Morgunblaðið - 28.11.1979, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 1979
5
Vegleysur og
vinstri stjórn
Ráðherrarnir
létu gabba sig
RÁÐHERRAR Alþýðubanda-
lagsins voru í fyrstu mjög
óánægðir með frumvarp ólafs
Jóhannessonar um stjórn efna-
hagsmála. er hann lagði það
fram í marzmánuði siðastliðn-
um og hafði Lúðvík Jósepsson,
formaður Alþýðubandalagsins
m.a. haft á orði, að samþykktu
alþýðuflokksmenn og fram-
sóknarmenn ekki breytingu á
frumvarpinu, væri stjórnarsam-
starfið úr sögunni.
Mikið var fundað um efni
frumvarpsins á fundum í Al-
þýðubandalaginu og hinn 26.
marz fengu ráðherrarnir og
Lúðvík umboð til þess að hefja
samningaviðræður við Ólaf Jó-
hannesson um breytingar á
frumvarpinu, þeim atriðum er
lutu að kjaraskerðingarhug-
myndum frumvarpsins. Fund-
armenn, sem sátu fundinn í
Alþýðubandalaginu voru hins
vegar sannfærðir um það, að
ráðherrar flokksins, Svavar
Gestsson, Ragnar Arnalds og
Hjörleifur Guttormsson hefðu
látið samráðherra sína gabba
sig, þeir hefðu verið búnir að
samþykkja frumvarpið í heild,
án þess að átta sig á því, hvað í
því fælist.
Hinn 27. marz hófu svo ráð-
herrarnir ásamt formanni
flokksins tilraunir sínar til þess
að semja við Ólaf Jóhannesson
um áðurnefnd atriði frumvarps-
ins. Ólafur var stuttur í spuna
við samráðherra sína og kvaðst
ekki vera til viðtals um neinar
breytingar, hann væri þegar
búinn að leggja það fram, og ef
þeir vildu ræða breytingar,
skyldu þeir tala við Jón Helga-
son í Seglbúðum, formann fjár-
hags- og viðskiptanefndar efri
deildar. Átti svo Lúðvík viðræð-
ur við Jón og Ágúst Einarsson,
fulltrúa Alþýðuflokksins í
nefndinni, þar sem hann skýrði
sjónarmið Álþýðubandalagsins.
Rétt undir mánaðamótin tókst
síðan samkomulag í ríkisstjórn-
inni. Niðurstaðan varð, að kjara-
skerðingu á laun undir 210
þúsund krónum á mánuði var
frestað fram til 1. desember
1979. Þá átti skerðingin að koma
á láglaun líka. Það hefur nú
minnihlutastjórn Alþýðuflokks-
ins leiðrétt og fá öll laun um
næstu mánaðamót sömu pró-
sentuhækkun eins og áður hefur
komið fram.
Islenzki blásarakvintett
inn á hádegistónleikum
ÍSLENZKI blásarakvintettinn
kemur í dag fram á hádegistón-
leikum Söngskólans, en þeir hefj-
ast kl. 12:10 í tónleikasal skólans.
Kvintettinn var stofnaður sumar-
ið 1976 og hefur hann haldið
tónleika í Reykjavík og víðar.
Islenzka blásarakvintettinn
............- flautuleik-
ari, Kristján Þ. Stephensen óbó-
leikari, Sigurður I. Snorrason
klarinettuleikari, Stefán Þ. Steph-
ensen hornleikari og Hafsteinn
Guðmundsson fagottleikari. Á
efnisskrá tónleikanna eru kvintett
eftir Anton Reicha og sautján
tilbrigði eftir Jean-Michael Da-
mase.
íslenzki blásarakvintettinn kemur fram á hádegistónleikum Söng-
skólans kl. 12:10 i dag.
„Landnám fyrir landnám44
síðasta bók Arna Ola
KOMIN er út ný bók eftir
Árna Óla og jafnframt hin
síðasta. Nefnist hún „Land-
nám fyrir landnám". Útgef-
andi er Setberg. Árni Óla segir
m.a. sjálfur um bókina:
„Með móðurmjólkinni drakk
ég í mig hina rótgrónu sögu
um landnám íslands: Það voru
þrír norrænir sæfarar er sinn
í hverju lagi rákust á eyðiland
norður í reginhafi, en þangað
höfðu engir menn komið áður.
Engum kom til hugar að
vefengja þessa sögu. Svo liðu
árin og 1000 ára afmæli Al-
þingis var haldið hátíðlegt
1930. Þá vaknaði tortryggni
mín á að allt væri með felldu
Árni óla.
um landnámssöguna. Afleið-
ing þessara heilabrota varð sú
að ég tók að lesa Landnámu af
kappi og um mörg ár las ég
hana tvisvar og þrisvar á ári.
Misbrestir hrúguðust upp þar
til ég varð að viðurkenna með
sjálfum mér að landnámssag-
an væri með öllu óskiljanleg
eins og hún er sögð í Land-
námu. Ég hef verið að fást við
þetta í hjáverkum síðan ég
hnaut um hina miklu ráðgátu
á Alþingishátíðinni."
Árni Óla lézt sem kunnugt
er á s.l. sumri. Hafði hann þá
nýlega lokið frágangi þessarar
bókar.
D-listann vantar
bíla kjördagana
Sjálfstæðisflokkinn í
Reykjavík skortir bíla til
starfa fyrir D-listann á
kjördag, og eru þeir sem
reiðubúnir eru til að lána
bifreiðar eða til að aka
sjálfir, beðnir að hafa sam-
band við skrifstofu Sjálf-
stæðisflokksins. Símar
skrifstofunnar eru 82927
og 82900.
Bifreiðamiðstöðvar verða
starfræktar á fjórum
stöðum í borginni báða
kjördagana, og verða þær á
eftirtöldum stöðum:
Grandavegi 5, fyrir Vest-
urbæ og Miðbæ. Reykja-
nesbraut 12 fyrir Austur-
bæ, Hlíða- og Holtahverfi.
Sigtún við Suðurlands-
braut fyrir Háaleitis-,
Fossvogs- og Laugarnes-
hverfi. Seljabraut 54 fyrir
Breiðholtshverfin.
Al tilASINt;ASIMINN KR:
J»'»vo«nI)Tní)ib
Italskir skor
Úrval af kvenskóm:
Litur Stærðir
Ljóst 36—41
Ljóst . 36-41
Grátt, Svart, Bordeaux 36—41
Drapplitað 36—41
Vínrautt, Bordeaux 36—41
Brúnt 36—41
Dökkbrúnt 36—41
Verö
45.000,-
43.900, -
31.600.-
29.800,-
28.900-
31.900. -
33.500,-
Austurstræti 10
sími: 27211