Morgunblaðið - 14.11.1979, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 1979
Um 700 milljón
kr. aðlögunar-
gjald til skipta
Vatnsmiðlunarlón Landsvirkjunar við Sigöldu stendur nú í 494 metrum og samkvæmt upplýsingum
Jóhanns Más Mariussonar hjá Landsvirkjun náði það fullri hæð nú i haust eftir rigningar og kvað
hann menn ekki hafa ýkja miklar áhyggjur af vatnsmálunum nú eins og var fyrr í haust. bó sagði
hann enn haldið i orkusölu til Álfélagsins og Járnblendifélagsins. Á myndinni má sjá til vesturs i
inntakið sem er ofan við stöðvarhúsið. Ljósm. Rax —
RÍKISSTJÓRNIN hefur fallist á
tillögur iðnaðarráðherra um
skiptingu jöfnunargjalds og að-
lögunargjalds til hagræðis i
ákveðnum greinum islenzks iðn-
aðar á þessu ári segir í fréttatil-
kynningu frá iðnaðarráðuneyt-
inu i gær, en þar segir m.a.:
Ríkisstjórnin hefuríallist á tillög-
ur iðnaðarráðherra um skiptingu
jöfnunargjalds og aðlögunargjalds
til hagræðis ákveðnum greinum
íslensks iðnaðar á þessu ári.
Jöfnunargjaldi sem lagt var á
með lögum nr. 83/1978, er ætlað að
jafna þann aðstöðumun, sem stafar
af því, að hér á landi er ekki
virðisaukaskattkerfi eins og í helstu
viðskiptalöndum okkar. Virðisauka-
skattur er endurgreiddur við út-
flutning og til að jafna þennan mun
er upphæð, sem svarar til sölu-
skattsáhrifa á kostnaðarverð fram-
leiðsluvara íslensks útflutningsiðn-
aðar og þeirra iðngreina, sem keppa
við tollfrjálsan innflutning, end-
urgreidd til viðkomandi fyrirtækja.
A þessu ári koma alls um 870 mkr.
til greiðslu og hefur nokkur hluti
þeirrar fjárhæðar þegar verið
greiddur út. Skv. tillögum iðnaðar-
ráðherra kemur nú vaxandi hluti
endurgreiðslunnar á útflutning
þessa árs, og er þar um mikilsverða
hagsbót að ræða fyrir iðnaðinn við
þær aðstæður varðandi rekstrarfé,
sem hann nú býr við.
Aðlögunargjald var lagt á inn-
flutta iðnaðarvöru frá 1. júlí 8.1. í
samræmi við lög nr. 58/1979. Til-
gangur laganna er að bæta íslensk-
um iðnaði uppsafnað óhagræði, sem
stafar af óhagstæðri gengisskrán-
ingu, skattlagningu umfram það,
sem erlendir keppinautar búa við og
samkeppni af hálfu ríkisstyrktra
iðngreina erlendis.
Gjaldið er lagt á ýmsa samkeppn-
isvöru og skapar þannig tollvernd,
en skv. lögunum skal tekjum af því á
árinu 1979 varið til sérstakra iðn-
þróunaraðgerða skv. nánari ákvörð-
un ríkisstjórnarinnar að fengnum
tillögum iðnaðarráðherra.
Hugmyndir hafa' verið uppi um að
leggja stóran hluta af tekjum þessa
árs í Iðnrekstrarsjóð, sem síðan
myndi ráðstafa þeim í samræmi við
efni lagabreytinga, sem enn liggja
ekki fyrir tillögur um.
