Morgunblaðið - 14.11.1979, Side 30

Morgunblaðið - 14.11.1979, Side 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 1979 4 íslenskir keppendur á NM í badminton FIMMTUDAGINN 15. nóvember halda 4 islenskir keppendur i badminton til Noregs til þátttöku í N.m., sem íer fram í Tromsö dagana 17—18. nóvember 1979. Eftirtaldir keppendur hafa verið valdir tii ferðarinnar: Kristin Magnúsdóttir TBR, Kristín B. KristjánsdóttirTBR, Jóhann Kjartansson TBR, Broddi Kristjánsson TBR. Allir sterkustu badmintonspil- arar Norðurlanda taka þátt í þessu móti. Fyrstu leikir islensku kepp- endanna verða þannig: í einliðaleik: Kristín Magnúsdóttir keppir við Else Thoresen frá Noregi, marg- faldan Noregsmeistara. Kristín Kristjánsdóttir keppir við Viola Renholm frá Finnlandi, hún ætti að eiga möguleika á að vinna þennan leik. Jóhann Kjartansson keppir við Thomas Westerholm frá Finn- landi hann á einnig góða mögu- leíka á vinningi í þeim leik. Broddi Kristjánsson keppir við Sture Jonsson, einn sterkasta ein- liðaleiksspilara Svíþjóðar. í tvíliðaleik. Jóhann og Broddi keppa við Harald Nettlie og Björn Steinslie frá Noregi, ef þeim tekst vel upp geta þeir jafnvel átt möguleika á vinningi í þessum leik. Kristín M. og Kristín K. keppa við Lenu Koppen og Inge Borg- strom frá Danmörku, margfalda Norðurlandameistara. I tvenndarleik er okkur ekki kunnugt um hverjir andstæð- ingarnir verða. Keppnin fer fram í Tromsöhall- en, Trömso. Arsþing BSI var haldið laugar- daginn 17. október í Snorrabæ við Snorrabraut. 40 fulltrúar sátu þingið. Þing- forsetar voru Sveinn Björnsson og Kristján Benjamínsson og þingrit- arar Gunnsteinn Karlsson og Steinar Petersen. Rafn Viggósson formaður BSÍ flutti skýrslu stjórnar. Meðal margra verkefna var að sjá um A— og B— stigs leiðbein- endanámskeið, þátttöku í Norður- landamótum fullorðinna og ungl- inga, landsleik við Færeyinga o.fl. Reikningar sambandsins voru lagðir fram endurskoðaðir. I stjórn og varastjórn BSI voru kjörnir: Rafn Viggósson, formað- ur, Walter Lentz, gjaldkeri, Steindór Ólafsson, Magnús Elías- • Kristín Magnúsdóttir son, Adólf Guðmundsson, Ásbjörn Jónsson, Hjalti Sigurðsson og Vildís Kristmannsdóttir, blaða- fulltrúi. Úr stjórninni gekk Þyri Laxdal. Leikið í Firðinum í kvöld TVEIR leikir fara fram í Islandsmótinu í hand- knattleik í kvöld, báðir í íþróttahúsinu í Hafnar- firði. Kl. 20.00 leika Hauk- ar og Fram í 1. deild karla og að leiknum ioknum, um klukkan 21.15, eigast við Haukar og Grindavík í 1. deild kvenna. Síðan leika FH og Selfoss í 2. flokki karla. Ward fór til Forest BRIAN Clough, framkvæmda- stjóri Nottingham Forest, dró seðlaveskið upp úr rassvasanum í fyrradag og borgaði 600.000 steriingspund fyrir Peter Ward, hinn unga og snjaiia miðherja Brighton. Brighton hefur gengið illa á sinu fyrsta keppnistímabili í 1. deild og Ward sömuleiðis. Hann skoraði ógrynni marka fyrir Brighton síðustu keppnistímabil- in, en hefur aðeins skorað 4 mörk í 15 leikjum. Brian Clough gerði tilboð í Ward á síðasta keppnis- tímabili, en fékk þá synjun, enda gekk Brighton þá allt í haginn. • Peter Ward. Peningakeppnin gengur eins og í sögu RANDERS Open, fyrsta