Morgunblaðið - 28.11.1979, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 28.11.1979, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 1979 en eigum eftir að skora merkilegra né hátíðlegra en gengur og gerist og allt eru þetta kjósendur, sem við hittum ýmist á vinnu- stöðum, í heimahúsum eða utan heimilis í tómstundum. Að umgangast fólk af öllum stétt- um í starfi og leik hefur reyndar verið minn bezti skóli, enda dæmi ég hvorki unga né eldri eftir titlum eða starfsheitum, heldur af manngerð og eigin verðleikum. Ég tel mig geta gætt hagsmuna þessa fólks ekki síður en ýmsir þeir, sem um þessar mundir eru að slá sig til riddara með miklum bægslagangi í nafni verka- lýðs og sósíalisma." „Kveðum niður verðbólguhugs- unarháttinn“ „Er bryddað á fjölþættum spurn- ingum á vinnustöðum?" „Það koma upp ólíklegustu mál á fundunum og að því leyti þjálfast maður í tilsvörum og skilur betur hugsunarhátt fólks og þau vanda- mál, sem allur almenningur á við að glíma. Ég hef til dæmis orðið var við þaö, þegar við erum að tala um verð- bólguþróunina, að allt of margir halda, að þeir græði á verðbólgunni. Þetta er skiljanlegt hugarfar, þar sem heil kynslóð hér hefur alizt upp í verðbólguþjóðfélagi, eða allan þennan áratug. Ef til vill er það mesti vandinn hjá væntanlegri ríkis- stjórn, hver sem hún verður, að kveða niður þennan hugsunarhátt. Ég hygg, að verðbólgugróðasjónar- miðið verði ekki upprætt eðlilega nema á þann hátt, sem við sjálfstæð- ismenn leggjum til, þ.e. með því að taka á þessum vanda með snöggu átaki, grípa til aðgerða, sem skiia Kosningastarf hefur að mörgu leyti verið á annan hátt en áður, m.a. vegna hins stutta aðdraganda, vegna þess að vinstri stjórnin varð jafnvel skammlífari en bjartsýnustu and- stæðingar hennar þorðu að vona. Ellert B. Schram hefur verið áber- andi í kosningabaráttunni í Re.vkjavík vegna ákvörðunar sinnar um að víkja úr 6. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í 8. sætið, sem er baráttusæti sjálfstæðismanna nú. I rabbinu við Ellert spurðum við hann um tilfærsluna í 8. sætið. „Tilbúinn í slaginn“ „Það er rétt að taka það fyrst fram, að ég hef heyrt þá skoðun, að ég hafi brotið reglur í þessu sam- bandi, þar sem prófkjörið væri bindandi. Kjörnefndin sjálf er bund- in af því að gera tillögur samkvæmt reglunum, ef frambjóðandi fær ákveðið hlutfall atkvæða, en hins vegar getur frambjóðandi sjálfur og fulltrúaráðið sem hefur æðsta vald varðandi framboð, breytt lista frá prófkjöri, ef það er talið sterkara og eðlilegra. Það er í rauninni hægt að færa til í öllum sætum, ef því er að skipta. Tilboð mitt um bre.vtinguna, sem ég einn hafði frumkvæði að, og ákvörðun fulitrúaráðs er því í fullu samræmi við gildandi reglur." „Hver var ástæðan fyrir tilboði þínu?“ „Ástæðan fyrir tilfærslunni af minni hálfu var að skapa samstöðu, sýna launafólki í landinu fullt tillit með því að viðurkenndur baráttu- maður á þeim vettvangi sé í öruggu sæti og svo hitt að draga fram þá staðreynd, að við sjálfstæðismenn í Reykjavík teljum að 8. sætið sé baráttusætið og ég var tilbúinn í þann slag.“ „Þá áhættu hef ég tekið“ „Þessi ákvörðun þín, sem er ein- stæð í íslenzkri pólitík í dag, hefur mikið verið rædd. Sérðu eftir ákvörðuninni?" „I pólitík verða menn að vera tilbúnir til þess að fylgja hugsjónum sínum eftir með því að berjast fyrir fljótt árangri. Ég hef enga trú á því, að það sé hægt að eyða þessum „verðbólguspekúlasjónum“ á löngum tíma vegna þess að ef fólki er sagt, að verðbólgan eigi að minnka úr 80'/? í 50% á milli ára eða hjaðna á löngum tima, þá neyðist það til þess að halda áfram að spila á hana og hún blómstrar áfram. Þetta finnst mér sterkasta röksemdin fyrir þvi, sem Sjálfstæðisflokkurinn leggur nú tii.“ „Fólk fylgist vel með málum“ „Er fólk opinskátt á vinnu- staðafundunum?" „Ég hef nú verið á milli 40 og 50 vinnustaðafundum síðustu vikurnar og mér finnst það stórkostlega skemmtilegt, hvað fólk fylgist vel með og er inni í málum. Ég hef forðast prédikanir eða langar ræður, en hins vegar leitazt við að svara heiðarlega þeim spurningum, sem fram koma. Ég hef hvergi orðið var við ofstæki eða fyrirfram mótaða afstöðu um mannvonzku „ihaldsins“, nema þá hjá örfáum ræðumönnum á fundi hjá háskólastúdentum. Þó hefði mátt ætla, að þeir gættu virðingu sinnar, ekki síður en almenningur, en þetta sannar enn betur, að þroski manna er ekki kominn undir skóla- menntun eða starfstitlum. Ég vil þó leggja áherzlu á að hér var greini- lega um örfáa ofstækismenn að ræða.