Morgunblaðið - 31.10.1979, Page 17

Morgunblaðið - 31.10.1979, Page 17
16 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 1979 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 1979 17 Útgefandi Framkvæmdaatjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn og skrifstofur Auglýsingar Afgreiósla hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson. Bjöm Jóhannsson. Baldvin Jónsson Aöalstrssti 6, sími 10100. Aöalstrasti 6, sími 22480. Simi83033 Áskriftargjald 4000.00 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 200 kr. eintakíð. Kjósendur gera kröfur Nú er mesta prófkjarahrotan gengin yfir. Sem fyrr vekja prófkjörin upp fleiri spurningar en þau svara og skapa fleiri vandamál en þau leysa. Þessar persónukosningar vekja að sjálfsögðu eftirvæntingu og athygli. Þær mega þó ekki verða til þess að draga athyglina frá kjarna málsins, sem eru þau vandamál, sem við Islendingar eigum við að etja í efnahagsmálum okkar og kosningarnar í byrjun desember snúast um. Kjósendur eiga fyrst og fremst að gera tvenns konar kröfur til stjórnmálaflokkanna, sem bjóða fram í þessum kosningum. Hin fyrri er sú, að flokkarnir geri rækilega grein fyrir stöðu efnahagsmálanna eins og hún var, þegar vinstri stjórn Ólafs Jóhannessonar fór frá völdum. Fyrsta skilyrðið til þess að kjósendur geti tekið ákvörðun um það, hvaða flokki eða flokkum þeir telja bezt treystandi til að takast á við efnahagsvandann er að þeir eigi greiðan aðgang að skilmerkilegum upplýsingum um stöðu þjóðarbúsins, þegar vinstri stjórnin skildi við. Þess vegna hlýtur viðskilnaður vinstri stjórnar að vera fyrsta mál á dagskrá í þeirri kosningabaráttu, sem nú er að hefjast. Önnur krafa kjósenda til stjórnmálaflokkanna á að vera sú, að þeir geri grein fyrir því fyrir kosningar, hvernig þeir hyggist taka á verðbólgu- vandanum eftir kosningar. í þeim efnum duga ekki lengur almennar yfirlýsingar heldur eiga kjósendur heimtingu á skýrum og nákvæmum svörum um það, hvað flokkarnir ætla að gera eftir kosningar, komist þeir til valda. T.d. er þýðingarlaust fyrir flokkana að bera á borð fyrir kjósendur yfirlýsingar af því tagi, sem Framsóknarflokkurinn hefur gefið undanfarnar vikur að setja beri í lög, að verðbólgan skuli lækka að ákveðnu marki á tilteknu árabili. Allir vita, að verðbólguvandinn verður ekki leystur með því að lögfesta, að verðbólgan skuli vera svo og svo mikil. Áróður af þessu tagi er móðgun við kjósendur. Það er áreiðanlega mjög langt síðan við höfum staðið frammi fyrir jafn alvarlegum og djúpstæðum vanda í okkar þjóðlífi og verðbólgan er. Þess vegna verður að gera þá kröfu til flokkanna að þeir taki sjálfa sig og kjósendur alvarlega og fjalli um þetta vandamál af þeirri ábyrgð, sem þeim ber. Stjórnmálabaráttan hér einkennist nú af dæmalausu lýðskrumi og má ekki á milli sjá hver gengur lengst í þeim efnum. Verðbólguvandinn verður hins vegar ekki leystur með lýðskrumi og vissulega er ástæða til þess fyrir kjósendur að velta því fyrir sér, hvort alþingi, sem kosið er með þeirri auglýsingastarfsemi, skrumi og trúðshætti, sem nú tíðkast í stjórnmálabaráttunni, sé yfirleitt hæft til þess að takast á við þessi alvarlegu vandamál. Almenningur í þessu landi er orðinn þreyttur á stjórn- málabaráttu og stjórnmálamönnum og getuleysi þeirra til þess