bad- mintonkeppnin um peninga í Danmörku gengur eins og i sögu. Mótshaldararnir höfðu tryggt sér stuðning frá banka í Randers á þann hátt að bankinn myndi greiða alit að 50 þús. d. kr. ef um halla yrði að ræða af mótinu. En nú er allt útiit fyrir að bankinn fái ódýra auglýsingu, því þrátt fyrir að verðlaunin í mótinu séu um 200 þús. d. kr. (15 millj. ísl. kr.) og að mótshaldararnir greiði hluta af ferðakostnaði keppend- anna eru allar líkur á því^að mótið komi til með að standa undir sér. Keppendur eru 111 og þar á meðal næstum allir bestu bad- mintonmenn heimsins. í fjórð- ungsúrslitum eru næstum allir sem búist var við. í einliðaleik karla mætir Svend Pri Danmörku, sem hefur meðal annars slegið Steen Faldberg Danmörku út, Sumirat frá Indónesíu, Flemming Delfs mætir Ray Stevens Eng- landi, Kihlström frá Svíþjóð mæt- ir Arbi frá Indónesíu og Morten Frost mætir Zenia frá Japan. í einliðaleik kvenna er það aðeins Else Toresen frá Noregi sem komst óvænt í fjórðungsúrslit á kostnað Jane Webster frá Eng- landi. í tvíliðaleik karla vann Svend Pri óvænt ásamt Sumirat frá Indónesíu Danmerkurmeistar- ana Mogens Neergaard og Kenn- eth Larsen. í tvíliðaleik kvenna og tvenndarleik hafa ekki enn orðið óvænt úrslit. „Sigruðum enska landsliðið" „Mitt lið er Arsenal,“ sagði Rikarður Jónsson, margreyndur landsliðsmiðherji í knattspyrnu, þegar Mbl. bað hann að tippa um úrslit næstu leikja í ensku knattspyrnunni. „Jú jú, ég skal tippa,“ bætti hann við eftir stund- arkornsíhugun um hvort hann ætti að slá til. Eitt er víst, að hann getur varla staðið sig verr en síðasti tippari blaðsins. Ef menn rekur minni til, þá var það hinn glóandi KR-ingur Egill rak- ari sem var gestur okkar í siðustu viku, en hann reið ekki feitum hesti frá leikjum helgar- innar, fékk aðeins 3 rétta. Til þessa hefur Þórður matsvéinn í Aski staðið sig best, ef nota má það orð, hann fékk 5 rétta og engan vinning fyrir það. Áður en lengra er haldið skulum við líta á hina öruggu 12 rétta Ríkarðs. Arseneal — Everton 1 Aston Villa — Stoke x Bolton — Man.City 2 Derby — Ipswich 2 Leeda — WBA 1 Liverpool — Tottenham 1 Man.Utd. — Crystal Palace 1 Middlesbrouxh — Bristol City 1 Norwich — Southampton 1 Nott.Forest — Brighton 1 Wolves — Coventry x Preston — Leicester 1 „Ég hef ekki tippað reglulega síöustu árin, varla haft tækifæri til og er þar af leiöandi ekki frægur fyrir aö detta í lukkupottinn hjá getraunun- um,“ sagöi Ríkaröur. Ríkarður er einhver frægasti knattspyrnumaöur íslands fyrr og síðar og á litríkum ferli sínum dvaldist hann um tíma hjá Lundúna- liðinu fræga, Arsenal. Þar lék hann marga leiki meö varaliöi félagsins og nokkra gestaleiki meö aöalliöinu. M.a. lék hann tvívegis meö aöalliöi Arsenal gegn enska landsliöinu. „Það var í þriggja liða keppni, þar sem léku landsliöiö, Arsenal og sænskt liö. Við unnum landsliöiö nokkuö auöveldlega í fyrri leiknum og þótti mér það svo slakt, aö ég veöjaði við félaga mína hjá Arsenal aö sænska liðiö myndi einnig vinna auöveldlega. Þeir töldu þaö af og frá og voru fúsir að veöja. Og auövitaö mokaöi ég inn 20 pundum þegar Svíarnir unnu. Miövöröur landsliös- ins hét Bobby