Morgunblaðið - 31.10.1979, Side 10

Morgunblaðið - 31.10.1979, Side 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 1979 2 90 11 Fasteignasalan Garöastræti 17 Reynimelur 4ra herb. íbúð, stofa, 3 svefn- herb., eldhús og baö, geymsla í kjallara. Vlnkllsvalir í suður og vestur. Kaplaskjólsvegur 5 herb. íbúð ca. 140 fm, 3 svefnherb., stofa, herb. í kjall- ara, ásamt geymslu. Einnig geymsla í risi. Mjög falleg íbúö. Kaplaskjólsvegur 3ja herb. íbúö ca. 90 fm, stofa 2 svefnherb., geymsla í kjallara, falleg íbúö. Mikiö skápapláss. Grettisgata 3ja herb. íbúö ca. 90 fm, stórt og gott eldhús. Geymsla í kjallara. Grandavegur 2ja herb. jaröhæö 45 fm. Ósamþykkt. Verö: Tilboö. Laus 1. des. n.k. Kóngsbakki Ca. 163 fm hæö, sem skiptist í stofu, sjónvarpsherb., 5 svefn- herb., þvottaherb. á hæöinni, glæsllegar innréttingar á baöi og í eldhúsi. Fossvogur Einbýlishús á einni hæö, ca. 197 fm, tvöfaldur bílskúr, 40 fm, 2 stofur, sjónvarpsherb., 2 svefnherb., geymslur, mjög gott skápapláss. Falleg, stór lóö. Möguleiki á að taka 140—150 fm sérhæö með stórum stofum upp í þessa eign. Einkasala, uppl. ekki f síma, aðeins á skrifstofu. '/2—1 hektari lands óskast til kaups eöa leigu í um 100—200 km fjarlægö frá Reykjavík, jarö- hiti æskilegur Bújörö á Suöurlandi óskast. Um 50 hekt. 15—20 ha þurfa aö vera í ræktun. Fasteignasalan Garðastræti 17 Árni Björgvinsson. Árni Guöjónsson hrl. Guömundur Markússon hdl. NATO-fræðimannastyrkir: Styrkir nema að þessu sinni 1600þúsund kr. Atlantshafsbandalagið, NATO. mun að venju veita nokkra styrki til fræðirannsókna i aðildaríkjum bandalagsins á háskólaárinu 1980—1981. Markmið styrkveit- inganna er að stuðla að rannsókn- um og aukinni þekkingu á til- greindum verkefnum, er snerta sameiginlega hagsmuni aðild- arrikja bandalagsins. Þá er stefnt að þvi að niðurstöðurnar verði gefnar út. Viðfangsefnin eru einkum þessi: — Viðhorf til Atlantshafsbanda- lagsins í fjölmiðlum einstakra ríkja. — Vandamál, er varða efnahags- samvinnu bandalagsríkjanna og hernaðaraðstoð. — Samræming tveggja meginhlut- verka bandalagsins: Viðhalds hern- aðaröryggis og viðleitni til slökunar á spennu, vopnaeftirlits og afvopn- unar. — Hlutverk Atlantshafsbanda- lagsins eftir 30 ára frið í Evrópu. — Áframhald bættrar sambúðar Austur og Vesturs. — Hlutverk Atlantshafsbanda- lagsins við að draga úr spennu. Í1T1 AUGLÝSINGASTOFA MYNDAMÓTA Aöalstræti 6 simi 25810 H16688 Furugrund 3ja herb. góö íbúö ásamt herb. í kjallara. Verö 26 mlllj. Tilb. undir tréverk 3ja herb. íbúö á 1. hæö viö Hamraborg sem afhendist í apríl 1980. Sameign fullfrá- gengin og bílskýli. Fokhelt parhús viö Ásbúö í Garöabæ á einni hæö meö bílskúr. Hamraborg 5 herb. 146 ferm. íbúö á 1. hæö. Bílskýli. Verö 36 millj. Nesvegur Sænskt timburhús sem er hæö og kjallari, stór garöur, bíl- skúrsréttur. Vantar 