að leysa þau vandamál, sem þeir hafa boðið sig fram til að leysa. Af þeim sökum verður áreiðanlega rækilega eftir því tekið, hvernig flokkarnir haga kosningabaráttu sinni fyrir kosningarnar, hvernig þeir skýra fyrir kjósendum hvaða aðferðum þeir ætla að beita til þess að ráða niðurlögum verðbólgunnar. Kjósendur eru orðnir kröfuharð- ari en þeir áður voru og gera m.a. kröfu til þess að þeir sem bjóða sig fram til stjórnmálastarfa, sýni í verki, að þeir séu til þess hæfir að sinna þeim störfum þannig að að gagni verði. Fyrir síðustu kosningar létu kjósendur blekkjast af loforðinu um samningana í gildi. Það loforð var svikið. Þau svik munu áreiðanlega verða til þess, að kjósendur verða bæði raunsærri og gagnrýnni á flokkana og frambjóðendur þeirra og stefnumið að þessu sinni. Kjósendur keyptu svikna vöru síðast. Þeir hafa áreiðanlega ekki áhuga á að endurtaka það. Úrslit prófkjörs sjálfstœðismanna í Reykjavík vegna alþingiskosninga Hvað segja þauum próf- kjörið og úrslit þess Morgunblaðið leit- aöi í gær til þeirra tólf einstaklinga er urðu efstir í prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík um helg- ina, og spurði þá álits á prófkjörinu og úrslitum þess. Fara svör þeirra hér á eftir: Mikill áhugi Reykvíkinga á að efía SjáJf- stœð&flokkinn segir Geir Hallgrímsson „ÞÁTTTAKAN í prófkjörinu sýnir að það er mikill áhugi hjá Reyk- víkingum um að efla fylgi Sjálf- stæðisflokksins í alþingiskosn- ingunum sem í hönd fara,“ sagði Geir Hallgrímsson. „Að því leyti er prófkjörið mikið ánægjuefni. Um órslit prófkjörsins tel ég ekki ástæðu að fjalla sérstaklega, en þó hlýt ég að þakka það traust sem mér var sýnt,“ sagði Geir að lokum. Framboð mitt til forseta hafði neikvœð áhrif í kosn- ingabaráttunni segir Albert Guðmundsson „PRÓFKJÖRIÐ er orðið allt of flókið að mínum dómi, auk þess sem það gefur tilefni til harðnandi baráttu milli frambjóðenda, og tel ég það vera komið út á ranga braut og þarfnist endurskoðunar. Breyta þarf reglunum á þann hátt að ekki verði í raun um að ræða bræðravíg manna í framboði," sagði Albert Guðmundsson. „Um mína eigin útkomu vil ég segja það,“ sagði Albert ennfrem- ur, „að hún er mjög góð að mínum dómi og betri en ég bjóst við, miðað við breyttar prófkjörsregl- ur. Eins vegna þess að ég varð þess var að það hafði neikvæð áhrif í kosningabaráttunni, að ég er frambjóðandi til forsetakjörs. Miðað við þetta tvennt tel ég útkomuna vera mjög góða, og ég er þakklátur öllum þeim er studdu mig í þessari kosningabaráttu og vil senda þeim mínar bestu kveðj- ur og þakkir, ég tel að saman höfum við unnið eftirtektarvert afrek í þessari baráttu. Varðandi listann í heild, eða röð efstu manna, vil ég segja það, að ég tel listann hafa orðið sigur- stranglegan í kosningum, hvaða frambjóðendur sem kynnu að hafa valist í efstu sætin. Þetta var allt gott fólk sem var í framboði, að vísu misjafnlega vel þekkt meðal kjósenda, en allt frambærilegt fólk. Listinn er því sigurstrangleg- ur, og hefði orðið það hvernig sem raðast hefði í efstu sæti hans. Sjálfstæðisflokkurinn á bersýni- lega mikið úrval af góðu fólki,“ sagði Albert að lokum. „Er að sjálfsögðu ánœgður með árangurinn ” segir Birgir ísleifur Gunnarsson „Ég var að sjálfsögðu ánægður með þann árangur sem ég náði í þessu prófkjöri, og þakka