Morgunblaðið - 09.08.1979, Síða 44
á ritstjórn og skrifstofu:
10100
3H«rgnnbI«tit
FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 1979
Sími á afgreiöslu:
83033
m»r0iinblr.öit>
Tillögur Matthiasar Bjarnasonar um Jan Mayen:
Sex kostir til lausn-
o4^nilnnni Báðar þjóðir nýti auð-
dl llcll LiIIIll æfi hafs og hafsbotns
Heyskapur er nú í full-
um gangi á Suðurlandi
og var þessi mynd tekin í
Þjórsárdalnum í gær
þegar unnið var þar af
kappi við að raka saman.
Hafa bændur syðra víða
náð saman vænu heyi,
enda hábjargræðistím-
inn og þurrkur með
bezta móti síðustu daga.
LjÓHm. Rax
Matthías Bjarnason. alþm., laxði fram tillöKur að umræðuKrundvelli í
vidra-ðum við Norðmenn um Jan Mayen á fundi iandheÍKÍsnefndarinnar 25.
júlí sl. sem byKKjast á sex kostum til lausnar á þcirri dcilu. scm risið hefur
milli þjóðanna um hafsvæðið milli 200 rnilna fiskveiðilöKsöKU íslands ok Jan
Mayen. Er Kert ráð fyrir viðræðum við Norðmenn í Osló hið fyrsta með
þátttöku fulltrúa rikisstjórnar ok stjórnarandstöðu. TillöKur Matthiasar
Iijarnasonar hafa ekki vcrið birtar en skv. upplýsinKum. sem MorKunblaðið
hefur aflað sér eru þeir sex kostir. sem um cr rætt í tillöKunum þessir:
• Norðmenn ok íslendinKar lýsa yfir sameÍKÍnleKri fiskveiðilÖKsöKU
umhverfis Jan Mayen utan 12 sjómflna landhclKÍ Jan Mayen.
• Norðmenn lýsi yfir ok ísland viðurkenni fiskvciðilÖK-sÖKU á Jan
Mayen-sva>ðinu utan 200 mflna íslands. enda verði jafnhliða samið um. að
Norðmcnn ok íslendinKar veiði að jöfnu þann afla. sem veiddur cr utan 12
mflna fiskveiðilöKsöKU Jan Maycn.
• SamninKur verði Kerður miili Norðmanna ok íslendinKa um útfærslu
efnahaKslöKsöKU á Jan Mayen-svæðinu um samcÍKÍnleK yfirráð þjóðanna
tveKKja bæði um nýtinKU hafs ok hafsbotns.
• Norðmenn lýsi yfir ok ísland viðurkenni cfnahaKslÖKsÖKU á þessu svæði
utan 200 mflna íslands. Jafnframt verði samið um jafna nýtinKU
Norðmanna ok íslendinKa á auðlindum hafs ok hafsbotns utan 12 sjómflna
efnahaKslöKsöKu Jan Mayen.
• Norðmenn ok IslendinKar lýsi yfir sameÍKÍnleKum fiskverndaraðKerðum á
Jan Maycn-sva'ðinu ok verði Kerður um það sérstakur samninKur. sem
útiloki veiðar annarra þjóða nema báðar þjóðir samþykki.
• FæreyinKum verði vcitt hlutdcild í veiðum á þessu svæði t.d. 10% ok kæmi
þá í hlut íslands ok NoreKs J5% til hvors.
1 tillöKum Matthíasar Bjarnasonar
mun Kert ráð fyrir frambúðarsamn-
inKum um nýtinKU hafsins ok hafs-
botnsins á þessu svæði. Sérstök nefnd
sem skipuð skal tveimur fulltrúum frá
hvoru landi um sík geri tillöKur um
hvaða fiskteKundir megi veiða og hve
mikið magn af hverri tegund árlega.
