Morgunblaðið - 28.11.1979, Blaðsíða 1
56 SÍÐUR
263. tbl. 66. árg.
MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 1979
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
7,3 stiga jarð-
skjálfti í íran
Golden, Colorado — 27. nóvember — AP.
ÓTTAZT er að fjöldi manna hafi
farizt i miklum jarðskjálfta i
norðaustur-íran i dag. Skjálftinn
mældist 7.3 stig á Richters-
kvarða, en i morgun varð á sömu
slóðum skjálfti, sem mældist 5.6
stig.
Um 200 manns fórust á þessu
svæði í landskjálfta, sem mældist
6.7 stig, fyrir tveimur vikum.
Auk þeirra, sem létu lífið, særð-
ust f jölmargir og mikið tjón varð
á mannvirkjum.
NATO-eldflaugar:
Danir
vilja
frestun
Kaupmannahöfn — 27. nóvember — AP.
MINNIHLUTASTJÓRN Anker
Jörgensens i Danmörku hefur
þrátt fyrir harðar deilur á Þjóð-
þinginu i dag ákveðið að halda til
streitu hjá Atlantshafsbandalag-
inu tillögu um að ákvörðun um
meðaldrægar eldflaugar i Vest-
ur-Evrópu verði frestað um sex
mánuði. Ætlun dönsku stjórnar-
innar er að gefa Rússum ráðrúm
til að endurmeta stefnuna varð-
andi SS-20 eldflaugarnar sovézku
og láta reyna á það hvort Sovét-
stjórninni er raunverulega svo
umhugað um afvopnun Evrópu
og hún hefur viljað vera láta, að
þvi er Kjell Olesen utanrikisráð-
herra sagði i þingræðu i dag.
Þetta er í fyrsta sinn í tuttugu ár,
sem ríkisstjórn i Danmörku tek-
ur af skarið í utanríkis- og
öryggismálum án þess að styðjast
við verulegan þingmeirihluta.
Henning Christophersen, fyrr-
verandi utanrikisráðherra og
formaður Vinstri flokksins,
gagnrýndi harðlega að Danir
skyldu nú ætla að „fara einför-
um“ innan Atlantshafsbanda-
lagsins og kvað það áhyggjuefni
að stjórnin stofnaði i hættu sam-
starfi aðildarrikjanna í öryggis-
málum.
Danmörk er fyrsta ríkið innan
NATO, sem tekur opinberlega
afstöðu gegn því að ákvörðun
verði tekin um meðaldrægar eld-
flaugar á ráðherrafundinum í
Brussel í næsta mánuði, en í
Hollandi og Noregi hefur gætt
verulegrar andstöðu við málið að
undanförnu. Flokksstjórn v-þýzka
jafnaðarmannaflokksins lýsti í
dag yfir stuðningi við stefnu
Schmidts kanslara um að sam-
þykkja dreifingu eldflauganna í
Evrópu, jafnframt því sem leitað
yrði samkomulags við Sovétrikin
um gagnkvæma takmörkun slíkra
kjarnorkuvopna.
(AP-slmamynd)
íranskar fallhlífastormsveitir ganga um borð í Herkúles-herflutningavél, sem íranir fengu frá Bandaríkjunum á
sínum tíma. Síðan Ayatollah Khomeini lýsti því yfir í fyrradag, að allir vopnfærir menn yrðu að vera viðbúnir
hernaðarárás Bandaríkjanna hafa umsvif Iranshers stórum aukizt.
komið sprengiefni fyrir á við og
dreif á sendiráðssvæðinu, og
væru þeir þess albúnir að
sprengja staðinn i loft upp. ólga
meðal almennings og herskárra
fylgismanna byltingarstjórnar-
innar fer stöðugt vaxandi, en
óttazt er að trúarofstækismenn
missi taumhald á sér á fimmtu-
dag og föstudag í þessari viku, en
tiað eru meiriháttar helgidagar i
ran. Þá er siður strangtrúaðra
að húðstrýkja sjálfa sig með
svipum eða rista hold sitt til að
sanna að þeir séu fúsir til að
gerast píslarvottar fyrir trú sína.
í allan dag hefur herinn verið
venju fremur umsvifamikill í
landinu, og vart varð mikilla
herflutninga frá Teheran. Ekki er
vitað hvert förinni var heitið, en
ljóst er að herhvöt Khomeinis frá
í gær á mikinn hljómgrunn í
landinu, og ýmsir háttsettir her-
miklir herf lutningar f rá
Teheran — 27. nóvember — AP.
