Morgunblaðið - 23.11.1979, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 1979
39
Landssamtökin Þroskahjálp:
Fjöldi þroskaheftra
nýtur ekki grund-
vallarmannréttinda
LANDSSAMTÖKIN Þroskahjálp
samþykktu á fundi sínum nýlega að
senda öllum stjórnmálaflokkum
kynningu á samtökunum með
ábendingum um ýmis atriði er þau
tclja að hafa ættu forgang á Al-
þingi þegar teknar eru ákvarðanir
um málefni þeirra er við sérþarfir
búa.
Á fundi með fréttamönnum í gær
lýstu forráðamenn Þroskahjálpar
yfir ánægju sinni með skjót svör
stjórnmálaflokkanna varðandi
spurningar frá lömuðum og blind-
um. Jafnframt leyfa samtökin sér að
benda á að fleiri eru fatlaðir í
þjóðfélaginu en lamaðir og blindir,
en með fjölmörg sameiginleg bar-
áttumál. Hér fer á eftir kafli úr bréfi
samtakanna er sent var stjórnmála-
flokkunum:
„Fjölda einstaklinga, sem verða að
ganga við hækjur eða eru í hjólastól,
er hægt að lækna ef til þess er
sköpuð nauðsynleg aðstaða. Fjöldi
einstaklinga nýtur ekki þeirra
grundvallarmannréttinda, að hafa
möguleika til atvinnu við sitt hæfi.
Þessir þjóðfélagsþegnar verða oft
ævilangt að dvelja á mismunandi
þroskandi stofnunum vegna skorts á
nauðsynlegri aðstöðu. Fjöldi barna
og fullorðinna nýtur ekki lögboðinn-
ar kennslu. Fjöldi einstaklinga nýtur
ekki fullra mannréttinda. Samhjálp-
in er mjög takmörkuð fyrir fjöl-
mennan hóp þroskaheftra sem og
aðstandendur þeirra. Á það skal
bent að nú ríkir nánast neyðará-
stand á mörgum stofnunum vegna
þess dráttar sem orðið hefur á að
núverandi og fyrrverandi ríkis-
stjórnir hafi samþykkt nauðsynlegar
daggjaldahækkanir til þess að eðli-
legur rekstrargrundvöllur þessara
stofnana sé fyrir hendi.
Meðan þessi og mörg fleiri
grundvallarmannréttindi eru ekki
fyrir hendi í þjóðfélaginu er sú
spurning áleitin hvort þessi atriði
hljóti ekki að hafa forgang á Alþingi
íslendinga þegar teknar eru ákvarð-
anir um málefni þeirra sem við
sérþarfir búa og við ákvörðun fjár-
veitinga til úrbóta." Vænta samtökin
svara frá stjórnmálaflokkunum um
stefnu þeirra í þessum málum.
Forráðamenn Þroskahjálpar lögðu
á það áherslu að brýnt væri að gefa
þroskaheftum kleift að njóta allra
réttinda til jafns við heilbrigða og
nefndu t.d. í því sambandi að
nauðsynlegt væri að koma upp
sérstökum vernduðum vinnustað þar
sem þroskaheftum væri kleift að
starfa og afla sér tekna, en með því
myndu einnig lækka lífeyrisframlög
hins opinbera til þessa fólks.
Vetrarstarfið í
Bláfjöllum hafið
SKÍÐALYFTURNAR í Bláfjöllum hafa nú verið opnaðar og
vetrarstarfið er hafið.
í sumar hefur verið unnið að endurbótum á veginum að
skíðalandinu. Hefur hann verið hækkaður verulega allt niður
að Rauðuhnúkum. Einnig hefur verið borið ofan í hann allan.
Tvö ný bílastæði voru gerð í sumar. Annað þeirra er suður
af gömlu bílastæðunum við Kóngsgil, en hitt er austan
vegarins skammt innan við Eldborg.
Brekkurnar beggja vegna stóla-
lyftu hafa nú verið flóðlýstar upp
á brún og þær verið jafnaðar
nokkuð og lagaðar.
Fram að áramótum verður, eftir
því sem veður leyfir, haft opið frá
kl. 10—18 á laugardögum og
sunnudögum, svo og frá 13—22 á
þriðjudögum og fimmtudögum.
Frá áramótum verða lyftur opn-
ar kl. 10—18 laugardaga og sunnu-
daga, kl. 13—22 þriðjudaga, mið-
vikudaga og fimmtudaga og kl.
13—18 mánudaga og föstudaga.
Verð aðgöngumiða er: 1 ferð
fyrir fullorðna á kr. 200, 1 ferð
fyrir barn á kr. 100, 8 miða kort
Virkisvetur
ÞETTA er önnur útgáfa verð-
launaskáldsögu Björns Th.
