Morgunblaðið - 14.12.1979, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 14.12.1979, Blaðsíða 6
38 Kaflar úr tveim nýjum barna- og ung- linga- bókum Það heíur löngum viljað brenna við að barnabækur og annað efni sem ætlað er börnum hefur verið sett skör læsra en það sem borið er á borð fyrir full- orðna. Hvenær hefur t.d. ver- ið fjallað um barnabækur í sjónvarpsþættinum Vöku. svo að eitt dæmi sé nefnt. Enn er í sumum tilvikum greitt lægra verð fyrir barnaefni. Spurning er líka, hvort íslenskir barna- bókahöfundar séu metnir til jafns við aðra höfunda. Sitja þeir við sama borð og aðrir, þegar veita skal starfslaun eða fé úr öðrum launasjóðum Raunar ætti slíkt ekki að vera óeðlilegt í ljósi þess að engir eiga jafn stóran lesendahóp en einmitt barnabókahöfundar. Á það er líka að líta, að þeir sem skrifa fyrir börn, taka á sig talsverða ábyrgð, sem fyllsta ástæða er til að meta að verðleikum, þegar vel tekst til. Á barnaári væri ekki úr vegi að taka þessi mál til endurmats, örva íslenska barnabókahöfunda til dáða og gera hlut hinna svokölluðu barnabókmennta ekki minni en annarra bók- menntagreina. Á þessu ári koma mun færri íslenskar barnabækur út en nokkru sinni fyrr og er það í sjálfu sér alvarlegt íhugunarefni. Fyrir jól þegar mest berst á markað af nýjum bókum birta blöðin alla jafna kafla úr athyglisverðum hókum, íslenskum og þýddum. En hvenær hafa barnabækur orðið fyrir val- inu? Morgunblaðið gerir nú bragarbót í þessu efni og birtir kafla úr tveimur íslenskum barna- og ungl- ingabókum. Með því vill blaðið undirstrika, að það leggur allar greinar bók- mennta að jöfnu. MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 1979 ANDRÉS INDRIÐASON LYKLABARN eftir Andrés Indriöason er verölaunasagan í barnabókasam- keppni Máls og menningar í tilefni barnaárs. Þetta er fyrsta skáldsaga Andrésar, en hann hefur áður skrifaö barnaleikrit fyrir Þjóðleikhúsið og leikritaflokk fyrir útvarpiö um Elísa- betu, sex ára telpu, sem horfir á veröldina sínum eigin augum. Enn- fremur samdi hann ævintýrið „i sjöunda himni“, sem nýlega kom út á hljómplötu og handrit aö Veiðiferð- inni, kvikmynd fyrir börn og fulloröna, sem frumsýnd verður á næsta ári. Auk þess hefur hann þýtt fjölda barna- bóka. Andrés hóf blaðamennsku hér á Morgunblaðinu og hefur starfað sem dagskrárgerðarmaður við sjónvarpið frá upphafi þess og einkum unnið að gerð dagskrárefnis fyrir börn hin síðari ár. Bókin Lyklabarn er skrifuð út frá sjónarhóli Dísu, sem er 10 ára. Hún er nýflutt í nýtt, hálfbyggt hverfi meö foreldrum sínum og litlum bróður, sem hún gætir á daginn. Við kynn- umst leikfélögunum, sem hún eignast og stendur stundum í svolitlu stríði viö, litla bróður hennar, foreldrum hennar, sem alltaf hafa svo mikið að gera, Guöfinnu, konunni, sem á heima í íbúöinni á móti og fleira fólki. í kaflanum, sem hér birtist, segir frá því, þegar krakkarnir fara í fótbolta- leik. Auk Dísu koma hér mest við sögu Una, vinkona hennar, sem á heima í næsta húsi, og Árni, sem á heima á Akureyri en er nú i heimsókn hjá Guðfinnu, ömmu sinni. Armann Kr. Einarsson Ármann Kr. Einarsson á fimmtíu ára rithöfundarafmæli um þessar mundir. Hann hefur um langt árabil veriö virkur félagi í samtökum rithöf- unda og barist fyrir rétti barna- og