Morgunblaðið - 31.01.1980, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 31.01.1980, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 1980 5 ósent þeirra sem kaupa ltóbak eru unglingar“ Þar sem mentóltóbakið er selt i einhverjum mæli eru flestir kaupendanna unglingar. NEFTÓBAK blandað mentóli hefur rutt sér til rúms hér á landi. Hefur fræðslustjóri Reykjavíkur tjáð borgarlækni áhyggjur sínar vegna þess að skólabörn séu í miklum mæli farin að nota þess konar tób- ak. Mbl. fór í gær á stúfana til að kanna sölu á mentóltóbakinu og fór meðal annars í söluturna nálægt skólum borgarinnar. í einum þeirra, í nágrenni Voga- skóla, kannaðist afgreiðslu- stúlkan ekki við slíkt tóbak. Axel Björnsson afgreiðslu- maður á Pussycat bar sagði, að mikið væri keypt af þessu mentólblandaða tóbaki sem gengur undir nafninu „Snuff“. „Það eru aðallega unglingar sem kaupa þetta, u.þ.b. 70% þeirra sem tóbakið kaupa. Það kemur fyrir að ungir krakkar koma hingað og ætla að fá „snuff“ en við vitum að þeir ætla að nota það sjálfir og viljum ekki selja þeim slíkt. Þetta er jú tóbak.“ í Miðbæ við Háaleitisbraut sagði Halldóra Eyjólfsdóttir afgreiðslustúlka að mentóltób- akið væri nýkomið til þeirra og hún hefði ekki selt nema eina dós. I einum söluturni í miðbæ Reykjavíkur fengust hins vegar þær upplýsingar, að tóbak þetta stæði ekki viö og mikill Axel Björnsson hjá Pussycat bar með dós af mentóltóbaki. „Það eru aðallega unglingar sem kaupa þetta.“ meirihluti þeirra sem það keyptu væru unglingar. Mentólið sem blandað er í tóbakið deyfir mjög hina eigin- legu tóbakslykt en mun hins vegar hafa sömu áhrif og venjulegt tóbak. Myndir Emilía. Halldóra Eyjólfsdóttir i sölu- turni í Miðbæ. Hún hafði aðeins selt eina dós af tóbakinu. V iðskiptaf ull- trúi Portúgals í heimsókn hér HÉRLENDIS er nú stadd- ur viðskiptafulltrúi Portú- gals, Joao de Sousa Mach- ado til viðræðna við ýmsa aðila sem hafa með hönd- um viðskipti við Portúgal. Sousa Machado tók við for- stöðu viðskiptaskrifstofunnar í Ósló, sem hefur með íslenzk viðskipti að gera, á sl. sumri. Hann mun hitta að máli þá sem flytja inn frá Portúgal og/eða hafa áhuga á að fá upplýsingar um atriði þar að lútandi, svo og ýmsa aðra þá sem við þessi mál fást. Hann dvelur hér til 7. febrúar. Joao de Sousa Machado. „Leiftursókn möppudýranna66 MEÐ einu pennastriki hyggst nú fjármálaráðherra gjörbreyta stöð- unni í bjórmálinu. Það er ljóst að bjórmálið er eitt heitasta deilumál hér á landi að pólitískum deiluefn- um slepptum. Nær árvissar deilur hafa orðið um bjórmálið á Alþingi án þess nokkru sinni að það hlyti afgreiðslu þar. Því hefur oft verið rætt um að skjóta því undir dóm þjóðarinnar með þjóðaratkvæða- greiðslu. Engum hefur nokkru sinni dottið í hug að gera ætti út um bjórmálið í ráðuneytum „möppudýranna". Það þarf ekki að fjölyrða um rök með eða móti bjór. Né heldur skal hér rætt um jafnan rétt ferðamanna og far- manna. Hér er einfaldlega verið að taka afgerandi skref í stór- kostlega viðkvæmu og umdeildu máli af bráðabirgðaráðherra. Þetta er ekki drengilegt og ég get tæpast trúað því að sá flokkur sem áður var í fararbroddi þeirra er hvað harðast börðust gegn áfeng- isvandamálinu ætli nú að freista þess að innleiða áfengt öl á íslandi með „leiftursókn" úr Arnarhvoli. Reykjavík, 30. janúar 1980 Ragnar Tómasson Stórviöarsögin meö bensínmótor. BlaÖlengd 410 mm og sjálfvirk keðju- smurning. Vinkilslípivél til iönaöarnota. Þvermál skífu 7”. Hraði: 8000 sn/mín. Mótor: 2000 wött. ÞEIR, SEM VILJA VÖNDUÐ VERKFÆRI, VELJA SKIL Einkaumboö á islandi fyrir Skil rafmagnshandverkfæri. FALKIN N SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670 Óviöjafnanlegur hefill meö nákvæmri dýptarstillingu. Breidd tannar:3". Dýptarstilling: 0-3.1 mm. Hraöi: 13.500 sn/min. Mótor: 940 wött. Eigum einnig fyrirliggjandi margar fleiri geröir og stærðir af Skil rafmagns- handverkfærum, en hér eru sýndar, ásamt miklu úrvali hagnýttra fylgihluta. Komið og skoöiö, hringið eða skrifið eftir nánari upplýsingum. Jafnan fyrirliggjandi í miklu úrvali RAFMAGNSm HANDVERKFÆRI Borvél og fleygur, sérlega hentug fyrir rafvirkja, pipulagningamenn og byggingameistara. Tekur bora upp i 32 mm og hulsubora upp i 50 mm. Slær 2400 högg/mín. og snýst 250 sn/mín. Mótor 680 wött. Fullkomin iðnaðarborvél meö tveimur föstum hraöastillingum, stiglausum hraöabreyti í rofa, og afturábak" og áfram stillingu. Patróna: 13 mm. Hraðastillingar: 0-750 og 0-1500 sn/mín. Mótor. 420 wött öflug beltaslípivél meö 4” beltisbreidd. Hraöi: 410 sn/mín. Mótor: 940 wött. Létt og lipur stingsög meö stiglausri hraðabreytingu í rofa. Hraöi: 0-3500 sn/min. Mótor 350 wött. Mjög kraftmikill og nákvæmur fræsari. HraÖi: 23000 sn/min. Mótor: 750 wött. . Þetta er hin heimsfræga Skil-sög, hjólsög sem viöbrugöið hefur veriö fyrir gæöi, um allan heim í áratugi. Þvermál sagarblaös: 7y4’’. Skuröardýpt: beint 59 mm, við 45° 48 mm. Hraöi: 4,400 sn/min. Mótor: 1.380 wött.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.