Morgunblaðið - 23.11.1979, Side 8
40
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 1979
Magnús Ásgeirsson:
íslenzk eldsneytisverksmiðja
Óvissa líðandi stundar í orku-
öflun jarðarbúa er ógnvekjandi
staðreynd. Verð og framboð jarð-
olíuafurða er verulegt áhyggju-
efni. Það er því eðlilegt, að leitað
sé lausna aðsteðjandi vanda. Með-
al þeirra er metanól (CH3OH) og
benzín (C8H18). Fremur lítið hefur
verið ritað um málið á íslenzku,
enda varla von þar eð skammur
tími er frá, að vandamálið skýrð-
ist. S.l. sumar glímdi undirritaður
við gerð eins konar módels af
íslenzkri eldsneytisverksmiðju.
Víst er það draumórakennd hug-
mynd, hins vegar ætti óvissan um
framboð og verð jarðolíuafurða í
dag hvað þá í framtíðinni að
hvetja menn til alvarlegra hug-
leiðinga um efnið. Ef mynd 1 er
skoðuð sést nútíminn vinstra meg-
in. Framboð jarðolíuafurða fer
minnkandi og verðið vaxandi.
Síðan kemur bil (orkuskortur) og
loks hátt verð eldsneytis, sem fer
lækkandi og framboð sem fer
vaxandi í framtíðinni.
Framleiðslan
Til framleiðslu metanóls eða
benzíns þarf kolefni, vetni og
súrefni. Hugmynd undirritaðs er,
að vetnið og súrefnið fáist með
„Soiid polymer electrolysis" raf-
greiningu (ný aðferð), en kolefnið
komi úr innfluttum kolum ellegar
ísl. mó.
Vandamál
Meginvandamálum varðandi
ríkjandi orkuskort má skipta í
fimm þætti:
en benzín. Sé fyrra efninu blandað
í hið síðara fæst hærri oktantala.
T.d. ef 5% af benzíni er burtu
tekið, en orkujafngildi þess í
metanóli sett í staðinn má hækka
oktantölu úr 90 í 92. Niðurstöður
rannsókna sýna, að jafnvel sé
möguleiki á að hækka oktantöluna
í 120—130. Sett hefur verið upp
jafna fyrir metanólblandað
banzín:
BOV -
Ob = Og (1 - x)
BOV þýðir blending octane value
Ofo er oktantala blandaða efnisins,
en Og upprunalegs eldsneytis.
Þjóðhagsleg markmið
Eðlilegt er, að menn velti fyrir
sér hvert yrði þjóðhagslegt gildi
íslenzks eldsneytis. Einfaldast er
þá að vísa til hugmynda um
eflingu íslenzks iðnaðar.
Forsendur
Undirritaður studdist við spá
orkuspárnefndar frá 2. febrúar
1979 að megni til.
Vinnsluferillinn
Rafgreining fer þannig fram, að
spennu er hleypt í vatn sem er
blandað 25-30% KOH. SPE raf-
greining hefur ekki í dag verið sett
í stóriðjuverum, en bandaríska
fyrirtækið General Electric hefur
Heildarvinnsluferill metanólsins veröur:
ch3 OH
Varmi
oxíðþörf 29.800 tn., en framleiðsl-
an á metanólinu yrði um 34.000
tonn. Hún myndi aukast jafnt og
þétt fram til 2005, en yrði þá um
600 þúsund tonn.
Fjárfesting
Allar tölur eru reiknaðar í
dollurum á genginu 350 kr.
Stofnkostnaður vetnisverksmiðju
er áætlaður 33 milljónir dollara,
kolefnisvinnslu 25 milljónir doll-
ara og sjálf metanólvinnslan um
30 milljónir dollara.
Raforkuþörf
Talsverða raforku þarf til
vinnslunnar, aðallega í rafgrein-
inguna. Árið 1987 yrðu það 34.9
MW pr. klst., en 2005 197 MW. í
viðbót við fjárfestingu verksmiðju
kæmi því fjárfesting í raforkuveri.
