Morgunblaðið - 14.11.1979, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 14.11.1979, Qupperneq 1
32 SÍÐUR 251. tbl. 66. árg. MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 1979 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Um 30 þúsund erlend börn í skólum á Kúbu Sendiherra Israels í Lissabon fluttur á sjúkrahús eftir skotárásina. sím«mynd ap. Árás á sendi- herra ísraels í Lissabon ^ Lissabon. 13. nóvember — AP. Reuter. ÁRÁS VAR í dag gerð á sendiherra ísraels í Portúgal. Sendiherrann, Eprahim Eldar. særðist en lífvörður hans beið bana og tveir aðrir særðust í árásinni á sendiherrann. Hann var að koma til sendiráðs ísraels í miðborg Lissabon þegar tveir vopnaðir menn réðust að bifreið hans. Lífvörður Eldars var stiginn út úr bifreiðinni þegar tilræðismennirnir gerðu árásina. Þeir skutu úr vélbyssu og köstuðu handsprengju að bifreiðinni. Lífvörðurinn varð fyrir brotum úr handsprengjunni og beið samstundis bana. Sendiherrann var í bifreiðinni og bjargaði það lifi hans. Sendiherrann varð fyrir tveimur byssukúlum og brotum úr handsprengjunni. Aðgerð var gerð á honum við Santa Maria-sjúkrahúsið í Lissabon í dag og sögðu læknar, að líðan hans væri eftir atvikum. Auk Eldars særðust bílstjóri hans og kona, sem átti íeið um en hún varð fyrir brotum úr hand- sprengjunni. Tilræðismennirn- ir komust undan. Fyrir tíu dögum lauk í Lissabon ráð- stefnu um málefni Araba. Yasser Arafat, leiðtogi PLO, kom þá til Lissabon. PLO- samtökin hafa neitað að eiga aðild að morðtilræðinu og tals- maður þeirra í Madrid for- dæmdi verknaðinn. ísraelsk stjórnvöld ásökuðu Portúgali um að hvetja til starfsemi hryðjuverkamanna með því að heimila ráðstefnu Araba í Lissabon. Teheran, Washington, 13. nóvember. — AP. Reuter. SENDIHERRA írans hjá Samein- uðu þjóðunum, Jamal Shemirani, átti í kvöld fund með Kurt Waldheim, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna. Hann fór fram á fund í öryggisráðinu til að ræða „ástandið og ógnun Banda- ríkjanna við heimsfriðinn með viðbrögðum sínum við töku sendi- ráðsins í Teheran,“ eins og hann orðaði það. Utanríkisráðherra írans, Abol- hassan Bani Sadr, sagði í dag í opnu bréfi til Kurt Waldheims, sem lesið var í útvarpið í Teheran, að „það minnsta sem Bandaríkin geta gert sé að viðurkenna sekt keisarans“. Hann lagði til, að fram færi alþjóðleg rannsókn á „glæp- um“ keisarans og að eignir Reza Pahlavi í Bandaríkjunum yrðu afhentar írönskum stjórnvöldum. Sádr sakaði Bandaríkin um „efna- hagslegt stríð" á hendur Irönum með því að hætta að kaupa olíu frá landinu. Þá sakaði hann Banda- ríkin um að stefna heimsfriðnum í hættu. í Washington skýrði Hodding Carter, talsmaður utanríkisráðu- neytisins frá því, að beint síma- samband hefði verið við sendiráð- ið í Teheran síðustu daga. Hann sagði, að íranskir stúdentar hefðu tekið við skilaboðum til gíslanna. Jimmy Carter aflýsti fyrirhug- aðri för sinni til Pennsylvaníu í dag vegna Iransmálsins og var það í annað sinn sem forsetinn aflýsir ferð. Henry Jackson, öldunga- deildarþingmaður og formaður varnarmálanefndar þingsins, sagði að ekki kæmi til greina að samþykkja síðustu kröfur Sadr. Ákvörðun Jimmy