Morgunblaðið - 14.11.1979, Side 22

Morgunblaðið - 14.11.1979, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 1979 t Bróöir minn NILS E. NILSEN andaöist 12. þessa mánaöar í elliheimilinu Grund. Fyrir hönd aðstandenda. Inga Nilsen Beck. t Hjartkær sonur okkar og bróðir, HAUKUR, sem fórst af slysförum þann 8. nóvember, veröur jarösunginn frá Dómkirkjunni, ásamt félaga sínum Guðmundi Kvaran, föstudaginn 16. nóvember kl. 2 síödegis. Arna Hjörleifsdóttir, Jóhannes R. Snorrason, og systkini Hauks. t Móöir okkar ANNA HELGADÓTTIR frá Stokkseyri andaöist í Borgarsþítalanum mánudaginn 12. nóv. Unnur Siguröardóttir, Haraldur Sigurösson, Georg Sigurðsson, Jóhann L. Sigurðsson. Faöir okkar AXEL NORDFJÖRD lést að heimili sínu Hátúni 10a, 12. nóvember. Börnin. t SIGURRÓS GUÐMUNDSDÓTTIR Langholtsvegi 63 veröur jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 15. nóvember kl. 15:00. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Slysavarnarfé- lag íslands. Fyrir hönd systkina og annarra vandamanna, Guörún Jónsdóttir, Þóröur Kristjónsson. Þökkum innilega auösýnda samúð og vinarhug viö andlát og útför ELÍNBORGAR JÓNSDÓTTUR, Munkaþverórstræti 38, Akureyri. Sérstakar þakkir færum viö Ólafi Sigurössyni, yfirlækni, og hjúkrunarfólki viö Fjóröungssjúkrahúsiö á Akureyri. Sigurður Sölvason, María J. Siguröardóttir, Gunnar Sigurösson, Ingólfur Sigurösson, Aðalsteinn Sigurösson, og barnabörn. Gunnar Jónsson, Ingibjörg Ólafsdóttir, Þorgeröur Magnúsdóttir, Alice J. Sigurösson, t Þökkum auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför móöur okkar, tengdamóöur og systur INGIBJARGAR ÓLAFSDÓTTUR fró Seyðisfiröi. Sérstakar þakkir færum viö félögum úr kór Fóstbræöra fyrir hlýjan hug, Guö blessi ykkur öll. Rebekka Guömundsdóttir, Sofffa Guömundsdóttir, Júlíus Brynjólfsson, Hildir Guömundsson, Ragnheiöur Björnsdóttir, Svanhildur Siguröardóttir, Anna Ólafsdóttir, og barnabörn. t Maöurinn minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi, ODDUR KRISTJÁNSSON, Rauöalæk 49, veröur jarösunginn frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 15. nóvember k|. 13 30 Guöbjörg Guömundsdóttír, Guömundur Oddsson, Jórunn Jónsdóttir, Siguröur K. Oddsson, Herdís Tómasdóttir, og barnabörn. Jóhann Jónsson —Minningarorð Fæddur 21. mars 1896. Dáinn 3. nóvember 1979. í dag kveðjum við börnin pabba okkar og móðir okkar mann sinn. Hann fæddist að Egilsstöðum í Ölfusi þar sem foreldrar hans voru í húsmennsku. A þeim árum voru götur þeirra grýttar sem ekkert áttu og fátæktin stíaði foreldrum hans sundur og fór móðir hans þá með son sinn ungan að Hólmi í Landssveit, en þar var þá húsmóðir Ragnhildur Diðriks- dóttir. Hún var rúmliggjandi um margra ára skeið en stjórnaði búi sínu af röggsemi, og lét hvergi bugast og hjá henni átti drengur- inn ávallt öruggt skjól. Eflaust hefur hennar lexia orðið drengn- um hollt veganesti síðar á ævinni, að láta ekki bugast þrátt fyrir erfiðleika. A þessum árum var lítið um skólagöngu en mikið um vinnu. Pabbi varð snemma að fara að vinna fyrir sér og gekk að hverju verki sem til féll, og á fáum hefur betur sannast orðtækið: Vinnan göfgar manninn. Hann var alla sína ævi vinnandi og vann öll verk af áhuga oo trúmennsku, enda hvarvetna eftirsóttur. Hann nam bakaraiðn hér í Reykjavík og Starfaði við það í mörg ár, bæði hér í borg og í Keflavík. Hann kynntist Jónhildi Jónsdóttur og giftust þau. En lífið lék pabba ekkert sérlega vel. Eiginkonan lést ásamt nýfæddu barni þeirra eftir skamma sam- búð. Þetta var um jólaleytið, og þó hann segði sjaldan neitt um sinn hag lét hann þó þau orð falla síðar, að þau jól vildi hann ekki lifa aftur. Nokkru síðar kynntist hann Margréti Árnadóttur úr Grinda- vík og eignuðust þau tvo syni. Varð pabba það mikill harmur þegar eldri sonurinn varð bráð- kvaddur fyrir tveim árum, tæp- lega fertugur að aldri. Leiðir þeirra Margrétar skildu og þá hóf pabbi búskap með móður okkar, Júlíönu Bjarnadóttur sem ættuð er úr Vestur-Húnavatns- sýslu. Um áratuga skeið bjuggu þau og unnu á Heilsuhælinu að Vífilsstöðum, en hann varð að hætta vinnu fyrir tíu árum, en áfram bjuggu þau á Vífilsstöðum þar til á síðasta vori. Þar suðurfrá eignuðust þau marga vini og allir sem voru á Vífilsstöðum