Morgunblaðið - 14.12.1979, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 14.12.1979, Blaðsíða 20
52 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 1979 Kosningabarátta Edwards Kennedy hefur gengið illa að undanförnu. Hann hefur ekki staöið sig vel í sjónvarpsviðtöl- um eða ræðum síðan hann lýsti forsetaframboði sínu yfir í nóv- ember s.i. og fjölmiðlar fara um hann mun haröari orðum nú en áður. Jafnvel þeir sem voru öruggir um að hann ynni út- nefningu Demókrataflokksins í júlí fyrirhafnarlaust eru farnir að efast. f síðustu viku tók Carter forseti forystu í vin- saldakapphlaupi þeirra í skoð- anakönnunum. en það hefur hann ekki gert fyrr. Carter þykir hafa staðið sig mjóg vel í deilunni við Iran, en nú eru rúmar 5 vikur síðan „námsmenn" hertóku banda- ríska sendiráðið í Teheran. Hann hefur aflýst öllum ferðum og fundum í sambandi við kosn- ingabaráttuna að svo komnu máli og helgar sig vandanum í Iran. Hann lýsti þó yfir fram- boði sínu til endurkjörs í síðustu viku, en án mikillar viðhafnar. Carter hefur sýnt forystuhæfi- leika sem margir höfðu sagt Hallar undan f æti fyrir Kennedy hann vanta. Kennedy var í hópi þeirra, sem sögðu landið vanta leiðtoga, en Carter hefur sannað á undanförnum vikum að svo er ekki. Hertaka sendiráðsins og gíslanna í íran hefur sameinað bandarísku þjóðina gegn einum óvini, Khomeini og fyigisveinum hans. Sendiráðið var tekið þegar Iranskeisari, sem var steypt af stóli í byltingu fyrir ári, var fluttur frá Mexíkó í sjúkrahús í New York til krabbameinslækn- inga. „Námsmennirnir" heimta að keisarinn verði fluttur til írans til að standa reikningsskil gerða sinna. Carter forseti hefur þvertekið fyrir það. Kennedy styður Carter i bar- áttunni um líf gíslanna í íran, en gagnrýndi þó keisarann harð- lega í ræðu. Hann kallaði keisar- ann einn mesta glæpahund ald- arinnar og ítrekaði nauðsyn þess að flytja hann úr landi hið bráðasta. Orð Kennedys féllu ekki í góðan jarðveg, og hann hefur verið gagnrýndur harðlega fyrir þau. Virtir dálkahöfundar eftir ONNU BJARNADÓTTUR Washington Post fullyrtu jafn- vel, að þau hefðu kostað keisar- ann hæli í Argentínu. Þeir sögðu samningaviðræður Bandaríkja- manna við argentínsk yfirvöld um hæli handa keisaranum hafa verið langt komnar þegar Kennedy flutti ræðu sína, en þá hefðu samningaviðræðurnar rofnað. Kennedy hefur reynt að draga í land og útskýra hvað hann meinti, en vill nú helzt að orð hans gleymist sem fyrst. CBS-sjónvarpsstöðin gerði heimildaþátt um Kennedy um það leyti sem hann lýsti yfir framboði sínu. Þar átti Roger Mudd samtal við hann, þar sem Kennedy þótti standa sig mjög illa. Hann gat ekki svarað því á sannfærandi hátt hvers vegna hann vildi verða forseti, og svar hans við spurningu um Chappa- quiddick var augsýnilega þaul- æft. Kennedy þykir mjög óskýr í svörum og oft slæmur ræðu- maður. í sama viðtali og jafn- framt í þættinum „Face the Nation" var hann afar langorður í svörum um helztu baráttumál sín, og fólk þurfti að beita allri sinni athygli til að skilja hvað hann var að fara. Kennedy er þó mjög vel heima um innlend og erlend málefni. Hann hefur setið á þingi í næstum 18 ár og er í hópi fremstu öldungadeildarþing- manna. Hann nýtur geysilegra vinsælda með þjóðinni. En hann eins og þú leggurþig formast Latex/Lystadún dýnan undir þér — og eltir síðan hverja hreyfingu þína þannig, að hún styður alltaf undir mitti og mjóhrygg. Latex/Lystadún dýna er samsett úr stinnu Lystadún undirlagi og mjúku Latex yfirlagi. Þyngstu líkamshlutar bæla Latexlagið niður að stinnu Lystadúnlaginu. Þannig lagar dýnan sig að líkamanum. Árangurinn er að hryggsúlan liggur nokkuð bein, hvíldin verður fullkomnari og þér hættir síður til eymsla í hrygg. Þau orsakast oft af röngum rúmdýnum. LYSTADÚN L/stadúnverksmiójan Duqquvoqi8 Sími84655

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.