Morgunblaðið - 28.11.1979, Síða 3

Morgunblaðið - 28.11.1979, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 1979 3 ætlum að endurtaka vinnubrögð okkar frá árinu 1960, þau eru flestum kunn og í fersku minni. Við ætlum ekki að brenna okkur á soðinu frá 1974—1978 þegar framsóknaraðferðin var notuð, að taka með mýkt á verðbólg- unni. Þá mistókst okkur og við hlutum refsingu í síðustu kosn- ingum. Þess vegna höfum við nú myndað okkur trausta stefnu sem fólk í vaxandi mæli metur að verðleikum. Eg boða hér sparnað og harkalegan samdrátt. Atvinnu- öryggið er fyrir öllu og ég er sannfærður um það, að það má draga saman án þess að hætta sé á atvinnuleysi. í þvi sam- bandi getum við bara litið á þann mannafla sem þarf í Sverrir Hermannsson í samtali við Morgunblaðið: Yið verðum að virkja stórt í Fljótsdal og selja meirihluta ork- unnar til stóriðju á Reyðarfirði fiskiðnaðinum ef sinna á honum að óbreyttum aðstæðum. Það hefur þráfaldlega komið fram hér á fundum að andstæðingar okkar telja það firru að hægt sé að spara, en þá getum við bara litið á undirbúning fjárlaga- gerðar fyrir árið 1979. Þá lagði Alþýðuflokkurinn til 30% niðurskurð, Framsóknarflokk- urinn 22%, en kommar segjast nú ekki hafa lagt til nema 10%. Eg hef hins vegar eftir öðrum leiðum að þeir lögðu til 16,2%. Mennirnir vissu að það var lífsnauðsyn að draga saman seglin, en þeir komu sér bara ekki saman um hvað ætti að spara og hvað ætti að skera niður því þeir gátu ekkert unnið vegna óeiningar. Hér rifjum við upp okkar fastmótuðu stefnu í samgöngu- málum, um lagningu vega með bundnu slitlagi. — Við leggjum hins vegar höfuðáherzlu á orku- málin, þar sem ég ætla að leggja pólitískt líf mitt að veði fyrir því að virkja verði stórt í Fljótsdal og við vitum að við verðum að selja meirihluta ork- unnar til stóriðju á Reyðarfirði. Þannig ráðum við gátuna sem nú er hvað harkalegust af öllu, en það er hitun híbýla fólks. Það er að setja heimilin á hliðina sá óheyrilegi kostnaður sem er við húsahitunina, en það er umfram orkan, ódýra orkan, sem leysir þetta bráðhættulega vandamál. Þá boðum við skattalækkun, því skattpíningin er með þeim hætti, að það er verið að ræna menn fjárhagslegu sjálfstæði. Andstæðingar hreykja sér hins vegar að því að hafa tekið föstum tökum þetta mál, þeir sleppa hins vegar því, að þeir notuðu olíuverðshækkanirnar til þess að margfalda álögurnar á fólk og auka innstreymi í ríkissjóð. Það sem mér finnst nú gróflega daprast af þessu öllu saman er boðun andstæð- inga okkar um myndun nýrrar vinstristjórnar, það er ekki nóg með að þeir tilkynni nýja vinstristjórn með alveg óbreyttri stefnu, það er engin stefnubreyting fundin í þeirra orðum. í þessu sambandi þurfa kjósendur ekki annað en að líta á efndir loforða þeirra fyrir síðustu kosningar og sjá þá hvers konar firra þetta er. Þá var lofað skattalækkunum, af- námi tekjuskatts af lágtekjum, varðveislu íslenzku krónunnar og svo framvegis. Þetta hafa þeir auðvitað svikið. Að lokum vil ég segja að ég er bjartsýnn. Ég trúi ekki öðru en að fólk sjái nú að nauðsynlegt er að að taka nú harkalega til höndum. — Við erum komin fram á yztu nöf og verðum að snúa við og það er þýðingar- laust að halda því að fólki að það sé hægt að gera það án þess að menn verði að leggja eitt- hvað af mörkum," sagði Sverrir Hermannsson að síðustu. \ Ajax - hvílíkur munur Ajax þvottaefni losar úr bletti og óhreinindi strax i forþvotti. Það er sama hvort um er að ræða hvítan, mislitan eða mjög viðkvæman þvott, sama hvaða hitastig er notað eða þvotta- stilling. Með Ajax skilar árangurinn sér í tandurhreinum o^ blettalausum þvotti. 1 Ajax lágfrcyoandi þvottacfni fyrirallan þvott .

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.