3ja herb. Höfum kaupanda aö góöri 3ja herb. íbúö. Útb. 19 millj. EIGndV UmBOÐIÐlHÉ LAUGAVEGI 87, S: 13837 lááOO Heimir Lárusson s. 10399 /OOOO IngóWur Hjartarson hdl. Asgeir Thoroddssen hdl 29555 Höfum tll sölu mjög góöa einstaklingsíbúö f sambýlishúsi viö Háaleitishverfi. íbúöin er nýlega standsett. Samþykkt kjallaraíbúö. Uppl. á skrlfstofunnl. EYJABAKKI 3ja herb. 85 fm 3. hæö. Góð íbúö, suöur svalir. A8PABFELL 2ja herb. fbúöir. BRAQAQATA 2ja herb. 45 fm risíbúö. Verö tilboö. 8ELTJARNARNES 3ja herb. ca. 94 fm 1. hæð, sér Inngangur, sér hiti. Fokheldur bílskúr. Verö tllboö. RÁNARQATA 6 herb. 155 tm 3. hæö. Nýtt hús. Selst aöeins í skiptum fyrir íbúö í vesturbæ (gamla hlutanum) eöa nálægt Landspítalanum. 3 svefnherb. skilyröl. Bílskúr. HRAUNBÆR 5—6 herb. 126 fm |aröhæð. Sér þvottaaöstaöa. Selst í skiptum fyrlr einbýlishús í Vogahverfi meö bflskúr eöa sér hæö á svlpuöum slóöum. HVERFI3GATA HAFNARFIRÐI Ca. 130 fm tlmbur-elnbýlishús. Selst í skiptum fyrir 4ra—5 herb. fbúð í Hatnarfirði. HÁALEITI8HVERFI 147 fm sér hæö með bílskúr, 5 svefnherb. Uppl. á skrifstofunnl, ekki í sfma. HAQAMELUR 4ra—5 herb. 155 fm 2. hæö. Mjög góð fbúö. Bílskúr. Uppl. á skrlfstofunni. Höfum mjög fjársterkan kaupanda aö aér haaö, raöhúai aöa ainbýliahúai á avaaöinu Raykjavík, Kópavogur, Garðabær. Aörir ataðir koma til graina. Útb. á 3—4 mán. allt aö 35 millj. Haildarvarö aignarinnar má vara allt aö 60—65 millj. Höfum tll sölu 400 fm skrifstofuhúsnæöl, vel staösett í austurbænum í Reykjavík. Verð 42 mlllj. Vlö mlkla útb. hagkvæmara verð. ARNARHRAUN 4ra herb. 104 fm 2. hæö. Laus fljótlega. Verð 27.5 mlllj., útb. 18 millj. á 10 mánuöum. Leltlö uppl. um elgnlr á söluskrá, verömetum án skuldblndinga. Eignanaust Laugavegi 96 v/Stjörnubíó. Lárus Helgason sölustjóri, Svanur Þór Vllhjálmsson hdl. — Stjórnmálasamráð innan Atl- antshafsbandalagsins. — Efnahagsvandamál vestrænna ríkja og fjármögnun sameiginlegra varna. — Afstaða þjóðþinga í Atlants- hafsbandalagsríkjunum til málefna er snerta bandalagið. — Sameiginlegur menningararf- ur Atlantshafsbandalagsríkjanna. — Lögfræðileg vandamál er snerta samvinnu Atlantshafsbanda- lagsríkja á einstökum sviðum. Styrkirnir nema nú 120.000 belg- ískum frönkum (um 1.600.000 ísl. kr.) fyrir tímabilið 1. maí 1980 — 31. desember 1981 — sem greiðist í þrennu lagi — eða jafnvirði þeirrar fjárhæðar í gjaldmiöli annars aðild- arríkis, auk ferðakostnaður, en gert er ráð fyrir að rannsóknir geti farið fram í fleiri en einu ríki. Styrkirnir verða aðallega veittir háskólamenntuðu fólki, þótt hægt sé að gera undantekningar á því. Utanríkisráðuneytið veitir allar nánari upplýsingar og lætur í té umsóknareyðublöð. Umsóknir skulu berast ráðuneytinu eigi síðar en 29. desember 1979. Daria og Mark (Daria Halpin og Mark Frechette) í kvikmyndinni „Zabriskie