Morgunblaðið - 31.01.1980, Page 1

Morgunblaðið - 31.01.1980, Page 1
40 SÍÐUR 25. tbl. 67. árg. FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 1980 Prentsmiöja Morgunblaðsins. Utanrikisráðherra írans: Kanadamenn fá að standa skil á gerðum sínum Toheran — Ottawa — 30. janúar — AP SADEGH Ghotbzadeh, utanríkis- ráðherra írans. sagði í dag að Kanadamcnn myndu bera alla ábyrgð á því, ef meðferð gislanna í handariska sendiráðinu í Teher- an versnaði i kjölfar þess að kanadískir diplómatar smygluðu sex bandariskum koílegum sínum frá íran í gær. Sagði ráðherrann, að Kanadamenn mundu fyrr eða síðar gjaida þess að hafa átt þátt i að koma Bandarikjamönnunum úr landi. það athæfi hefði verið lögleysa og byggst á skjalafölsunum og öðr- um grófum brotum á alþjóðalög- um. Flora MeDonald utanríkisráð- herra Kanada gerði í dag lítið úr hótunum Iransstjórnar og sagði að Kanadastjórn hefði ekki átt annars úrkosta en hjálpa Bandaríkja- mönnunum að komast frá Iran. Roger Lemelin, útgefandi kana- díska blaðsins La Presse, hefur skýrt frá því, að blaðinu hafi frá því í desember verið kunnugt um að sex Bandaríkjamenn hefðust við í kanadíska sendiráðinu. Hins veg- ar hefði ekki verið skrifað um málið í blaðið af ótta við að það kynni að stefna lífi fólksins í hættu. Clark forsætisráðherra Kanada staðfesti í dag, að sér og stjórn sinni hefði verið kunnugt um það frá upphafi, að skotið hefði verið skjólshúsi yfir þetta fólk í kanadíska sendiráðinu. Hefði Tru- deau leiðtogi stjórnarandstöðunnar einnig vitað um málið. Clark gagn- rýndi Trudeau fyrir að hafa sakað stjórn sína um að taka of vægilega til orða um töku gíslanna í banda- ríska sendiráðinu, þar sem hann hefði þá vitað um sexmenningana í sendiráði Kanada í Teheran. V estur-Þýzkaland: 2,5% hagvöxtur í ár Itonn, 30. janúar. AP. BÚIZT er við því, að þjóðarfram- Iciðslan í V-Þýzkalandi aukist um rúmlega 2,5% á þessu ári, að því er segir í árlegri skýrslu Bonnstjórn- arinnar um efnahagsmál, sem gefin var út í dag. Búizt er við því, að lítil breyting verði á atvinnuástandinu í landinu, en hins vegar er nokkur hætta talin á að verðbólga aukist lítið eitt. Atvinnuleysi í V-Þýzkalandi er nú um 4%, en verðbólgan 4,5%. Otto Lambsdorf efnahagsmálaráðherra V-Þýzkalands sagði í dag, að hag- vöxturinn í ár yrði heldur minni en áður hafði verið spáð, en hins vegar öllu meiri en í flestum öðrum iðnvæddum ríkjum. Til silungsveiða á flugvél ÞAÐ ER ekki algengt að menn bregði sér upp á heiðar um hávetur til silungsveiða og enn óalgengara að menn fari í slikar veiðiferðir á flugvélum. Á myndinni sést Guðmundur Hilmarsson flugmaður draga vænan urriða úr Mjóavatni á Mosfellsheiði s.l. sunnudag en þangað fór hann s.l. sunnudag með félaga sinum Þorláki Jóhannssyni. Nánar segir frá veiðiferðinni á bls. 23. Hermenn S-Afríku burt frá Rhódesíu Salisbury. 30. janúar. AP. NOKKRIR tugir s-afrískra hermanna, sem dvalið hafa í Rhódesíu, voru í dag kvaddir heim. Litið er á brottför þeirra sem táknrænan sigur fyrir skæruliðaforingjana Nkomo og Mugabe og stuðningsmenn þeirra meðal ráðamanna í Afr- íku, en þessir aðilar hafa lengi krafizt þess, að her- menn S-Afríku yrðu á brott. Hermennirnir hafa haft gætur á Beit-brúnni á landamærum S-Afríku og Rhódesíu og haft aðsetur Rhódesíumegin brúarinn- ar. Brú þessi hefur mikilvægu hlutverki að gegna í viðskiptum landanna. Soames, brezki land- stjórinn í Rhódesíu, hefur til þessa ekki talið nauðsynlegt að senda s-afrísku hermennina burt, en féllst á það í dag. Nkomo, sem kom fyrir nokkru til Salisbury, sagði á blaðamanna- fundi í dag, að byrjað væri að sameina stjórnarherinn í landinu skæruliðaherjunum og hefðu fyrstu skrefin verið stigin í átt til stofnunar nýs hers í landinu, sem allir fyrrum stríðandi aðilar í Rhódesíu ættu aðild að. Hundruð Afgana í fang- elsum í Sovétríkjunum Ixindon. Kahul. 