Morgunblaðið - 28.11.1979, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 28.11.1979, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 1979 31 Meistarar KR ofjarlar Fram • Klaus Hilpert færði Gunnari Sigurðssym pennasett að gjöf er hann kom hingað um helgina. Ljósm. Mbl. Emilia. Skagamenn endurráða Hilpert Árni Sveinsson íslandsmeistarar KR unnu mikilvægan sigur í úrvalsdeild- inni i gærkvöldi þegar þeir mættu Fram i Hagaskólanum. Framarar hafa verið i mikilli framför í siðustu leikjum og var við því búist að þeir myndu velgja íslandsmeisturunum und- ir uggum. Þeir veittu þeim að vísu harða keppni í gærkvöldi en sigur KR var þó aldrei í hættu. Lokatölurnar urðu 70:63 eftir að staðan hafði verið 37:33 í hálf- leik, KR-ingum í vil. Leikurinn í gærkvöldi var slak- ur af beggja hálfu. Sóknarleikur beggja liða var fremur þunglama- legur og hittni slök, sérstaklega hjá stórskyttunni John Johnson, sem aldrei fann rétta miðið í þessum leik. Inn á milli brá fyrir góðum köflum hjá báðum liðum, sérstaklega áttu Framarar ein- stöku sinnum fallegar leikfléttur, sem gáfu stig og var þar fremstur í flokki Símon Ólafsson, sem að þessu sinni var bezti maður leiks- ins. Ef Johnson hefði verið í stuði í þessum leik hefðu úrslitin getað orðið önnur. • Simon ólafsson og Ágúst Líndal í baráttu undir körfunni. Getrauna- spá M.B.L. 2 ■o C 3 O 5 Sunday Mirror Sunday People Sunday Express News of the world Sundav Telegraph SAMTALS 1 X 2 Bolton — Bristol City 2 X X X X X 0 5 1 Brighton — Derby 1 X 2 2 1 2 2 1 3 Coventry — Ipswich X 1 1 1 1 1 5 1 0 Leeds — Crystal Palace 1 X 2 2 X 2 1 2 3 Liverpool — Middlesbrough 1 1 1 1 1 1 6 0 0 Man. City — Wolves X 1 1 X 1 1 4 2 0 Norwich — Aston Villa 1 X X X 1 1 3 3 0 Nott. Forest — Arsenal X X 1 X X 1 2 4 0 Southampton — Stoke 1 1 1 1 1 1 6 0 0 Tottenham — Man. Utd. 2 1 1 X 1 X 3 2 1 WBA — Everton 1 1 X 1 1 1 5 1 0 Birmingham — Leicester 1 X 1 X 1 X 3 i 0 KR-ingar byrjuðu leikinn af miklum krafti og komust í 9:2 en Framarar jöfnuðu síðan metin 9:9. Leikurinn var nú í jafnvægi en um miðjan hálfleikinn náðu Framar- ar forystunni 19:15. Ekki tókst þeim að halda unnu forskoti og nokkru síðar skoruðu KR-ingar 12 stig í röð og gjörbreyttu stöðunni. í seinni hálfleik höfðu KR-ingar yfirleitt nokkurra stiga forystu og undir lokin tóku þeir góðan sprett og tryggðu sér öruggan sigur. KR-ingar hafa loft leikið betur en í þessum leik. Jón Sigurðsson var að vanda potturinn og pannan í leik liðsins en hann skoraði óvenju lítið að þessu sinni. Marvin Jackson var aftur á móti í stuði í þessum leik, skoraði mikið og barðist mjög vel í vörninni. Garð- ar og Árni voru drjúgir og sá síðarnefndi var sterkur í lokin. í liði Fram var Símon langbezt- ur en næstur honum kom Þorvald- KR — Fram 70:63 ur Geirsson. Johnson var langt frá sínu bezta að þessu sinni. Annars virðist það há liðinu hve breiddin er lítil. Dómarar voru Sigurður Valur Halldórsson og Kristbjörn Al- bertsson og sluppu þokkalega frá verkefninu. Stig KR: Marvin Jackson 32, Garðar Jóhannsson, 9, Árni Guö- mundsson 8, Jón Sigurósson 8, Ágúst Líndal 5, Geir Þorsteinsson 4, Gunnar Þorvaröarson 2 og Þröstur Guðmundsson 2. Stig Fram: Símon Ólafsson 26, John Johnson 16, Þorvaldur Geirs- son 10, Björn Jónsosn 4, Hilmar Gunnarsson 3, Björn Magnússon 2 og Ómar Þróinsson 2. - SS. Einkunnag jofin KR: Jón Sigurðsson 3, Garöar Jóhannsson 3, Árni Guömundsson 3, Geir Þorsteinsson 2, Ágúst Líndal 1, Þröstur Guðmundsson 1, Gunnar Þorvaróarson 1, Birgir Guóbjörnsson 1. FRAM: Símon Ólafsson 4, Þorvaldur Geirsson 3, Björn Magnússon 2, Bjöm Jónsson 2, Ómar Þráinsson 1, Hilmar Gunnarsson 1. Færeyingar undirbúa C-keppnina af natni •T' C-KEPPNIN í handknattleik fer fram í Færeyjum dagana 2.