Morgunblaðið - 31.10.1979, Page 32
Sími á afgreiösiu:
83033
JlUrennbUibib
áritstjórn og skrifstófu
10100
JHnrsonbUibib
MIÐVIKUDAGUR 31.0KTÓBER 1979
Forsætis-
nefndar og
samstarfs-
ráðherra-
Verði loðnuveiðar stöðvaðar
neyðist SR til að segja upp
yfir 200 manna starfsliði
ÁKVÖRÐUNAR sjávarútvegs-
rádherra um takmarkanir á
loðnuveiðum i vetur er að vænta i
dag, en siðdegis í gær lauk (undi
islenzkra og norskra fiskifræð-
inga um stærð íslenzka loðnu-
stofnsins. í ályktun sem stjórn
Sildarverksmiðja ríkisins sam-
þykkti á fundi sfnum á laugar-
dag segir m.a. að verði loðnuveið-
ar stöðvaðar i byrjun nóvember-
mánaðar „neyðist stjórn Síldar-
verksmiðja rikisins til að segja
upp störfum, þegar i stað, yfir
200 manna starfsliði ef forða á
fyrirtækinu frá fjárhagslegu
hruni“.
í ályktuninni, sem send var
sjávarútvegsráðherra sem áskor-
un, segir ennfremur, að „afkomu-
spá Þjóðhagsstofnunar, fjárfest-
ingar í skipum til loðnuveiða og
endurbygging vinnslustöðva til
loðnuvinnslu hefur fyrst og fremst
grundvallast á aflaspám Haf-
rannsóknastofnunarinnar, þar
sem talið er óhætt að veiða
1.200.000—1.500.000 tonna ársafla.
Nú er búið að fjárfesta tugi
milljarða í þessum atvinnurekstri
og þúsundir fjölskyldna í landinu
eiga alla sína afkomu undir þess-
um veiðum."
Fiskifræðingarnir Jakob Jak-
obsson og Hjálmar Vilhjálmsson
sögðust í gærkvöldi ekki vilja
ræða niðurstöður fundarins, sem
lauk síðdegis í gær. Sögðu þeir, að
skýrsla um stofnstærð loðnunnar
yrði rædd á fundi þeirra með
sjávarútvegsráðherra í dag.
Ingolf Röttingen, norski fiski-
fræðingurinn, sem þátt tók í
fundinum, sagði í viðtali í gær, að
fiskifræðingarnir hefðu ekki séð
ástæðu til að gera breytingar á
fyrri tillögum sínum um 600
þúsund lesta hámarksafla úr
íslenzka loðnustofninum í haust
og á næstu vetrarvertíð.
Sjá ályktun SR á
blaðsiðu 12.
I.jósm. Emilía.
Bifreið ungmennanna tveggja, er ekkert hafði spurzt til
frá því á föstudagskvöld, fannst á 10 metra dýpi í
Þorlákshöfn í gær. Á myndinni sést þegar verið var að
hífa bifreiðina upp á bryggjuna sem hún fór fram af.
Forsætisráðherrar Norðurlandanna komu í gær til fundar í Ráðherrabústaðnum, en munu í dag sitja fundi
forsætisnefndar og samstarfsráðherra Norðurlandanna. Lj<v.m. ói.k.m.
Bifreið ungmennanna
fannst á 10 metra dýpi
fundirí dag
FORSÆTISRÁÐHERRAR
Norðurlanda komu síðdeg-
is í gær saman til fundar i
Ráðherrabústaðnum í
Reykjavík. í dag munu
ráðherrarnir síðan sitja
fund með norrænu ráð-
herranefndinni, sam-
starfsráðherrum, en það
eru þeir ráðherrar Norð-
urlandanna er fara með
norræn máiefni.
Forsætisráðherrarnir eru Ank-
er Jörgensen frá Danmörku,
Mauno Koivisto frá Finnlandi,
Odvar Nordli frá Noregi, Torbjörn
Fálldin frá Svíþjóð og Benedikt
Gröndal. Samstarfsráðherrarnir
eru Lise Östergaard frá Dan-
mörku, Pirkko Työlaejaervi frá
Finnlandi, Bjartmar Gjerde frá
Noregi, Karin Söder frá Svíþjóð og
fyrir íslands hönd situr fund
samstarfsráðherranna Guðmund-
ur Bendiktsson ráðuneytisstjóri,
en Benedikt Gröndal er sam-
starfsráðherra fyrir íslands hönd.
