Morgunblaðið - 14.12.1979, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 14.12.1979, Blaðsíða 8
40 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 1979 „Áhuga minn á bókum rek ég til þess tíma, er ég var barn uppi í Landeyjum, þar sem ég var í sveit á Gularási. Og í gegnum Þjóövinafélagsalmanakiö fékk ég áhuga á sögulegum fróðleik. Því hef ég svo verið aö safna allar götur síöan og þaö var ekki fyrr en fyrir um ári síðan aö ég eignaðist þaö allt saman. Nú hef ég þetta upphaf mitt hérna í hillunni." Og Hafsteinn Guömundsson forstjóri Þjóösögu stendur upp úr skrifborösstólnum og gengur aö öörum bókaveggnum, tekur þar út bók og gælir viö hana. Þetta geröi hann oft á meðan viö töluöum saman. „Annars var mér tvennt ofar í huga en prentverk á þessum tíma. Mig langaöi til aö veröa skipstjóri sem er eölileg barnslöngun í Vestmannaeyjum, og mig langaöi líka til að veröa prestur. Faöir minn vissi af því fyrrnefnda og leizt ekkert á, sennilega af því aö ég var smávaxinn fram eftir öllum aldri. Hann tók því málið í sínar hendur og þegar ég kom úr sveitinni 14 ára gamall, hafði hann útvegaö mér vinnu í prentsmiðju. Ég hugsa aö ég heföi þrátt fyrir vöxtinn orðið vel liötækur sjómaöur og ég hygg aö ég heföi orðið bænheitur prestur. En týpógrafían hertók mig alveg er fram í sótti.“ BÓKIN ER ÁVALLT INNIHALDIÐ EN EKKIUMFANGIÐ Morgunblaðið ræðir við Hafstein Guðmundsson í tilefni 25 ára afmælis bókaútgáfunnar Þjóðsögu Hjá kommum og íhaldi í Eyjum „Faðir minn hafði útvegað mér vinnu hjá Guðjóni ó. Guðjónssyni, sem þá rak nýtt prentverk í Eyjum; Prentsmiðju Guðjóns- bræðra. Bróðir hans var Þorbjörn bóndi í Kirkjubæ. En Guðjón var trúlofaður uppi á landi og eirði ekki unnustulaus í Eyjum. Hann fór til lands og þar með missti ég minn fyrsta meistara. Það átti nú eftir að henda mig oftar því að jjeir urðu sex meistararnir áður en yfir lauk. Guðjónsbræður seldu svo prentsmiðjuna, sem varð komm- únistaprent. Og ég fylgdi draslinu. Hjá kommunum var Isleifur Högnason aðalmaðurinn og eftir að Guðjón fór úr Eyjum, fluttist prentverkið að Bolsastöðum, sem voru fallegt hús við Helgafells- braut, sem ísleifur átti. Mér féll afburða vel við ísleif. Hann var góður húsbóndi og ljúfmenni. Meistari minn var Árni Guð- laugsson. Á Bolsastöðum settum við Eyjablaðið, málgagn verka- manna í Eyjum. Og þar fékk ég svo minn þriðja meistara, Stein- dór Sigurðsson, skáld. Svo fór ég frá Bolsastöðum og í íhaldsprentið. Þar var gefið út vikublaðið Víðir, blað sjálfstæð- ismanna eða íhaldsmanna eins og þeir þá hétu. Það var Einar Ágúst Bjarnason prentari, sem kippti mér þarna yfir, og hjá íhaldinu var ég bæði setjari og dýnamór. Vélin var handsnúin og merkis- maðurinn Jói á Hól, sem var aðaldýnamórinn, gat ekki alltaf mætt til starfa og þá hljóp ég í skarðið. í íhaldsprentinu urðu enn meistaraskipti hjá mér, þegar Guðjón Long tók þar við prent- smiðjustjórninni. Eg var nú orð- inn úrkula vonar um að ég yrði nokkurn tímann prentari heima í Vestmannaeyjum. Ég var stöðugt að lenda á milli meistara og þá varð ég að fá mér vinnu annars staðar. Til dæmis vann ég í bakaríinu hjá Jóni Waagfjörð. Þá var ég 16 ára. Ég mætti fyrstur á morgnana til að kveikja undir ofninum og koma upp dampi áður en bakararnir mættu og síðastur fór ég á kvöldin eftir að hafa tekið til í bakaríinu og pússað plöturn- ar. Á daginn var ég svo dráttar- klár. Þá keyrði ég út brauðin í handvagni. Það eru talsverðar brekkur í Vestmannaeyjum og ég held, að ég hafi verið búinn að fá nóg að degi loknum. En fyrir þetta fékk ég að borða." — Þér hefur ekki dottið í hug að verða bakari? „Nei. Það hvarflaði held ég aldrei að mér. Ég gat fljótt slegið upp kringlum og skonroki, og tvíbökum, sem í reyndinni er ekki alveg vandalaust verk. En ég fékk aldrei að fara í brauðin. Nei. Ég var allur í prentinu, hvað sem tautaði og raulaði. Svo segi ég einu sinni við Guðjón Long, þegar hann er að fara í