Morgunblaðið - 28.11.1979, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 28.11.1979, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 1979 Friðrik Friðriksson, viðskiptafræðinemi: Hvers vegna er nauðsynlegt að selja ríkisfyrirtækin? Nýlega birti framkvæmdastjóri ríkisfyrirtækis grein í Morgunblað- inu, þar sem hann gagnrýnir þá menn, sem vilja auka ráðstöfun- arfé almennings með því að selja ríkisfyrirtæki og lækka skatta. Þar sem nokkurs misskilnings gætir hjá framkvæmdastjóranum, langar mig til þess að benda á tvenns konar sjónarmið, sem ráða því, að frjálshyggjumenn vilja fækka ríkisfyrirtækjum. Hér er um að ræða annars vegar siðferðileg sjón- armið og hins vegar hagkvæmn- issjónarmið. Mörg ríkisfyrirtæki eru rekin í beinni samkeppni við einkaaðila, og önnur eru starfrækt á sviðum, þar sem einstaklingar gætu auð- veldlega tekið við rekstrinum. En hvaða máli skiptir hvort rekstrar- formið er notað? Ríkið ekki frjálst félag Frá siðferðilegu sjónarmiði er hér um grundvallarmun að ræða. Meginatriðið í skoðun frjáls- hyggjumanna er frelsi einstakl- ingsins til orða og athafna innan settra leikreglna og almenns sið- gæðis. Ríkisvaldið er því í eðli sinu andstætt hugsjónum frjálshyggju- manna, þótt þeir viðurkenni mik- ilvægi þess til að móta þann ramma laga og reglna, sem nauð- synlegur er til friðsamlegs samlífs manna. En um leið og frjálshyggju- menn viðurkenna mikilvægi þessa hlutverks ríkisvaldsins, þá eru þeir andvígir afskiptum ríkisvaldsins af ýmsum þáttum atvinnustarfsem- innar. Meginástæðan er sú, að ríkisfyrirtækin eru eðli sínu sam- kvæmt ekki starfrækt af frjálsum samtökum einstaklinga, sem af fúsum og frjálsum vilja hafa ákveðið að verja hluta ráðstöfun- artekna sinna á ákveðinn hátt. Hið lögbundna vald ríkisins gerir því kleift að ráðstafa æ stærri hluta af tekjum fólks á margvíslegan hátt, án tillits til vilja einstaklinganna, sökum þess að menn verða að borga skatta sína án tillits til vilja. Þessi siðferðilegu rök nægja ein sér til þess að réttlæta sölu þeirra ríkisfyrirtækja sem einstaklingar og félög þeirra gætu rekið á hagkvæmari hátt án þess að veita lakari þjónustu. Lækkun skatta í kjölfar lækkunar ríkisútgjalda Friðrik Friðriksson minnkar þetta vald ríkisins, og er því í anda frjálshyggju. Menn fara betur með eigið fé... Margt er það í daglegri reynslu manna, sem nota má til þess að skýra stjórnmálaskoðanir. Menn sjá t.d. allt í kringum sig illa farið með eigur hins opinbera. Skorin sæti í strætisvögnum og útkrotuð húsgögn í skólastofum vekja óneit- anlega þær spurningar hvort sá, sem skemmdarverkið vann, myndi gera slíkt hið sama heima hjá sér. Svarið vita allir, að er neitandi, og í framhaldi af því má spyrja, hvers vegna er svo illa farið með eigur hins opinbera? Svarið við þessari spurningu felst í þeim einfalda barnasannleik, að menn fara betur með eigið fé en annarra. Það er þetta lögmál, sem skýrir það, að ríkisfyrirtæki eru jafnan verr rek- in en einkafyrirtæki. Ástæðan er ekki vanhæfni stjórnenda eða viljaleysi, heldur sú, að stjórnend- ur ríkisfyrirtækja vantar bæði sjálfstæði í athöfnum og hvata til góðrar frammistöðu. I einstakl- ingsfyrirtækjum tryggir einka- eignarrétturinn sjálfstæði í at- höfnum og hvatinn er möguleiki á hagnaði, ef réttar ákvarðanir eru teknar, og ábyrgð þess að þola tap, ef illa gengur. Það er á þessum grundvelli, sem frjálshyggjumenn berjast fyrir því, að einstaklingum verði seld þau ríkisfyrirtæki, sem auðveldlega má starfrækja á annan og hagkvæmari hátt. En leiðir þessi ráðstöfun til atvinnuleysis eins og margir hafa boðað? Ef menn eru hræddir um, að sala ríkisfyrirtækja leiði af sér atvinnuleysi, eru þeir um leið að viðurkenna, að tiltekinn hópur ríkisstarfsmanna sé óþarfur, m.