Morgunblaðið - 21.12.1979, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 21.12.1979, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 1979 15 Reyðarfjörður: 13 stiga hiti í gær og einstök Royðarfirði. 20. dosembor. HER hefur í dag verið einstök veðurblíða. Hitinn komst í 13 stig, stafalogn var alveg fyrst í morgun en sunnan andvari þegar leið á daginn. I birtingu í morgun var himinninn rauður eins og við sólsetur á sumardegi og fegurðin slík að fólk átti varla orð til að lýsa henni. Enginn snjór er í veðurblíða bænum, en þó nokkuð hált á götum. Miklar rigningar hafa ver- ið að undanförnu, en í heildina verður ekki annað sagt en vetur- inn hafi verið sérlega blíður það sem af er. Jólasvipur er að komast á bæinn og fólkið í jólaskap, þó svo að veðrátta minni lítið á þann árstíma, sem nú er. Gréta. Jólalög á hádegistón- leikum Söngskólans Nýsköpunarstjórnin Leiörétting ÞAU mistök urðu í myndatexta í grein í Morgunblaðinu um „sögu- legar sættir“, að sagt var, að Jóhann Þ. Jósefsson hefði verið annar af ráðherrum Sjálfstæðis- flokksins í nýsköpunarstjórninni. Það var að sjálfsögðu Pétur Magn- ússon, þáverandi varaformaður Sjálfstæðisflokksins, sem átti sæti í nýsköpunarstjórninni af hálfu Sjálfstæðisflokksins ásamt Olafi Thors. Pétur Magnússon var fjár- mála-, viðskipta- og landbúnað- arráðherra í nýsköpunarstjórn- inni. Hann var einn nánasti sam- starfsmaður Ólafs Thors á þessum tíma og átti mikinn þátt í því ásamt Olafi að koma þeirri ríkis- stjórn á fót og tryggja árangur af störfum hennar þann tíma, sem hún sat. Jóhann Þ. Jósefsson átti hins vegar sæti í ríkisstjórn Sjálfstæð- isflokks, Alþýðuflokks og Fram- sóknarflokks („Stefaníu") frá 1947—1949 og var fjármála- og atvinnumálaráðherra í þeirri stjórn. Hann átti einnig sæti í minnihlutastjórn Ólafs Thors, sem sat að völdum frá 6. desember 1949 til 2. marz 1950 og var atvinnumálaráðherra í þeirri stjórn. Þetta leiðréttist hér með og er beðið velvirðingar á þessum mis- tökum. Ný hljómplata: Kveðja heim frá kór Strandamanna KVEÐJA heim. heitir ný hljóm- plata sem Kór átthagafélags Strandamanna hefur sungið inn á undir stjórn Magnúsar Jónssonar söngstjóra og við undirleik Jóninu Gisladóttur pianóleikara. Kór átt- hagafélags Strandamanna var stofnaður 1958 og hefur starfað síðan fyrst undir stjórn Jóns Péturs Jónssonar frá Drangsnesi og frá 1972 undir stjórn Magnús- ar. Á hljómplötu kórs Stranda- manna eru mörg kunn lög og má þar nefna Átthagavals Stranda- manna, Rís heil þú sól, Andvarpið, Svanur, I skógi, Kvöldljóð, Glaðir sem fuglar, Sumar er í sveitum, Úr útsæ rísa íslandsfjöll, Flóinn, Álft- irnar kvaka, Stefnumót, Lítill fugl og létta lagasyrpu með lögum Jóns Múla og Jónasar Árnasona. Dregið hjá L-lista happdrættinu DREGIÐ hefur verið í kosninga- happdrætti L-listans í Suður- landskjördæmi. Vinningar komu á nr. 1518, 596, 1764, 2000, 242, 151, 1824, 1600 og 1803. Vinninga má vitja í Samverk h.f. á Hellu, sími 5888. KÓR Langholtskirkju undir stjórn Jóns Stefánssonar mun syngja jóla- lög á 12. hádegistónleikum Söng- skólans í Reykjavík n.k. laugardag, 22. des. kl. 12.10. Þetta eru síðustu hádegistónleik- arnir á þessu ári, en ráðgert er að halda þessum sið áfram á nýju ári, því að tónleikunum hefur verið mjög vel tekið og þeir fjölsóttir. Margir af beztu listamönnum þjóðarinnar hafa komið fram á hádegistónleikunum. Þorlákshöfn: Inga, ný Þorlákshöfn. 