Morgunblaðið - 14.12.1979, Page 13

Morgunblaðið - 14.12.1979, Page 13
Magnús Kjartansson Elds er þörf Greinasafn Magn- úsar Kjartans- sonar komið út MÁL og menning hefur sent frá sér bókina elds er þörf eftir Magnús Kjartansson. Bókin er gefin út í tilefni af sextugsaf- mæli höfundar á síðasta ári og hefur að geyma úrval úr grein- um hans og ræðum frá 1947— 1979. Árni Bergmann, Einar Laxness og óskar Halldórsson vöjdu efnið. í frétt frá útgáfunni segir: Magnús Kjartansson hefur stað- ið í fylkingarbrjósti íslenskra sósíalista um margra áratuga skeið sem ritstjóri Þjóðviljans, alþingismaður og síðast ráð- herra. Um nafn hans hefur ætíð staðið gustur enda hefur hann ráðið yfir þeirri ritleikni, hug- vitssemi og skopskyni sem hafa gert hann að beittasta penna íslenskra stjórnmála um langt árabil. Pólitískir andstæðingar Magnúsar kveinkuðu sér ósjald- an undan skeytum hans enda mun hann hafa verið oftar dæmdur fyrir ritsmíðar sínar en aðrir samtímamenn. Þetta ritgerðasafn Magnúsar endurspeglar glöggt þá um- brota- og átakatíma sem Magn- ús hefur lifað: Lífskjarabyltingu eftirstríðsáranna, hernámið og kalda stríðið, átökin um land- helgismálið, baráttuna um efna- hagslegt og menningarlegt sjálfstæði íslensku þjóðarinnar. Kápuskreyting er skopmynd af Magnúsi eftir Halldór Pét- ursson, en hönnun kápu er gerð af Þresti Magnússyni. Elds er þörf er 294 bls., prýdd mörgum myndum, prentuð í Prentsmiðj- unni Odda hf. ASIMINN KR: msn MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 1979 45 Opið til kl. 22 föstudag og laugardag & Vðrumarkaðurinn hl. Sími 86111 Léttreykt lambakjöt London lamb Úrbeinaö lambahamborgarlæri Úrbeinaöur lambahamborgarhryggur Heill lambahamborgarhryggur Svínakjöt Nýr úrbeinaöur svínabógur Reyktur úrbeinaöur svínabógur Nýr úrbeinaöur svínahnakki Reyktur úrbeinaöur svínahnakki Ný úrbeinuö svínalæri Reykt úrbeinaö svínalæri Svínakótelettur Reyktur úrbeinaöur svínahryggur Nýtt lambakjöt Úrbeinaö lambalæri fyllt meö ávöxtum Úrbeinaöur lambaframpartur fylltur meö ávöxtum Úrbeinaöur lambahryggur fylltur meö ávöxtum Úrbeinaö lambalæri Úrbeinaöur lambahryggur Úrbeinaður lambaframpartur Jólahangikjötiö Úrbeinuö hangilæri Niöursöguö hangilæri Úrbeinaöir hangiframpartar Niöursagaöir hangiframpartar Unghænur, kjúklingar Jólamarkadurinn í kjallara Iönadarmannahússins Hallveigarstíg 1 Opiö til kl. 10 í kvöld

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.