Morgunblaðið - 14.11.1979, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 1979
29
u w -
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
0100 KL. 10—11
FRÁ MÁNUDEGI
ór ,v {/jsvnfo'ujj'ij ir
blindra, heyrnalausra og vangef-
inna. Eg efast ekki um að allir
þeir sem nú bjóða sig fram munu
vilja öllu þessu fólki vel. Þó eru
mörg vandamálin sem þarf að
leysa, kakan er því miður í þessu
máli of stór. Ég minnist þess að
fyrrverandi stjórn ætlaði að létta
undir með lífeyrisþegum, en raun-
in er sú, eftir því sem Magnús
segir, að þeir peningar sem ríkis-
kassinn lætur í málefnið, nægja
varla fyrir bensíni til bráðnauð-
synlegra ferða fatlaðra.
Að lokum, stöndum sterk um
félag fatlaðra og lamaðra og
höldum því frá þrasi stjórnmála-
manna. Þá mun dagur rísa. Verið
þrautseig nú sem hingað til. Verið
minnug þess að góður og drengi-
legur málflutningur mun sigra.
Kristján Guðmundsson.
• Um íslenskt
útvarp
erlendis
Eftirfarandi bréf hefur Vel-
vakanda borist frá íslendingi bú-
settum i Noregi.
Vegna bréfs til Velvakanda hinn
3. nóvember sem fjallar um send-
ingar íslensks hljóðvarps á stutt-
bylgju um Gufunes datt mér í hug
að skrifa og taka undir þetta með
námsmanninum í Ósló að vandað
yrði meira til þessara sendinga pg
þær hafðar á ákveðnum tíma.
Væri þá ekki úr vegi að fá norska
útvarpið til að segja frá þessum
tíma sem útsendingarnar fara
fram, t.d. í hádegisfréttunum frá
Ósló. Þar sem ljóst er að fjöldi
íslendinga dvelst í nágrannalönd-
um íslands myndi það gleðja
marga að geta heyrt fréttir að
heiman og kannski svo sem eins og
eitt gott íslenskt lag á eftir.
Loðdýraverkamaður í Andeby.
• Hollending
sem lærir
islensku
vantar hjálp
Velvakandi hefur fengið
annað bréf erlendis frá, frá
Hollandi. Lauslega þýtt hljóðar
það þannig:
„Fyrir stuttu hóf ég að læra
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Á alþjóðlega skákmótinu í
Triana í Búlgaríu í fyrra kom
þessi staða upp í skák þeirra L.
Espigs, A-Þýzkalandi, og Mark
Zeitlins, Sovétríkjunum, sem
hafði svart og átti leik. Snemma
skákarinnar lagði Zeitlin út í mjög
djarfa mannsfórn og nú, eftir
varnarmistök hvíts, sá hann sér
leik á borði:
24. - Hxc3!, 25. Dxc3 - Bh3+!,
26. Kxh3 - Df3+, 27. Kh4 - g5+!,
28. Bxg5 (Hvítur verður mát eftir
28. Kxg5 — Hf5+ o.s.frv.) Dxc3 og
svartur vann auðveldlega.
íslensku. Þar sem mjög sjaldan er
útvarpað eða sjónvarpað á
íslensku í Hollandi er það ekki oft
að ég heyri málið talað. Það er
þess vegna mjög erfitt að ná
hinum rétta framburði.
Því langar mig til að biðja
einhvern íslending um að hjálpa
mér. Hann eða hún verður að eiga
gott kassettutæki eða hafa aðgang
að slíku. Ég mun síðan senda
viðkomandi kassettur og texta
sem hann mun lésa inn á bandið.
Ég mun borga póstkostnaðinn og
annan kostnað ef einhver verður."
Nafn þessa hollendings er Henk
Ytsma og hann býr í Troelstra-
leane 4, 92585 RR Buitenpost (fr),
Holland.
Velvakandi kemur hér með
þessari beiðni Henks á framfæri
við einhvern velviljaðan Islending.
• Gasbrennslan
er ekki
mengunarfrí
Páll Gunnarsson hjá Búvöru-
deild Sambands íslenskra sam-
vinnufélaga hafði samband við
Velvakanda vegna lesendabréfs
sem birtist þriðjudaginn 31. októ-
ber s.l. Þar talaði greinarhöfundur
m.a. um að gas væri notað sem
eldsneyti á lyftara hérlendis og
væri það mengunarfrítt. Páll
sagði það aftur á móti ekki rétt.
„Það að gasbrennsla í lyfturum
sé mengunarfrí er mikill misskiln-
ingur og hefur valdið stórslysum.
Ef gasbrennsla er borin saman við
bensínbrennslu sést að það eitur-
gas sem myndast, koltvísýringur,
er í-sumum tilfellum alveg jafn-
mikið en í öðrum er eiturgasið um
helmingi meira við bensínbrennsl-
una en við gasbrennsluna. Það er
því ljóst að mengunarfrí er gas-
brennslan ekki. Þess vegna er
mjög hættulegt að nota þessa
lýftara innan húss og hefur það
oft valdið slysum hérlendis.