Þá gerir Matthías Bjarnason ráð fyrir
því, náist samningar, að þjóðirnar
tvær skuldbindi sig til að ræða saman
um hugsanlegar hámarksveiðar af
loðnu innan og utan fiskveiðilandhelgi
Islands með það markmið í huga, að
ekki verði gengið of nærri loðnustofn-
inum. Þá verði gcrður samningur um
Norðlæg átt
um land allt
EKKI er húizt við miklum breyt-
ingum á veðri frá því sem var í
Kær.
Sagði Markús A. Einarsson
veðurfræðingur að gert væri ráð
fyrir hægri norðlægri átt um
land allt, nokkurri úrkomu
nyrðra, en þurrt myndi vera
syðra og léttskýjað. Fremur svalt
yrði í veðri og bjóst hann við að
veður myndi ekki treytast mikið í
dag eða á morgun.
vísindalega verndun og veiðar síld-
arstofnsins, þ.e. norsk-íslenzka síld-
arstofnsins eða Norður-Atlantshafs-
síldarstofnsins.
Norðmenn haldi uppi gæzlu innan
lögsögu Jan Mayen en ákvæði er í
tillögunum um, að íslendingum sé
heimilt að fylgjast með veiðum skipa
og báðum þjóðunum skylt að gefa
hvor annarri upp afla þeirra skipa
sinna, sem veiða innan þessarar lög-
sögu.
Það skal tekið fram, að Morgun-
blaðið sneri sér í gær til Matthíasar
Bjarnasonar og óskaði eftir því að fá
upplýsingar um þessar tillögur en
Matthías Bjarnason kvaðst ekki vilja
veita þær að svo stöddu. Hins vegar
skýrði hann Morgunblaðinu frá því, að
hann og Geir Hailgrímsson hefðu
óskað eftir nýjum fundi í landhelgis-
nefndinni. Hann kvaðst vilja benda á,
að enginn fundur hefði verið haldinn í
þeirri nefnd fyrir viðræður Norð-
manna og Islendinga í Reykjavík.
Fundurinn, sem haldinn var 24. júlí
hefði verið haidinn að sinni ósk og
fundurinn sl. þriðjudag að ósk Geirs
Hallgrímssonar. Það horfir til vand-
ræða, sagði Matthías Bjarnason, að
ekki er til samræmd stefna íslenzkra
stjórnvalda í þessu máli og fátítt að
stjórnarandstaða verði fyrst til að
leggja slíkar tillögur fram og þær
búnar að veltast milli stjórnarflokk-
anna síðan.
Dómsmálaráðuneytið:
Beiðni um fram-
sal var synjað
Sænskur lögreglumaður við yfirheyrslur hér
DÓMSMÁLARÁÐUNEYTIÐ tók í gær þá ákvörðun að gæzluvarð-
haldsfanginn sem situr inni vegna fikniefnamálsins í Svíþjóð yrði
ekki framseldur til Sviþjóðar, en þarlend dómsmálayfirvöld höfðu
gert kröfu þar um. Sænskur lögreglumaður kom hingað til lands s.l.
mánudag og hefur hann yfirhcyrt gæzluvarðhaldsfangann. Gæzlu-
varðhald hans rennur út í kvöld.
Baldur Möller ráðuneytisstjóri
sagði í samtali við Mbl. að ákvörð-
un í málinu hefði verið tekin
samkvæmt ábendingum ríkissak-
sóknara og hefði ekki verið fallizt
á framsal eins og málið lægi fyrir.
Ólafur Jóhannesson forsætisráð-
herra tók ákvörðun í þessu máli í
fjarveru Steingríms Hermanns-
sonar dómsmálaráðherra.
Eins og áður hefur komið fram
taldi Sakadómur Reykjavíkur
skilyrði til framsals og Hæstirétt-
ur staðfesti þá niðurstöðu. Hins
vegar var umsögn saksóknara
neikvæð og lagði ráðuneytið þá
umsögn til grundvallar eins og
áður er getið.
Einum íslendingi hefur verið
sleppt úr gæzluvarðhaldi í Gauta-
borg og sitja þá átta íslendingar
inni vegna rannsóknar málsins,
sjö í Gautaborg og einn á íslandi.
