Morgunblaðið - 20.01.1980, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JANÚAR 1980
51
ÁKAFI
Kaupmaður nokkur var maðurinn var að lesa Morg-
kominn í búð sína klukkan unbiaðið, en drengurinn
sjö að morgni. Fimm stóð þegjandi og beið. Eftir
mínútum síðar sá hann tveggja mínútna bið ræskti
lítinn, prúðan og snyrti- hann sig og sagði:
legan dreng standa fyrir „Afsakið, herra, en ég er
framan búðarborðið. Kaup- að flýta mér.“
Kaupmaðurinn leit upp.
„Hvað vilt þú?“ spurði
hann.
„Ég vil fá vinnu, ef þér
hafið eitthvað handa mér
að gera.“
„Jæja,“ sagði kaup-
maðurinn. „Viltu það? En
af hverju ertu að flýta
þér?“
„Skóianum lauk í gær, og
ég hef ekkert fengið að gera
enn. Ég má ekki eyða
tímanum. Ef ég fæ ekkert
að gera hér, verð ég að fara
eitthvað annað."
„Hvenær getur þú kom-
ið?“ spurði kaupmaðurinn.
„Ég er kominn og gæti
verið byrjaður að vinna, ef
þér vilduð."
Nokkrum mínútum síðar
var drengurinn farinn að
vinna. Hann reyndist hinn
ötulasti verkamaður, og
líkaði kaupmanninum svo
vel við hann, að hann gerði
hann síðar að meðeiganda
sínum, er drengurinn hafði
lokið öllu námi sem ungur
maður.
„Tíminn er dýrmætur.
Því fyrr sem þú lærir að
nýta hann vel þeim mun
betra."
KALLI
KOKKUR
Kalli á úr vöndu að ráða. Hann vantar
tvo hnífa i eldhúsið, sem eiga að vera
nákvæmlega eins. Getið þið hjálpað
honum að finna þá?
Sendið þulur,
ljóð, frumsamdar
sögur og teikningar
MARGIR voru duglegir að senda
Barna- og fjölskyldusíðunni sögur og
teikningar í síðasta mánuði. Við kunnum
þeim öllum bestu þakkir og hvetjum bæði
þá og ekki síst þá, sem ekki hafa sent
okkur efni — að senda blaðinu frumsamið
efni. Sérstaklega viljum við hvetja foreldra,
forráðamenn barna og aðra þá sem
umgangast börn að meira eða minna
leyti til að örva börnin til skapandi
tjáningar.
Skemmtilegast þykir okkur þegar
efnið er fjölbreytt svo sem sögur, kvæði
þulur, gátur, skrýtlur, þrautir o.s.frv.
Um leið og við sendum þessar
kveðjur okkar viljum við einnig þakka
þeim kennurum, sem sendu okkur efni fyrir
áramót og létu nemendur sína vinna
ákveðin verkefni fyrir blaðið.
Ur Islandssögunni - Uni danski
Teikningar & texti
Friðrik G. Sturluson
LlN\ VA^ ^aNUf^.
NDKíKiJA
V.