sumarfrí til Reykjavíkur, að ég sjái ekki fram á það að verða nokkurn tíman prentari með þessu laginu og bað hann í guð- anna bænum að útvega mér vinnu í Reykjavík. Ég sló þessu fram í hálfkæringi og gerði svo sem ekkert með það. En þegar Guðjón kom aftur, sagði hann: „Ég er búinn að útvega þér vinnu í ísafold. Þú getur farið í dag, ef þú vilt“. Og ég fór daginn eftir til Reykjavíkur og í ísafold, þar sem ég lenti hjá mínum sjötta og síðasta meistara, Gunnari Ein- arssyni." — Hvenær var þetta? „Ég kom til Reykjavíkur 1929, þá 17 ára. Ég byrjaði 2. september og Gunnar gaf mér tveggja ára námstíma út á þessa stubba mína heima. Svo lærði ég hjá honum í tvö og hálft ár. Ég kláraði mig 2. marz 1932 og vantaði þá mánuð í tvítugt, en ég er fæddur 7. apríl 1912. Ég man, hvað það var erfitt að koma til Reykjavíkur. Ég átti ekki neitt veraldlegra gæða og þekkti enga. Afabróður átti ég í Reykjavík, Ágúst Jónsson frá Höskuldarkoti, sem bjó á Grettis- götu 8. Ég þekkti hann ekki neitt, en fór samt til hans að tilvísun móður minnar og bað um mat og skjól. Hann reyndist mér ákaflega vel; skaut yfir mig skjólshúsi, gaf mér að borða og keypti handa mér frakka og annað sem ungkarl þurfti, er lifa skyldi upp á eigin Fyrsti námskeiöshópur Hafsteins. Efri röð: Halldór Magnússon, Stefán Traustason, Ólafur Árnason, Óli Vestmann Einarsson, Ragnar Guömundsson, Einar Einarsson, Óli Þór Ólafsson, Guömundur H. Pétursson. Neðri röö: Garöar Sigurösson, Hafsteinn Guömundsson, Guömundur Ragnar Jósepsson og Ingólfur Guöjónsson. reikning. Hann hjálpaði mér líka að koma undir mig fótunum í leiguhúsnæði á Klapparstíg 42.“ Atvinnulaus í fjórar mínútur — Hver af þessum sex meistur- um þínum er þér minnisstæðast- ur? „Þetta voru allt ákaflega ólíkir menn, bæði í útliti og að mann- gerð. Allir voru þeir ágætismenn, en þó tel ég Gunnar Einarsson tvímælalaust þann sérstæðasta." — Af hverju? „Til þess liggja margar ástæður. Mér þótti eiginlega fjarskalega vænt um hann, en það var mér eðlislægt. Hann var skapmikill en fjarska- lega raungóður. Og svo rak hann mig einu sinni úr starfi. Það er eini tíminn á ævinni, sem ég hef verið atvinnulaus, meðan ég gekk frá ísafoldarprentsmiðju og upp á Laugaveg 1 þennan vordag 1935. Ætli það hafi ekki tekið um fjórar mínútur." — Af hverju rak Gunnar þig? „Ég hugsa að hann hafi verið í slæmu skapi þennan dag. Þetta var á útborgunardegi, sem var föstudagur. Eg hafði farið til læknis og þegar ég kom aftur spyr Gunnar: Hvar hefur þú verið, strákur? Hjá lækni, svara ég. Ertu að rífa kjaft?, spyr hann þá. Nei, segi ég. Eg hafði leyfi. Hann hafði þá engar vöflur á því, heldur reif snifsi af innpökkunarrúllu og skrifaði á það uppsögnina. Ég fór beinustu leið upp í Prentsmiðjuna Acta og það má sá ágætismaður Guðbjörn Guð- mundsson eiga, að hann tók mig strax í vinnu, þótt ekki væri mikið að gera. En daginn eftir hringir Gunnar í mig og spyr: Hver djöfullinn er þetta, drengur? Því kemurðu ekki í vinnuna? Ég minnti hann á, að hann hefði rekið mig daginn áður. Og nú kemur rúsínan í pylsuendanum. Þú átt ekki að taka mark á svoleiðis vitleysu, strákur, sagði Gunnar. Og komdu með uppsögnina. Og ég fór aftur til hans um haustið." — Manstu eitt verk öðrum fremur, sem þú vannst í ísafold? „Hvort ég man.“ Og nú fer Hafsteinn eina ferðina í bóka- vegginn. „Sjáðu þessa hérna." Hann leggur fyrir mig íslenzka þjóðhætti eftir Jónas Jónasson frá Hrafnagili. „Þetta er eitt af þeim verkum, sem ég hef komið nálægt, sem mér þykir hvað allravænst um. Ég var svo ungur og kunni svo lítið til verksins. Þessa bók hand- setti ég alla saman. Það tók heilt sumar. Hún er 500 blaðsíður, í þessu líka stóra „sölubroti". Ég man, hvað mér þótti mikið til um að fá þetta verkefni. Fram að því hafði ég verið mest í smáprentinu; „á letigarðinum", eins og einn vinnukrókurinn í ísafold var kallaður. En nú reyndi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.