Morgunblaðið - 09.08.1979, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 09.08.1979, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 1979 41 JD VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 0100 KL. 10—11 FRÁ MANUDEGI yfir því að Jón Múli skuli vera hættur hjá útvarpinu. • Besta tónlistin En það var nú þetta með tónlistina. Ekki er nú allt skemmtilegt sem flokkast undir klassík og ekki heldur allt jafn skemmtilegt sem nefnt er popp. Vonandi er góður hópur fólks sem er í því að velja fyrir hlustendur. Fólk sem hefur vit á þessum stefnum tónlistarinnar og velur bara það besta, hvort sem það heitir klassík, dægurmúsík eða popp. Með þakklæti, Erla. • Æskan og framtíð þjóðarinna Ég verð að segja það Velvak- andi góður að oft hefur útlitið verið slæmt fyrir okkar litlu þjóð, og oft hefur syrt svo í álinn að illa hefur horft um framtíð lands og þjóðar. oft hafa íslendingar þurft að búa við sult og seyru og harðindi hafa dunið yfir þjóðina þannig að vart hefur mátt á milli sjá hvor myndi hafa betur að lokum, móðir náttúra eða mannskepnan. Það sem hefur haldið íslending- um áfram í hópi annarra þjóða, þar sem við höfum skipað okkur sæti meðal hinna fremstu, er dugnaður og aftur dugnaður fyrri kynslóða. Ekkert annað en trú fólksins á eigin mátt og megin hefur áorkað því sem íslendingar hafa áorkað. Þess vegna er það sem ég set mínar hugsanir á blað, að ég er að hugleiða hver er framtíð okkar þjóðar þegar hún verður komin í hendur unga fólksins, fólksins sem á að erfa landið. Mér finnst eins og sú kynslóð hafi verið afskipt með gott og vandað uppeldi hjá okkur eldra fólkinu. Það má nefna mörg atriði þessu til stuðnings og hirði ég aðeins um nokkur þeirra. Má þar fyrst nefna að svo virðist sem margt ungmennið bókstaflega trúi því statt og stöð- ugt, að peningarnir vaxi á trján- um. Og virðingin fyrir fjármunum verður þá af þeirri stærðargráðu sem því samsvarar. „Peningar, hvers vegna á að vera að spara þá, það er til nóg af þeim.“ Og hvar er nú niðurkomin sú kurteisi sem þó var til staðar meðal þjóðarinnar, þrátt fyrir að íslendingar hafi aldrei fengið á sig það orð að þeir væru kurteis þjóð. SKÁK UmsJÓn: Margeir Pótursson Svo virðist sem sú litla kurteisi sem hér tíðkaðist áður fyrr á hátíðum og tyllidögum sé nú tröllum gefin. Alla vega þá brúkar æskan hana ekki í dag með því að bjóða öldruðum sæti í strætis- vögnum eða í viðskiptum við annað fólk. • Hverjirólu upp æskuna í dag? 1 En ég vil þó ekki láta þessu spjalli lokið án þess að koma að því sem er kjarni þessa máls. Kjarninn í malinu er nefnilega sá, að sú kynslóð sem átti að ala upp æskuna í dag hefur brugðist þeim skyldum sínum. Og hverjar eru fyrirmyndir æskunnar aðrar held- ur en sú kynslóð sem hefur sóað peningum þjóðarinnar í Kröflu- ævintýri og virðist ætla að kaf- sigla þjóðfélag okkar með óráðsíu og eyðslu peninga sem ekki eru til? Ég spyr!! Niðurstaðan af þessu er því sú, að hvernig sem málunum er snúið fyrir mönnum og hvert sem álit okkar uppalandanna er á æskunni í dag þá er niðurstaðan sú, að við skyldum líta í eigin barm og hreinsa til í okkar eigin arfagarði. Með þvi móti getum við betur tekist á við skyldur þær sem uppeldið leggur okkur á herðar, svo að æskunni sem mun erfa landið takist að tryggja því góða framtíð. Edda. » 3 98511« HÖGNI HREKKVÍSI /x '06 £&CI pAKXAÞ A/bóU V0L -PiC/Z ÞÆóbÆ tNHIKJSAJ/vóLU '" Hef opnað tannlækningastofu aö Lindargötu 50, (gengiö inn frá Frakkastíg) Viötalstími kl. 13—17 Sigurjón Sígurðsson, tannlæknir, sími 14656. * ► # i » símanúmer RITSTJÓRN 08 Sj • • . tTArn n. KRIrd ítlrtlR: 10100 w m i ► m 22480 A&* tft m i a n o I J6 . rGBEIÐSLA; 83033 1 J0Hm0ttstiKlfúNi)i fffff#»fff#»f I ♦ N. »fff» I; # I »##»» EF ÞAÐ ER FRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU AK.LVSINI, \ SÍMINN EK; 22480 Á meistaramóti Moskvuborgar í ár kom þessi staða upp í skák þeirra Moiseevs, sem hafði hvítt og átti leik, og Luchinkins. 28. Hxf7! - Hxf7, (Ef 28. - Hxel+ þá 29. Hfl) 29. Bxf7+ - Bxf7, 30. Dxh7+ - Kf8, 31. Hfl! og svartur gafst upp. Núverandi skákmeistari Moskvu er K. Grigorjan. MANNI OG KONNA HAGTRYGGING HF

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.