Morgunblaðið - 28.11.1979, Side 29

Morgunblaðið - 28.11.1979, Side 29
LANDSPÍTAU — FRAMTÍÐflBHUGMYNDIR 3 Viðtöl: Fríða Proppé MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 1979 29 Vísindalega sannað að byggingarkostnaðurinn skil- ar sér til baka á 3—5 árum „HÚSNÆÐISMÁLIN eru meginvandamál Landspítalans í dag,“ sagði Davíð Á. Gunnarsson framkvæmdastjóri stjórnarnefndar ríkisspítalanna, er Mbl. leitaði álits hans. „Þróunin í heilbrigðismálum hefur verið og er mjög hröð og húsnæðið hefur ekki fylgt eftir þeirri þróun. í dag má líta á Landspítalann sem taflborð með 64 reitum. Við höfum neyðst til að taka einn og einn reit undir aökallandi verkefni, en reitunum fjölgar ekki, þannig að öðrum þáttum starfseminnar er á meðan vikið af borðinu og er það slæmt. Það hefur verið vísindalega rannsakað erlendis og talið sannað, að það tekur aöeins 3—5 ár að greiða niöur fjárfestingu í sjúkrahúsbyggingum, þ.e. byggingarkostnaðurinn kemur til baka á þeim tíma í bættum og ódýrari rekstri. Fjárveitingaramminn er og hefur verið það þröngur hérlendis að ekki er fyrirséð að neinar alvörulausnir komi til á næstunni.“ En ég tel nauðsyn aö byggja fyrst um kjarnann, sem ríkis- spítalarnir eru og síðar minni einingarnar. Kjarninn, þar sem fullkomnasta þjónustan er, hlýtur ætíð að taka við, þegar allt annað þrýtur. — Eru fyrirhugaðar ein- hverjar breytingar á rekstri sjúkrahúsanna á næstu ár- um? Erfitt að vera fátækur Það er erfitt að vera fá- tækur og fjárskortur kemur sífellt í veg fyrir fullkomnu6tu þjónustu og tækni sem völ er á. Ég held að rekstrinum verði ekki svo auðveldlega breytt. Við teljum okkur gæta ítrasta aðhalds. Framundan tel ég að mest bylting verði í krabbameinslækningum og kallar það á meira pláss og meiri tækni — ný tæki á hvaða sviði sem er bæta rekstrarhliöina. Ef fyrirtækiö Landspítalinn væri rekiö af viðskiptaaðilum í frjálsu markaðskerfi væri auðvitað búiö aö kaupa fullkomnustu tæki fyrir löngu. Það er spurning, sem varpa mætti hér fram, hvort almen,ningur er ekki tilbúinn aö greiða meira til heilbrigö- iskerfisins og eiga þar á móti kost á fullkomnustu þjónustu eins og hún þekkist bezt í veröldinni og aftur kemur þá spurningin hver þörfin er. Það hefur alla vega sýnt sig, að almenningur er tilbúinn að greiöa svo til hvað sem er fyrir lækningu meina sinna. Indónesíuferðirnar á vit „skurðlækna" þar eru bezta dæmið. Það er a.m.k. nauð- synlegt að mínu mati að almenningi sé gerð full grein fyrir, hvað heilbrigðisþjónust- an kostar og þeir peningar eru auðvitað teknir af al- menningi. En þaö er nú einu sinni mannlegt eðli að finna aö og tala um bruöl en krefjast um leið fullkominnar þjónustu, sér í lagi þegar viö eöa okkar nánustu eiga í hlut.“ — Hvar krepþir skorinn mest að þínu áliti? „Þar má fyrst nefna rann- sóknaraðstöðuna. Hún er nú dreifö um alla stofnunina og veldur það mjög lélegri nýt- ingu á vinnuafli og tækjabún- aöi. Þá má einnig tiltaka aöstöðuleysi lækna, ritara og annars starfsliðs. Ómældur tími dýrra starfskrafta fer í hlaup eftir skýrslum o.fl., og í annaö snatt. Samvinna verð- ur erfiðari og getur það kostað mikla fjármuni. Við höfum einnig dregist nokkuð aftur úr með ýmsa þjónustu vegna húsnæðisleysisins. Þá vil ég sérstaklega nefna aö húsnæði vantar fyrir krabbameinslækningar og síðast en ekki sízt skurð- stofuaðstöðuna, sem mikil nauðsyn