Morgunblaðið - 23.11.1979, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 1979
47
Daviö Scheving Thorsteinsson forstjóri Sóiar h.f. afhendir Helgu
Ólafsdóttur verðlaunin. i.ióxm. KHstján.
Blönduóssbúi hlaut
hálfu milljónina
Arnfinnur sagði að á næstunni
yrði flutt inn í fyrstu íbúðirnar af
þeim 220, sem verið er að reisa í
verkamannabústöðum í Hóla-
hverfi. Ekki sagðist hann treysta
sér til að segja nákvæmlega til um
hversu mörg börn á skólaskyldu-
aldri flyttu í hverfið vegna þess-
ara íbúða en gera mætti ráð fyrir
að haustið 1980 yrðu börn úr
þessum íbúðum milli 300 og 400.
„Ég fæ ekki séð hvernig við eigum
að koma þessum börnum fyrir í
skólanum og það jafnvel þó hluti
nemenda 9. bekkjar úr Breiðholti
II yrði fluttur í annan skóla. Ég vil
því spyrja embættismenn borgar-
innar, sem hér eru, eða borgar-
fulltrúa, hvernig líti út áætlun um
að fullgera Hólabrekkuskóla eða
alla vega að búa hann þannig út að
nemendur fái þá lágmarksþjón-
ustu, sem lög og reglugerðir gera
ráð fyrir," sagði Arnfinnur.
Hvenær hefst
fullorðinfræðsla
í Breiðholtinu?
Guðmudnur Sveinsson skóla-
meistari Fjölbrautaskólans í
Breiðholti sagðist vilja standa upp
til að minna á stærsta fram-
haldsskóla landsins — Fjölbrauta-
skólann. Skólinn hefði nú starfað
á fimmta ár og hefði nemendum
hans á þeim tíma fjölgað úr 220 í
1320, námssviðum úr 4 í 7 og
námsbrautum úr 12 í yfir 30. Það
gæfi auga leið að slíkur skóli væri
ekki fullbyggður né fullmótaður.
Sagðist Guðmundur vilja spyrjast
fyrir um tvö verkefni, sem fróð-
legt væri að fá að vita hvernig
stæðu. Það fyrra væri E-álma
aðalbyggingar skólans en hún
væri órisin enn. Þar ætti að
skapast aukið kennslurými, að-
staða fyrir stjórnun, mötuneyti og
lestraraðstöðu nemendanna. Þetta
væri verk upp á einn milljarð en
beðið væri eftir þessari byggingu
með óþreyju. Hitt málið væri
hvaða líkur væru á því að unnt
væri að hefja fullorðinsfræðslu í
Breiðholtinu og þá bæði bóklega
og verklega.
Enn þrísetið í
bráðabirgðastofum
í Fellaskóla
Finnbogi Jóhannsson skóla-
stjóri Fellaskóla sagði að það væri
á sinn hátt rétt hjá borgarverk-
fræðingi að Fellahverfið væri að
komast á hrörnunarstig, því skól-
inn hefði nú starfað í 7 ár og í
fyrstu hefðu nemendurnir verið
um 1500 en væru nú 1306. Finn-
bogi sagði að skólinn hefði verið
fullbygður á árinu 1975 og sagðist
hann ekki vita þess dæmi að jafn
stór skóli hefði verið byggður á
jafn skömmum tíma. Mikil
þrengsli hefðu alla tíð verið í
skólanum og þó nemendur væru
nú rúmlega 1300 væri skólinn
aðeins byggður fyrir 850 til900
nemendur og þá miðað við tvísetn-
ingu. Fellaskóli hefði vegna
þrengsla ekki getað tekið við
nemendum í 9. bekk og sæktu þeir
í Hólabrekkuskóla og enn væri
notast við bráðabirgðastofur í
kjallara og væru þær þrísetnar.
Finnbogi sagðist geta nefnt
margt, sem betur mætti fara í
Fellaskóla en það væri reynsla sín
að það, sem beðið hefði verið um,
hefði verið framkvæmt.