Point“. „Zabriskie Point,, hjá Fjalakettinum Hátindur norrænn- ar listar „HÁTINDAR norrænnar listar“ nefnist sýning sem verður á vegum Norrænu listamiðstöðvarinnar í Svíþjóð sumarið 1980. Hvert land fær á sýninguna sem fulltrúa þann listamann sem hefur vakið hvað mesta athygli í heima- landinu á liðna árinu. Nú í haust verður valinn maður í hverju Norð- urlandanna til þess að fylgjast með listalífinu í vetur og velja úr merkasta listaviðburðinn á árinu. Sýningin verður opin allt sumarið í Strandbúðunum í Svíþjóð og verður síðan sett upp víðar um Norðurlönd- in. Fjalakötturinn, kvikmynda- klúbbur framhaldsskóianna, sýn- ir um helgina myndina „Zabris- kie point“ eftir Micheloangelo Antonioni. Verður myndin sýnd i Tjarnarbiói í kvöld, fimmtudag kl. 21, á laugardaginn, 3. nóv- ember kl. 17 og sunnudaginn 4. nóvember kl. 17,19.30 og 22. Myndin fjallar um Mark og tilraun hans til að taka þátt í stúdentauppreisn í Bandaríkjun- um á sinn eigin hátt. Myndin segir einnig frá ástarsambandi hans við stúlku sem nefnd er Daria. Aðalhlutverkin í myndinni leika Mark Frechette, Daria Halpin og Rod Taylor. Tónlistin í myndinni er eftir Pink Floyd, Kaleidoscop, Grateful Dead, The Youngbloods, Rolling Stones o.fl. Gestavinnustofur fyr- ir norræna listamenn NÝTÍSKULEGAR gestavinnustof- ur handa norrænum listamönnum verða tilbúnar i lok ársins 1980. Vinnustofur þessar eru í Palm- stierna-virkinu í Svíþjóð. Þær verða látnar i té án leigu, frá tveimur mánuðum og allt að einu ári. Listamennirnir geta einnig sótt um ferðastyrk. Fjórum vinnustof- anna fylgir íbúð með einu íbúðar- herbergi ásamt eldhúskrók en tveggja herbergja íbúð þeirri fimmtu. Auk þess verður almenn setustofa í byggingunni. Allar vinnustofurnar hafa þaksvalir mót suðvestri. Vinnustofur þessar verða þær fyrstu á Norðurlöndunum sem standa opnar öllum listamönnum frá þeim löndum. ¥ Olafur Helgi Kjartansson: Að kref ja greidda skuld tvisvar Opið bréf til Lánasjóðs íslenzkra námsmanna Tilefni þessara skrifa á opinber- um vettvangi er bréf Lánasjóðs íslenzkra námsmanna (LÍN) dags. 19. október 1979. Bréfið barst mér föstudaginn 26. s.l. Ég hef ekkert á móti því að fá bréf. Það sem ég hef á móti er að fá erindislaus og óundirrituð bréf. Erindið var að krefjast þess í annað sinn á stuttum tíma að greitt yrði vísitölubundið náms- lán. Lán þetta er þó greitt samkv. kvittun, dags. 8. ágúst s.l. Vafalítið þarf að leita víða til að finna eins skipulagslaus vinnu- brögð og tíðkast hjá nefndri stofn- un. Rétt er að gera nánari grein fyrir þessari fullyrðingu. Undirritaður lauk námi úr Lagadeild Háskóla íslands 24. júní 1978. En með bréfi dags. 24.5 1978 óskaði LÍN þess að vísitölulán mitt samkv. lögum nr. 57 1976 yrði endurnýjað. Vottorð um tekjur 1975 vantaði. Ég hafði samband við sjóðinn og tilkynnti að náminu væri ólokið. Með bréfi dags. 24.11. 