er að auka og sam- ræma öðrum deildum. í dag höfum við aðalskurðstofurn- ar í miðri aðalbyggingunni og kvensjúkdómaskurðstofu í fæðingardeildarhúsnæðinu nýja. Samkvæmt Weeks- áætluninni er fyrirhugað, að skurðstofurnar verði í fram- tíðinni í nýju húsnæði ofan til á lóðinni. Það er að mínu mati mikil nauðsyn að skurð- stofur og þjónusta þeim tengd séu í nálægð hvort við annað og á ég þar við gjörgæzlu, röntgen, geymslu á blóði o.fl. Allt þarf þetta að vera í nánustu tengslum og langar vegalengdir kalla á aukinn starfskraft og lélega nýtingu hans. — Nú hefur mikið verið deilt á rekstrarhliö sjúkrahús- anna og sagt, aö þar sé mikið bruðlað með opinbert fé. Hvaö viltu segja um það? „Ádeilan á upptök sín í lestri íslendinga á erlendum tímaritum“ Eg er þess fullviss, að á íslandi er meiri og betri Leiðrétting í VIÐTALI við prófessor Hjalta Þórarinsson í fyrsta kafla um- fjöllunar um Landspítalann, sem birtist s.l. sunnudag, féll niður einn liður í upptalningu hans á aðgerðum, sem framkvæmdar eru á skurðstofum Landspítal- ans. Féll þar niður lýtaskurð- lækningar, en þær hafa verið framkvæmdar á Landspítalan- um í rúma tvo áratugi. Síðustu árin hefur verið þar sérstök legudeild vegna þessara lækn- inga, sem auk allra almennra lýtalækninga hefur einnig til meðferðar sjúklinga með meiri háttar brunamein. Er beðist velvirðingar á þess- um mistökum. Davið Á. Gunnarsson þjónusta fyrir minni peninga en víðast erlendis. Ég tel að þessi ádeila eigi upptök sín í auknum lestri íslendinga á erlendum fræöi- og fréttarit- um. Það er staðreynd, að t.d. í Bandaríkjunum er heilbrigð- iskerfið svo að segja að yfirkeyra þjóðlífið. Þar er heilbrigöisþjónustan orðin gróðavænlegur atvinnuvegur lækna og heilbrigðisstofn- ana. Rannsóknum fjölgar þar dag frá degi og sama er að segja um uppskurði o.fl. Tal- að er um mikla ofnotkun á vissum þáttum heilbrigðis- þjónustunnar. Heilbrigðis- þjónustan er óhemjudýr og tækjabúnaöur einnig, en þar greiðir fólk fyrir að fá að fara í tækin. Hérlendis er að mínu mati ekki um að ræða „óheilbrigðan kostnað á heil- brigðissviðinu" eins og víða erlendis. En það má e.t.v. fremur deila á ráðstöfun fjár innan heilbrigðisþjónustunnar í heild síðustu árin. Þaö, aö uppbygging ríkisspítalanna og þá Landspítalans hefur dregist þetta aftur úr er að mínu mati sú staðreynd, að óhemjufé hefur verið varið í uppbyggingu heilsugæzlu- stöðva vítt og breytt um landiö. Hver landshluti og hvert byggðarlag hefur talið nauðsyn á slíkum stöðum hvert á sínu umráðasvæði og auðvitað er margt rétt í því. Dr. Grétar ólafsson Stefna heilbrigð- isyfirvalda hef ur komið í veg fyrir eðlilega þróun „Landspítalinn ó nú að baki nær hálfrar aldar sögu og hefur á þeim tíma orðiö stærsta og sérhæfðasta sjúkrahús landsins. Hann hefur jafnframt verið aðalkennsluspítali heilbrigðisstétta og þar fer nú fram kennsla læknanema, hjúkrunarfræðinga, sjúkraþjálfara, röntgen- og meinatækna, svo eitthvað sé nefnt,“ sagði Grétar Ólafsson yfirlæknir og formaður Læknaráðs Landspítalans og Rannsðknarstofu Háskóla íslands, er Mbl. leitaði álits hans. Sérfræðiþjónusta, sem veitt er á Landspítalanum, er orðin geysilega fjölþætt og fer stöðugt vaxandi, enda er þróun læknisfræðinnar ör og hefur Landspítalinn reynt að fylgjast þar með. En þetta krefst sífellt aukinnar sérmenntunar og mannafla, vaxandi rýmis og