Morgunblaðið - 21.12.1979, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 1979
11
Albert Guðmundsson, alþingism.:
Mótmæli sérsköttun
atvinnuhúsnæðis
Albcrt Guðmundsson (S) mót-
mælti harðlega frumvarpi um
framlengingu sérstaks skatts
á verzlunar- og skrifstofu-
húsnæði, sem Sighvatur
Bjorgvinsson. fjármálaráð-
herra, mælti fyrir á Alþingi
fyrr í vikunni. Ræða þing-
mannsins fer hér á eftir:
Fjármálaráðherra hefur nú
mælt nokkur orð með því
frumvarpi, sem hér liggur
fyrir og gat þess, að markmið
með því væri að sporna við
gegndarlausri fjárfestingu í
verslunar- og skrifstofuhús-
næði. Ég vil halda því fram.
að þetta sé alrangt hjá hæst-
virtum ráðherra. Hér er
skattur á fasteignir, sem eru
þegar nýttar fyrir verslunar-
og skrifstofuhúsnæði. Hæst-
virtur ráðherra virtist rugla
saman nýbyggingarsjóðs-
gjaldi og þeim skatti, sem hér
er rætt um. Þetta gjald er til
viðbótar þeirri álagningu,
sem heitir nýbyggingargjald.
Herra forseti. Þetta frum-
varp til laga um sérstakan
skatt á verslunar- og skrif-
stofuhúsnæði, sem greiða skal
til ríkissjóðs, er að mínu viti
afar ranglátur skattur.
Það skal greiða af stofni
sérstaks eignarskatts eins og
hann er á fasteignamatsverði í
árslok 1979. Þessi sérstaki
skattur skal nema 1.4% af
þessum fasteignamatsstofni,
eins og hann verður í árslok og
er áætlað, að hann muni nema
um 1500 millj. kr., 1.5 milljörð-
um, á árinu 1980. Ég vil benda
háttvirtum þingmanni á þá
staðreynd, að fyrirtæki eiga
almennt í miklum rekstrar-
fjárvanda og íþyngjandi skatt-
ar af því tagi, sem hér um
ræðir, eru gjaldþoli þeirra
flestra, sem skattinn eiga að
greiða, um megn. Almennt eru
fyrirtæki veikt upp byggð, t.d.
vegna fjársveltis og ef taka á
af þeim meira en sanngjarnt
er í ríkishítina, þá endar það
með lokun fyrirtækjanna og
þar með er atvinnuöryggi
þeirra, sem við þessi fyrirtæki
starfa, stefnt í voða. Ég vil
mótmæla þessari skattlagn-
Albert
Guðmundsson.
ingu sem ákaflega óréttlátri,
en mun þó greiða atkv. með
því, að frumvarpi þessu verði
vísað til nenfdar í von um, að
þar hljóti það gaumgæfilega
athugun, sem vonandi verður
til þess, að nefndin geti orðið
sammála um, að þennan órétt-
láta skatt beri að leggja niður
og að hún telji að lokinni þeirri
athugun viturlegt að mæla
ekki með skattlagningunni eða
áframhaldi á þessari skatt-
píningu, en á árinu 1979 nam
þessi skattur samtals 1030
millj. kr. eða rúmum milljarði
samkv. skattskrá 1979. Og það
eru upplýsingar, sem koma
fram í athugasemd með þessu
frumvarpi. Það er ekki enda-
laust hægt að skattpína eða
mergsjúga fyrirtæki, hvorki
með endursamþykkt tíma-
bundinna laga, þegar þau falla
úr gildi, eða með nýjum álagn-
ingum. Ríkissjóður má ekki
endalaust verða óseðjandi.
Menn verða að gefa athafnalíf-
inu nokkra möguleika til
bjargar. Það verður ekki gert
með því að draga eigið fé
fyrirtækja í æ ríkari mæli út
úr arðbærum rekstri inn í
rikishitina, og ég vil segja við
ykkur, háttvirtir alþingis-
menn, gefið fyrirtækjum og
atvinnurekstrinum lífsvon,
dragið úr kostnaði við ríkis-
reksturinn. Þetta eru kosn-
ingaloforð flestallra ef ekki
allra stjórnmálaflokkanna að
ég held. Fækkið sköttum,
lækkið skatta og dragið úr
kostnaði. Það er þjóðarhagur.
