Morgunblaðið - 23.11.1979, Page 2
34
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 1979
Hólmavik og Drangsnes:
Llyod Morgan, alþjóðaforseti Lionshreyfingarinnar, afhendir hér Brandi Jónssyni skólastjóra Heyrnleys-
ingjaskólans gjöf Lionsklúbbanna.
Fréttir frá Lionshreyfíngunni:
Einvarður Hallvarðsson hlýtur æðsta
heiðursmerki Lionshreyfingarinnar
Eins og getið hefir verið í fjöl-
miðlum, heimsótti Lloyd Morgan,
forseti alþjóðastjórnar Lions,
ísland nýverið. Hann ferðaðist
nokkuð um landið og ræddi við
ráðamenn, m.a. við forsætisráð-
herra, Benedikt Gröndal, en auk
þess átti hann marga fundi með
FÉLAG viðskiptafræðinema Há-
skóla íslands gengst fyrir fundi
með fulltrúum stjórnmálaflokk-
anna laugardaginn 24.11. næst-
komandi í stofu 101 Lögbergi kl.
14.
Framsögumenn frá stjórnmála-
flokkunum munu þar kynna sjón-
armið sinna flokka í um 20
mínútur hver en síðan verða
fyrirspurnir, frjálsar umræður og
skoðanaskipti. Umræðuefnið er:
þáttur vaxta og verðtryggingar í
efnahagsmálastefnu flokkanna.
Lionsmönnum á íslandi, en hér
eru starfandi 77 Lionsklúbbar
með yfir 2.800 félögum.
Þá heimsótti alþjóðaforsetinn
Heyrnieysingjaskólann ásamt
nokkrum félögum úr Lionshreyf-
ingunni hér, og ræddi hann þar
við Brand Jónsson, forstöðumann
Fyrir Alþýðubandalagið mætir
Svavar Gestsson fv. viðskiptaráð-
herra, fyrir Alþýðuflokk Jón
Hannibalsson ritstjóri. fyrir
Framsóknarflokk Guðmundur G.
Þórarinsson verkfræðingur og
fyrir Sjálfstæðisflokk Jónas
Bjarnason efnaverkfræðingur.
Gert er ráð fyrir fundarlokum
kl. 16.00 í tilkynningu frá Félagi
viðskiptafræðinema segir, að
fundur þessi sé opinn öllu áhuga-
fólki um þau málefni sem um
verður rætt.
stofnunarinnar. í tilefni þessarar
heimsóknar höfðu 12 Lions-
klúbbar lagt fé í sjóð, er nam
rúmlega 1.900.000 króna, og af-
henti Lloyd Morgan Brandi þessa
upphæð með þeim ummælum, að
fénu skyldi varið til einhvers af
hinum mörgu og brýnu þörfum
skólans. Brandur Jónsson skóla-
stjóri þakkaði gjöfina og auðsýnd-
an heiður með heimsókn alþjóða-
forseta Lions.
Lionsklúbburinn Týr hafði
ákveðið að gefa Félagsheimili
heyrnarlausra vandað sjónvarps-
tæki, og notaði klúbburinn þetta
tækifæri til þess að afhenda tæk-
ið. Fulltrúar félagsheimilis heyrn-
arlausra báru fram þakkir.
Við komuna til íslands óskaði
Lloyd Morgan eftir því að heiðra
þann Lionsfélaga sem að hans
dómi hafði unnið Lionshreyfing-
unni á Islandi mest gagn. Þarna
var um að ræða Einvarð Hall-
varðsson, en hann var einn af
stofnendum fyrsta Lionsklúbbsins
á íslandi, Lkl. Reykjavíkur, sem
stofnaður var 14. ágúst 1951. Allt
frá stofnun Lkl. Reykjavíkur hef-
ur Einvarð Hallvarðsson unnið að
málefnum Lionshreyfingarinnar.
Hann hefir að staðaldri innt af
hendi margvísleg störf á aðal-
skrifstofu Lions, auk þess sem
hann hefir tvívegis verið umdæm-
isstjóri hreyfingarinnar á íslandi,
árið 1957-1958 og 1969-1970.
Heiðursmerkið, sem var sérstak-
lega áletrað, er hið æðsta sem
alþjóðaforseti Lions veitir.