Þá munu forsætisráðherrarnir
einnig sitja fund forsætisnefndar-
innar, en þar verður m.a. ræddur
undirbúningur að þingi Norður-
landaráðs, sem halda á í
Reykjavík í mars n.k. Fundum
þessum lýkur síðdegis í dag, en
auk ráðherranna sitja þá ýmsir
embættismenn. Erlendu gestirnir
halda af landi brott á morgun.
LEITARMENN fundu í gær
um kl. 16.00 í höfninni á
Þorlákshöfn bifreið ungmenn-
anna tveggja frá Þorlákshöfn,
er ekkert hafði spurzt til frá
því á föstudagskvöld. Lík
þeirra beggja fundust í bifreið-
inni, en þau voru Katrín Sig-
rún Ólafsdóttir, 26 ára, til
heimilis að Reykjabraut 3, og
ómar Berg Ásbergsson, 21 árs,
til heimilis að Eyjahrauni 18.
Bifreiðin, sem var af Lada-gerð
og bar skrásetningarnúmerið
X-4905, fannst skammt frá
bryggjusporði syðstu bryggj-
unnar í Þorlákshöfn. Þar, sem
líklegt var talið, að bifreiðin
hefði farið út af bryggjunni,
sem nefnist Suðurvarar-
bryggja, var um 15 sentimetra
hár kantur. Að sögn lögregl-
unnar á Selfossi var kanturinn
ónýtur á köflum og talið að
bifreiðin hafi farið fram af er
verið var að snúa henni. Hált
var á bryggjunni eftir loðnu-
landanir, að sögn lögreglunn-
ar. Hafa bifreiðar áður farið
fram af hálum bryggjum í
Þorlákshöfn. Tiu metra dýpi
var þar sem bifreiðin fannst.
Mikil og víðtæk leit var gerð
að bifreiðinni í gær og á mánu-
dag. Leitarflokkar leituðu á
Reykjanesi, í nágrenni
Þrengslavegar, á Hellisheiði, í
Þingvallasveit og víðar. Þá var
mikið leitað við Þorlákshöfn. Á
mánudag var kafað í höfninni
þar og köfun fram haldið í gær
þar til bifreiðin fannst. í gær-
morgun slæddu bátar höfnina.
Aðstæður til leitar í höfninni
voru erfiðar. Sterk austanátt
stóð beint inn hafnarmynnið og
var ókyrrt á þeim slóðum sem
bifreiðin fannst. Áttu kafarar
af þessum sökum erfitt um vik
og sáu þeir vart úr augum, að
sögn Sigurðar Helgasonar hjá
björgunardeildinni Mannbjörg í
Þorlákshöfn.
Það vildi til, er verið var að
hífa bifreiðina upp úr höfninni,
að afturrúðan féll úr bifreiðinni
og skolaðist lík Katrínar út. Var
fyrirhugað að halda áfram leit
að líki hennar í gærkvöldi með
því að slæða höfnina og senda
kafara niður.
Rjúpan á3000kr.?
RJÚPNAVEIÐIN hefur gengið sæmilega það sem af er þegar gefið
hefur, en rjúpan er þó ekki enn komin til sölu í verslunum. Hjá
Kjötbúð Tómasar í Reykjavík, sem farin er að taka á móti
rjúpunni, fékk Mbl. þær upplýsingar að búist væri við að farið yrði
að selja hana þegar verðið lægi fyrir seinni hluta nóvembermánað-
ar eða í byrjun desember.
Verðið var í fyrra rúmlega tvö færi þó eftir veiðinni, hún hefði
þúsund krónur og taldi verslun- byrjað vel, en síðan hefði veður
arstjórinn að það yrði vart undir spilit svo og væri meira um bönn
þrjú þúsund krónum í ár. Það nú en áður.