Lögreglan
leiðbeinir
við kirkju-
garðana
UM JÓLIN eiga margir
erindi í kirkjugarðana í
Reykjavík. Ý msir þurfa að
fá upplýsingar um graf-
reiti, sem skrifstofa
kirkjugarða Reykja-
víkurprófastsdæmis veitir
á venjulegum skrifstofu-.
tíma.
Þar sem Þorláksmessu
ber upp á sunnudag má
búast við því, að margir
vilji nota þann dag til þess
að heimsækja kirkjugarð-
ana. Því verða upplýsingar
veittar á staðnum þann dag
frá kl. 10-12 og 13-17.
Jafnframt má benda
þeim á sem ætla neðst eða
syðst í Fossvogsgarð að
nota hliðið, sem er á girð-
ingunni fyrir neðan og
vestan bækistöðvar Skóg-
ræktarfélags Reykjavíkur,
en að öðru leyti mun lög-
reglan nú sem fyrr leið-
beina og aðstoða í umferð-
inni.
Frá Kirkjugörðum
Reykjavíkur.
Trudeau
Trudeau
kemur
aftur
Leiðir frjálslynda
í kosningunum
Ottawa 19. des. Reuter
PIERRE ELLIOT Trudeau,
fyrrverandi forsætisráðherra
Kanada ætlar að leiða Frjáls-
lynda flokkinn í þinifkosninv
unum i Kanada þann 18.
febrúar n.k. Í yfirlýsiniíu Tru-
deaus. sem var gefin út þcssa
efnis í gær, sagði, að hann
hefði orðið við eindreKnum
'áskorunum flokksmanna
sinna um að koma á ný til
forystu. en hann saífði af sér
formennsku flokksins i sl.
mánuði.
Trudeau sagði, að tækist
Frjálslynda flokknum að sigra
i kosningunum myndi hann
freista þess að mynda nýja
ríkisstjórn í Kanada.
Trudeau er nú sextugur að
aldri. Hann sagðist mundu
gera ráðstafanir til að bæta
efnahag landsins og sérstak-
lega yrði að huga að orkumál-
um. Trudeau sagði að hver sem
niðurstaða kosninganna yrði
myndi þetta verða síðasta kjör-
tímabil sitt.
Til kosninganna var boðað
eftir að stjórn Joe Clarks, sem
hefur setið síðan í maí, beið
lægri hlut í þinginu með sex
atkvæða mun.
SAMBYGGT STERÍÓSETT
UTSÖLUSTAÐIR Karnabær Laugavegi 66 - Karnabær Glæsibæ — Eyjabær Vestmannaeyjum - Hornabær Hornafiröi - Eplió Akranesi - Eplið Isafirði - Cesar Akureyri
Verð sem þ
á morgun
SHARP SG320 SHARP SG330
KR. 327.000.- KR. 395.000.-
Strax eftir jól trúir þú því ekki
aö hafa fengið hljómtæki meö
slík toppgæöi fyrir svona lítið verð
SG-320 SAMBYGGT STERÍÓSETT
TÆKNILEGAR UPPLVSINGAR
MAGNARAR: 2X15 WÖTT R.M.S.
UTVARP: 4 UTVARPSBYLGJUR, FM. FM STERIO, LW, MW. SW
PLÖTUSPILARI: HALFSJALFVIRKUR, S-ARMUR.
SEGULBAND: MEÐ <2 1 noa SJALFLEITARA
SG-330 SAMBYGGT STERIÓSETT
TÆKNILEGAR UPPLÝSINGAR:
MAGNARAR: 2 X 20 WÖTT R M.S,
UTVARP: 4 UTVARPSBYLGJUR. FM. FM STERIO. LW. MW. SW
PLÖTUSPILARI: HÁLFSJÁLFVIRKUR S-ARMUR.
SEGULBAND: MEÐ MQGQ SJÁLFLEITARA.
HÁTALARAR: 2 STK. 40 WÖTT, R.M.S. 40 OHM
HÁTALARAR. 2 STK. 40 WÖTT R.M.S. 4 OHM
MAGNETÍSKT PICK UP
1 • 1 • FIUKUF. f 1* . a,»>|
Bestu kaupm hvemig sem a er litið!
ááSjí^ HLJÓMDEILD
VmKARNABÆR
Laugavegi 66, 1. hæö. Simi frá skiptiborði 85055