“ Nokkur óvaænt atvik og skemmti- leg hafa gerzt. Ég uppgötvaði til dæmis, þegar ég var kominn á einn vinnustaðinn, að ég hafði gleymt jakkanum heima í óðagotinu. Á öðrum staðnum lenti ég í því að taka slag, þar sem fjórða mann vantaði í brigde, og elskuleg kona uppi í Breiðholti hrópaði yfir sig, þegar hún sá mig standa í dyragættinni: „Ellert minn, hvernig vissir þú að ég var hér?“ Kosninga- baráttan snýst um tillögur Sjálfstæðisflokks- ins „Andstæðingur sjálfstæðismanna deila hart á stefnu ykkar." Rætt við Ellert B. Schram um stöðuna á lokaspretti kosningabaráttunnar markið“ framgangi þeirra, taka áhættu, ef svo ber undir, og þá áhættu hef ég tekið. Af tali mínu við fjölda fólks hef ég fundið, að ákvörðun mín er skilin og metin og það hefur verið mér hvatning. Það hefur margt verið skrafað og skrifað um þess ákvörðun og m.a. hefur þvi verið haldið fram, að ég hafi verið þvingaður eða „keyptur"! Ég hef talið það fyrir neðan virðingu mína að svara þvílíku og öðru eins, en endurtek, að ég tók þessa afstöðu sjálfur og án skuldbindinga eða tilmæla.“ „Sumir spyrja nú samt hvað þú fáir í staðinn?" „Ég hef orðið var við það, en slík spurning hefur aðeins styrkt þá skoðun mína, að ég hafi gert rétt, ef það mætti verða til þess að opna augu fólks fyrir því, að menn eiga ekki að hafa afskipti af stjórnmálum af persónulegum ástæðum einum, heldur fyrst og fremst málefna- legum! Ég fæ ekkert í staðinn annað en þá ósk mína uppfyllta — að Sjálfstæðisflokkurinn eflist." „Skemmtilegar og lærdómsríkar heimsóknir“ „Hvernig finnst þér stemmningin í þessari kosningabaráttu, scm er að ýmsu leyti með nýju sniði, sérstak- lega í þéttbýlinu?" „Þetta er að sjálfsögðu ekki í fyrsta skipti, sem frambjóðendur koma á vinnustaði eða umgangast fólk. Hvað mig varðar, þá hef ég um árabil starfað í íþróttahreyfingunni, þar sem menn í öllum starfsgreinum vinna saman. Þar hef ég oft komizt í snertingu við hin ólíkustu viðhorf og hagsmunamál fólks úr öllum stétt- um. Ég hef alltaf gert mér far um að kynnast ýmsum og ólíkum störfum. Þar á meðal hef ég stundað sjó- mennsku undanfarin ár og hef haft af því ómetanlegt gagn. Þessar heimsóknir á vinnustaði nú fyrir kosningarnar eru nýbre.vtni að því leyti, hvað þær hafa verið mikið stundaðar, en mér hafa þótt þær skemmtilegar og lærdómsríkar." „Met fólk af manngerð, en ekki titlum“ „Nú hafið þið einnig heimsótt skemmtistaði og heimahús." „Já, auk vinnustaða höfum við heimsótt heimili og diskótek og sjálfsagt hefur einhverjum þótt nóg um. En þetta er gert í þeim tilgangi að sýna sig og sjá aðra og undir- strika þá staðreynd, að frambjóð- endur eru ofur venjulegt fólk, hvorki Ellert á spjalli við tvo gamla togarafélaga frá þvi i sumar, þá Þóri Sigtryggsson t.v. og Ásgrím Guðjónsson, en þeir eru skipverjar á Bjarna Benediktssyni. Ljósmynd Mbl. Kristján. „Rauði þráðurinn í stefnu okkar sjálfstæðismanna,“ sagði Ellert B. Schram, „er tillitið til láglaunafólksins. TekjutryKginK. hækkuð skattfrelsismörk og afnám rangláts vísitölukerfis, sem eykur launamismuninn, en allt er þetta að mínu mati í þágu launafólks. Það er sorgleg staðreynd að á íslandi skuli stórir hópar launafólks hafa innan við 300 þús. kr. á mánuði i tekjur og mér er ómögulegt að skilja, hvernig fólk getur lifað mannsæmandi lífi við þau kjör. Ég skal ekki skella skuldinni á neinn fyrir þessi bágbornu launakjör, en forsenda þess, að þau geti batnað, er, að atvinnurekstur- inn blómstri, að þjóðarframleiðslan aukist og verðbólg- an verði kveðin niður. Verðbólgan er mesta lífskjara- skerðingin og gegn henni ætlum við sjálfstæðismenn að berjast mcð kjafti og klóm. Kauphækkanir í krónutölu eru lítils virði, ef þær sömu krónur brenna jafnóðum upp á verðbólgubálinu. Þetta skilja allir. En Alþýðu- bandalagið t.a.m., „verkalýðsflokkurinn“, leggur ekk- ert raunhæft til málanna, en þrástagast hins vegar á kröfunni um vitlaust vísitölukerfi, sem magnar verð- bólguna, en dregur ekki úr henni. Þeir vilja halda við launamisréttinu og verðbólg- unni, sem hefur verið forsenda þessa misréttis.“ Það má segja að við höfum rabbað við Ellert á hlaupum, því það cru miklar annir hjá frambjóðendum á lokaspretti kosningabaráttunnar, tæp vika til kjör- dags. Við fylgdumst með Ellert dagstund og meðal atriða á dagskrá þann dag voru vinnustaðafundir. heimsóknir í heimahús og á árshátíðir, almenn fundahöld, og í hádeginu brá hann sér á fornar slóðir, Melavöllinn. Síminn er mikið notaður i kosningabaráttunni, en þessi mynd af Ellert var tekin i símaviðtalstima i Valhöll s.l. laugardaKsmorgun. Ljósmynd Mbl. Emilía. „I sókn,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.