könnuð- ust við Júllu og Jóa. Þó að pabbi tranaði sér ekki fram var tekið Árni Stefánsson út- gerðarmaður - Minning Þann 21. okt. s.l. andaðist á Landakotsspítala Árni Stefáns- son. Árni var fæddur að Hvammi í Fáskrúðsfirði þann 27. sept. 1912. Foreldrar Árna voru Stefán Árna- son og Guðfinna Jóhannsdóttir. Árni byrjaði snemma að stunda sjómennsku, fyrst með föður sínum, en síðar eignaðist Árni sinn eigin bát og rak útgerð í fjölda ár, síðast Báru SU 526. Þeir sem réðust í skipsrúm hjá Árna báru honum þau orð, að betri húsbónda hefðu þeir ekki getað haft. Árni tók að sér trúnaðar- störf fyrir heimabyggð sína og einnig í þeim félagasamtökum sem tengd voru hans ævistarfi. Árni kvæntist eftirlifandi konu sinni, Sigríði Ólafsdóttur, þann 28. t Sonur okkar, bróöir og mágur, GUDMUNDUR KVARAN, Kleifarvegi 1, Reykjavík, sem fórst af slysförum 8. nóvember s.l veröur jarösunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík ásamt félaga sínum Hauki Jóhannessyni föstudaginn 16. nóvember kl. 14. Blóm eru vinsamlega afþökkuö, en þeim sem vildu minnast hans er bent á Styrktarfélag vangefinna. Einar G. Kvaran, Kristín Kvaran Karitas Kvaran, Baldur Guölaugsson, Gunnar E. Kvaran, Snæfríöur Egilson. Helgi E. Kvaran, Afmœlis- og minningargreinar ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera í sendibréfsformi eða bundnu máli. Þær þurfa að vera vélritaðar og með góðu línubili. eftir honum og menn vildu kynn- ast honum. Yfir þessum árum var bjart í hugum þeirra. Ekki síst mátu þau mikils vináttu við Helga Ingvarsson yfirlækni og fjölskyldu hans. Helgi var ekki aðeins hús- bóndi á staðnum heldur miklu fremur vinur. Foreldrar okkar eignuðust sex börn, en misstu eitt þeirra, stúlku aðeins rúmlega ársgamla. I dag leggst pabbi ánægður til hinstu hvíldar við hlið systur okkar. Pabbi safnaði aldrei veraldleg- um auði og taldi sig ekkert hafa með hann að gera. Hans auður var óbugandi lífsgleði og hreysti. Hann hafði mikla söngrödd og yndi af tónlist, söng líka fyrr á árum með söngfélaginu Hörpu. Tómstundanna naut hann best við lestur bóka, og í skáp hans mátti finna marga góða bók. Ekki hafði hann síður gaman af ferðalögum hvort sem langt var eða skammt og þá vildi hann fræðast. Gaf hann sig jafnan á tal við fólk þar sem hann átti leið um og leitaði upplýsinga um staðhætti, örnefni og lífskjör fólksins. Hann naut þess að sjá fagurt blóm á bala og vera með börnum sínum úti í góðu veðri, þegar himinninn logaði við sólarlag sagði hann upp úr eins manns hljóði með sinni hljóm- miklu rödd: Þetta er dásamlegt, krakkar. Áttatíu og þrjú ár er löng ævi, enda kveið pabbi því ekki er við tæki og taldi sig ferðbúinn hvenær sem kallið kæmi. Hann naut þess að vera í hópi ástvina sinna til hinstu stundar, því að dvöl hans á Landspítalanum var aðeins ein vika, en þar hlaut hann mjög góða umönnun. Við skulum ekki syrgja hann. Tómið sem eftir er skulum við fylla með Jieim fjölmörgu fögru minningum sem við eigum. Eig- inkonan, börnin, tengdabörnin og ástvinir allir þakka samveruna. Minning góðs manns er guðs gjöf. Börnin. sept. 1941. Þeirra hjónaband var alla tíð mjög traust, voru þau mjög samhent, svo aldrei bar þar skugga á. Bjuggu þau hjón alla sína tíð að Ásbrú í Fáskrúðsfirði. Þeim varð ekki barna auðið, en þau hjón voru mjög barnelsk og í hvert sinn sem ég kom á heimili þeirra var þar alltaf barnafjöldi sem veitti þeim mikla gleði. Tóku þau hjón að sér eitt fósturbarn, Halldóru Árnadóttur, systurdótt- ur Sigríðar, og ólu hana upp frá 3ja ára aldri sem væri hún þeirra eigið barn. Á heimili þeirra hjóna var alla tíð gestkvæmt og vina- hópurinn stór og allir sem til Árna þekktu vita hvern ágæt- ismann hann hafði að geyma. Ég kynntist Árna ekki fyrr en á hans síðustu æviárum og það veit ég, að Árni var maður sem alltaf var fús til að rétta hjálparhönd. Nú þegar við kveðjum Árna þá er söknuðurinn mikill. Ég vil bera fram kveðju frá litla nafna hans, Árna Sigurði, sem var mikill afadrengur. Við hjónin þökkum allar góðu minningarnar sem við eigum um hann og alla tíð munu lifa með okkur og biðjum guð að styrkja Sigríði, því missir hennar er mikill. Blessuð sé minning hans. Pétur Hauksson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.