unglingabókahöfunda. Hann er nú formaður Félags íslenskra rithöf- unda. Ármann hefur sent (rá sér tvær nýjar bækur fyrir þessi jól, þ.e. GOGGUR VINUR MINN — saga úr þorskastríðinu og MAMMA í UPP- SVEIFLU. Síöar nefnda bókin var meðal þeirra handrita sem bérust í barnabókasamkeppni Máls og menn- ingar, og dómnefndin mælti meó til útgáfu ásamt verðlaunabókinni nú á barnaári. Mamma í uppsveiflu er bekkjar- saga 12 ára barna. Krakkarnir ákveóa aó halda skemmtun til aó safna fyrir dýru heyrnartæki. Þeir lagfæra gam- alt hús, sem mikill styr stendur um, og ráógert er að rifa. En þegar nýja barnaleikhúsiö „MUSARHOLAN" er um þaö bil aó taka til starfa fer mamma Geira, nýja stráksins í bekknum, „í uppsveiflu" og hætta er' á aó öll þessi fyrirhöfn sé til einskis. Hér birtist 3ji kafli bókarinnar, en hann heitir Steinahverfió. LYKLABARN Það tók ekki langan tíma að skrapa saman í tvö lið. Una hafði gengið í hús og látið boð út ganga um að klukkan tvö ætti að fara fram knattspyrnuleikur. Það fylgdi ekki sögunni hvar leikurinn átti að fara fram, enda taldi hún réttast að láta það liggja milli hluta. Það var ekki um aðra staði að ræða en á milli húsanna eða á götunni. Þótt gatan væri fáfarin var ekki á það að treysta að nota hana fyrir knattspyrnuvöll. Það gat alltaf komið bíll í upplögðum marktæki- færum. Þess vegna sagði það sig sjálft að eini staðurinn var svæðið á milli húsanna. Að vísu voru spýtur og mótajárn á víð og dreif og bílar þurftu líka að troða sér þarna inn, en við því var ekkert að gera. I hádeginu hafði Dísa hjólað yfir í næsta hverfi. Hún hafði komið við í sjoppu og keypt sér ís. Hún hafði rekist á verslun sem hún vissi ekki af, og þar var opið. Hún gat því keypt það sem mamma hennar hafði beðið hana um. Hún kom aftur um það leyti sem knatt- spyrnuleikurinn var að hefjast. — Þú átt að vera í mínu liði, kallaði Una til hennar. — Ég ætla fyrst að fara með þetta inn, sagði Dísa og benti á plastpoka sem hékk við stýrið á hjóli hennar. — Þú getur gert það á eftir, manneskja, sagði Una og skipaði henni að leggja hjólið frá sér. Dísa gerði eins og hún bað um. Hún lagði hjólið á hliðina og reyndi að átta sig á því hvað hún ætti að gera við pokann með mjólkinni og öllu því sem hún hafði keypt. — Flýttu þér, manneskja! kall- aði Una. Við erum að byrja! Dísa lagði pokann ofan á hjólið og flýtti sér til hennar. Una var fyrirliði í sínu liði en Árni stjórnaði sínu. Hann virtist þekkja flesta krakkana með nafni og var eins og heima hjá sér j)ótt hann væri nýkominn í hópinn. I liði Unu voru aðallega stelpur en að auki nokkrir fimm og sex ára pollar. Árni hafði sagt, að litlu krílin yrðu líka að fá að vera með. Una hafði látið það gott heita, en það leyndi sér ekki að hún var ekkert hrifin af því. — Eigum við að spila á eitt eða tvö mörk? spurði Árni og leit í kringum sig. í liði hans voru strákar í meirihiuta. Hann bætti við að það þyrfti stærra svæði ef spilað væri á tvö mörk, en það væri líka miklu skemmtilegra. Una sagðist vilja spila á tvö mörk. — Hver vill vera í marki hjá mér? hrópaði hún. Enginn gaf sig fram. Hún horfði rannsakandi augum á liðsmenn sína og reyndi að gera upp við sig hverjum hún ætti að treysta til að gæta marksins. Loks benti hún á Dísu. — Þú verður í marki! hrópaði hún. Dísu brá. — Ég