28 börn í 35 fer-
metra kennslustofu
Sigurður Már Helgason sðurði
hver væri skylda skólastjóra og í
því tilviki, sem hann hefði í huga,
Hólabrekkuskóla. Þar væru 28
börn látin vera í stofu, sem væri
aðeins 35 fermetrar en samkvæmt
reglum menntamálaráðuneytisins
ætti slík stofa að vera 60 fermetr-
ar. Spurði Sigurður, hvort þeir
tveir kennaramenntuðu fulltrúar í
borgarstjórn hefðu kynnt sér að-
stæður þarna persónulega. Sigurð-
ur sagði að brýnt væri að ganga
frá opnum svæðum í hverfinu, s.s.
svæðinu austan Austurbergs og
sagði að borgarverkfræðingi hefði
ítrekað verið bent á nauðsyn þess
að mýrin austan Hólabrekkuskóla
yrði lagfærð. Eitt væri víst að
frúrnar í Vesturberginu kynnu að
meta lagfæringar á opnu svæðun-
um, því þá kynni að draga úr
gardínuþvottum hjá þeim. Að
síðustu sagðist Sigurður vilja
hvetja borgarfulltrúa til að koma
á fullorðinsfræðslu í Fjölbrauta-
skólanum. Lofað hefði verið að sú
starfsemi hæfist strax eftir ármót
og spurði Sigurður hverjar yrðu
efndir á því loforði.
Var ekki hægt að
byggja kennslu-
húsnæðið fyrst?
Gísli Baldvinsson sagði að sér
væri skylt sem einum af kennur-
um Hólabrekkuskóla að vekja
athygli á því ófremdarástandi,
sem ríkti í húsnæðismálum skól-
ans. Þegar hann hefði komið til
starfa við skólann í haust hefði
blasað við glæsilegur annar áfangi
skólans, sem í væru glæsilegur
samkomusalur og sálfræðideild.
Spurði Gísli hvers vegna ekki
hefði verið ráðist í að byggja fyrst
kennslustofur. Sagðist Gísli vilja
ítreka þá spurningu, sem fram
hefði komið um, hvernig ætti að
leysa úr þeim vanda, þegar 300 til
400 nýir nemendur kæmu í skól-
ann. Þá spurði hann hvar í
Breiðholtinu ætti að nota það fé,
sem fengist hefði við sölu Lauga-
Iækjarskóla og hvað mikið það
væri. Gísli sagðist vilja taka undir
orð fundarmanna um fullorðins-
fræðsluna en lagði áherzlu á að
slík fræðsla yrði innan skólatíma,
því ekki væri hægt að ætlast til
þess að kennarar lengdu starfsdag
sinn með slíkri kennslu.
Verulegt átak í
sundlauginni á
næsta ári — vil
ekki taka
sterkara til orða
Kristján Benediktsson borgar-
fulltrúi sagði að með tilkomu
annars áfanga Ilólabrekkuskóla
hefði húsnæði skólans tvöfaldast
og þó margt vantaði þar enn, væri
þetta ákaflega fallegt hús. Við
skólann væri líka komin ýmis
aðstaða s.s. fyrir stjórnun, kenn-
ara, bókasafn og samkomusal, sem
oft hefði verið látin sitja á hakan-
um. Sagðist Kristján skilja
áhyggjur skólamanna vegna
þrengsla í Hólabrekkuskóla en sú
ákvörðun hefði verið tekin að láta
allan 9. bekk úr Breiðholtinu fara
í Hólabrekkuskóla í stað þess að
flytja þessa nemendur í skóla í
gamla bænum. Sjálfur sagðist
hann mæla með því að hafin yrði
teikning á þriðja áfanga skólans í
vetur. Það leysti þó ekki vandann
næsta vetur og væri rætt um að
flytja nemendur 9. bekkjar úr
Breiðholti I og II í Seljaskóla og
Breiðholtsskóla og við það ættu 5
af 12 bekkjardeildum 9. bekkjar að
flytjast úr Hólabrekkuskóla.