ö.o. að um dulbúið atvinnuleysi sé að ræða. Hlutverk markaðarins í þessu tilfelli er annars vegar að veita upplýsingar um, að verðgildi vinnuframlags þeirra sem vinna vinnuna sé ekkert í þessari starf- semi, og hins vegar vísbending um, að menn verði að leita sér nýrri starfa. Ef þau eru ekki til, þá verður að skapa fleiri atvinnutæki- færi. Efnahagsstefna Sjálfstæðis- flokksins byggist á því að auka atvinnutækifærin í landinu. Raunhæfar tillögur um stóriðju og iðnað hérlendis eru forsendur fyrir því, að okkur takist að komast frá núllvaxtarvítahringnum, þar sem hagvöxtur er enginn og lífskjör njörvuð niður. Selt eða skilað Fyrrnefndur framkvæmdastjóri rekur ríkisfyrirtæki hallalaust, og er það vel, en því miður eru það ekki rök fyrir því, að ekki eigi að selja. Ef litið er alveg framhjá þeim siðferðilegu rökum, sem ég nefndi áðan, þá er ljóst, að ef ríkisfyrirtæki er rekið hallalaust, þá verður einkafyrirtæki rekið með hagnaði, ekki vegna hækkaðs verðs á vöru eða þjónustu, heldur minnk- andi tilkostnaðar, sem felst í betri nýtingu á fjármagni. Hagur al- mennings vex um leið, þar sem vel rekin fyrirtæki vaxa og dafna, geta af sér ný atvinnutækifæri og geta greitt hærri laun. Að lokum má velta fyrir sér framkvæmdinni á sölu ríkisfyrir- tækja. Ég sé í fljótu bragði tvær leiðir færar. Önnur er sú að selja bréf á nafnverði, þar sem nafnverð- ið verður fundið með því að bera saman viðkomandi fyrirtæki og önnur í sambærilegum rekstri. Hin leiðin er einfaldlega sú að skila fólkinu fyrirtækjunum aftur, þ.e. að senda hlutabréfin heim í pósti, enda hefur almenningur greitt fyrir rekstur þessara fyrirtækja með sköttum. Þessi leið virðist kannski í fljótu bragði óraunhæf en er að mínu viti vel framkvæm- anleg, t.d. mætti hugsa sér að slíkt yrði gert á stað eins og Siglufirði þar sem ríkisfyrirtækið Þormóður rammi er starfrækt, og einnig væri þetta möguleiki á mörgum fleiri stöðum. Hvor leiðin sem valin er, byggir þó á þeirri forsendu, að sölu ríkisfyrirtækjanna fylgi skatta- lækkun, sem gerir fólki kleift að ráðstafa betur sínu sjálfsaflafé. Það er einnig grundvallaratriði, að fyrirtækjum verði gert kleift að byggja sig upp af eigin fjármagni. Það verður hins vegar ekki fyrr en aðstæður í þjóðfélaginu og skatta- lög hafa breyst þannig, að hluta- bréf í fyrirtækjum verður sam- keppnisfært, sparnaðarform á við önnur. Þá fyrst þegar almenningur getur ávaxtað fé sitt í blómlegri atvinnustarfsemi verður lagður varanlegur grunnur að sjálfstæð- um atvinnurekstri. Með því að efla sjálfstæða at- vinnustarfsemi vilja frjálshyggju- menn vinna tvennt. í fyrsta lagi viljum við leggja varanlegan grunn að framtíð sjálfstæðrar þjóðar og í öðru lagi viljum við treysta fólki, með því að veita því möguleika og aðstöðu til að nýta hæfileika sína og þekkingu. í stað þess að refsa fólki fyrir ráðdeildarsemi eins og nú er, vilja frjálshyggjumenn áð hver fái að vera sinnar gæfu smiður. Helgi M. Sigurðsson, námsmaður: Hrakfarir hentistefnunnar Ég vil geta þess hér í upphafi, að eftirfarandi grein á helst heima í Þjóðviljanum, því að hún fjallar um deilu innan raða vinstri- manna. En í fyrsta lagi er Þjóð- viljinn ekki þekktur fyrir að vera opið blað, sérstaklega ekki fyrir kosningar. í öðru lagi talar undir- ritaður máli samtaka sem Alþýðu- bandalagið er um þessar mundir að reyna að þegja í hel, þ.e. Fylkingarinnar. í þriðja lagi birt- ist greinin hér af því, að Morgun- blaðið er sá vettvangur sem Al- þýðubandalagsmenn völdu sjálfir til að ræða viðkomandi