Carters um að hætta kaupum á olíu mæltist alls staðar vel fyrir. Embættismaður í Washington sagði, að með ákvörð- un sinni hefði forsetinn viljað taka olíuna sem vopn úr hendi írana. Þá bárust fréttir frá Teheran um að írönsku stúdentarnir í bandaríska sendiráðinu hefðu hafnað tillögum Sadr og sagt, að ekki kæmi til greina neins konar samningagerð — þeir hefðu tekið bandaríska sendiráðið af hugsjón. íran vill fund í öryggisráðinu — til að ræða „ógnun Bandaríkjanna við heimsfriðinn,, Símamynd AP. The Times — aftur á götuna. Lundúnabúi les hið sögufræga blað, sem aftur kom út i dag. Sjá frétt bls. 15. Ræða um nýtt eld- flaugavarnakerfi Haaií. 13. nóvember — AP. Reuter FUNDUR varnarmálaráðherra ríkja Atlantshafsbandalagsins hófst í Haag í dag. Til umranlu í Haag er áætlun ríkja Atlantshafsbandalags- ins um nýtt eldflaugavarnakerfi í V-Evrópu sem svar við SS-20 kjarnorkueldflaugum Sovétmanna. Þeim má skjóta hvert á land sem er í V-Evrópu og sagðar mjög fullkomnar. Willem Scholten, varnarmála- ráðherra Hollands, studdi tillögur um hið nýja eldflaugavarnakerfi en lagði til, að ákvörðun yrði frestað. Hinar bandalagsþjóðirnar vilja hins vegar að ráðist verði í að hrinda áætluninni strax í fram- kvæmd. Afstaða Hollendinga var já- kvæðari en búist hafði verið við. Ákvörðun um endurnýjun eld- flaugavarna ríkja Atlantshafs- bandalagsins verður tekin á fundi ráðherranefnda bandalagsins í Brussel um miðjan desember næstkomandi. Ráðstefnunni í Haag lýkur á morgun. Miami. 13. nóvember, AP UM 30 þúsund nemendur frá Afríku og Nicaragua stunda nú nám í skólum á eyju um 120 kílómetra fyrir sunnan Havana að því er útvarp Havana skýrði frá í dag. Frá því var skýrt að í síðustu viku hefði nýr skóli verið tekinn í notkun og að þar mundu um 600 nemendur frá Angóla stunda nám. Auk almenns náms nema börnin byltingar- fræði að því er Luis Boko, starfsmaður sendiráðs Kongó í Havana, skýrði frá. Samkvæmt fréttum er von á nemendum frá Guinea-Bissau, Sao-Tome og Principe, fyrrum nýlendum Portúgala, til Kúbu. Útvarp Havana sagði, að nú stunduðu börn frá Eþíópíu, S-Yemen, Angóla og Mosam- bique nám á Kúbu. Jonas Savimbi, leiðtogi UN- ITA — skæruliðafylkingarinn- ar, sem berst gegn stjórn Angóla, sakaði Kúbumenn nýlega um að hafa rænt sex þúsund börnum á aldrinum 7 til 15 ára og farið með þau til Kúbu. Hann kallaði þessar aðgerðir Kúbumanna „herferð gegn menningu Angóla". Sovézk jólakort Lundúnum, 13. nóvember — AP JÓLAKORT framleidd í Sovétríkjunum flæða nú yfir Bretland og er verð þeirra aðeins tíundi hluti verðs brezkra korta. Brezkir jólakortaframleiðendur kvörtuðu undan þessu á blaðamannafundi íLundúnum i dag. .„Brezkur almenningur er blekktur til að kaupa þessi kort. Hvergi er getið hvaðan þessi kort koma og fólk veit því ekki að jólakortin eru framleidd í ríki, sem hefur afneitað krist- indómi og ofsótt kristna kirkju," sagði James Galbraith í Lundún- um í dag. Hann sagði að um 100 milljór jólakort frá Sovétríkjunum væri nú seld á brezkum markaði, flest með trúarlegum texta. Búist er við að sala sovésku kortanna muni nema um 10% af sölu jólakorta á Bretlandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.