kann ekki að vera í marki, sagði hún. Hún fann hvernig roðinn hljóp í kinnar hennar og hjartað fór að slá örar. Hún setti hnúana upp að kinnunum, leit niður fyrir sig og sparkaði í spýtukubb. — Þú verður víst í marki, sagði Una ákveðin. Alla vega til að byrja með, bætti hún við. Dísa komst ekki upp með neitt múður. Hún varð að láta sér lynda að gera eins og fyrirliðinn mælti fyrir. Una var búin að finna tvo stóra steina og búa til mark. Það var mikii asi á henni. Hún stikaði milli steinanna og taldi. — Eitt... tvö ... þrjú ... fjög- ur ... fimm ... Fimm skref! Hún hljóp yfir að markinu sem Árni hafði búið til og stikaði á sama hátt milli steinanna. — Fjögur? Við erum með fimm skref! — Minnkaðu þá þitt mark um eitt skref, sagði Árni. Hann lét Unu ekki koma sér úr jafnvægi. Una kallaði til Dísu og bað hana að færa marksteininn um eitt skref. — Það má vera stórt! bætti hún við. Þegar öll réttlæti hafði verið fullnægt að þessu leyti báðu Árni og Una einn pollann að tína upp lítinn stein og fela hann í annarri hendi. Una pantaði að velja hönd og fékk það. Hún valdi einmitt þá höndina sem steinninn var í. Sam- kvæmt því átti hennar lið að hefja leikinn. Það kom reyndar í ljós að pollinn hafði misskilið hlutverk sitt. Hann hafði verið með steina í báðum höndunum, en það fékk Árni aldrei að vita. Þegar allt virtist vera tilbúið sá Árni ástæðu til að segja nokkur vel valin orð um eðli knattspyrnunnar. Hann sagði að knattspyrna væri fyrst og fremst samvinna. — Reyniði að láta boltann ganga á milli ykkar í staðinn fyrir að halda honum, sagði hann. Það er ekkert gaman þegar allir eru í einni þvögu. Svo byrjaði leikurinn. Það kom strax í ljós að heilræði Árna höfðu ekki mikil áhrif á Unu. Hún treysti meira á einstaklings- framtakið en það að vinkonur hennar gætu hjálpað upp á sakirn- ar í leiknum. Hún komst auðveld- lega fram hjá tveimur pollum og sparkaði síðan eins fast og hún gat í boltann. Því miður fór hann þó ekki í þá átt sem hún ætlaðist til. Hann tók stefnu á steypuhrærivél- ina upp við húsið heima hjá henni. Mamma i uppsveiflu Steinahverfið Við Geiri gengum í hægðum okkar niður götuna í áttina að stoppistöðinni. Við vorum enn með allan hugann við þessa óvenjulegu heimsókn til kennarans okkar. Finnst þér ekki skrýtið, sagði Geiri allt í einu upp úr þurru, hún kallaði hana Beru. Það er bara stytting úr Hallbera. Alveg sama, það er dálítið neyð- arlegt, sagði Geiri. Ég er viss um ef ég reiddist einhvern tíma snögg- lega við kennarann þá mundi ég kalla hann Beru. Það er ekkert meira en hann kallar mig Geira. Sjáðu! hrópaði ég allt í einu, strætisvagninn er kominn. Við veifuðum öllum öngum og hlupum eins hart og við gátum. En það dugði ekki til. Rétt í þann mund er við komum á stoppistöð- ina renndi ferlíkið út á akbrautina, sendi okkur væna reykjargusu í kveðjuskyni og fjarlægðist óðfluga. Bölvuð bikkjan! hrópaði Geiri og steytti hnefann. Strætisvagninn er nú ekki hest- ur, svaraði ég brosandi. Það er sama, hann er þó að minnsta kosti farartæki, vagn- skrattinn, hreytti Geiri út úr sér. Hann gat vel beðið eftir okkur. Við ráðguðumst um hvað gera skyldi. Það var víst hálftími þang- að til næsti vagn kæmi. Það hafði kólnað talsvert með kvöldinu og setti að okkur hroll eftir hlaupin. Inni hjá Hallberu