Afgangsorka
in lausn er í sjónmáli.
2. Olíulindir skiptast landfræði-
lega ójafnt.
3. Eign olíulinda hefur í för með
sér félagsleg, tæknileg og
stjórnmálaleg vandamál.
4. Því erfiðara sem er að ná
olíunni, því hærri verður
vinnslukostnaðurinn.
5. Fyrirsjáanleg er geysileg aukn-
ing eftirspurnar eftir orku.
Markmið
Mat undirritaðs er, að fjögur
markmið gætu verið stefnumark-
andi.
1. Lækka þarf orkukostnað.
2. Auka þarf nýtingu endurnýjan-
legra orkulinda.
3. Þróa þarf tækni við orkunotk-
Þykir trúlegt, að síðla á næsta
áratug hafi þróun þessi náð því
stigi að geta orðið nýtanleg sam-
kvæmt hugmyndum GE. Vetninu
og súrefninu yrði safnað í geyma.
Kolunum ellegar mónum yrði
brennt í súrefnislitlu lofti til að ná
kolmónoxíði.
Útreikningar
Fyrir vali sem útreikningsmódel
varð fyrirmynd frá bandarísku
stofnuninni „Institute of gas tech-
nology," sem aðlöguð var ísl.
aðstæðum eftir frekari heimilda-
söfnun hérlendis. I útreikningum
er áætlað, að framleiðsla hefjist 1.
janúar 1987 og þá verði benzín að
15% magni blandað metanóli.
1990 verði síðan öll ný tæki með
í vinnslunni verður til talsverð
afgangsorka, ef til vill mætti nota
hana til upphitunar húsnæðis.
Benzínframleiðsla
I beinu framhaldi af metanól-
framleiðslu hefur fyrirtækið Mo-
bil Oil þróað tækni við benzín-
framleiðsu. Jafna heildarkostnað-
ar við slíkt yrði Y = 2.4X E+Z, en
þar yrði Y = benzínverð pr. kg., E =
metanólkostnaður pr. kg. og Z =
framleiðslukostnaður pr. kg.
Vísitölur
Sé litið á vísitölur metanól- og
benzínverðs miðað við sama orku-
innihald fæst:
Mannaflaþörf
Áætluð mannaflaþörf er 120 í
byrjun en um 600 um aldamót, en
þá er miðað við óbreytta tækni
sem er ef til vill ólíkleg staða.
Þættir hagkvæmnis-
aukningar
Helztu þættir sem hugsanlega
gætu aukið hagkvæmni fram-
leiðslunnar og stuðlað að lægra
verði eru:
1. Sala á súrefni, sem gert er ráð
fyrir að sprautist út í and-
rúmsloftið eftir rafgreining-
una. Tekjur skapast.
2. Nýting afgangsvarmans við
þéttingu CH3OH svo sem til
húsahitunar. Tekjur skapast.
3. Kolmónoxíðkaup úr ísl. stóriðj-
um á hagkvæmara verði en það
fæst nú fyrir.
4. Aukning framleiðslumagns
innan hagkvæmnismarka.
*
Akvarðanataka
Mynztur ákvarðanatöku um
hina draumórakenndu ísl. elds-
neytisverksmiðju gæti litið svona
út:
1979 Ákvörðun um
forrannsókn
1980 Forrannsókn ca. 1.5 ár
1981-3 Ákvörðun um
framhaldsrannsókn
1984 Ákvörðun á Alþingi 1 ár
1985-6 Bygging verksm. 2 ár
Eldsneytið
Metanól sem slíkt er vissulega
ágætt sem eldsneyti, en hins vegar
verður það enn betra sé það
blandað öðrum alkólhólum.
I síðari heimsstyrjöldinni var
metanól notað á fjölda hernaðar-
(mór)
un. benzínvélar látin brenna metanóli. 1987 100 alls staðar.