nýrra tækja. Kostnaður helmingi lægri hér — Hefur að þínu áliti tekist sem skyldi aö fylgja framþróun í læknavísindum innan Landspítal- ans? Hingað til hefur sérfræðiþjón- usta, sem veitt er á Landspítalan- um, staðist faglegan samanburð við sams konar þjónustu í ná- grannalöndum okkar. Sé kost- naður þessarar þjónustu á Land- spítalanum aftur á móti borinn saman viö kostnaö erlendis, eins og stjórn læknaráðs geröi í grein- argerð, sem birt var í fjölmiölum á s.l. vetri, kemur í Ijós, aö þessi kostnaöur er a.m.k. helmingi lægri hér. Þessi samanburður sýnir, að rekstur sjúkrahússins er góöur, en auösýnt er að verði fjárframlög til sérfræðiþjónustu ekki aukin veru- lega munum við óhjákvæmilega dragast aftur úr. Síöast liðinn áratug hefur stefna heilbrigðisyfirvalda hérlendis komiö í veg fyrir eðlilega þróun Landspítalans og vil ég í því sambandi nefna einkum tvennt: A. Mikil uppbygging heilsugæslu- stööva og sjúkrahúsa utan Reykjavíkursvæðisins. B. Nýbyggingarfjármagn Land- spítalans hefur s.l. ár runnið til byggingar geðdeildarhúss á Land- spítalalóö, en við það hefur bygg- ingaráætlun Landspítalans, skv. tillögum arkitektsins John Weeks, stöðvast. Hvað snertir fyrri liðinn þá er ekki nema gott eitt um þaö aö segja aö heilbrigöisþjónusta dreif- býlisins sé bætt, sé þaö gert þannig aö þaö komi ekki niður á sérfræöiþjónustu, sem ætluö er landinu í heiid. En því miður hefur svo orðið. Það er sama hversu vel er að heilbrigöisþjónustu dreifbýl- isins staðið. Það mun ávallt þurfa aö veita sérhæföa iæknisþjónustu á stærstu sjúkrahúsum Reykja- víkursvæðisins. — Hvers konar þjónusta er þaö sem þú átt hér við? „Ég vil í því sambandi benda á krabbameinslækningar, sérgrein- ar í skurölækningum og lyflækn- ingum, s.s. blóðsíun í gervinýra, hjartarannsóknardeild, brjósthols- aðgerðardeild, bæklunarlækn- ingadeild og síðast en ekki sízt sérhæföar rannsóknardeildir, svo sem ísótóparannsóknir og sér- hæföar hormónamælingar svo eitthvaö sé nefnt.“ Veröur aö hefjast handa nú þegar Grétar sagði, að afleiöingar af stöðvun byggingaráætlunarinnar væru nú aö koma í Ijós. „Stjórn læknaráös taldi þær þaö alvar- legar, aö þaö væri skylda lækna- ráðs að vekja athygli á þeim opinberlega og var það gert með ítarlegri greinargerö, sem birt var efnislega í fjölmiðlum, en í heild sinni í Morgunblaðinu í febrúar s.l. og fjallaöi hún um öll þau atriði, sem hér hefur verið drepið á. Yfirstjórn mannvirkjagerðar á Landspítalalóö hefur nú hafiö hönnun á næsta byggingaráfanga Landspítalans í samvinnu viö John Weeks arkitekt í þeirri von að nýbyggingarfjármagn fáist. í þess- um þyggingaráfanga er áætlað aö húsnæði verði fyrir krabbameins- deild og tækjabúnað hennar, rannsóknardeild og skurödeild. Þessi byggingaráfangi veröur að hefjast án tafar. Þó svo verði þá kemur fyrsti hluti ekki til nýtingar fyrr en um áramótin 1982 til 1983 samkvæmt áætlun, ef bezt lætur. Ef dráttur verður enn á nýbygg- ingum Landspítalans þá stöndum vlö frammi fyrir þeirri staöreynd í náinni framtíð að neyöast til að senda sjúklinga utan til sérmeð- feröar í mun ríkara mæli en nú er, ef við viljum að þeir fái sömu möguleika til heilbrigöis og lífs og gerist meðal nágrannaþjóða okk- ar. Við læknar trúum því ekki, aö ráöamenn heilbrigöismáia láti svo fara," sagði Grétar í lokin.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.