Morgunblaðið - 31.10.1979, Síða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 1979
„Ef guð og físki-
fræðingar leyfa”
Akvörðunar að vænta í dag um tílhögun og takmarkanir loðnuveiða
— FYRIR þá sjómenn, sem
stunda loðnuveiðarnar og
annan svipaðan veiðiskap
með nót, er orðið um hálf-
gerða farandmennsku að
ræða, sjómennirnir vita alls
ekki hvar þeir standa frá degi
til dags og því er ekki um
neitt atvinnuöryggi að ræða,
sagði Óskar Vigfússon for-
maður Sjómannasambands
íslands í samtali við Morgun-
blaðið í gær. — Segjum sem
svo, að loðnuveiðarnar verði
stoppaðar innan viku, þá þýð-
ir það einfaldlega, að þeir
verða afskráðir af sinum
skipum og úthaldið þá búið
vegna stjórnvaldsaðgerða. Út-
gerðarmenn geta sem sé sagt
við sjómennina, hittumst
síðast í janúar á næsta ári
góðir félagar, ef guð og fiski-
fræðingarnir leyfa, sagði Ósk-
ar.
í fréttatilkynningu frá sjáv-
arútvegsráðuneytinu, sem gef-
in var út 11. október síðastlið-
inn, segir m.a. að nauðsynlegt
gæti verið að stöðva loðnuveið-
ar í haust og gæti sú stöðvun
verið tilkynnt með stuttum
fyrirvara þegar íslenzki flot-
inn hefði veitt 350—400 þús-
und lestir. Aflinn er nú rétt
tæplega 400 þúsund lestir. í
tilkynningunni segir, að skyn-
samlegt sé talið að geyma 150
þúsund tonn til hrognatöku og
e.t.v. eitthvað umfram það
vegna loðnufrystingar. Afla á
hrognatökutímanum, sem
væntanlega yrði eftir febrúar-
lok, er fyrirhugað að skipta
með kvóta á hvert skip. Við þá
skiptingu yrði tekið tillit til
burðargetu skipanna og afla-
bragða þeirra eftir stærð und-
anfarin ár.
í fyrrnefndri tilkynningu
segir, að verði talið óhætt að
veiða meira en 150—200 þús-
und tonn eftir áramót, þá verði
það gert í janúar á meðan
fituinnihald loðnunnar er enn
sæmilega hátt. Eins og áður
hefur komið fram hefur ís-
lenzki loðnuflotinn veitt um
400 þúsund lestir á vertíðinni í
haust og þegar virðist vera
búið að ákveða að „geyma“
150—200 þúsund lestir til
hrognatöku og loðnufrystingar
eftir áramót. Ef reiknað er
með hærri tölunni í þessu
sambandi er 600 þúsund lesta
loðnuafla þegar „ráðstafað“,
en að auki veiddu Norðmenn
um 120 þúsund lestir úr
íslenzka loðnustofninum við
Jan Mayen í sumar.
Það var í marzmánuði
síðastliðnum, sem fiskifræð-
ingar lögðu til að hámarksafli
á loðnu í haust og næsta vetur
færi ekki yfir 600 þúsund
tonnin, en sú tillaga fól í sér
helmingssamdrátt á veiði úr
íslenzka loðnustofninum, mið-
að við sama tímabil 12 mánuð-
ina á undan. Ekki er talið að
niðurstaða fundar íslenzkra og
norskra fiskifræðinga, sem
lauk í gær, feli í sér verulegar
breytingar á fyrri tillögum
þeirra.
Skoðanir virðast vera mjög
skiptar um réttmæti þess að
draga svo mjög saman loðnu-
veiðarnar eins og fiskifræð-
ingar vilja gera. Margir sjó-
menn og skipstjórar telja, að
aldrei hafi verið meira af
loðnu á miðunum en einmitt
núna og telja fráleitt að tak-
marka veiðarnar svo mjög.
Aðrir segja að þörf sé á slíku
og sagðist Óskar Vigfússon að
undanförnu hafa búið „sína
menn“ undir það versta. Sagð-
ist hann hafa heyrt, að mun
meira væri af minni loðnu í
aflanum og auk meiri blöndun-
ar afla, þá væri fituinnihald
loðnunnar minna. Aðstæður
virtust því að einhverju leyti
vera breyttar, full ástæða væri
til að fara að öllu með gát og
hugsa um framtíðina en ekki
stundarhagsmuni.