deilu. Hún hefur ekki verið rædd í Þjóðviljan- um enn sem komið er og segir sína sögu um hve málefnaleg staða Alþýðubandalagsins í henni er veik. Alþýðubandalagið hefur lengi eignað sér ýmis félög og samtök og reynt að nota þau sér til fram- dráttar. Þar á meðal eru Samtök herstöðvaandstæðinga. En nýlega átti sér stað grundvallarbreyting á afstöðu SHA til Abl. Þau lýstu því yfir að nú ættu herstöðvaand- stæðingar ekki lengur neinn skel- eggan fulltrúa á alþingi, Alþýðu- bandalaginu væri ekki lengur treystandi. Á þingi SHA fyrir skömmu kom jafnvel fram tillaga um að SHA byðu fram sinn eigin lista í komandi kosningum. Rauðsokkahreyfingin er önnur samtök sem Alþýðubandalaginu hefur veist erfitt að ráðskast með upp á síðkastið. 1. maí 1978 tók hún t.d. þátt í göngu Rauðrar_ verkalýðseiningar en ekki í full- trúaráðsgöngunni. Sömuleiðis hef- ur margvísleg gagnrýni á Alþýðu- bandalagið komið frá hreyfing- unni, bæði í ræðu og riti, m.a. á hinni óauðsveipnu Rauðsokkasíðu Þjóðviljans. Þriðju samtökin sem hér verða nefnd eru SÍNE, Samband íslenskra námsmanna erlendis. Stjórnir þess á undanförnum ár- um hafa ekki verið hallar undir Alþýðubandalagið en Abl. hefur alltaf átt mikið fylgi meðal al- mennra félaga þess í kosuingum. Þetta fylgi vildi Alþýðubanda- lagið tryggja sér í komandi kosn- Helgi M. Sigurðsson ingum og sendi í því skyni félags- mönnum SÍNE hjartnæmt bréf. Hafa birst úr því glefsur hér í Morgunblaðinu. Málflutningur Al- þýðubandalagsins í þessu bréfi var með þeim hætti sem menn hafa átt að venjast úr þeim herbúðum. Flokkurinn stærði sig af hlutum sem alls ekki voru hans verk og nefndi ekki aðra sem miður hafa farið. Stjórn SÍNE var hins vegar ekki fyllilega hagvön hér á landi eftir langa námsdvöl erlendis. Hún tók upp á því ólíkindabragði að svara bréfinu opinberlega á mjög mál- efnalegan hátt. (Mbl. 16.11) Rakti hún samviskusamlega úr blekk- ingarvefnum en lét þess getið í lokin að líklega hefði Abl. þó reynst námsmönnum skárst af þingflokkunum fjórum. Ulfari Þormóðssyni kosninga- stjóra Alþýðubandalagsins í Reykjavík brá eðlilega við tiltæki þetta. En menn sem skipta sér af stjórnmálum verða að gæta still- ingar. Samdægurs og bréf SÍNE birtist, sendi hann frá sér svar- bréf sem óneitanlega verður að teljast með því ómerkilegasta sem sést hefur í blaðamennsku undan- farinna mánaða. Honum datt ekki í hug að ræða hlutina á málefna- legum grundvelli heldur reyndi hann að fela hina slæmu málefna- legu stöðu Alþýðubandalagsins með því að varpa fram, algerlega órökstutt, rætnum staðhæfingum um stjórn SÍNE og Fylkinguna. Gekk hann svo langt að fullyrða að þessir aðilar væru orðnir nánir bandamenn Sjálfstæðisflokksins og þátttakendur í leiftursókninni frægu. Það á náttúrlega ekki að þurfa að svara svona þvættingi en allur er varinn góður. Úlfar veit það fullvel, að við hliðina á Fylking- unni er Alþýðubandalagið einn af bestu vinum Sjálfstæðisflokksins, enda eru verulegar líkur á því að næsta ríkisstjórn muni saman- standa af Alþýðubandalaginu og Sjálfstæðisflokknum. Úlfar er bara sama marki brenndur og kollegar hans! Fyrir honum er flokkurinn allt og því svífst hann einskis honum til varnar. Alþýðubandalaginu gremst skiljanlega að missa ítök sín i helstu baráttusamtökum sósial- ista hér á landi. En það getur aðeins sjálfu sér um kennt. Á undanförnum árum hefur það þróast hratt til hægri og náð til sín ófáum framsóknaratkvæðum fyrir bragðið. En í staðinn hefur Álþýðubandalagið gerst æ svik- ulla við málstað sósíalista og gat því ekki átt von á öðru en minnkandi stuðningi frá þeim.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.