4. Nauðsyn er á að halda uppi Árið 1987 er áætlaður bílafjöldi benzín benzín metanól r
góðri boðmiðlun um vandamál- 107 þúsund og eldsneytisþörf fyrir (kol) (mór) (kol)
ið. umrædda bíla um 114 þúsund 1990 168 165 169 165
HfoÝiinÁl tonn. Þetta ár yrði vetnisþörf 1995 188 166 188 166
iuclallUl 4.300 tn, súrefnisþörf 17.000 tn, 2000 245 237 244 236
Metanól er helmingi orkuminna kolefnisþörf 12.800 tn og kolmón- 2005 318 309 317 308
Stjórnakipuiog hugaanlagrar aktanaytiavarkamióju
tækja í eldsneytisskorti. Um gagn-
semi efnisins metanóls 'sem elds-
neytis vitna bezt heimildir um
notkun þessa, en einnig er sjálf-
sagt að benda á, að frá marz 1975
til júlí 1976 var nokkur floti
Volkswagenbifreiða af gerðunum
Golf, Volkswagen bus og Audi 100
ekið á eldsneytisblöndunni 15%
metanól og 85% benzín. Þjóðverj-
inn dr. Wolfgang Lincke sagði
eftir það:
„Dieser Versuch hat gezeigt, das
die Autos mit diesem Gemisch
betrieben werden können."
Niðurstöður
Helztu kostir innlendrar elds-
neytisframleiðslu eru gjaldeyr-
issparnaður og óhæði gagnvart
öðrum þjóðum í orkukaupum, sem
skiptir verulegu máli fyrir litla
þjóð eins og þá íslenzku. Það
virðist full ástæða til að vera vel á
verði og efna jafnvel til athugana,
hvort innlendar orkulindir gætu
ekki nýtzt í þágu eldsneytisfram-
leiðslu. Orka ísl. fallvatna er enn
að verulegu leyti óbeizluð og hafa
landsmenn löngum haft horn í
síðu stóriðju, sem þegar nýtir ísl.
raforku. Slík afstaða sýnir einung-
is skammsýni og er ekki af hinu
góða því sannleikur málsins er, að
íslenzka þjóðin þarf hvort sem
henni líkar betur eða verr að
reyna að halda iðnþróun áfram
eigi lífskjör ekki að versna til
muna. Það mun hafa mjög alvar-
leg áhrif ef hægir verulega á
hagvexti, en ein af forsendum
stöðugs hagvaxtar er, að næg orka
sé fyrir hendi á viðráðanlegu
verði. Með innlendri eldsneytis-
framleiðslu yrði einmitt stigið
stórt skref til enn meira sjálf-
stæðis ísl. þjóðarinnar. Það er
hlutverk núlifandi kynslóðar að
takast á við vandann. Sé það gert
af alvöru í tíma yrði það ef til vill
einn af hornsteinum að farsælu
lífi ísl. þjóðarinnar í framtíðinni.
Ef til vill getur ísl. þjóðin áður en
næsti áratugur líður undir lok
tekið undir orð Hannesar Haf-
stein:
„Sé ég í anda knörr og vagna
knúða,
krafti sem vannst úr fossa þinna
skrúða,
stritandi vélar, starfsmenn glaða
og prúða,
stjórnfrjálsa þjóð sem verzlun
eigin búða.“
Verð
Áætlað verð 1987 á verðlagi
ársins 1979 yrði (orkuinnihald 1
kg. benzín):
Metanól (kol) 358.04 kr.
Metanól (mór) 323.71 kr.
Benzín (k og m) 388.73 kr.
Þrátt fyrir þessar ævintýralegu
tölur og hugmyndir ber að hafa í
huga, að annars háttar orkutækni
er eins líkleg, en óvissa líðandi
stundar ætti engu að síður að gefa
ástæðu til hugleiðinga um aðsteðj-
andi vandamál.