Morgunblaðið - 28.11.1979, Síða 11

Morgunblaðið - 28.11.1979, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 1979 11 MacLean Philby Burgess Blunt Andrew Boyle meö bókina, sem kom af stað Blunt- hneykslínu. stofnuðu með sér samtök og kölluðu sig „Ppstulana" — postula Blunts. Á þessum ár- um hafði Blunt það hlutverk að finna menn, sem heppilegir væru til njósna fyrir Sovétrík- in. Fyrir allmörgum árum kom út bók eftir brezkan höfund, Cyril Connolly. Þar er gerð tilraun til að skilgreina sál- fræðilega ástæðurnar fyrir því að á árunum fyrir síðari heimsstyrjöldina átti sér stað í Cambridge hugarfarsþróun hjá mörgum ungum mönnum, sem síðar leiddi til landráða. Connolly bendir á, að auk þess sem „postularnir" hafi verið hrokafullir, kynvilltir og helzt ekki umgengizt aðra en valda klíkubræður, þá hafi þeir upp til hópa átt á bak að sjá feðrum sínum á unga aldri. Maclean og Burgess hafi til dæmis misst feður sína í bernsku, og Philby hafi aldrei hitt föður sinn, sem hafi verið í stöðugum ferðalögum erlend- is. „Kommúnisminn kom í staðinn fyrir föðurímyndina, hann lét þessum ungu mönnum í té nýtt „yfir-sjálf“, nýja réttlætingu, — réttlæt- ingu þess strangleika, sem þeir höfðu farið á mis við í bernsku og uppvextinum. Sumir fundu þetta kennivald í kaþólskunni, flestir fundu það í kommúnismanum, eða eins og Koestler hefur sagt: „Kom- intern rak hvíta þrælasölu og fórnarlömbin voru ungir hug- sjónamenn, sem léku sér að Dr. Wilfried Mann — er hann „fimmti maóurinn“? Hann er sagöur maöur hæglátur og dag- farsprúöur — með kynvillutil- hneigingu. hugmyndinni um ofbeldi." „Postularnir" frá Cambridge fóru ekki út í þjóðfélagið til að boða þessa nýju trú sína. Þeir notuðu þessa sjálfsdýrkun samsærisklíkunnar, sem upp- haflega var skemmtileg dægradvöl í háskólanum, til að grafa undan þjóðfélaginu." Hvar eru þeir nú? Guy Burgess, sem ásamt Donald Maclean flúði til Moskvu árið 1951, undi aldrei hag sínum sem eftirlauna- njósnari í „óskalandinu". Hann andaðist fordrukkinn í íbúð, sem hann hafði ásamt vini sínum í Moskvu árið 1963. Á því sama ári flúði Kim Philby til Moskvu, þar sem hann er nú kvæntur rússn- eskri konu. Maclean stafar í þeirri deild sovézka utanríkis- ráðuneytisins, sem hefur Bretland sem sérsvið. Rétt eftir andlát Burgess hurfu skjöl úr íbúð hans í Moskvu. Þar á meðal var uppkast hans að bók. Getum er að því leitt að þessi skjöl hafi haft að geyma upplýs- ingar, sem hafi átt þátt í því að afhjúpa „fjórða manninn", Anthony Blunt. BurgeSs var þekktur fyrir hirðuleysi. Vitað er að hann var orðinn beizkur í lund, þannig að ætla má að hann hafi ekki borið hag síns gamla lærimeistara mjög fyrir brjósti, enda þótt getgátur um þessar heimildir hafi ekki fengizt staðfestar. mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm UTSALAN stendur yfir í dag og a morgun Hjá okkur urðu lítilfjörlegar skemmdir vegna reyks í verzluninni Þrátt fyrir það höfum við ákveðið að gefa m afslátt af vörum verzlunarinnar. Nú er gott tækifæri til að ná í ódýrar jólagjafir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.