1978 var mér send óundirrituð tilkynning um að lánið yrði allt innheimt á inn kostnað eftir 30.11 sama ár þar.sem ég hefði ekki sinnt boði LÍN um endurnýjun. Þetta bréf barst mér í hendur að kvöldi föstudags 1.12. 1978. Með símtali að morgni 3. s.m. og með ábyrgð- arbréfi sama dag skýrði ég mál mitt. í byrjun júlí s.l. barst mér bréf frá LÍN. Það var óundirritað og ódagsett en póstlagt 27.6. 1979 samkv. póststimpli. Erindið var tilkynning þess efnis að lánið hefði gjaldfallið 1. júní 1979. „Ber yður að endurnýja lánið á tímabil- inu 1. júní til 31. ágúst 1979“ stóð í bréfinu. Til þess að endurnýjun yrði möguleg vantaði vottorð um tekjur ársins 1977. Mér er enn óskiljanlegt til hvers þær upplýs- ingar þurfti. Lánið var tekið 1976 en námi lauk 1978 svo sem fyrr er sagt. Ég ákvað að greiða umrætt námslán. í bréfi dags. 1. ágúst sendi ég greiðslu með yfirstrikuð- um tékka. Stuttu síðar barst skuldabréfið, ábyrgðaryfirlýsing og kvittun sem sýndi greiddan höfuðstól og verðbætur. Þetta hefðu verið ánægjuleg málalok. Svo reyndist ekki. Hinn 24. september s.l. barst enn á ný bréf frá LÍN. Forviða las ég óundirritaða tilkynningu dag- setta 20. september um að mér bæri að endurnýja vísitölubundið námslán. Eina vísitölulánið mér veitt var greitt og kvittun dags. 8. ágúst s.l. sýndi það. Tekjuvottorð fyrir árið 1975 vantaði einnig. Sennilega eru þetta mistök hugs- aði ég og skrifaði LÍN bréf 25. september til að vekja athygli á þeim. Með bréfi því sem getið er hér í upphafi er enn á ný tilkynnt að lánið skuli endurnýja. Þetta bréf er nánast samrit þess frá 20. september, þó þurfti ekki vottorð um tekjur. Þetta síðasta bréf frá LÍN er dropinn sem fyllti mælinn. Slíkur er hringlandaháttur sjóðsins að ég kemst ekki hjá því að vekja á þessu athygli. Ekki sízt þar sem svarbréf til LIN hafa ekki dugað. Verst er að geta ekki beint skrif- um til ábyrgs aðila innan LÍN. Hann virðist ekki til. Ég krefst þess nú að forstöðu- maður Lánasjóðs íslenzkra náms- manna komi fram í dagsljósið og skýri þessi sérkennilegu vinnu- brögð og biðji jafnframt afsökun- ar á þeim. Ég beini því til stjórnvalda, og þar skal fremstan telja hæstvirt- an menntamálaráðherra Vilmund Gylfason, sem jafnframt gegnir embætti dómsmálaráðherra, að hér þarf eitthvað að athuga og betrumbæta. Ég beini því til komandi ríkis- stjórnar að hún takai Lánasjóð íslenzkra námsmanna út og birti niðurstöður þess hvernig LÍN hag- ar störfum sínum. Ég sendi ykkur LÍN-starfsmönnum kveðjur og vona að þið takið upp þá ágætu kurteisi að undirrita bréf sjóðsins. Það skal tekið fram, að verði þess beiðzt er ég reiðubúinn að birta bréf LÍN til mín og afrit svarbréfa minna. Selfossi, 27. október 1979 ólafur Helgi Kjartansson n.n. 6772-1586.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.