20. des. NÝ verzlun var opnuð 8. desember s.1. Hún heitir verslunin Inga Unu- bakka 4. Eigandi hennar er Ingi- björg Einarsdóttir. Reykjabraut 10, Þorlákshöfn. Þarna eru á boðstólum snyrtivör- ur, rafmagns- og ljósatæki, klukkur, úr og skartgripir, svo eitthvað sé nefnt. Verzlunin er í húsnæði Ölfus- apóteks, sem nú hefur dregið saman verzlun seglin að nokkru leyti, en Ingibjörg starfar að hluta til hjá apóteki Ölfushrepps, við afgreiðslu lyfja svo og við sölu á ýmsum sjúkravörum. Þess má geta í leiðinni að í verzlun- inni er tekið við klukkum og úrum til viðgerðar. Þorlákshafnarbúar fagna að sjálfsögðu aukinni þjónustu og óska eiganda hinnar nýju verzlunar velfarnaðar. — Ragnheiður Mjólkurvöru- kynning KLÚBBUR matreiðslumeistara heldur árlega matarkynningu og basar n.k. sunnudag í veislu- sal Hótel- og veitingaskóla íslands í Sjómannaskólanum kl. 13-17. Kynntir verða að þessu sinni nýir ábætisréttir í samráði við Mjókursamsöluna og hafa klúbbfélagar fundið ýmsar upp- skriftir að réttum unnum úr skyri, ými, jógúrt, og sýrðum rjóma. Ágóðinn af basarnum rennur til útgáfu kennslubókar í matreiðslu fyrir Hótel- og veit- ingaskóla íslands. Lögreglublað- ið komið út LÖGREGLUBLAÐIÐ. 1. tölublað 14. árgangs, er nýkomið út og kennir þar margra grasa að venju.I ritnefnd eru Ingólfur Sveinsson, sem er ábyrgðarmaður, Hákon Sig- urjónsson og Þorgríntur Guð- mundsson. I blaðinu er m.a. að finna viðtal við Björn Sigurðsson formann Lögreglu- félags Reykjavíkur og greinar eru eftir Vilmund Gylfason ráðherra, Jónas Jónasson varðstjóra, Ólaf Ás- geirsson varðstjóra, Stefán Tryggva- son flokksstjóra, Þorstein Pétursson flokksstjóra, Guðmund Gígju flokks- stjóra, Ársæl Kr. Einarsson flokks- stjóra og Ragnheiði Davíðsdóttur lögreglumann. Margt fleira er í ritinu. Það fæst á Lögreglustöðinni í Reykjavík. SAFN ENDURMINNINGA MANASILFUR GILS GUÐMUNDSSON \ALDI Hér er að finna fjölbreytilegt sýnishorn minninga eftir fóik úr öllum stéttum, konur og karla, allt frá séra Jóni Steingrímssyni til núlifandi manna. Hér eru öðru fremur valdar frásagnir„þar sem lýst er með eftirminnilegum hætti sálar- og tilfinningallfi sögumanns- ins sjálfs eða hvernig hann skynjar tiltekin fyrirbæri tilverunnar, sé hann þess umkominn að veita lesandanum hlutdeild í lífsreynslu sinni," segir Gils Guömundsson í formála. MÁNASILFUR — skuggsjá íslensks mannlífs. Bræðraborgarstíg 16 Símii2923-i9i56 Eftirtaldir tuttugu og sex Anna Thorlacius Ágúst Vigfússon Árni Óla Bernharð Stefánsson Bjartmar Guðmundsson Briet Bjarnhéðinsdóttir Elínborg Lárusdóttir Gísli Jónsson Guðmundur Björnson höfundar eiga efni í bókinni: Guðmundur Jónsson Guðný Jónsdóttir Guöný Jónsdóttir Borgfjörð Hermann Jónasson, Þingeyrum Indriði Eiharsson Ingólfur Gislason Jón Steingrimsson Jónas Sveinsson Magnús Á. Árnason Magnús Pálsson Ólina Jónasdóttir Sigurður Breiðfjörð Sveinn Björnsson Sveinn Gunnarsson Tryggvi Gunnarsson Þorsteinn Jónsson Þórbergur Þórðarson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.