Morgunblaðið - 31.01.1980, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 1980
17
heimilar konum, sem samkvæmt
lögregluskýrslu hefur verið nauðg-
að, að eyða fóstri sínu. Auðvitað
eru slík tilfelli algert undantekn-
ingatilfelli, enda vafalaust fæstar
blaðafréttir, sem um þetta mál
fjalla, hreinar nauðgunarfréttir.
Gildir hér það sem stundum er
sagt, að sjaldan veldur einn þá
tveir deila. Hér þarf að kalla ungt
fólk til ábyrgðar á lífi sínu og lífi
annarra. En auðvitað verður að
gera ráð fyrir hreinum riauðgun-
artilfellum. Það breytir hins vegar
engu um réttarstöðu barnsins. Þó
að barn komi í heiminn utan
hjónabands, hefur það sömu rétt-
indi í dag eins og hjónabandsbarn.
Sama rétt á barn, sem frjóvgast í
móðurkviði í skjóli valdbeitingar.
Syndir feðranna eiga ekki að
koma niður á börnunum. Ef hins
vegar mæður lentu í slíkri ógæfu
að ganga með börn eftir sitt
hatursfólk (ef við gerum ráð fyrir
að við elskum ekki óvini okkar,
eins og Kristur boðar) myndi slík
meðganga verða mun léttari, ef
mæður tækju tillit til lífsréttarins
og virtu hann. Það er hins vegar
auðveldara að segja hlutinn, en
verða fyrir honum, en það breytir
ekki nokkru um réttmæti minna
röksemda.
— Verðum við ekki samt, segir
nú konan, að treysta sérfræðing-
unum fyrir því að úrskurða rétt
um það, hvort um afbrigðilegt líf
er að ræða eða ekki?
— Þetta er ekki fyrst og fremst
spurningin um það, hvort þeim sé
treystandi eða ekki. Aðalatriðið er
það, að þeir hafa ekki heimildir
frekar en ég og þú til að sniðganga
lífsréttinn, þótt þeir hafi háskóla-
próf. Þeir hafa ekki rétt til þess að
setja mörkin milli lífs og dauða.
Það er aðalatriðið. Hér skiptir
ekki máli, hvort þeir heita félags-
fræðingar, læknar eða lögreglu-
menn. En úr því þú spurðir mig
hvort þeim væri treystandi, ætla
ég að segja þér, að til dæmis
geðlæknar eru síður en svo sam-
mála um það, hvað sé afbrigðilegt
og hvað ekki. Meira að segja eru
sérfræðingar ekki vissir um það í
mörgum tilvikum, hvort eitthvað
sem þeir telja afbrigðilegt, t.d. hjá
ófrískri konu, sé hægt að lækna,
eða hvort það er að öllu leyti háð
erfðum. Einnig er breytilegt eftir
tímum hvenær eitthvað telst af-
brigðilegt og meira að segja fer
það stundum eftir því, í hvaða
landi við erum stödd! Svona er nú
nákvæmnin mikil hjá sérfræðing-
um.
Eftir stutta þögn hélt ég áfram:
Aðalatriðið er og verður þetta:
Mannlegu lífi verður að þyrma.
Við höfum ekki heimildir né getu
til að tortíma lífi og getum ekki
farið í manngreinarálit. Þetta
gildir um allt mannlegt líf, frá
frjóvgun til dauða.
— Er þá fóstureyðing morð,
spurði konan.
— Já, sagði ég, morð.
— Ég þarf að hugsa þetta mál
betur, sagði konan, en ég þakka
þér fyrir merkilegt og gott samtal.
Þakka þér og vertu blessaður.
— Já, þakka þér sömuleiðis og
vertu blessuð.
íslenskir íþróttamenn tóku
fyrst þátt í Ólympíuleikum 1908.
Þar gátu þeir í fyrsta sinn komið
fram sem sérstök þjóð meðal
þjóða, er þeir sýndu þjóðaríþrótt
sína, glímuna. Það var stoltur
hópur, sem gekk inn á leikvanginn
í London þann sumardag. Það að
geta verið á Ólympíuleikum sem
sérstök þjóð var mikill sigur þá og
æ síðan eru Ólympíuleikarnir og
þátttaka íslands þar ekki svo lítill
liður i okkar stöðugu sjálfstæðis-
baráttu. Því ber að heiðra þá og
sækja, þótt ekki séu sóttir þangað
dýrir málmar. yið gkulum minn.
ast frumkvöðlanna, sem unnu
hinn stóra sigur 1908, með því að
ljá ekki nafn íslands í grafskrift
Olympíuleikanna. Falli þeir niður
nú, verða þeir vafalaust aldrei
aftur haldnir. Jafnviðamikið
fyrirtæki og þeir eru nú er ekki
nema á valdi stórvelda að halda og
hvenær hafa stórveldi verið til
friðs? Ég spyr.
tW ) .s
UM árabil hafa brunaverðir
farið í eftirlitsför um hverfi
borgarinnar og var slík ferð
farin fyrir skömmu í Mið-
bæinn og þá komið við í
Grjótaþorpinu. Þar voru að
undirlagi slökkviliðsins gerð-
ar ráðstafanir til þess að
halda opinni „neyðaraðkomu“
inn í húsaþyrpinguna og
skilti sett á staur. Er þá
auðvitað bannað að loka
þeirri leið með því að leggja
bílnum sínum þar. Bað
slökkviliðið blaðið að birta
þessa mynd, sem einmitt sýn-
ir hvernig bíleigandi einn
hefur gjöarsamlega hundsað
skiltið með áletruninni:
Slökkvilið — Neyðaraðkoma!
Svona skeytingarleysi getur
orðið æði afdrifaríkt, það er
óhætt að bóka það. Og er enn
ein sönnun þess, sem margir
halda fram, að íslendingar
séu margir mjög tillitslausir.
Verö: Ca. 3.495. þús.
Verö: Ca. 3.130. þus.
i*
1200
Siðastliðið ár og það sem
af er þessu ári, er LADA
mest seldi bíllinn.
Það er vegna þess að hann
er á mjög hagstæðu verði, og
ekki síst, að hann er
hannaður fyrir vegi sem okkar.
Nu eru allir LADA bilarmeð
höfuðpúðum, viðvörun-
arljósum ofl. ofl.
Verö: Ca. 5.320. þús.
Verö: Ca. 3.750. þus.
Verö:Ca. 3.570. þus. <
LADA station er hægt að fá með 1200 sm3 eða 1500 sm3 vél.
LADA „er mest setdi 0111100” BIFREIÐAR & LANDBUNADARVELAR Suðurlandsbraut 14, sími 38600
Góöir greiösluskilmálar Söludeild sími 312 36