Morgunblaðið - 21.12.1979, Side 22

Morgunblaðið - 21.12.1979, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 1979 Ásgeir Þórhallsson: Gæjar í sjóferð Laugrdag síðastliðið haust festi ég svartan utanborðsmótor á op- inn hvítan plastbát, í vör í Sörla- skjólinu; klukkan var að ganga fimm og sól var lágt á lofti. Þrír kunningjar mínir stóðu hjá, Jök- ull, Guðbergur og Jón. Grasið á sjávarkambinum var orðið gult og frosið; njólarnir stirðnaðir. Ýldu- fýlu lagði frá samanhnoðuðum þara í fjörunni. Seglbátar voru orðnir sjaldséðir á Skerjafirðin- um. Bjart var yfir en bára. Fallið var hálfa leið. Þrír krakkar köst- uðu grjóti í sjóinn. í bátnum voru rauðar þóftur, blá plitt, ein ár, eitt gult björgunarvesti, rauður bensínbrúsi. Ég var klæddur hvítri lopapeysu og snjáðum galla- buxum. Guðbergur, sem er sterk- byggður, með rauða derhúfu, í klofstígvélum, klæddur lopapeysu. Jón, dökkur yfirlitum, á stuttum flauelisjakka og bol innan undir. Jökull var á stígvélum en stuttum jakka. Ég var tuttugu og fimm en þeir um tvítugt. Gamall fíngerður maður, með hátt enni og kónganef, kom niður í fjöru á inniskóm. „Ásgeir minn, þú ferð ekki að fara út á sjó núna. Það er hálfpartinn kominn vetur. Ykkur verður kalt.“ „Pabbi, þú ert búinn að lána mér bátinn. Ekki skipta þér af því hvernig ég útbý mig á sjó.“ „Eruð þið með vettlinga og húfur?" „Þarf maður að taka hálfan heiminn með í smá veiðitúr?“ „En góði besti farðu ekki með strákana svona undir myrkur." „Er ég að fara á*sjó eða þú.“ „Ertu með báðar árarnar?" „Hin árin er ónýt.“ „En ef eitthvað kemur nú fyrir?" „Það kemur ekkert fyrir. Vélin er nýkomin úr viðgerð." Ég setti trékassa með handfær- um um borð og sagði: „Jæja, drögum bátinn á flot.“ Við drógum bátinn út í þar til aðeins stefnið stóð á þurru. Jökull og Jón klofuðu um borð og settust á miðþóftuna, ég fór aftast og byrjaði að tengja svarta gúmmí- slöngu við mótorinn. „Eru þið með björgunarvestin?" sagði faðir minn. „Við höfum gleymt hinum vest- unum uppi í bílskúr," sagði Guð- bergur. „Maður drepst í sjónum á fimm mínútum úr kulda svo að það skiptir engu. Drífum okkur." „Eru þið með fötu til að ausa með?“ „Hvað heldurðu að þess þurfi. Svona ýttu frá landi." Guðbergur ýtti bátnum, óð út í og stökk upp á stefnið. Jökull stjakaði frá með árinni. Ég dældi bensíni inn á vélina og kippti í spotta. „Heldurðu að það borgi sig nú að fara svona á sjó,“ kallaði faðir minn og hafði myndað gjalllúður með lófunum. Vélin hrökk í gang og báturinn brunaði af stað. Faðir minn stóð í fjörunni og ég sá að hann hélt áfram að kalla. Opinn seglbátur var að sigla inn fjörðinn, við tókum krók á leið okkar til að skoða hann. Seglbát- urinn var á lensi og höfðum við varla við honum. í bátnum voru tveir menn í rauðum samfesting- um og með björgunarvesti, vettl- inga og húfur. Svo var stefnan tekin út fjörðinn, þá byrjaði að gefa á bátinn. „Hvaða vatn er í bátnum?“ sagði Jökull, lyfti fótum og leit á mig. „Þetta er bara ágjöfin." „Er engin fata til að ausa með?“ „Þetta er allt í lagi.“ Sjórinn í bátnum jókst og brátt fóru plittin að fljóta. „Kva, helvíti kemur mikið vatn inn í bátinn," sagði ég er við vorum farnir að nálgast Suðurnes- ið. Hinir horfðu þögulir niður fyrir sig. „Þetta getur ekki allt komið frá ágjöfinni. Það hlýtur að leka með viðgerðinni. Það var smá gat sem ég fyllti í með plastfyllingarefni. Andskotans. Við verðum að fara í land og finna eitthvað til að ausa með.“ Stefnan var tekin á nesið. Á Suðurnesinu var gruggug tjörn, grasbalar og fólk með der- húfur að spila golf. Við dóluðum eftir fjörukambinum, tómar kræklingaskeljar og skorpinn þari molnaði undan fótum okkar. Hár- toppar feyktust í golunni. í fjör- unni var rekaviður og netakorkur. Við fundum þrjá plastbrúsa og einn terpintínu-dunk úr blikki. Ég tók til við að skera botninn úr plastbrúsunum og djöflaðist á dunknum. „Geiri í ofsa framkvæmdum, búinn að setja upp smíðaverk- stæði," sagði Jökull og þeir hlógu að mér. Ýtt var frá landi eitt plittið tekið upp og ausið; förinni var haldið áfram. Er báturinn silaðist fyrir nesið kom kvika á móti. Það byrjaði að gefa yfir bátinn og allt laust kastaðist til. Guðbergur, sem sat fremst, ríghélt sér þegar báturinn skelltist ofan í öldudalina, svo að gusaðist yfir hann. Keyra varð á hálfri inngjöf. Guðbergur klæddi sig í björgunarvestið, það skýldi. Jón, sem var í strigaskóm, setti fæturna upp á veiðarfærakassann og faldi sig á bak við Jökul. Ég fékk skvettur í andlitið og lopa- peysan drakk sjóinn í sig og það gustaði í gegnum lopann. Loks er við vorum komnir út fyrir Gróttu, þar sem renna átti færum, var sólin orðin gul. Jökull og Guðberg- ur renndu færum, Jón sat í hnipri og fylgdist með. Ég þurfti að ausa. Af snertingu við vatnið urðu hendur mínar bláar af kulda. „Það er ekki branda hér, eigum við ekki að fara heim,“ sagði Jökull í gamansömum tón. „Einn ofsa fljótur að gefast upp,“ sagði Jón, og það var hlegið. „Það er ekkert að marka fyrr en ég byrja,“ sagði ég og greiddi úr færinu. Á færinu voru þrír önglar með gúmmíbeitu, neðst var ryðguð sakka. Ég lét renna í botn. Um leið fann ég að kippt var í og fiskur djöflaðist á færinu. Steinhissa byrjaði ég að hífa inn. „Já, já. Við trúum þér alveg." Á færinu var miðlungsstór þaraþyrsklingur og spriklaði hann Jökull með einn þaraþyrsklinginn. Guðbergur sat i stefni. Segibáturinn Jökull við stjórnvölinn seglbáturinn sést á leið inn í Nauthólsvík.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.