Morgunblaðið - 14.12.1979, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 14.12.1979, Blaðsíða 21
53 hefur aldrei staðið í harðri kosningabaráttu fyrr. í heima- ríki sínu, Massachusetts, vann hann auðveldan sigur árið 1962. Þá tók hann við sæti Johns bróður síns, sem var kosinn forseti 1960, en þegar John varð forseti var Edward of ungur til að taka strax við sætinu, og því var leppur fundinn til að gegna því í tvö ár. 1970 og 1976 sigraði hann lítt vinsæla mótherja með 63% og 70% atkvæða. Vegna nafns síns hefur hann ekki þurft að vinna sér eitthvað til frægðar eins og flestir fram- bjóðendur með því að sækja litla fundi hjá Rotary og Lions og æfa þar ræður sínar og svör. Frá byrjun var barátta hans á for- síðum blaðanna með öllum sínum hnökrum og byrjunarerf- iðleikum. Auk þessa er hann ávallt borinn saman við bræður sína, sem bræddu hjörtu kjósenda með góðri framsögu og léttu yfirbragði. Kennedy sagðist ekki ætla að berjast með nöfnum bræðra sinna, en þó nefnir hann þá oft. Og enginn gleymir að hann er Kennedy þegar hann kynnir frænkur sínar og frænd- ur á kosningafundunum, og móð- ir hans, 89 ára gömul, stendur við hlið hans. Starfsmenn Kennedys hafa sagt að í forkosningunum í Florida í marz muni Kennedy sýna Carter í tvo heimana. Þeir hafa nú dregið í land og leggja minni áherzlu á sigur í Florida en áður. Þeir leggja nú meira upp úr frammistöðu Kennedys í kosningunum í Iowa í janúar, en sérstaklega þó úr kappræðu hans við mótherja sína í Demó- krataflokknum, þá Carter for- seta og Brown ríkisstjóra í Kaliforníu. ab. Nýja postula- kirkjan í nýjum húsakynnum NÝJA postulakirkjan á sér ekki ýkja langa sögu sem sjálfstæð kirkjudeild. Um 1830 hófst í Skotlandi og Eng- landi hreyfing meðal trúaðs fólks í þá átt að endurvekja trúarhita og ein- faldleik frumkristninnar. Þessi trúar- hreyfing breiddist út til Þýskalands og Hollands, og í Þýskalandi var hin Nýja postulakirkja stofnuð 1863. Á þeim tíma, sem síðan er liðinn, hefur Nýja postulakirkjan breiðst út um heiminn og starfar nú af miklum þrótti í öllum heimsálfum. "Meðlimum hennar fjölgar alls staðar mjög ört. Kirkjan leggur mikla áherslu á ein- faldleik í helgisiðum og bróðurlegt samfélag allra safnaðarmeðlima, líf í trú og kærleika. Sá andi, sem ríkir innan Nýju postulakirkjunnar, á því brýnt erindi við kynslóð nútímans, um leið og þessi kirkja er beinn arftaki postulakirkju frumkristninn- ar. Nýja postulakirkjan hóf kynningu á starfi sínu og kenningu hér á landi fyrir u.þ.b. tveimur og hálfu ári. Eiginlegt trúboð hófst þó ekki fyrr en fyrir rúmu ári, að séra Lennart Hedin frá Kanada fluttist hingað til íslands með fjölskyldu sinni. Hafa guðsþjón- ustur kirkjunnar síðan farið fram að Strandgötu 29 í Hafnarfirði. Nú hefur Nýja postulakirkjan hins vegar feng- ið nýtt húsnæði að Háaleitisbraut 58—60, Reykjavík, og flyst þvi starf- semin þangað. Fyrsta guðsþjónustan í hinum nýju húsakynnum verður n.k. sunnudag, 16. des. kl. 4 e.h. í þeirri guðsþjónustu mun auk séra Lennarts Hedin prédika erindreki frá Nýju postulakirkjunni í Kanada, séra Gene Storer. Eru allir hjartanlega vel- komnir til þessarar guðsþjónustu, sem markar tímamót í nýbyrjuðu starfi Nýju postulakirkjunnar á íslandi. (Fréitatilkynning frá Nýju postulakirkj- unni) AK»LYSIN(.ASIMINN FU: 22480 W*T0ivnbl«titb MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 1979 • • Oddubækurnar í sjöttu útgáfu BÓKAFORLAG Odds Björnsson- ar á Akureyri hefur nú sent á markað sjöttu útgáfu af Öddu- bókunum eftir Jennu Jónsdóttur og Hreiðar Stefánsson. Alls eru Öddu-bækurnar sjö talsins. í frétt frá útgáfunni segir m.a.: „Fyrsta Öddu-bókin, eftir Jennu Jensdóttur og Hreiðar Stefánsson, kom út árið 1946 og heitir ein- faldlega Adda, og síðan þá hefur verið stöðug eftirspurn eftir þess- ari bók. Hefur hún verið endur- prentuð mörgum sinnum og nú kemur hún út í 6. útgáfu. Sömu sögu má segja um þær bækur sem fylgdu í kjölfarið, allar hafa notið feykna mikilla vinsælda, svo að einsdæmi má telja með íslenskar barnabækur." Öddu-bækurnar. sjö heiti: Adda, Adda og litli bróðir, Adda lærir að synda, Adda kemur heim, Adda í kaupavinnu, Adda í menntaskóla, Adda trúlofast. f'4 - Adam fer fínt i veturinn. Þvi nú er hann birgur af glæsilegum hátiðar- og hvunndagsfatnaði. Peysu-, Combi- og Tweedföt í kippum. stakar tweed- og flannelsbuxur, stakir tweed jakkar, vesti og skyrtur. Allt fatnaður „a la Adarn", enda flott eftir þvi. Littu inn og kynntu þér málið. LAUGAVEGI 47 SIMM7575

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.