Trausti Björns-
son skákmeist-
ari Austurlands
Fundur um þátt vaxta
og verðtryggingar í efna
hagsstef nu f lokkanna
SKÁKMÓT Austurlands
1979 var haldið á Fá-
skrúðsfirði laugardaginn
17. nóvember. í eldri
flokki voru keppendur 10,
frá Eskifirði, Stöðvarfirði
og Fáskrúðsfirði. Röð
efstu manna varð þessi:
Japan og Sovét-
ríkin ætla að
virða bann hval-
veiðiráðsins
JAPAN og Sovétríkin haía fallist
á bann Alþjóða hvalveiðiráðsins
við hvalveiðum frá verksmiðju-
skipum, að þvi er danska blaðið
Börsen sagði i síðustu viku.
Á stormasömum fundum al-
þjóða hvalveiðiráðsins í haust var
samþykkt bann við hvalveiðum
frá verksmiðjuskipum. í kjölfar
þess var óttast að ríkin tvö,
Sovétríkin og Japan, myndu virða
bann ráðsins að vettugi og halda
áfram veiðum frá verksmiðjuskip-
um sínum.
Trausti Björnsson, Eskifirði 8‘/z v.
Ragnar Sigurjónss., Fáskrúðsf. 6 v.
Viðar Jónsson, StOðvarfirði 6 v.
Einar M. Sigurðss., Fáskrúðsf. 5t4 v.
Gunnar Finnsson, Eskifirði 5‘/z v.
í yngri flokki voru keppendur
12, frá sömu stöðum. Röð efstu
manna varð þessi:
Stefán Guðjónsson (11 ára). Stöðvarf. 9 v.
Pétur Kristinsson (11 ára). Eskifirði 8 v.
Jón Steinsson (10 ára), Eskifirði . 7 v.
Björn Traustason (11 ára), Eskifirði 7 v.
Björn Traustason (11 ára), Eskifirði 7 v.
Hilmir Ásbjðrnsson (12 ára), Eskifirði 7 v.
Aðalfundur Skáksambands
Austurlands fór fram á meðan
mótið stóð yfir. Kristinn Krist-
jánsson, Eiðum, fráfarandi for-
maður samb. gaf ekki kost á sér til
endurkjörs en í hans stað var
kjörinn Einar M. Sigurðsson, Fá-
skrúðsfirði. Aðrir í stjórn með
honum eru Gunnar Finnsson,
Eskifirði og Viðar Jónsson, Stöðv-
arfirði.
Starfsemi Skáksambands Aust-
urlands hefur verið í nokkuð
föstum skorðum frá stofnun þess.
Meðal fastra liða í vetrarstarfinu
má nefna; Skákmót Austurlands,
jólahraðskákmót, Svæðismót
Austurlands, skólakeppni, 3veita-
keppni milli byggðarlaga o.m.fl.
Þá hefur sambandið staðið fyrir
útgáfu fréttablaðs og tekið þátt í
deildakeppni Skáksamb. ísl. og
skákkeppni kungmennafélaganna.
Frá sambandsþingi Bindindisfélags ökumann, Gunnar Þorláksson nýkjörinn
myndinni.
Ökuleikniskeppni BFÖ:
300 ökumenn tóku þátt
Laugardaginn 10. nóvember s.l.
var haldið i Reykjavík 11. sam-
bandsþing Bindindisfélags öku-
manna.
Þingið sóttu fulltrúar deilda,
stjórnarmenn og gestir.
Á þinginu var lögð fram
skýrsla stjórnar fyrir síðasta
starfstimabil, sem náði yfir 2 ár.
Fram kom í skýrslunni m.a. að á
tímabilinu voru haldnar 30 keppn-
ir í ökuleikni víðs vegar um landið
með þátttöku 300 ökumanna.
Þingið ályktaði um ýmis mál, s.s.
forseti félagsins fyrir miðri
í keppninni
lögleiðingu bílbelta og höfuðpúða í
bíla, ásamt ýmsu varðandi ura-
ferðarmál.
Fráfarandi forseti félagsins,
Sveinn H. Skúlason, baðst undan
endurkosningu og í hans stað var
kosinn Gunnar Þorláksson.