Smith frá Birmingham og var hann svo linur, að hann hefði ekki einu sinni komist í íslenska landsliöið." Getrauna- spá M.B.L 2 n -c C 3 9C u O S Nunday Mirror tiunday People Kunday Express News of the world Nunday Telegraph SAMTALS 1 X 2 Arsenal — Everton i 1 1 1 1 1 6 0 0 Aston Villa — Stoke X 1 1 X 1 X 3 3 0 Bolton — Man. City 2 X X 2 X X 0 4 2 Derby — Ipswich 2 X 1 X X 1 2 3 1 Leeds — WBA 2 X X X X 1 1 4 1 Liverpool — Tottenham X i 1 1 1 1 5 1 0 Man. Utd. — Crystal Palace X i 1 1 1 1 5 1 0 1 Middlesbr. — Bristol City X i 1 1 1 1 5 1 0 Norwich — Southampton X i 1 X X 2 2 3 1 Nott. Forest — Brighton 1 i 1 1 1 1 6 0 0 Wolves — Coventry X i 1 1 1 1 5 1 0 Preston — Leicester 1 X X X 1 X 2 4 0 Mbl. spuröi Ríkarð álits á málefn- um íslensku knattspyrnunnar og landsliösins. „Mér þykir náttúrulega ömurlegt þegar þaö tekur landsliðiö 2—3 ár að skora mark, en sú leikaðferö sem leikin er býður upp á þaö. í staöinn fyrir aö tapa meö 5—7 marka mun eins og dæmi eru um áöur, tapar liðið nú meö 1—4 marka mun og ekkert má út af bregöa ef stóru skellirnir eiga ekki aö dynja yfir. Og aldrei skorar liöiö. Þaö geröum við þó áöur fyrr. Það sást best í Póllandi í haust. Þeir voru sóttir þeir Pétur, Teitur og Ásgeir en þó aö þessir menn séu yfirburða- menn, fengu þeir engu áorkað, því aö aörir leikmenn komu varla út úr eigin vítateig. Áhorfendum hefur fjölgaö í 1. deildinni, en það er aðeins vegna þess aö ÍA og Val hefur hrakaö og hin liðin eiga allt í einu möguleika, það er aukin spenna, en knattspyrn- an er mun lakari. Þá er athyglisvert, að bikarana tvo taka lið, sem hafa íslenska þjálfara," voru lokaorö Ríkarös, sem hefur ákveönar skoö- anir eins og sjá má. — 88- • Ríkharöur Jónsson. cMIAMI SEACH Á sólskinslandinu Florida Miami ber af flestum sólarstöðum í Amerxku og Evrópu. Þar er sjórinn notalega hlýr og ómeng- aður, og hressandi golu leggur frá Atlantshafinu. Flugleiðir bjóóa nú ferðir til Florida á 3ja vikna fresti allt áriö. Flogið er um New York og þar geta menn staldrað við í bakaleið og lengt ferðina ef þá lystir. Dvalið er á lúxus hótelum eða í íbúðum á sjálfri Míami ströndinni. Þaðan. er ekki nema örskot í iöandi borgarlífið. Frá hótelinu bjóðast skoöunarferðir til: Disney World - heims teiknlmýndapersónanna, Seaciuarium stærsta sædýrasafns heims, Safan Park - eftirmyndar frumskóga Afríku, Everglades þj:>ögárósins, sem á engan sinn líku og fjólmargra annarra áhugaverðra staöa. i Miamiborg eru konsertar, lei'khús, íþróttakeppnir, hesta-og hundaveð- UtíJlvOlCr fr umsyni rtgarbi c margs konar vefð er aö ræða, t.d. getum við boðió gistingu í tvibýiis- herbergi ‘og ferðír fyrir kr. 322.000.- en ódýrarí gísting er einnig fáanieg búi t.d. 5 fullorönir §aman i íbúð. Kr. 309.000,-.pr.mann. Fyrir börn er veröiö rúmlega helmingi lægra. NÆSTU 3JAVIKNA FERDIR VERDA: 22 nóv 13 des ,3 jan FLUGLEIÐIR Búið er á Iúxus hótelí , Konover og í Flamingo Club hótel-íbúðum. Um Nánari upplýsingar: Söiuskrifstofur okkar Lækjargötu-2 og Hótel Esju Sími 27800, farskrárdeíid, sími 25100, skrifstofur okkar uti á landi, umboðsmenn og feröaskrifstofur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.