Máli mínu til stuðnings vil ég
benda á það að Lansing Ltd., sem
er einn stærsti lyftaraframleið-
andi í Evrópu, hefur sent frá sér
greinargerð þar sem segir að
gasbrennsluvélar séu einungis
seldar í lyfturum vegna þess að
mörg fyrirtæki erlendis kaupa það
mikið magn af gasi á hagstæðu
verði til upphitunar og iðnaðar-
nota. Þar af leiðir að lyftaraelds-
neytið verður þessum aðilum mjög
ódýrt.
Gaslyftarar eru alls ekki fram-
leiddir til nota innanhúss, þar
duga einungis rafmagnsknúnir
lyftarar."
HÖGNI HREKKVISI
p
Q3P SIGGA V/öGA É ‘ÍHVtRAU
Um 300 manns
búa í húsum Ör-
yrk j abandalagsins
Aðalfundur Öryrkjabandalags
íslands var haldinn 25. f.m. að
Bjarkarási v/ Stjörnugróf. Sam-
kvæmt lögum bandalagsins er nú
stjórn kosin annaðhvort ár og
skiptist formennskan milli aðild-
arfélaga bandalagsins sem nú
eru 10 að tölu. Núverandi for-
maður er Jóna Sveinsdóttir,
kennari, frá Foreldra- og styrkt-
arfélagi heyrnardaufra og mun
hún því gegna formennsku á
alþjóðaári fatlaðra, 1981. Á fund-
inum var samþykkt skipu-
lagsskrá fyrir Vinnustofusjóð Ör-
yrkjabandalagsins en bandalagið
hefur sem kunnugt er rekið
verndaða tæknivinnustofu und-
anfarin ár. í sumar barst höfð-
ingleg gjöf — 1000 dollarar —
frá Luther I. Replogle, fyrrver-
andi sendiherra Bandarikjanna á
íslandi, og skal andvirði hennar
varið til að vinna að framgangi
öryrkjavinnu á íslandi.
Á fundinum flutti Oddur Ól-
afsson, fyrrverandi alþingis-
maður, skýrslu hússtjórnar og
kom þar fram, að nýjasta hús
Öryrkjabandalagsins, Fannborg 1
í Kópavogi, var tekið í notkun á
síðast liðnum vetri og búa nú um
300 manns í húsum bandalagsins
auk þess sem þau hýsa 2 deildir
fratKleppsspítala og Öldrunar-
deild frá Landspítalanum og eru
þetta um 90 sjúkrapláss. Enn-
fremur flutti Ólöf Ríkharðsdóttir
fulltrúi Öryrkjabandalags íslands
í Endurhæfingarráði mjög fróð-
lega skýrslu. Þá flutti Vigfús
Gunnarsson mjög ýtarlega
skýrslu frá ferlinefnd fatlaðra og
ræddi meðal annars um afskipti
ferlinefndar af nýjum byggingar-
lögum og reglugerð þar að lútandi
en í þeim lögum eru meðal annars
ákvæði um aukið aðgengi fatlaðra.
I skýrslu lögfræðings bandalags-
ins kom fram að lögfræðiþjónusta
bandalagsins við skjólstæðinga
þess fer árlega vaxandi.
Á fundinum urðu allmiklar um-
ræður um réttarstöðu fatlaðra í
þjóðfélaginu og var eftirfarandi
tillaga samþykkt í framhaldi af
þeim umræðum:
„Aðalfundur Öryrkjabandalags
íslands, haldinn 25. október, skor-
ar á öll samtök fatlaðra á Islandi
að taka sem virkastan þátt í þeirri
kosningabaráttu sem framundan
er og leita eftir skýrri afstöðu
allra frambjóðenda til þeirra
vandamála sem torvelda jafnrétti
fatlaðra."
(Frá Öryrkjabandalagi
íslands.)
Árás í dögun
Ný stríðssaga eftir Brian Callison
HJÁ IÐUNNI er út kominn
skáldsagan Árás í dögun eftir
breska höfundinn Brian Calli-
son. Þetta er þriðja stríðssagan
sem út kemur eftir hann á
íslensku. Hinar voru Hin feigu
skip og Banvænn farmur.
Árás í dögun lýsir strand-
höggi breskra víkingasveita í
norskum smábæ þar sem þýska
hernámsliðið hafði herskipa-
lægi. Þótt hér sé um skáldsögu
að ræða á hún sér allnákvæmar
hliðstæður í árásum bresku
víkingasveitanna St. Nazaire,
Lofoten og Dieppe á styrjaldar-
árunum.
Árás í dögun er 254 blaðsíðna
bók. Andrés Kristjánsson þýddi
söguna.
BRIAN CALLISON
ÁRÁSÍÞÖGUN
Ljósm. Emilia.
Ný hárgreiðslustofa hefur verið opnuð í Norðurbrún 2. Hárgreiðslu-
stofan Sparta. Á meðfylgjandi mynd eru eigendur stofunnar. Gústa
Hreinsdóttir og Inga Gunnarsdóttir. í húsnæði hennar.