Morgunblaðið - 31.01.1980, Page 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 1980
C-keppnin í handknattleik
Flestir reikna með
sigri Frakklands
C—KEPPNIN í handknattlcik
hefst í vikunni og eins og áður
hefur komið fram fer hún fram i
Færeyjum. Hefur aldrei áður
verið haldið annað eins íþrótta-
mót í eyjunum. Þátttakendur
verða frá 9 Evrópulöndum og má
þar nefna Frakkland sem var í
A — flokki í heimsmeistarakeppn-
inni i Danmörku árið 1978. Einn-
ig eru þarna Austurriki, Noreg-
ur og ísrael sem verið hefur á
mikilli uppleið síðustu árin, gerði
m.a. jafntefli við ísland i
B—keppninni 1979.
Mikill áhugi er fyrir C—keppn-
inni, ekki aðeins í Færeyjum,
heldur einnig víðar, ekki síst í
þeim löndum sem eiga lið. Fær-
eyska útvarpið ætlar að lýsa
hverjum einasta leik og franska
sjónvarpið ætlar að taka upp alla
leiki Frakklands, enda reikna
Frakkar með því að sigra í keppn-
inni. Þá hafa fréttamenn víða að
boðað komu sína, þannig að segja
má að Færeyjar verði venju frem-
ur iðandi af lífi á næstunni.
Dómarar verða frá Noregi,
Svíþjóð, Danmörku, Hollandi og
Lúxemborg, að ógleymdu íslandi,
en þeir Karl Jóhannsson og Björn
Kristjánsson halda uppi heiðri
ALLMARGIR islenskir írjáls-
íþróttamenn .stunda nú æfingar
og keppni erlendis. í Kaliforníu
eru átta þeirra og æfa þeir af
kappi. Um siðustu helgi tóku þeir
þátt i sinni fyrstu keppni á
smámóti i Los Gatos. Gunnar
Páll Jóakimsson sigraði í 800
yarda hlaupi. fékk tímann 1,56,7
mín. Annar varð Stefán Hall-
grímsson, hljóp á 2,00,0 mín.
íslenskra dómara í C—keppninni.
Þeir fóru miklar krókaleiðir til
Færeyja, flugu fyrst til Kaup-
mannahafnar og þaðan hálfa leið
til baka, til Þórshafnar.
Athyglisvert er, að grænlenska
handknattleikssambandið (já, það
er líka til) sendir fulltrúa sína til
keppninnar. Ætla Grænlendingar
að láta að sér kveða á næstunni,
fulltrúi þeirra ætlar að leita eftir
samningum um landsleiki. Eins og
áður hefur komið fram leika
íslendingar og Grænlendingar
landsleik í knattspyrnu á komandi
sumri, þannig að Grænlendingar
færa út kvíarnar á fleiri sviðum
heldur en handknattleik.
Þórvaldur Þórsson hljóp 100
yarda á 10 sek. sléttum og 220
yarda 22,2 sek. Elsta íslandsmet-
ið í frjálsum íþróttum er nú met
Hauks Clausens í 100 yarda
hlaupi. sett í Edinborg árið 1949,
9,8 sek. Elías Sveinsson FH hljóp
100 yardana á 10,1 sek. Vésteinn
Hafsteinsson kastaði kringlu
46,04 mctra.
— þr.
Gunnar náði ágætum
tíma í Kaliforníu
• Ingi Stefánsson ÍS skorar gegn Val fyrr í vetur. Verður
athyglisvert að sjá hvernig ÍS reiðir af gegn Val i kvöld er liðin eigast
við.
Tekst liði ÍS að
standa í Val?
Weisweiler
fer til
Cosmos
EINN af þekktari knattspyrnu-
þjálfurum í Evrópu, Hannes
Weisweiler, þjálfari F.C. Köln í
V-Þýskalandi, mun gerast þjálf-
ari hjá bandaríska liðinu New
York Cosmos næsta keppnistíma-
bil. Weisweiler, sem er nú orðinn
60 ára gamall, mun skrifa undir
samning í París i dag, var haft
eftir forráðamönnum Cosmos.