hafði líka verið mjög heitt. Ég stakk upp á því að við veifuðum leigubíl á götunni og skiptum milli okkar ökugjaldinu. Nei, ég tek aldrei leigubíl, sagði Geiri. Þeir eru svo dýrir. Ég andmælti ekki félaga mínum. Eflaust var mamma hans fátæk þótt hann minntist aldrei á það. Hvað erum við lengi að ganga? spurði Geiri. Oh, ætli það sé ekki rúmlega hálftíma gangur heim til mín. Þá skulum við ganga, sagði Geiri ákveðinn. Ég varð að viðurkenna að það væri besta lausnin. Það var ekki betra að norpa í kuldanum og bíða eftir næsta vagni. Allt í einu skaut upp ágætis hugmynd. Að mér skyldi ekki hafa dottið þetta strax í hug. Ég greip í handlegginn á Geira og næstum hrópaði á móti golunni. Við getum stytt okkur leið, ef við förum í gegn um Steinahverfið. Hvar er það? Þetta er gamalt hverfi skammt frá höfninni, húsin eins konar bakhús fínu bygginganna í mið- borginni. Þótt byggingarnar séu komnar til ára sinna eru sumar þeirra hinar reisulegustu og vel við haldið. Nokkrar eru reyndar hrör- legir kofar sem standa auðir. Þarna eru einnig skúrar og stórt gamalt pakkhús. Göturnar eru ekki annað en krókóttir gangstígar, illa lýstir. Úff, þetta er þá hálfgert drauga- hverfi, sagði Geiri og hryllti sig. Ekki veit ég það, svaraði ég. Það býr þarna slangur af fólki, að minnsta kosti á Berti bergrisi heima í einu húsinu. Hvað segirðu, Berti bergrisi? Geiri horfði á mig steinhissa. Karlinn heitir víst Dagóbert, en flestir kalla hann aldrei annað en Berta bergrisa vegna þess hve hann er stór og tröllslegur. Hann sést heldur aldrei spariklæddur. Er hann sterkur? Já, enginn veit hvað hann er sterkur. Sýndu mér Steinahverfið, sagði Geiri ákafur. Allt í lagi, við skulum koma. Síðan þutum við af stað. Ég tók forustuna, því ég vissi nákvæmlega hvar var styst að fara. Næstum alla leiðina hlupum við Geiri við fót. Það gafst lítið tóm til að tala saman. Ég var líka forvit- inn, því satt best að segja var orðið talsvert langt síðan ég hafði komið í Steinahverfið. Þetta var frægur staður. Fólk reifst heiftarlega um hverfið í fjölmiðlum. Sumir vildu láta vernda gömlu timburhúsin sem sögulegar minjar, aðrir sögðu að það væri mikill þrifnaður að jafna allt draslið við jörðu og reisa í staðinn nýtísku byggingar. Brátt nálguðumst við Geiri hverfið. Ég fann strax mjóa stíginn og beygði inn á hann. Gatan lá í talsverðum halla og horn á stóru tjörguðu timburhúsi skagaði út í hana. Hvaða hús er þetta? spurði Geiri. Þetta er gamla pakkhúsið. Hviss! Æi, það skaust eitthvað loðið milli lappanna á mér, hrópaði Geiri. Láttu þér ekki bregða, það er mikið af köttum hérna í hverfinu. Berti bergrisi er mikill dýravinur, hann fóðrar jafnt fugla og flæk- ingsketti. Sumir segja að hann gefi jafnvel rottunum. Ha, ha, ha! Sá er góður, sagði Geiri og hló. Uss, hafðu ekki hátt, sagði ég aðvarandi. Það getur verið hættu- legt að vekja á sér óþarfa athygli í Steinahverfinu. Uhu, er ekki öllum frjálst að ganga hér í gegn? Jú, en stundum hefur verið brotist hér inn í skjóli myrkurs og oftar en einu sinni hafa brennu- vargar verið á ferð. Ég skil, svaraði Geiri. Lögreglan hefur strangar gætur á hverfinu. Nei, ég held að lögreglan sjáist hér sjaldan, en það er... Ég lauk ekki við setninguna því

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.