FYRIR hálfu öðru ári geröu Hólmvíkingar og Drangsnesingar drög
að samningi við skipasmiðastöðina Stálvik um smíði skuttogara fyrir
þessi byggðarlög. Þá var ýmislegt óljóst í sambandi við fjármagnsút-
vegun og þrátt fyrir mikla baráttu og göngur milli manna innan
kerfisins er staða þessara aðila i þessu máli litlu skárri en fyrir Vk
ári. í upphafi var verð togarans áætlað 1250 milljónir króna, en yrði
varla undir 2 milljörðum króna nú
Þeir aðilar, sem standa að
sem
fyrirhugaðri skuttogarasmíði, eru
Hólmavíkurhreppur, Kaldrana-
neshreppur, Kaupfélag Stein-
grímsfjarðar og nokkrir einkaaðil-
ar. í raun vantar ekki nema 5% af
verði togarans, en þau hefur ekki
tekizt að útvega. Fiskveiðasjóður
lánar 75%, Byggðasjóður 10% og
bankaábyrgðir hafa fengizt fyrir
10%. Reynt hefur verið að fá það
fé, sem á vantar úr Hagræð-
ingarsjóði vegna innlends skipa-
smíðaiðnaðar og sömuleiðis úr
Byggðasjóði.
Halldór Sigurjónsson sveitar-
stjóri á Hólmavík sagði í gær, að
áfram yrði haldið að berjast í
kerfinu þar til þessi mál væru
komin í höfn. Mjög brýnt væri
fyrir þessa staði að fá skuttogara,
en yfir vetrarmánuðina er atvinna
mjög stopul. Á Hólmavík er
rækjuvertíð í fullum gangi um
þessar mundir, en um aðra at-
vinnu er ekki að ræða. Vinna er
því ónóg og t.d. verða nokkrir
fjölskyldufeður að gera sér hálfs
dags vinnu að góðu. Sagði Halldór
að á Hólmavík væru nú í raun
10—12 manns atvinnulausir.
Hann sagði að ástandið ætti enn
eftir að versna þegar rækjuvertíð
lyki væntanlega í apríl. Þá kæmi
eyða í atvinnulífið fram í júní að
sumarvertíð litlu bátanna hæfist.
Svipaða sögu er að segja af
Drangsnesi, en þó munu flestir
þar hafa atvinnu af rækjuveiðum
og —vinnslu.
Valkostir í fisk-
verndun kynntir
í næsta mánuði
UNNIÐ er að því i sjávarútvegsrúðuneytinu að móta heildarstefnu í
fiskveiðimálum og fiskverndunaraðgerðum fyrir næsta ár og reyndar
einnig fiskveiðistefnuna næstu 3-4 árin. í framhaldi af samþykkt
Fiskiþings um stjórnun fiskveiðanna spurði Mbl. Kjartan Jóhannsson
um ýmis atriði í samþykktinni og sagði hann að fram virtist hafa
komið þar almennur vilji til að takmarka veiðar, sérstaklega yfir
sumartimann. Það kæmi heim og saman við þá staðreynd að aflinn
hefði ekki nýtzt nægilega vel þá, en spor hefði verið stigið í þá átt á
þessu ári er takmarkanir voru að verulegu leyti fluttar yfir á
sumartimann og sagði Kjartan að þaö þyrfti sjálfsagt að auka.
Það atriði, að einungis sé tekinn
helmingur aflans á fyrstu fimm
mánuðum ársins, er í sjálfu sér
góðra gjalda vert, en útfærslan á
því verður vafalaust vandasöm því
það má ekki gerast með þeim
hætti, að menn verði allt í einu
búnir með þennan fyrri hluta
þegar mánuður lifir af tímabilinu,
þannig að þá megi engan þorsk
veiða. Sama gæti átt við um síðari
hluta ársins þannig að útfærsla
hugmyndarinnar er eftir.
Við höfum staðið að þessu
þannig í ráðuneytinu, að við erum
með í undirbúningi valkosti fyrir
næsta ár, sem við gerum ráð fyrir
að ræddir verði við hagsmuna-
aðila í desembermánuði, en einnig
undirbúning fyrir stefnumörkun
til lengri tíma, t.d. 3-4 ára, sagði
Kjartan Jóhannsson sjávarútvegs-
ráðherra.
Barist við útvegun
fjármagns til skut-
togarasmíði í 1Vt ár