Iðnaðarráðherra hefur nú, eftir að
hafa ráðfært sig við forystumenn í
íslenskum iðnaði, ákveðið að leggja
til að meginhluti tekna af gjaldinu
skuli að þessu sinni varið til end-
urgreiðslna til útflutnings-, veiðar-
færa-, umbúða-, fóður-, málm- og
skipasmíðaiðnaðar. Hefur ríkis-
stjórnin fallist á þá tillögu. Fram
hefur komið að undanförnu, að
fyrirtæki í þessum greinum eiga nú
við mikinn vanda að etja. Það er
skoðun ríkisstjórnarinnar, að það
sé nú forgangsatriði í ísienskri
iðnþróun að efla starfandi iðnfyr-
irtæki til nýrra átaka í útflutnings-
og samkeppnisiðnaði og þúsundir
starfsmanna eigi nú afkomu sína
undir því, að iðnfyrirtækin verði
öflugri og arðbærari. Til viðbótar
þeim endurgreiðslum, sem koma í
hlut iðnfyrirtækjanna, mun talsverð
upphæð af tekjum af aðlögunar-
gjaldinu renna til þess að hefja
starfsþjálfun i fata-, ullar- og
skinniðnaði. Fyrirtæki á þessu sviði
hafa að undanförnu risið á fót víða
um land og miklu máli skiptir fyrir
framtíð þeirra, að vel sé kunnað til
verka, svo að fyrstu sporin takist vel.
Getur hin fyrirhugaða starfsþjálf-
un orðið einn af hyrningarsteinun-
um i þróun iðnaðar i dreifðum
byggðum landsins, en siðar er
ætlunin að hún taki til fleiri
iðngreina.
Nokkurri fjárhæð er ætlað að
verja til iðnrþóunaráætlana fyrir
Norður- og Austurland. Þá er einnig
ákveðið að leggja fram talsvert fé til
rannsókna í steinullariðnaði og í
stálbræðslu, svo og til stuðnings við
rekstur Útflutningsmiðstöðvar iðn-
aðarins. Loks er þess að geta, að 70
mkr. verður varið til tilrauna með
saltvinnslu á Reykjanesi.
Talið er, að alls muni tekjur af
aðlögunargjaldinu nema um 700
mkr. á þessu ári, og er samþykkt
ríkisstjórnarinnar miðuð við þá
tekjuáætlun.
Morgunblaðið innti Davíð Schev-
ing Thorsteinsson formann félags
íslenskra iðnrekenda álits á þessari
ákvörðun: „Við fögnum þessari við-
urkenningu ríkisstjórnar íslands,"
sagði hann, „sem fékkst í ráðstöfun
aðlögunargjaldsins. Mað því að end-
urgreiða útflutningsiðnaðinum upp-
safnað óhagræði er loks fengin
viðurkenning á því sem við höfum
haldið frám í mörg ár að starfsað-
staða iðnaðarins er slík að gengið
sem hann hefur verið neyddur til að
búa við allan aðlögunartímann hefur
verið ranglega skráð. Þar sem aðlög-
unargjaldið er tímabundið gjald og
rennur út 31/12 1980 er auðséð að
ekki verður lengur umflúið að koma
starfsaðstöðu iðnaðarins í eðlilegt
horf hvað gengisskráningu snertir."
Gamla sjónvarpið hefur nú öölast
verögildi því aö Radíóbúöin býöur
nú viöskiptavinum sínum aö taka
hvers konar notuö, jafnvel ónýt
svart/hvít sjónvarpstæki upp í
Notað
Nú getur þú komiö meö gamla, góöa,
svart/hvíta sjónvarpiö þitt og viö tökum
þaö á matsveröi sem hluta af greiöslu
upp í nýtt litsjónvarpstæki. Ef þú ert
ekki sáttur viö okkar verö tökum viö
tækiö í umboössölu.
Er hægt
aö bjóða betur?
Viö bjóöum, eins og allir vita eitt mesta
úrval litsjónvarpstækja á landinu — tæki frá
heimsþekktum framleiöendum eins og
Nordmende — Bang & Olufsen og ASA.
Verö og gæöi
viö allra
hæfi.
Verslióísérverslun með
LITASJÓNVÖRPog HUÖMTÆKI
29800
BUÐIN Skipholti19