Kristján Ragnarsson sagðist
í gær ekki vilja tjá sig um
þetta mál og vildi heyra rök
fiskifræðinga og niðurstöður
síðasta fundar þeirra áður,
sömuleiðis skoðanir sjávarút-
vegsráðherra og hvað hann
ætlaðist fyrir. Kristján sagði,
að stjórn LÍÚ hefði verið
boðuð til fundar í dag til þess
að taka afstöðu til þess, sem
fram kæmi á fundi hagsmuna-
aðila með sjávarútvegsráð-
herra klukkan 13 í dag.
Ef litið er á loðnuafla
þriggja síðustu ára þá var
hann 966.741 lest árið 1978,
liðlega 812 þúsund 1977, 458
þúsund 1976 og 501 þúsund
lestir árið 1975. Frá síðustu
áramótum og þar til nú í lok
október er aflinn úr íslenzka
loðnustofninum orðinn um
1.050 þúsund lestir, en Norð-
menn og Færeyingar hafa
veitt um 140 þúsund lestir af
þessum afla. Útflutningsverð-
mæti loðnuafurða á síðasta ári
var tæplega 12.6 milljarðar á
verðlagi síðasta árs.
Alls eru 52 skip á loðnuveið-
um nú og á þeim nokkuð á
áttunda hundrað skipverjar.
Það er því eðlilegt að spurt sé
hvað verður fyrir þessi skip að
gera ef veiðarnar verða stór:
lega dregnar saman í vetur. I
fljótu bragði virðist ekki um
margt að ræða. Kolmunna-
veiðar hafa yfirleitt gengið illa
og ekki yrði hægt að veiða
hann fyrr en næsta vor. Neta-
veiðar yrðu ekki mögulegar
fyrir stærstu skipin í vetur, en
hins vegar möguleiki fyrir
minni skipin, en þó ekki fyrr
en seinni hluta vertíðar. Það er
þó hæpið að beina þessum
skipum á þorskveiðar þegar
sífellt er hvatt til meiri friðun-
ar á þeirri fisktegund. Djúp-
rækjuveiðar hafa verið rædd-
ar, en til að þessi skip gætu
farið á þær veiðar þyrfti að
gera breytingar á þeim flest-
um og bæta við tækjum.
Okkur vantar ennþá konur í vinnu hálfan eöa allan
daginn. Unniö eftir bónuskerfi nýtt húsnæöi, nýjar
vélar, hugguleg kaffistofa afsláttarkort þar á
meöal 30% afsláttur af fatnaöi. Upplýsingar hjá
verkstjóra í síma 85055 eöa Fosshálsi 27.
ÍÍS SAUMASTOFA,
WKARNABÆR
__ Fosshálsi 27, sími 85055.
Nýtt spil fyrir yngstu börnin
Stjörnuspilið kemur út um jólin
SPILABORG h.f. hefur gefið út
nýtt spil fyrir 3—7 ára börn,
„Spilið um dýrin mín“. Að sögn
útgefendanna er hlutverk þess að
fræða börnin um íslensku dýrin
en með spilinu fylgja 36 dýra-
myndir. Þessar dýramyndir hef-
ur Spilaborg einnig gefið út á
hörðum spjöldum fyrir yngstu
börnin og i litabók.
Þá hefur Spilaborg gefið út spil
sem nefnist Glopol og er enska
útgáfan af Sjávarútvegsspilinu.
Sögðust útgefendurnir hafa boðið
ýmsum aðilum í Bretlandi spilið
til kaups og flestir þeirra höfðu
þau orð um spilið að það væri
mjög gott nema hvað mjög sterk
pólitísk stefna kæmi fram í því. í
Glopol er nefnilega refsað fyrir að
kasta olíu og öðrum mengunarefn-
um í sjóinn en þátttakandinn er
verðlaunaður fyrir t.d. að bjarga
hval. Hins vegar hafa Norðmenn
sýnt Glopol áhuga og mun það
verða gefið þar út á næsta ári.
Um jólin mun Spilaborg gefa út
„Stjörnuspilið". Fyrirtækið kynnti
spil þetta á Alþjóðlegu vörusýn-
ingunni í Laugardal í sumar.
Stjörnuspilið gengur út á það að
er því lýkur hefur hver þátttak-
andi fengið persónulýsingu sem
hann hefur mótað eftir eigin
óskum en það gengur ekki alltaf
jafn vel.
Á næsta ári mun Spilaborg hafa
í huga að taka þátt í alþjóðlegri
vörusýningu í Nurnberg í Þýska-
landi. Hafa þeir sótt um pláss á
sýningunni en ekki fengið neitt
svar ennþá.