Wrexham áfram
WR.EXHAM tryggði sér rétt til
þátttöku í 5. umferð cnsku bik-
arkeppninnar i knattspyrnu með
því að sigra Carlisle Utd. örugg-
lega 3—1. Gamla kempan Dixie
McNeil skoraði tvívegis og hefur
því skorað mark eða mörk í 10
bikarleikjum í röð, sem er um-
talsverður árangur. Fyrrum Liv-
erpool-leikmaðurinn Joe Jones
skoraði þriðja mark Wrexham,
en eina mark Carlisle skoraði
Phil Bonnyman.
Þá fór íram einn leikur í 3.
deild, Colchester sigraði Bury
með einu marki gegn engu.
í KVÖLD fer fram einn leikur í
úrvalsdeildinni í körfuknattleik.
Valsmenn leika gegn liði ÍS í
íþróttahúsi Kennaraháskólans
og hefst leikurinn kl. 20.00. Lið
Vals er sigurstranglegra í leikn-
ÍÞRÓTTAFÉLAGIÐ Þór á Akur-
eyri er 65 ára á þessu ári og i
tilefni ársins stendur félagið
fyrir mikilli iþróttahátíð i
Skemmunni i kvöld.
Fjölbreytt dagskrá kvöldsins
hefst klukkan 19.45 með blæstri
Lúðrasveitar Akureyrar og síðan
rekur hvert atriðið annað. Má þar
nefna að lið frá Karlakórnum
Geysi mætir liði Karlakórs Akur-
eyrar í handknattleik, handknatt-
leikslið ÍBA frá árunum 1965—70
um en allt eins má búast við því
að stúdentar geri hvað þeir geta
til þess að klekkja á Tim Dwyer
og félögum hans. Staðan í úrvals-
deildinni er nú þessi:
KR 12 9 3 1021- 920 18
Valur 12 9 3 1050- 999 18
UMFN 12 8 4 991- 961 16
ÍR 12 6 6 1146-1080 12
Fram 12 2 10 1059-1124 4
ÍS 12 2 10 1003-1100 4
leikur gegn landsliðsmönnum ÍBA
bæði í handknattleik og knatt-
spyrnu. Bæjarstjórn Akureyrar
keppir gegn æskulýðs- og íþrótta-
ráði bæjarins í boltaboðhlaupi og
loks keppa meistaraflokkslið Þórs
og Dalvíkur í handknattleik. Upp-
haflega átti Þór að mæta KA, en
KA getur ekki verið með vegna
bikarleiks gegn UMFA 1. febrúar.
Inn á milli verður skotið atriðum
þar sem áhorfendur eiga þess kost
að vinna til verðlauna með mark-
skotum.
Afmæli Þórs
í skemmunni
Erlendir leikmenn bannaðir
—nema um Rússa sé að ræða!
• Þessar tvær myndir eru frá bæjakeppni Reykjavíkur og Akureyrar
i íshokkí sem fram fór á Melavellinum um síðustu helgi. Á efri
myndinni má sjá til hægri einn besta leikmann Akureyrarliðsins,
Skúla Agústsson, fyrrum landsliðsmann í knattspyrnu. Skúli lét
aldurinn ekkert á sig fá og geystist hann eins og unglamb um allan
völlinn. A neðri myndinni stjakar einn leikmanna Reykjavikur við
Akureyringi í hita leiksins. Ljósm. Kristján.
FLEST lönd í vesturhluta Evrópu
leyfa knattspyrnufélögum sínum
að flytja inn erlenda leikmenn,
oftast þó ekki fleiri en tvo til þrjá
í senn. Oft eru þessir útlendingar
burðarásar liða sinna.
í Austur-Evrópu er þessu öðru
vísi farið. í öllum Austantjalds-
löndunum að einu undanskildu er
óleyfilegt að flytja inn erlenda
leikmenn. Enda sennilega ólíklegt
að knattspyrnumenn frá Vestur-
löndum hefðu áhuga á að ganga til
liðs við félög austantjalds. Eina
undantekningin er Austur-Þýska-
land. En það eru ekki Hollend-
ingar, Vestur-Þjóðverjar eða
Englendingar sem skipa útlend-
ingaherdeildir austur-þýskra
knattspyrnufélaga, heldur eru það
Rússar. í austur-þýsku deildar-
keppninni eru a.m.k. 17 sovéskir
knattspyrnumenn, allt menn úr
sovéska setuiiðinu