Morgunblaðið - 23.11.1979, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 1979
45
Forn f rægðarsetur
— eftir séra Ágúst Sigurðsson
stórbæjarbraginn á höfðingjasetr-
unum. Hann rekur prestatalið og
koma þar margir við sögu. Þá
segir hann frá furðulegum dómi
prófastsins í Vatnsfirði, er hann
dæmdi bróður sínum, bóndanum í
Grunnavík, hvalreka staðarins á
Snæfjöllum. Þá er getið hinna
þjóðfrægu reimleika á Snæfjöllum
og Spánverjavíganna. Ýmsir ör-
lagaþættir verða ljóslifandi, eins
og um prestinn, sem settur var
ofar á skáldabekk en síra Hall-
grímur Pétursson. Getið er
galdratilrauna Grímseyinga, vikið
að gróflegum kveðskap Hjálmars
Jónssonar á yngri árum og mála-
ferlum sem af spunnust, og svo
mætti lengi telja.
Forn frægðarsetur er 284
blaðsíður og fylgir ítarleg nafna-
skrá og upplýsingar um heimildir
og margs konar skýringar. Bókin
er filmusett, umbrotin og prentuð
í prentstofu G. Benediktssonar en
bundin í Arnarfelli. Kápumynd
gerði Ernst Bachmann. Fjöldi
teikninga og annarra mynda eru í
bókinni.
A KJÖRDAC
D-listann vantar fjölda bifreiöa til aksturs frá hinum ýmsu
bifreiöastöövum D-listans á kjördag.
Stuöningsmenn D-listans eru hvattir til aö bregöast vel
viö, þar sem akstur og umferö er erfiö á þessum árstíma og
leggja listanum liö m.a. meö því aö skrá sig til aksturs
kjördagana 2. og 3. desember næstkomandi. Þörf er á
jeppum og öörum vel búnum ökutækjum.
út er komin hjá bókaútgáfunni
Erni og örlygi bókin Forn frægð-
arsetur eftir séra Ágúst Sigurðs-
son á Mælifelli.
Séra Ágúst rekur í bókinni
byggðarsöguna, fjallar um hin
veglegu kirkjuhús fyrri alda og
Ágúst Sigurðsson.
Vaxtakjör fiskvinnslunnar:
Breytingarnar
að beiðni grein-
arinnar sjálfrar
Vinsamlegast hringiö í síma 82927.
Skráning bifreiöa og sjálfboöaliöa fer einnig fram á
skrifstofum hverfafélaganna.
- Listirm
SAMBAND fiskvinnslustöðva
hefur sent bréf til sjávar- og
viðskiptaráðherra, Kjartans Jó-
hannssonar, þar sem farið er
fram á að vaxtakjör á afurðalán-
um fiskvinnslunnar verði end-
urskoðuð. Lög um vaxtakjör fisk-
vinnslunnar voru sett í janúar-
mánuði siðastliðnum og var
greint frá því í Mbl. í gær hver
þróunin hefur orðið á þessu ári,
en m.a. höfðu þessi lög það í för
með sér að vextir og gengis-
ákvæði á afurðalánum námu allt
að 67% á tímabili siðastliðið
sumar.
Morgunblaðið spurði Kjartan
Jóhannsson að því í gær hvort á
næstunni væri að vænta breytinga
á þessum málum í framhaldi af
bréfi fiskvinnslustöðva. Sagði
Kjartan, að það væri fyrst til að
taka, að þessar breytingar hefðu
verið gerðar að beiðni greinarinn-
ar sjálfrar.
— Hitt er ljóst, sagði ráðherr-
ann, — að þegar verðbólguhraði
eykst, þá verður þetta erfiðara í
framkvæmd, og ég geri ekki ráð
fyrir, að menn vilji til lengdar láta
þessa grein búa við verri vaxta-
kjör en aðrar. Það sem ég tel að
gera þurfi í þessum efnum, er að
þegar ný ríkisstjórn sest á rök-
Skólastjórar list-
iðnaskóla á Norð-
urlöndunum fund-
uðu í Reykjavík
Árlegur fundur skólastjóra norr-
ænna listiðnaskóla var haldinn i
Reykjavik dagana 2. — 3. nóvem-
ber s.l. Fundinn sátu Erling Dale
frá Kunsthaandverkskolen í Berg-
en, Ole Isbrand frá Koldins Tekn-
iske Skole í Kolding, Ole Gjerlöv-
Knudsen skólastjóri Skolen for
Brugskunst í Kaupmannahöfn,
Níels Herny Mörk frá Konstind-
ustriella högskola i Helsinki og
Einar Hákonarson frá Myndlista-
og handiðaskóla íslands.
Fundir þessir hafa um árabil
verið haldnir til skiptis á Norður-
löndunum en íslendingar ekki tekið
þátt í þeim fyrr en 1978, að Einar
Hákonarson sótti fundinn í Bergen.
Markmið þessa funda er að efla
norrænt samstarf á sviði listiðna-
mennta.
stóla þurfi hún að taka þetta mál
til umfjöllunar eins og önnur
efnahagsmái, sagði Kjartan Jó-
hannsson.
Það er alveg ótrúlegt, hve margir
slíta sér út við erfiðisvinnu í
jólamánuðinum. Þvottar, hrein-
gerningar og lagfæringar innan-
húss eru sannarlega erfiðisvinna,
sem margir vildu vera lausir við
svona rétt fyrir jólin.
Við leggjum til, að þúleysirþennar,
vanda á þínu heimili með því að
mála - já, mála íbúöina með
björtum og fallegum Kópal-litum.
Með Kópal sparast ótrúlega mikið
erfiði, og heimilið verður sem nýtt,
þegar sjálfur jólaundirbúningur-
inn hefst.
feopal
fynrjól
málninghlf