Morgunblaðið - 23.11.1979, Page 9
4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 1979
41
Sextugur á morgun:
Jóhann G. Guðnason
Það var hér á árum áður, að
snáði ekki hár í loftinu hafði það
að aðalstarfi að flytja mjólk frá
heimilinu í veg fyrir mjólkurbíl.
Yfir vatnsfall þurfti að fara og
leiðin nokkuð löng. Hestagatan lá
við túnfót þriggja býla austast í
Landeyjum. Ekki höfðu þessir
mjólkurflutningar staðið lengi,
þegar drengurinn fann glöggt að á
áðurnefndum bæjum átti hann
óvenjugóðu viðmóti að mæta.
Ósjaldan var honum kalt og þá
var sundum mænt vonaraugum
heim að bæjunum þrem. Hvort
einhver sæist á ferli og henti það,
sem oft var, var honum gefin
bending að koma. Þá var fullvíst
að góðgerðir fylgdu í kjölfarið.
Jafnframt fann drengurinn nota-
twcM' 90«
• Flugdrekinn >
fR
«#*« j«n» Qamm
M«n4ckr»<Ht «t T<*B» HuMMxff*
■■K9K
Kápumynd Flugdrekans
Tvær „Allt
í lagi“ - bæk-
ur frá Erni
og Örlygi
KOMNAR eru út hjá Erni og
örlygi bækurnar í góðra vina
hóp og Flugdrekinn, en þær eru í
flokknum „Allt í Iagi“-bækur.
Eru þær eftir Jane Carruth,
myndskreyttar af Tony Hutch-
ings og hefur Andrés Indriðason
þýtt.
.„Allt í lagi“ bækurnar eru
sérstaklega ætlaðar ungum börn-
um með það í huga að gefa
einfaldar skýringar á ýmsu, sem
þau kunna að óttast og velta fyrir
sér á því skeiði bernskunnar,
þegar hugurinn er að mótast.
Tilgangurinn er að sýna fram afað
það sé ekki allt sem sýnist — það
sé í rauninni ALLT í LAGI.
í sögunni í GÓÐRA VINA HÓP
er fjallað um feimni. Ikornastrák-
urinn Skotti vinnur bug á feimni
gagnvart öðrum krökkum. í sög-
unni FLUGDREKINN er fjallað
um afbrýðisemi. Kanínustrákur-
inn Tubbi rekur sig á, hvað er að
vera afbrýðisamur.
ÞU AUGLYSIR UM
ALLT LAND ÞEGAR
ÞÚ AUGLÝSIR í
MORGUNBLAÐINU
Xl'GIA SIN(, \
SIMIW KK:
22480
lega hlýju, sem fólkið átti í ríkum
máli.
Nokkuð er umliðið síðan þetta
var. Vísast eru göturnar, sem
klárarnir góðu fetuðu á þessum
árum, grónar. Hitt er svo víst að
æskuminningar af þessu tagi
mosagróa ekki, fremur að þær
skýrist eftir því sem ár líða.
Hjónin í Vatnahjáleigu, Elín og
Guðni, voru í hópi þessara vel-
gjörðarðarmanna. Elín taldi ekki
eftir sér að raða kökum og góð-
gæti snyrtilega á diska og bera
síðan fram fyrir gestinn, rétt eins
og um einhverja merkispersónu
væri að ræða. Síðan var haldið
uppi samræðum eins og föng stóðu
til, hjónin bæði ágætlega greind
en mjólkurpósturinn fávís, hafði
þó að líkindum einhvern áhuga á
því að fræðast og þroskast.
Yngri sonur þeirra hjóna vakti
snemma athygli sendisveinsins.
Hann var hár vexti og bjartur
svipur hans. Ekki leyndi sér að
hér fór maður, sem hægt var að
líta upp til fyrir margra hluta
sakir. Hann var var gáskafullur,
orðheppinn, las mikið af bókum og
kunni raunar skil á flestu. Það fór
ekki fram hjá mjólkurpóstinum
unga, að lífsreynsla og þekking
þessa hávaxna og glaðværa unga
manns var fjölþætt, stundum var
raunar á mörkunum að hinn ungi
sveinn þyrði á að hlýða orðræðu
hans og færi hjá sér, einkum ætti
hann orðaskipti við jafnaldra
sína.
En árin líða hratt. Á morgun,
24. nóvember, er Jóhann Guðna-
son í Vatnahjáleigu sextugur.
Ennþá er hann glaðvær sem fyrr,
ljúflyndur eins og á árum áður.
Ekki hefur hann, þótt ótrúlegt sé,
látið neina kvenpersónu leggja á
sig fjötur, ekki ennþá hvað sem
síðar verður. Ungur er hann enn
og allt getur gerst.
Margir eiga Jóhanni gott að
gjalda, skemmtileg sendibréf, að-
stoð við söfnun á frímerkjum,
miðlun á fróðleik og margs konar
skemmtan.
Undirritaður biðst afsökunar á
hraðunninni afmæliskveðju,
máske gefst tækifæri síðar til að
bæta þar um.
Jóhann verður að heiman á
morgun.
Sigurður E. Haraldsson.
Adam fer fint i veturinn. Þvi nú er hann birgur
af glæsilegum hátíðar- og hvunndagsfatnaði.
Peysu-, Combi- og Tweedföt i kippum, stakar
tweed- og flannelsbuxur, stakir tweed jakkar,
vesti og skyrtur.
Allt fatnaður „a la Adam", enda flott eftir þvi.
Líttu inn og kynntu þér málið.
LAUGAVEGI 47 SÍM117575
ltlitfiV tI