þeim fjölmörgu sem studdu mig, og mun ég að sjálfsögðu reyna að verða verður þess trausts sem mér hefur verið sýnt,“ sagði Birgir ísleifur Gunnarsson. „Að öðru leyti vil ég segja það,“ sagði Birgir ísleifur ennfremur, „að ég hefði kosið að fulltrúar launþeganna á listanum hefðu orðið hærri, en raun ber vitni. Hin mikla þátttaka í prófkjör- inu sýnir meðbyr Sjálfstæðis- flokksins. Flokkurinn mun því örugglega bæta við sig þingsætum í Reykjavík, og baráttusætin munu færast neðar en þau voru í síðustu kosningum. Nú ríður því á að flokksmenn snúi bökum saman og hefji stórsókn gegn andstæð- ingunum," sagði Birgir að lokum. Stuðningur við baráttu- mál og hug- myndir ungra manna íStjálf- stœðisfíokknum segir Friðrik Sophusson „HIN mikla þátttaka í prófkjörinu sýnir ótvírætt þann mikla áhuga sem sjálfstæðismenn hafa á stjórnmálum líðandi stundar, og hún sýnir ennfremur þann mikla meðbyr sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur nú,“ sagði Friðrik Sophus- son. „Ég held að sú góða útkoma sem ég fékk í prófkjörinu sé einkum því að þakka hve margir menn lögðu hönd á plóginn, aðallega hafði ég virkan stuðning yngra fólks," sagði Friðrik ennfremur, og ég naut þess að vera yngsti þingmaður flokksins. Ég tel þessa útkomu vera fyrst og fremst stuðning við baráttumál og hug- myndir ungra manna í Sjálfstæð- isflokknum og ennfremur vísbend- ingu um áhuga fólks á endurnýjun forystuliðs Sjálfstæðisflokksins. Ég finn til aukinnar ábyrgðar við það að hafa færst ofar á listann, og ég vona að ég reynist þessa trausts verður og að mér takist að axla þá ábyrgð sem mér hefur verið lögð á herðar. Ný liggur fyrst fyrir að Sjálf- stæðisflokkurinn hefji skipulega sókn í þeirri baráttu sem þegar er hafin, og nýti sem best þann mikla byr sem flokkurinn hefur nú. Almennt um útkomuna í próf- kjörinu og röð efstu manna vil ég segja það, að valið er sett í hendur stuðningsmanna flokksins. Tólf þúsund stuðningsmenn Sjálfstæð- isflokksins hafa valið þennan lista, og þeir skipa stærstu kjör- nefnd stjórnmálaflokks hér á landi sem enn hefur skilað áliti sínu. Að lokum vil ég svo færa öllum þeim er studdu mig í prófkjörinu og lögðu mér og sameiginlegum hugsjónum okkar lið kærar þakk- ir,“ sagði Friðrik Sophusson að lokum. Vísbending um meðbgr Sjálfstœðis- flokksins segir dr. Gunnar Thoroddsen „GÓÐ þátttaka í prófkjörinu er vísbending um að Sjálfstæðis- flokkurinn hafi meðbyr,“ sagði Gunnar Thoroddsen. „Vonandi dugar sá byr til þess árangurs í þingkosningunum í desember, að skapa traustan grundvöll að bættu stjórnarfari í landinu. Að því er varðar úrslitin fyrir mig persónulega, er ég mjög ánægður og þakka stuðnings- mönnum fyrir það traust sem þeir hafa sýnt mér.“ Skiptast á skin og skúrir segir Ragnhildur Helgadóttir „ÉG GERÐI mér grein fyrir því að úrslit í röðun sæta gætu orðið afar tvísýn,“ sagði Ragnhildur Helga- dóttir. „Þótt sæti mitt á listanum yrði að þessu sinni númer sjö, var heildaratkvæðatala mín í öll sæti 63% af greiddum atkvæðum. í stjórnmálum skiptast á skin og skúrir og ég hef staðið í þessu vegna málefnisins en ekki pers- ónulegs ávinnings, og nú er mér efst í huga þakklæti til þeirra er studdu mig í prófkjörsbarátt- unni,“ sagði Ragnhildur að lokum. Sjá næstu slðu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.