Kristján sagði að enn væri með
öllu óljóst, hversu mörg börn á
skólaskyldualdri kæmu úr verka-
mannabústöðunum, sem nú ætti
að úthluta. Varðandi umkvartanir
s.s. um þrengsli í stofum í Hóla-
brekkuskóla, sagði Kristján að
fræðslustjóra hefði verið falið að
ráða þar bót á eins og hægt væri.
Kristján sagði að það væri vilji
fræðsluráðs Reykjavíkur að hafist
yrði handa við byggingu E-álmu
Fjölbrautaskólans á næsta ári og
henni yrði lokið áður en kennsla
hæfist haustið 1981. Bygging Fjöl-
brautaskólans væri fjármögnuð
sameiginlega af ríki og borg og
hefði staðið á ríkisvaldinu að gefa
leyfi til að hefja framkvæmdir.
Ekki sagðist Kristján geta full-
yrt hvort fullorðinsfræðsla hæfist
í Fjölbrautaskólanum strax eftir
áramót en fjármálin væru ekki að
fullu frágengin. Kristján sagði að
sundlaugin, sem Breiðhyltingar
hefðu sett efst á óskalistann, væri
mikil og þörf framkvæmd. „Ég
held að það sé vilji fyrir því hjá
borgaryfirvöldum að gera verulegt
átak á næsta ári við sundlaugar-
bygginguna. Ég vil ekki taka
sterkara til orða, því það er betra
að lofa heldur minna en kann að
vera unnt að efna enda er ég ekki í
framboði þessa stundina," sagði
Kristján.
Kristján sagði að í samningi um
sölu Laugarlækjarskóla til ríkis-
ins hefði verið kveðið svo á, að
rúmmetri ætti að koma á móti
rúmmetra í nýju skólahúsnæði.
Gert væri ráð fyrir að þetta fé
gengi til byggingar E-álmu við
Fjölbrautaskólann eða annars
skólahúsnæðis, sem ríki og borg
byggðu sameiginlega. Ef ekki
fengist leyfi fyrir byggingu
E-álmunnar, færu þessir fjármun-
ir til annarrar skólabyggingar og
þá væntanlega í Breiðholtinu enda
væri mest byggt þar af skólahús-
næði í Reykjavík um þessar mund-
ir..
Gangur Breiðholtsfundarins
verður rakinn nánar hér í blaðinu.
SÓL h.f. afhenti i gær Helgu
Ólafsdóttur, Holtabraut 12 á
Blönduósi, 500.000 krónur þar
sem hún hafði keypt tíu milljón-
ustu fernuna af Tropicana-
appeisínusafa.
Þann 23. október s.l. var ræma
sett í fernuna og tilkynnti hún
kaupandanum um verðlaunin.
Kvaðst Helga hafa keypt fernuna í
Snartarstaðakirkja í
Núpasveit átti 50 ára
byggingarafmæii í vor
sem leið. Var því frestað
um nokkra mánuði að
minnast afmælis kirkjunn-
ar af ýmsum ástæðum. í
tilefni afmælisins var
síðan fjolsótt hátíðarguðs-
þjónusta í kirkjunni h. 9.
september s.l. og kaffi-
samsæti á eftir.
Ýmsar endurbætur voru
gerðar á kirkjunni í
sumar, m.a. var hún máluð
utan og innan. Er henni þó
jafnan vel við haldið af
söfnuði sínum. Nýr messu-
skrúði var og keyptur.
Kirkjunni bárust margar góðar
gjafir í tilefni 50 ára afmælis síns.
1) Dýrindis ljósakróna ásamt 8
samstæðum vegglömpum. Gef-
endur voru fjölskyldan á Brekku í
Núpasveit og til minningar um
Þorbjörgu Ingimundardóttur,
telpu sem lést um fermingaraldur
fyrir allmörgum árum.
2) Raflýstur ijóskross á kirkju-
turn. Gefendur Kvenfélagið
Stjarnan, Núpasveit og Kiwan-
isklúbburinn Faxi.
3) Útsaumaður dúkur vfir
skírnarfont. (jefendui samu
kvenféiag.