30. janúar. AP. MARGT bendir til þess, að mörg hundruð afganskir fangar séu nú i haldi i fangelsum og vinnubúð- Trudeau Simone Veil Ólympíuleikarnir í Moskvu: Trudeau og Simone Veil vilja hætta við þátttöku París — Toronto — Madrid — Essen — Kaupmannahöfn — 30. jan. — AP. SIMONE Veil, íorseti Evrópu- þingsins, hefur sagt, að hún sé fylgjandi því, að þjóðir heims mæti ekki á Olympiuleikana á sumri komanda verði þeir haldn- ir i Moskvu. Frú Veil var áður ráðherra í stjórn Giscards d’Es- taings Frakklandsforseta, en hann hefur lýst sig fylgjandi því að sendir verði keppendur á leikana í Moskvu. Trudeau, leiðtogi stjórnarand- stöðunnar í Kanada, sagði í dag, að hann mundi styðja það, að engir keppendur yrðu sendir til Moskvu, ef sú ákvörðun yrði liður í sam- ræmdum aðgerðum gegn Sovétríkj- unum, sem mörg lönd kæmu sér saman um. Clark forsætisráðherra Kanada hefur þegar lýst sig and- vígan þátttöku Kanadamanna í Olympíuleikunum, verði Sovét- menn ekki farnir með her sinn frá Afganistan fyrir 20. febrúar. Spánski kommúnistaleiðtoginn Santiago Carillo sagði í dag, að það væri fásinna að ætla að hundsa Olympíuleikana og að Spánverjar ættu vitaskuld að senda þangað keppnismenn. I Kaupmannahöfn áttu for- svarsmenn dönsku olympíunefnd- arinnar fund með Olesen utanríkis- ráðherra og Mathiasen menningar- málaráðherra, þar sem rætt var um þátttöku Dana í Olympíuleik- unum. Eftir fundinn sagði Olesen að ákvörðun um þetta væri alfarið í höndum olympíunefndarinnar og íþróttasamtakanna. Möller forseti dönsku olympíunefndarinnar sagði eftir fundinn að nefndin væri ákveðin í að senda keppendur á leikana. Forseti v-þýzka íþróttasam- bandsins sagði í dag, að hann teldi mjög ólíklegt að V-Þjóðverjar hættu við þátttöku í Olympíuleik- unum. um í Sovétríkjunum, að því er Times í London skýrir frá í dag í frétt frá fréttaritara blaðsins í Kabul. Robert Fisk. Fisk hefur- borizt í hendur bréf frá einum þessara fanga, trúarleiðtoga að nafni Waez, en bréfi þessu var laumað út úr fangelsi og komið til ættingja mannsins i Kabul. í bréfinu segir Waez, en hann var handtekinn eftir byltinguna í Afganistan 1978, að hann og hundruð annarra afganskra fanga séu í haldi í Rússlandi og dvelji þeir í vinnubúðum í Tula rúmlega 200 kílómetra suður af Moskvu. Ættingjar mannanna hafa til þessa talið þá af. Miklir herflutningar voru til flugvallarins í Kabul í dag, að því er farþegar, sem þaðan komu með indverskri áætlunarflugvél, sögðu fréttamönnum í Nýju Delhi. Að sögn farþeganna lentu margar sovézkar vélar með hermenn og hergögn á flugvellinum og voru allar vélarnar losaðar í mikilli skyndingu. V-þýzkur vörubílstjóri, sem saknað hafði verið í Afganistan, skýrði í dag frá því, að hann hefði verið tekinn fastur af uppreisnar- mönnum og fengið slæma meðferð þar til hann gat fullvissað þá um að hann væri ekki Rússi. Félagi mannsins var drepinn af upp- reisnarmönnum. Af lýsingu vöru- bílstjórans virðist mega ráða, að uppreisnarmenn hafi stóran hluta Austur-Afganistans á valdi sínu. Peacock utanríkisráðherra Ástralíu sagði í dag, að stjórn Ástralíu mundi liðsinna þjóðum, sem væru í hættu vegna innrásar Sovétríkjanna í Afganistan. Pea- cock, sem staddur er í Islamabad, sagði að Ástralía mundi auka efnahagsaðstoð sína við Pakistan. Sovézk áhrif á N-írlandi? Dublin. 30. janúar. AP. SENDIHERRA Bandaríkjanna á írlandi, William V. Shannon, var- aði í dag við því, að Sovétríkin kynnu að seilast með „kámugar krumlurnar" til Norður-írlands. Sendiherrann sagði, að Sovét- mönnum gæti ótvírætt verið akk- ur í því að ala á sundrungu og óvild á Norður-írlandi, þótt ekkert lægi fyrir um það að þeir hefðu seilzt þar til áhrifa til þessa.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.