Þorskafli þegar orð-
inn meiri en fiski-
fræðingar ráðlögðu
ENDANLEGAR tölur um þorsk-
afla í júlimánuði liggja ekki enn
fyrir, en útlit er fyrir að allt að
40 þúsund tonn hafi borizt á land
í mánuðinum. Mikil aflahrota
var á Halamiðum f mánuðinum
og stendur hún enn. Togarar frá
stöðum allt f kringum landið
hafa fengið jafnan og góðan afla
í botnvörpu.
Þorskafli er nú kominn tals-
vert yíir það mark, sem fiski-
fræðingar ráðlögðu að ekki yrði
farið yfir á öllu árinu, þ.e. 250
þúsund tonn. Sex fyrstu mánuði
ársins bárust á land 227 þúsund
tonn af þorski og að viðbættri
þroskveiðinni í júlímánuði má
ætla að þorskaflinn sé nú orðinn f
kringum 265 þúsund tonn. Sjáv-
arútvegsráðherra hefur stefnt að
því, að þorskafli á árinu verði á
milli 280—290 þúsund tonn.
Samkvæmt upplýsingum, sem
Morgunblaðið aflaði sér í gær var
afli togara frá mörgum stöðum á
landinu til muna betri í júlímán-
uði en í sama mánuði í fyrra.
Þrátt fyrir 30 daga þorskveiði-
bann í júlí og ágúst voru margir
togaranna að þorskveiðum allan
júlímánuð vegna hins góða afla.
Verður því stór hluti togaraflot-
ans að stunda aðrar veiðar í
þessum mánuði. Að sögn Jóns Páls
Halldórssonar á ísafirði var þessu
þó ekki svona farið á Vestfjörðum,
þar sem flestir togaranna voru
ekki að þorskveiðum í 9 daga.
Sagðist Jón Páll telja að aflinn í
júlímánuði væri ekki meiri en í
sama mánuði í fyrra.
I Reykjavík hins vegar var
þorskaflinn í mánuðinum 3683
tonn á móti 3003 tonnum í fyrra. í
Hafnarfirði varð aukningin hlut-
fallslega enn meiri, 1695 tonn af
þorski bárust á land í júlímánuði í
ár á móti 720 tonnum í fyrra. Svo
eitt dæmi sé nefnt til viðbótar, þá
komu á land í Ólafsvík 1200 tonn
af þorski í síðasta mánuði en 1069
tonn í júlímánuði í fyrra.
Yfírvinnubann
yfírmannanna
aæmt ólögmætt
FÉLAGSDÓMUR kvað upp í gærkvöld dóm í málum Vinnuveitcndasam-
bands íslands og Vinnumálasambands samvinnufélaganna gegn Far-
manna- og fiskimannasambandi íslands vegna yfirvinnubanns yfirmanna
á farskipum. Var yfirvinnubannið dæmt ólöglegt.
í dómsorði segir m.a. að yfirvinnu-
bannið sem boðað hafi verið til og
komið til framkvæmda 20. júní sl.
hafi verið ólögmæt vinnustöðvun,
brjóti í bága við bráðabirgðalög nr.
70/1979 og sé brot á kjarasamning-
um.
Er Farmanna- og fiskimanna-
sambandi Islands gert að greiða
annars vegar Vinnumálasambandi
samvinnufélaganna f.h. Skipadeild-
ar SÍS og Vinnuveitendasambandi
íslands hins vegar fyrir hönd aðild-
arfélaga sinna kr. 400 þúsund til
hvors um sig í málskostnað innan 15
daga frá lögbirtingu dóms þessa að
viðlagðri aðför að lögum. Félags-
dóminn skipuöu þeir Guðmundur
Jónsson, Bjarni K. Bjarnason, Þor-
steinn Thorarensen, Árni Guðjóns-
son og Páll S. Pálsson. Barði
Friðriksson hrl. var lögmaður
Vinnuveitendasambandsins, Skúli
Pálmason hrl. lögmaður Vinnumála-
sambands Samvinnufélaganna og
Arnmundur Backman hdl. lögmaður
Farmanna- og fiskimannasambands
Islands.