Morgunblaðið - 21.12.1979, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 21.12.1979, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 1979 19 Allir aldursflokkar eiga samleið með jólasveinunum. Jólasveinarnir: Þá fóru allir til kirkju FRAM að 1770 var þríheilagt á öllum stórhátíðum, en þá var það numið úr lögum. Víða var fólki þó gefið frí á þriðja í jólum fram undir miðja 19. öld. Fjór- heilagt varð ef aðfangadag eða fjórða bar upp á sunnudag og hét það brandajól. Síðan heita brandajól ef þríheilagt verður, en brandajól hin stóru nefndu menn þá fornu fjórhelgi, og eins ef Þorláksmessuna bar upp á sunnudag. Fram að 1774 var messað á jólanóttina og þóttu það svo mikil hátíðabrigði, að þá fóru allir til kirkju sem vettlingi gátu valdið. Oft var þá aðeins ein manneskja heima til þess að gæta bæjarins, en víða var það talið hættuspil þar sem huldu- fólkið sótti í það að koma heim á bæina og halda þar dansa sína og veizlur. Stundum bar það einnig við, að tröllin komu til þess að ná í þann sem heima var, en hver sá sem lét huldufólkið sjá sig eða að minnsta kosti gaf sig nokkuð í dansinn og gleðina með því, átti líf sitt í hættu eða hugarró. Þessi unga mær hefur komist yfir islenzkan skautbúning og skartar sínu fegursta eins og ailir gera á jólum. Teikning: Halldór Pétursson. En með vaxandi ljósmagni frá fallvötnum lands vors hefur sögnum fækkað og leikur skugg- anna er ekki eins tilþrifamikill á öld tækninnar þótt allt sem einu sinni var haldi að sjálfsögðu áfram á sinn hátt. Misjafnt er mannanna lán, en aldrei verður hamingjan metin í veraldlegum gæðum þótt gott sé að hafa aðgang að þeim. Aðeins vegna styrkleika hugsunarinnar og afstöðu fólks til hins jákvæða geta allir notið þess friðar sem jólahelgin býður mannfólki, frið- ar þess, sem með trú sinni kann bæði lítillæti og þakklæti. - á.j. Gluggagægir Ilalldórs Péturssonar er þarna að æfa sig fyrir jólaferðalagið með annað augað dregið í pung en hitt á útopnu. jr Islenzka efnahags- spilið komið út KOMIÐ er út fjöskylduspilið „íslenzka efnahagsspilið'* og geta þar allt að 6 spilað. Sigurvegari er sá, sem fyrstur nær ákveðinni verðmætaupphæð. t.d. 1.500 millj- ónum króna. A kassanum utan um spilið eru nokkur heilræði, sem kannski gefa einhverja hug- mynd um spilið. Þar stendur m.a.: ..Skuldastund gefur gull í mund“. „Greitt lán er glatað fé“ og „Verðbólgið hús er hamingju betra“. í spilinu eru svokölluð lukku- kort. Til gamans verða hér til- greindir textar nokkurra „lukku- korta“: „Stjórnmálaflokkur þinn kemst til valda. Þú færð nýja og betri stöðu og aðstöðukort að eigin vali. Sé ekki til aðstöðukort má geyma þetta lukkukort." „Þú kaupir mikið magn af steinsteypu fyrir síðustu verðhækkun og selur aftur eftir hækkun og hagnast um 13 milljónir." En öll lukkukortin í spilinu eru ekki svona hagstæð. Sem dæmi má hér nefna: „Þú kaupir bensín á tunnur fyrir 7 milljónir króna áður en gengisfelling skellur á. Bensínið geymir þú í í bílskúrnum þínum og í kjallaranum hjá Gulla frænda þínum. Eldvarnarstofnun ríkisins þefar bensínið uppi. Þú tapar öllu og greiðir kr. 14 millj- ónir í sekt til bankans." „Þú fréttir að banna eigi innflutning á víngerðarefnum og kaupir mikið magn, sem þú geymir i kyndiklef- anum. Hiti og raki hafa óheillavænleg áhrif á birgðirnar. Þú tapar 5 milljónum." A morgun laugardag Nýr og betri kabarettbakki Forréttur: Chanttlly rækjur Aöalréttur: Hamborgarhryggur, kjúklingur, heilsteikt og niöurskorið nautafillet og síöast en ekki síst jaröarberja fromage t eftirrétt. Verð kr. 3.850- KRAltt VIÐ HLEMM Sími24633 Sérstakleya á lækk- udv verði bjóðum við hálfar brauðsneiðar, blandað ádegij 6—8 teyundir á kr. 990- Spariö ykkur tíma og fyrirhöfn. Viö sendum án endurgjalds. Okkar vegna, pantiö tímanlega. Pantanasímar: 25640 — 25090 — 20490. ÍBiiaMIMMMMMÍÍlMMMB

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.