ÞRÁTT fyrir tilmæli írans um að
fundi öryggisráðs Sameinuðu
þjóðanna yrði frestað til laugar-
dags, svo Bani-Sadr utanríkisráð-
herra gæti verið viðstaddur, kom
ráðið saman í kvöld. Áður en
fundi var frestað til laugardags-
kvölds var samþykkt að ítreka
kröfu um að bandarisku gislarn-
ir í Teheran yrðu látnir lausir,
auk þess sem Kurt Waldheim,
framkvæmdastjóri S.Þ. skoraði á
stjórnir írans og Iiandaríkjanna
að gæta stillingar og forðast
hverja þá ráðstöfun, sem orðið
gæti til þess að hella olíu á
eldinn. Ofbeldismennirnir, sem
hafa sendiráðið á valdi sinu, lýstu
því yfir í dag, að þeir hefðu
Innan sendiráðsmúranna i Teheran eru vopnaðir verðir stöðugt á
sveimi, en i hópi varðanna er kvenfólk, eins og sjá má á þessari mynd.
Teheran
foringjar hafa lýst því yfir að
herinn væri við öllu búinn. Bylt-
ingarverðir dreifðu í dag fræðslu-
ritum um vopnaburð meðal al-
mennings fyrir utan bandaríska
sendiráðið.
Iranski sendiherrann í Moskvu,
Mohammed Mokri, lýsti því yfir í
dag, að byltingarstjórnin í íran
nyti öflugs stuðnings Sovétstjórn-
arinnar, en íransstjórn hefði ekki
farið fram á hernaðarlegan stuðn-
ing Sovétríkjanna vegna deilunn-
ar við Bandaríkin.
Arf taki Kosygins?
Moskvu — 27. nóvember — AP.
NÁNASTI aðstoðarmaður Alex-
ei Kosygins forsætisráðherra
Sovétrikjanna, Nikolai A. Tikh-
onov, varð í dag fullgildur
meðlimur stjórnmálanefndar
sovézka kommúnistaflokksins.
Stjórnmálanefndin er æðsta
valdastofnun flokksins og eiga i
henni sæti 14 manns. Aðild
Tikhonovs, sem er 74 ára að
aldri, að stjórnmálanefndinni
þykir benda til þess að hann
eigi að taka við af Kosygin, sem
talinn er alvarlega veikur og
hefur ekki sézt opinberlega s.l.
sex vikur.
Á miðstjórnarfundi þar sem
Tikhonov var formlega tekinn í
æðstu manna tölu, var Mikhail S.
Gorbachev, sem er aðeins 48 ára,
gerður að varafulltrúa í stjórn-
málanefndinni, en varamenn
hennar eru níu að tölu. Miðað við
aðra meðlimi þessarar valda-
stofnunar er Gorbachev barnung-
ur, en meðalaldurinn er 69.9 ár.
Nikolal Tikhonov
Háttsettur embættismaður
Sovétstjómarinnar staðfesti í dag
að Kosygin væri sjúkur, en vildi
ekki greina frá því hvað að honum
amaði. Óstaðfestar fregnir herma
að hann hafi fengið hjartaslag, en
sumir halda því fram að hann
hafi nýlega gengizt undir upp-
skurð vegna lifrarsjúkdóms.
Svarta
kassans
leitað
Karachi. 27. nóvember. Reuter.
„SVARTA kassans“ úr
Bocing 707 þotu pakist-
anska flugfélagsins, sem
fórst skömmu eftir flugtak
frá Jedda. með 156 manns
innanborðs, er enn leitað.
Rannsókn málsins er í hönd-
um saudi-arabískra flug-
málayfirvalda, en forráða-
menn flugfélagsins segja, að
enn sé allt á huldu um orsök
slyssins.
Allir farþegar þotunnar
voru pakistanskir pílagrímar,
en lík þeirra voru svo illa
útleikin, að í dag var akveðið
að flytja þau ekki heim til
Pakistan, heldur skyldu þau
grafin í Saudi-Arabíu.
Greftrun hófst í dag, en
pílagrímunum er búin hinzta
hvíla miðja vegu milli slys-
staðarins og Mekku, hinnar
helgu borgar Múhammeðs-
trúarmanna.
Ólgan í íran vaxandi