
Lévy er af þeirri kynslóð evr-
ópskra menntamanna. sem var
róttæk á síðasta áratug, en hefur
hafnað sósíalismanum sem alræð-
isstefnu. (Nafn bókarinnar er
skopstæling á nafninu „mannúð-
legum sósíalisma".) Lévy varð
fyrir miklum áhrifum af Alex-
ander Solsénitsyn, sem hann kall-
ar „Dante nútímans". Pöntun-
arþjónusta Félags frjálshyggju-
manna útvegar bókina félags-
mönnum, en Skafti Ilarðarson
sér um þessa þjónustu.
„Við ákváðum að fá bókina
fremur á ensku en frönsku, þvi að
miklu fleiri íslendingar lesa
ensku,“ sagði Skafti í viðtali við
Morgunblaðið. „Hún kostar ekki
nema 7.230 kr. í bandi hjá okkur.“
Skafti var ejnnig spurður, hvernig
pöntunarþjónustan gengi. „Fr&m-
ar öllum vonum,“ svaraði hann.
„Við höfum selt um 200 bækur og
bæklinga frá útlöndum, sem er
auðvitað geysilega mikið miðað
við fólksfjöldann okkar fræga. Við
seljum bækur kunnustu frjáls-
hyggjuhugsuða nútímans, Friedr-
ichs A. Hayeks, Karls R. Poppers,
Miltons Friedmans, Ludwigs von
Misess og Raymonds Arons í mjög
ódýrum pappírskiljum. Við seljum
líka bækur yngri manna eins og
Lévys, annars fransks nýheims-
Franski nýheimspekingurinn
Bernard-Henri Lévy
spekings, André Glucksmanns, og
Roberts Nizicks, heimspekipróf-
essors í Harvard. Ég bendi núna
auk bókar Lévys sérstaklega á bók
Nizicks, Anarchy, State and Utop-
ia, bók andófsmannsins Vladimirs
Bukovskys, To Build a Castle-My
Life as a Dissenter, og bók Davids
Friedmans, The Machinery of
Freedom, en hann er sonur Milt-
ons Friedmans og hagfræðipróf-
essor. Einnig fáum við fljótlega
bókina Socialism eftir von Mises,
en hún kom við sögu í ritdeilu
þeirra Jónasar Haralz og Hannes
ar Gissurarsonar annars vegar og
Ragnars Árnasonar hins vegar um
sósialismann. Þessar bækur og
margar fleiri útvegum við fé-
lagsmönnum. Þeir, sem hafa
áhuga á að vera í félaginu, geta
skrifað í pósthólf 1334, 121
Reykjavík."