-9. febrúar næstkomandi. Svo var ákveðið á IHF-þinginu, sem hald- ið var í Reykjavík á síðasta ári. Og undirbúningur fyrir keppn- ina er nú á fullri ferð í Færeyjum og eyjaskeggjar leggja mikið kapp á að vel takist til. 11 af þeim 14 þjóðum, sem eru í C-hópnum, verða meðal þátttak- enda, en þrjár þjóðir verða ekki með einhverra hluta vegna. Það eru Malta, Kýpur og Grikkland. Skipt verður í tvo riðla og fara leikirnir fram í íþróttahöllunum í Vogi, Þórshöfn og Klakksvík. í A-riðli leika Austurríki, Noregur, Ítalía, Luxemborg og Færeyjar, en í B-riðli leika saman Frakkland, Portúgal, Finnland og Belgía. Leikirnir í riðlakeppninni fara fram dagana 2.-7. febrúar, en úrslitaleikir um sæti í mótinu fara fram 9. febrúar. Mikill viðbúnaður er í Færeyj- um vegna C-keppninnar, en þetta er í fyrsta skiptið sem þjóðin heldur jafn umfangsmikið mót og hér um ræðir. Hafa heimamenn áætlað að um 250 manns komi til Eyjanna í tengslum við keppnina, auk dómara og fréttamanna. Merki keppninnar og lukkudýr fylgja hér með og er einkum lukkudýrið skemmtilegt, en fáir hafa líklega séð grindhvali í hand- knattleik, þeim mun oftar séð þá skorna í bita á myndum frá grindadrápi. Iþróttamaður Grohe VESTUR-ÞÝZKI knattspyrnu- þjálfarinn Klaus JUrgen Hilpert kom i stutta heimsókn hingað til lands um síðustu helgi og var erindið að endurnýja samning við Akurnesinga um að þjálfa lið þeirra næsta sumar. Á sunnudaginn átti Hilpert fund með leikmönnum ÍA og knattspyrnuráði Akraness. Ríkir almenn ánægja á Akranesi með það að Hilpert skuli hafa gefið kost á sér til áframhaldandi starfa á Akranesi en hann er sem kunnugt er þekktur og eftirsóttur þjálfari í heimalandi sínu. Er Mbl. kunnugt um að Hilpert stóðu til boða ýmis störf næsta sumar en hann valdi Akranes. í vetur kenn- ir hann við íþróttaskólann í Köln. Hilpert mun koma hingað til Kraftlyftingar - Reykja- víkurmót REYKJAVÍKURMÓTIÐ í kraft- lyftingum fer fram 8. desember n.k. Þátttökutilkynningum þarf að skila inn fyrir 2. desember. Þær má tilkynna i sima 15924 og 31970. lands í febrúar en fram að þeim tíma munu leikmenn IA æfa eftir fyrirsögn Hilperts og mun Hörður Helgason stjórna æfingunum. Nýtt knattspyrnuráð var valið fyrir skömmu á Akranesi og er Gunnar Sigurðsson formaður þess en henn er margreyndur stjórnar- maður og hefur áður verið for- maður ráðsins. Þá hafa Akurnesingar endur- nýjað samning við Þýzk-íslenzka verzlunarfélagið hf um að auglýsa merki Grohe á búningum Akur- nesinga. Grohe-umboðið hefur gert vel við leikmenn í A, t.d. fengu þeir allir vatnsnuddtæki að gjöf í haust og Árni Sveinsson var valinn íþróttamaður Grohe 1979 af vestur-þýzka fyrirtækinu og hlaut hann vegieg verðlaun frá því. Knattspyrnu- þjálfarar Knattspyrnuþjálfarafélag íslands heldur almennan félags- fund á Hótel Esju á morgun, fimmtudag, kl. 20.00. Rætt verð- ur um stofnun knattspyrnuþjálf- arasambands Evrópu og aðild að sambandinu. Síðan verða almenn- ar umræður. Stjórnin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.