Björnssonar frá 1959,
myndskreytt af Kjartani Guð-
jónssyni. Er bókin 278 blaðsíð-
ur að stærð, prentuð í Odda.
Á þrjátíu ára afmæli Mennta-
málaráðs íslands, í apríl 1958,
efndi ráðið til verðlaunasam-
keppni um nýja íslenska skáld-
sögu. Dómnefnd skipuð þrír
ritdómarar dagblaðanna. 10
skáldsöguhandrit bárust. Eftir
lestur þeirra var það einróma
álit dómnefndar að eitt handrit-
anna bæri af, skáldsagan Virk-
isvetur. Höfundur hennar
reyndist vera Björn Th. Björns-
son.
Menningarsjóður gaf söguna
út þegar haustið 1959, eða fyrir
réttum 20 árum. Fyrsta prentun
hennar seldist strax upp, svo og
hin næsta, og hefur bókin nú
verið ófáanleg um nær tuttugu
ára skeið. Síðastliðið vor ákvað
fyrir fullorðna á kr. 1.000, og 8
miða kort fyrir börn á kr. 500.
Verð í stólalyftu er tvöfalt. Dag-
kort verða seld virka daga og gilda
til kl. 18 mánudaga og föstudaga
en aðra daga til kl. 18.30. Dagkort
fyrir fullorðna kosta 2.800, en
fyrir börn kr. 1.400.
Kvöldkort verða seld þriðju-
daga, miðvikudaga og fimmtudaga
og gilda frá kl. 18—22. Verð fyrir
fullorðna er 2.000 kr., en fyrir
börn kr. 1.000.
Árskort sem gilda í allar lyftur
Bláfjallanefndar, þ.á m. stóla-
lyftu, kosta kr. 40.000 fyrir full-
orðna en kr. 20.000 fyrir börn.
- ný útgáfa
Menntamálaráð að gefa bókina
út á ný, en að þessu sinni
myndskreytta, með teikningum
eftir Kjartan Guðjónsson list-
málara.
Eftir Björn Th. Björnsson
liggja nú 17 frumsamdar bækur
og þýddar, einkum um menning-
ar- og listsöguleg efni, en af
skáldsögum, auk Virkisvetrar,
heimildaskáldsagan Haustskip
sem kom út 1975 og í annarri
útgáfu 1976.
AUGLÝSINGASTOFA
MYNDAMÓTA
Aóalstræti 6 simi 25810
Indriói G. Þorsteinsson
UNGLINGSVETIIR
Skáldsagan Unglingsvetur er raunsönn
og kímin nútímasaga. Veruleiki hennar er
oft mildur og viöfelidinn, en stundum
blindur og ósvífinn. Hér er teflt fram ungu
fólki, sem nýtur gleði sinnar og ástar, og
rosknu fólki, sem lifað hefur sína gleði-
daga og reynslan hefur meitlað í drætti
sína. Allt er þetta fólk bráðlifandi, sama
hvort það eru aðalpersónur eða hefur á
hendi aukahlutverk — hvort heldur þeir
heita Loftur Keldhverfingur eða Sigurður á
Fosshóli.
Unglingarnir dansa áhyggjulausir á
skemmtistöðunum og bráðum hefst svo
lífsdansinn með alvöru sína og ábyrgö.
Sumir stíga fyrstu spor hans þennan
vetur. En á því dansgólfi getur móttakan
orðið önnur en vænst hafði verið, —
jafnvel svo ruddaleg aö lesandinn stendur á
öndinni.
Indr iði G. Þorsteinsson
á
Skáldsögum Indriöa G. Þorsteinssonar hef-
ur ávallt veriö tekiö meö miklum áhuga og
þær hafa komiö út í mörgum útgáfum. Tvær
þeirra, Sjötíu og níu á stöðinni og Land og
synir, hafa veriö kvikmyndaöar og Þjófur í
paradís hefur verið aö velkjast í dómskerfinu
undanfarin ár.
Almenna bókaf élagið
Austurstræti 18 Skemmuvegi 36
sími 19707 8iml 73055
o9
rL
Allt á sama stað
Laugavegi 118 - Simar 22240 og 15700
EGILL VILHJALMSSON HE
American Motors
EAGLE
Amerískur íúxusbfll með öllu
líka 4x4 fjórhjóladrifi
Eagle er fyrsti ameríski fóiksbíllinn, sem búinn er
fjórhjóladrifi (Full-time-four-wheel-drive). Það
eykur stöðugleika bílsins í hálku, bleytu og á
lausu yfirborði vegar og gefur honum jeppaeigin-
leika í akstri utan vega.