4i Kr. 100.000 — eitt hundrað
þúsund. Gefandi Guðrún Guð-
mundsdóttir, húsfreyja, Presthól-
um.
5) Kr. 1.000.000 ein milljón.
Gefendur Rannveig Gunnarsdótt-
ir, Grenimel 13, Reykjavík, og
börn hennar, til minningar um
eiginmann og föður, Björn Krist-
jánsson fyrrum alþingismann og
kaupfélagsstjóra á Kópaskeri.
6) Kr. 500.000 — fimm hundr-
uð þúsund. Gefandi Guðný Sæm-
undsdóttir, Hofsvallagötu 59,
Reykjavík, til minningar um föð-
urforeldra sína, Friðrik Sæm-
undsson og Guðrúnu Halldórs-
dóttur, Efri-Hólum, og móðurfor-
eldra sína, Jón Ingimundarson og
Þorbjörgu Jóhannesdóttur,
Brekku.
7) Söngstjóri Snartarstaða-
kirkju, Ragnar Helgason, samdi
afmælislag og sálm og tileinkaði
sóknarkirkju sinni. Var það frum-
flutt í hátíðarmessunni.
Versluninni Vísi á Blönduósi um
s.l. mánaðamót en ekki hafa haft
tök á að koma til Reykjavíkur með
ræmuna fyrr en nú.
A blaðamannafundi sagði Davíð
Scheving Thorsteinsson forstjóri
Sólar h.f., að auk Helgu hefðu
tveir aðrir hringt til fyrirtækisins
og sagst hafa ræmuna undir
höndum.
Safnaðarkonur í heild buðu
kirkjugestum í kaffisamsæti eftir
messu og var þar fjölmenni sam-
ankomið af fólki á öllum aldri.
Oddviti sóknarnefndar er Rafn
Ingimundarson, Brekku, en fjár-
haldsmaður kirkju Einar Bene-
diktsson, Garði. Aðrir í sóknar-
nefnd eru Dýrleif Andrésdóttir,
Leirhöfn. máttarstólpi í sóknar-
nefnd. og Kristján Armannson,
Kópaskeri. Meðhjálpari kirkjunn-
ar er Brynjúlfur Sigurðsson.
Aður en kirkjan var færð að
Snartarstöðum árið 1929 stóð hún
öldum saman á Presthólum, hinu
ævagamla prestsetri.
Guðsblessun fylgi safnaðarfólki
og öðrum hollvinum.
Sigurvin Elíasson, prestur.
Varið
ykkurá
sjóræn-
ingjum
20. nóvemht r Reutvr.
SAMTÖK sænskra kaup
skipaeigenda vöruðu i dag
yfirmenn sænskra kaup
skipa við sjóramingium þar
sem umsvií þeirru ykjust.
einkum í Miðausturlöndum
og a Suður-Kinahafi.
„I Miðausturlöndum er
einkum títt að skip sem eru
hlaðin vörum hverfa skyndi-
lega úr höfn og birtast svo ef
ti! vill á ný að ári og þá með
allt öðru nafni. Skipstjórar
eru oft með í ráðum í þessum
tilvikum," sagði talsmaður
samtakanna.
Hann sagði að á Suður-
Kinahafi væru hins vegar
stunduð „hefðbundin" sjórán.
Fyrir skömmu hefði sænskt
skip orðið fyrir árás 20
manna hóps sem sigldi í veg
fyrir skipið á bát og réðst um
borð vopnaður vélbyssum.
Báturinn sigldi undir hvítum
fána, sem neyðarmerkið
S.O.S. var málað á.
I ræðustól er Guðmundur Sveinsson skólameistari. Lengst til hægri á myndinni er Þórður Þorbjarnarson
borgarverkfræðingur, þá Egill Skúli Ingibergsson borgarstjóri, Gunnlaugur B. Danielsson fundarstjóri og
lengst til vinstri er Inga Magnúsdóttir formaður Framfarafélagsins. (Lftam. ól. K. M.)
Afmælisgjafir til
Snartarstaðakirkju